Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 52

Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. kl. 8-17, fös. kl. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsl a Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið »Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens fagn- aði 34. hljóðsversplötu sinni, sem nefnist Sjálfs- mynd, með tónleikum í Eldborg Hörpu í vikunni. Uppselt var á tónleikana og stemningin eftir því. Með Bubba komu fram hljómsveit, kór og söng- konurnar Bríet og GDRN, sem eru meðal vinsælustu söngkvenna landsins. Þær syngja með Bubba í laginu „Ást- rós“ á plötunni. Bubbi fagnaði nýjustu plötu sinni, sem nefnist Sjálfsmynd, með tónleikum í Hörpu Morgunblaðið/Eggert Glæsileiki Ekkert var til sparað til að gera tónleikana sem glæsilegasta í Eldborg Hörpu. Stuð Með Bubba komu fram hljómsveit, kór og söngkonurnar Bríet og GDRN. Menningarleg Eyjólfur Pálsson og Ingibjörg Þóra Gunnarsdóttir. Fjölskylda Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, ásamt eiginmanni sínum, Ali Parsi, og sonum þeirra, Alexander Parsi (t.v.) og Ísak Parsi (t.h.). Glöð Harpa Guðlaugsdóttir og Böddi biðu spennt eftir tónleikunum. Þriðja starfsár sumartónleikanna í Hallgrímskirkju í Saurbæ í Hvalfirði hefst á morgun, sunnudag, kl. 16 þegar Diddú og drengirnir koma fram og flytja sönglög úr ýms- um áttum. Drengirnir eru Sigurður Ingvi Snorrason og Kjartan Óskarsson á klarínettur, Frank Hammarin og Þorkell Jóelsson á horn, Brjánn Ingason og Snorri Heim- isson á fagott. Alls verða níu tónleikar í sumar hvern sunnudag kl. 16 frá 20. júní til 15. ágúst. „Allur ágóði rennur til styrktar staðnum sem með tímanum mun von- andi verða aðdráttarafl fyrir landsmenn sem og erlenda ferðamenn,“ segir í tilkynningu. Allar nánari upplýsingar um tónleika sumarsins má nálgast á Facebook-síðunni: Sumartónleikar Hallgrímskirkju í Saurbæ í Hvalfirði. Diddú og drengirnir á sumartónleikum Diddú, Sigrún Hjálmtýsdóttir Sjónmál nefnist sýning Jóns Thors Gíslasonar sem opnuð er í Gallerí Göngum í Háteigskirkju á morgun, sunnudag, milli kl. 14 og 17. Gengið er inn frá safnaðarheimilinu. „Jón Thor býr í Düsseldorf í Þýskalandi. Eftir nám við Staatliche Akademie der Bildenden Künste í Stuttgart (1989-1994) ílengdist hann í Þýska- landi og hefur síðan þá starfað að list sinni þar í landi. Jón Thor hefur sýnt verk sín víða um heim í gall- eríum, söfnum og á listamessum. Eftir langt hlé á sýningarhaldi hér heima sýndi Jón Thor í SÍM-salnum 2018 og aftur 2019 í Mokkakaffi við Skólavörðustíg,“ segir í tilkynn- ingu. Sýningin stendur til 18. júlí og er opin mánudaga til fimmtudaga milli kl. 10 og 16 sem og föstudaga milli kl. 10 og 15. Auk þess verður opið tvær síðustu sýningarhelg- arnar, laugardag og sunnudag, milli kl. 14 og 17. Der Jüngling Eitt verka Jóns Thors. Jón Thor sýnir í Gallerí Göngum Kammerhópurinn Jökla heldur tón- leika í Hannesar- holti á morgun, sunnudag, kl. 14. Á efnisskránni eru blásarakvartettar eftir B. Britten, J.C. Bach og B.H. Cru- sell ásamt frumflutningi á verki eftir Gísla Magnússon. „Hugmyndin að Kammerhópnum Jöklu kom frá Guðnýju Jónasdóttur sellóleikara og Gunnhildi Daðadóttur fiðluleikara á vormánuðum 2020 en loksins kemur hópurinn með ferskan andvara inn í íslenskt tónlistarlíf að lokinni Covid- dvöl. Hópurinn leggur áherslu á samstarf við íslensk tónskáld, leikur sér með íslenskan þjóðlagaarf og opnar fyrir nána samvinnu í litlum kammer- hópum. Hljóðfæraleikarar hafa allir sannreynt getu sína og leika í Sinfóníuhljómsveit Íslands en þykir mikilvægt að geta tekið þátt í íslenskri tónlistarmenningu með öðru sniði. Blönduð hljóðfæraskipan gerir okkur kleift að leika sjaldheyrð tónverk úr allri tónlistarsögunni í bland við nýja á tónleikum,“ segir í tilkynningu. Miðasala á tix.is. Sumarvindar blása hjá Jöklu á morgun Fersk Kammerhópurinn Jökla var stofnaður í fyrra. Ljóð í máli og myndum nefnist sýn- ing Margretar Schopka sem lýkur í Hannesarholti á morgun, sunnu- dag. „Þar sýni ég ljóð Matthíasar Johannessen, þar sem við sérhvert ljóð er annars vegar ljósmynd mín sem sýnir verk mitt þar sem ég nota kaffikorg og hveiti sem inn- grip í landslagið. Með tímanum hverfur inngripið og skilur engin spor eftir sig en landslagið verður óbreytt, ljósmyndin verður áfram vitnisburður um listaverkið í nátt- úrunni. Hins vegar hef ég mótað textann, bókstaf fyrir bókstaf, úr slýi úr íslenskum fjallalæk og dreg þannig fram hve efni ljóðanna er viðkvæmt en gerð bókstafanna um leið brothætt,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að ljóð Matt- híasar eru úr ljóðabókinni Vegur minn til þín „sem kom út í þýskri þýðingu árið 2011 undir nafninu Windhauch am Schwanenflügel sem þýða mætti sem Andblær við svanavæng, sem var kynnt á Bóka- sýningunni í Frankfurt en Ísland var í heiðurssæti á sýningunni það ár.“ Margret Schopka í Hannesarholti Samspil Frá sýningu Margretar Schopka.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.