Skólablaðið - 15.11.1977, Síða 9
Þriðja starfsár Fjalakattarins er hafið.
Fjölbreyttni einkennir val mynda, en þó er uppi-
staðan i dagskránni norrænar og þýskar kvikmyndir,
og er því nú kærkomið tækifseri til að kynnast
nánar mörgum af fremstu leikstjórum þýskrar nútima
nútíma-kvikmyndalistar. Sem dæmi má nefna Werner
Herzog, Volker Schlöndorff og fleiri. Norrasni
hlutinn er sænskar og danskar myndir. Hæst ber
hinar 6 sænsku, en fimm þeirra eru eftir Ingmar
Bergman. Þær eru BROS SUMARNÆTURINNAR (Sommer-
nattens leende, '55), SJÖUNDA INNSIGLIÐ (Ret
Sjunde Inseglet '56), AÐ LEIÐARLOKUM (Smultron-
stállet, '57), MEYJARLINDIN (Jungfraukállaren,
'60), ÞÖGNIN (TYSTUADEN, '6j). Þessar myndir eru
allar gerðar á átta ára tímabili og gefa því
góða mynd af Bergman sem leikstjóra á þessum árum,
en Bergman gerði fyrstu mynd sína, KRIS, 1945.
Sjötta myndin frá Svíþjóð er leikstýrð af
Viktor Sjöman og nefnist á íslensku SIFJASPELL.
Sögusvið myndarinnar er Svíþjóð á tímum Gústavs
III. og eins og nafnið bendir til,. fjallar hún
um systkini, sem eignast barn saman. Sjöman hepp-
»
nast mjög vel að ná anda átjándu aldarinnar og
fá það besta fram hjá leikurunum.
Tvær danskar myndir eru á dagskrá. Fyrst skal
nefna myndina SULT (Hunger, '48), en henni leik-
stýrði Henning Carlsen. Myndln er byggð á sjálfs-
ævisögu Knuts Hamsuns og tekin í Osló. Myndin
sýnir Hamsun þegar hann er að reyna að skapa sér
nafn sem rithöfundur. Aðalhlutverkiö leikur Per
Oskarsson, og þyklr hann fara á kostum. Hin mynd-
in er KÆRA IRENE (Kære Irene, '71), en viðfangs-
efni þessarar myndar er hinn sígildi þríhyrningur,
það er eiginmaður, eiginkona og elskhugi. Myndin
fjallar um unga danska konu, sem er virk í stjórn-
málum, og togstreitu hennar milli eiginmanns
annarsvegar, sem veitir henni það öryggi, sem hún
SULTUR/HENNING CARLSEN.
firirlítur, og hins vegar elskhugans, sem skortir
þá ákveðnl og framkvæmdasemi, sem hún krefst af
honum.
ÞYSKA BYLGJAN.
Hinn þýski hluti dagskrárinnar er að mestu
byggður á verkum þeirra ungu leikstjóra, sem reynt
hafa að endurheimta sess Þjóðverja í kvikmynda-
gerð. Upp úr 1966 fór þýsk kvikmyndagerð að koma
undir sig fótunum að nýju eftir langt hlé og á
síðari árum hefur hún blómstrað.
Sýndar verða myndir þriggja leikstjóra þessar-
ar nýju kynslóðar. Ber þar hæst nafnið Werner
Herzog, og verða sýndar fjórar myndir eftir hann
i vetur. Fyrst ber að nefna myndina LlFSMARK, en
hún er fyrsta mynd hans í fullri lengd. Önnur í
röðinni er myndin DVERGAR, og er hún einnig önnur
mynd Herzogs í fullri lengd. Mynd þessi fjallar
um dverga, sem hafðir eru í haldi, og uppreisn,
sem þeir gera. Þriðja myndin er TRÉSKERI STEINER
I SJÖUNDA HIMNI, sem er heimildarmynd um sviss-
neskan skíðastökkvara og þykir kvikmyndatakan
alveg einstök. Að lokum er ein nýjasta mynd hans
sem ber nafnið GLERHJARTAÐ og var framleidd '76.
Myndin er talin vera mjög persónuleg og jafnvel
nokkrum árum á undan sinni samtíð.
Annar þessara þýsku leikstjóra er Hans Júrgen
Syderberg. Sýnd verður hin umdeilda mynd hans,
LUDWIG, SALUMESSA MEYKONUNGS, en hún fjallar um
viðburðarríka ævi hins brjálaða konungs Bæjara-
lands.
Þriðji og síðasti þýski leikstjórinn er
Volker Schölondarff. Að þessu sinni verður sýnd
ný mynd eftir hann, er nefnist NAÐARSKOTIÐ. Sögu-
sviðið er Eystrasaltslöndin 1919. Eystlendingar
og Lithaugar eru að berjast fyrir frelsi sínu
eftir 200 ára kúgun.
Einnig verða sýndar tvær þýskar myndir frá
gamla tímanum. önnur þeirra er TÖSKILDINGSÓPERA
('31), sem Georg Pabst leikstýröi. Hin myndin er
FRU KRAUSSEN ('29), leikstýrð af Piel Jutzi.
0RS0N WELLES, HRISTISPJÖT 0G AÐRIR.
Þrátt fyrir það að dagskráin byggist upp á
þýskum og norrænum myndum, er ýmislegt fleira á
dagskrá. Sýndar verða þrjár myndir, gerðar eftir
verkum Shakespeares. Þær eru LÉR KONUNGUR, HAMLET,
sem Rússinn Grigori Kozintsev stjórnar, og
MACBETH, sem Orson Welles leikstýrir.
Frá Italíu kemur myndin I NAFNI FÖÐURINS,
gerð 1971 af Marco Bellocchio. Þetta er þriðja
mynd hans og ádeila á Italskar stofnanir. önnur
Itölsk mynd er HERBRAGÐ KÖNGULÖARINNAR, eftir
Bernando Bertolucci. Mynd þessi er dýrðlega fall-
eg bæði að uppsetningu og kvikmyndun og jafnvæginu
milli skýrleika í stílbrögðum og hvernig höfundur
dylur viöfangsefnið er náð betur hér en nokkru
sinni fyrr í verkum hans.
Breskar myndir eru nokkrar í dagskránni, svo
sem TUNGL YFIR STRÆTI, leikstjóri Joseph Despins.
Mynd þessi er söngvamynd, þar sem blandast saman
ofbeldi og blíða, þegar fjallað er um íbúa Notting
Hill og baráttu þeirra við leigudrottna, óknytta-
lýð og ráðamenn. Einnig kemur frá Bretlandi
WINSTANLEY, leikstýrð af Kevin Brownlow og Andrew
Mollo. Fjallar hún um tveggja ára tímabil í sögu
Digger-hreyfingarinnar é 17. öld, en fylgismenn
hennar fylktu sér um persónuna Gerard Winstanley
verk hans og hugmyndir.
GLADSTONBURRY HATlÐIN er tónlistarmynd, þar
sem meðal annarra koma fram Fairport, Traffio,
Family og fleiri.
HESTERSTRÆTI er fyrsta m-ynd leikstjórans og
rithöfundarins Joan Micklin Silvers. Fjallar hún
um líf innflytjenda af Gyðingaættum í New York
1897 og aðlögun þeirra að breyttum aðstæðum.
KING KONG. Frá Bandaríkjunum kemur sjálfur
King Kong, þ.e. gamla útgáfan ('33). Einnig
kemur þaðan myndin MARJOE. Fjallar hún um Marjoe
PIER PAOLO PASOLINI.
Gortner, sem er predikari. Hann hóf feril sinn
þriggja ára, er hann var vígður til prests í
kirkju föður síns.
Frá Frakklandi koma myndirnar NÚMER 2 og
HULDUMAÐURINN. Hinni fyrrnefndu leikstýrir Jean
Luc Godarol, og er þetta ein nýstárlegasta mynd
hans. Hin siðarnefnda er eftir Georges Franju.
Hlutur Tékkóslóvakíu í dagskránni er mynd
Juraj Herz, LÍKBRENNARINN. Myndin einkennist af
gálgahúmor. Hún segir frá manni, sem starfar við
líkbrennslu. Hann á konu, sem er Gyðingur, og
þar sem hann óttast afleiðingarnar, þá myrðir hanij
hana og síðan son þeirra. Að því kemur, að hann
verður yfirmaður líkbrennslunnar, og sýnir myndin
kæti hans, er hann hugsar til þeirra þúsunda
nviðskiptavina" sem fasisminn mun færa honum.
Einnig verður sýnd myndin LEYNDARDÖMUR LlF-
FÆRANNA eftir Dusan Makaveyev. Myndin segir sögu
tveggja stúlkna í Júgóslavíu og framtaksemi þeirr
þeirra við að breiða út kynlífspólitík. Að lokum
skal getið um myndina SAMUARI SJÖ eftir Akira
Kurosawa og svo HREINSUNARELDINN eftir Michael
Meschke.
Þar sem sýningar verða sennilega hafnar áður
en þetta birtist er ekki minnst é myndina
THEOREM eftir Pasolini; þó er þessi mynd í alla
staði athyglisverð.
Stefán Kristjánsson.
E.s. Eg vil eindregið hvetja alla nemendur
Menntaskólans í Reykjavík, til að láta ekki
starfssemi Fjalakattarins fara fram hjá sér;
hér er um að ræða kvikmyndir sem ekki verða séð-
ar annarstaðar i Reykvískri kvikmyndamenningu.
Okt. 1. 2.
6. 8. 9. ...
13. 15. 16. DRAUMUR OG MARTRÖÐ/ABE OSHEROFF & L.KLINGMAN.
20 . 22 . 23.
27 . 29 . 30.
Nov. 3. 5. 6. ...
10. 12. 13.
17. 19. 20.
24. 26. 27. LÉR KONUNGUR/GRIGORI KOZINTSEV.
Des. 1. 3. 4.
8. 10. 11.
15. 17. 18.
Jan. 5- 7. 8.
12. 14. 15.
19. 21. 22. ÞÖGLI MAÐURINN/JOHN FORD.
26. 28. 29.
Feb. 2. 4. 5.
9. 11. 12.
16. 18. 19.
23. 25. 26.
Mar. 2. 4. 5.
9. 11. 12.
16. 18. 19.
23. 25. 2’6.
- 30.
Aþb. 1. 2.
6. 8. 9.
13. 15. 16.
20 . 22 . 23.
27 . 29 . 30.
Maí. 4. 6. 7.
11. 13. 14.
18. 20. 21.
25. 27. 28.