Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 15.11.1977, Side 13

Skólablaðið - 15.11.1977, Side 13
Arið 1952 flutti Mann aftur til Sviss og hélt áfram að skrifa allt til danðadfigs, en hann dó áttræður að aldri 1955. Það er einkum áhugavert við sögur Thomasar Manns, hve reynslan hve reynslan varð honum drjúgt veganesti og lærdómsrík. Hann var i upphafi forhertur einveldissinni og taldi stríðið lausn á öllum vanda. En hann sá seinna hve mikil blekking þetta var, og umhverfðist í öllum skoðunum sinum og þjóð- félagsafstöðu. Batnandi manni er best að lifa. En sorgarsagan var sú að þeir voru svo. fáir, sem lærðu af reynslunni, flestir gripu höndum um tálið á ný. Fátt hefur birzt eftir Thomas Mann á islenzku. Helzt er það sjálfslýsingin, Tóníó Kröger,, þýdd af Gísla Asmundssyni. En fyrir þá sem lesa þýzku og ensku (en það eru velflestir menntaskólanemendur), er mjög auðvelt að verða sér úti um bækur Manns. Flestar bókaverzlanir skarta höfuðritum hans. Það er í raun menningarleg skylda, að brjótast í gegnum verk eins og Töfrafjallið (Der Zauberberg/The Magie Mountain). Mörgum finnst hann of kaldur, of fágaður, og segja að maðurinn skrifi eins og vísindamaður. Tvær dætur hans hafa skrifað hvor sína bókina um föður sinn. Mann-vinir hafa eflaust mikla ánægju af að kynna sér þær bækur báðar. Það er ekki hætta á því að þær kunni ekki að setja fram ljóslega sitt efni. Auk þess arfs, sem þær hafa þegið úr föðurkyni, var móðir þeirra sögð gáfuð kona. Mann-ættin er öll skrifandi; frægastur auk Thomasar Mann er Heinrich Mann. Um Thomas Mann látinn var sagt: nÞað skrifar enginn framar eins og Mann." Ég lýk þessum pistli á nokkrum orðum Thors Vilhjálmssonar um Mann: „Mann var mjög þýskur í anda á þann hátt, sem okkur er Þýskaland verð- mætt. Enda var hann Gyðingur. Hann var afar meþó- dískur andi: Enginn annar höfundur sem ég veit af hefði getað skapað verk eins og Doktor Faust- us. Lærdómur hans var yfirgengilegur og kjarntæk- ur. Hann var pedantískari en andskotinn er í sín- um vélum og nægði aldrei minna en rannsaka það, sem hann skrifaði um, til þeirrar hlítar að ýms- ir vel gerðir menn, sem eyða ævi sinni til að sérþroska sig við hin tilteknu viðfangsefni, vissu ekki betur en Mann." ÞÝSKALAND ... HRINGSNERIST ÞA A TINDI IGRIMMILEGRA SIGRA OG VAR I ÞANN MUND AÐ VINNA GERVALLAN HEIMINN FYRIR TILSTILLI ÞESS EINA SATTMALA, SEM ÞAÐ VAR AKVEÐIÐ I AÐ HALDA, SATT- MALANS, SEM ÞAÐ HAFÐI UNDIRRITAÐ MEÐ BLÖÐI SÍNU. NÚ HERST ÞAÐ FRA ÖRVÆNTINGU TIL ÖRVÆNTINGAR, UMSETIÐ DJÖFLUM, MEÐ HÖND FYRIR ÖÐRU AUGA OG STARIR A VOÐAVEKK MEÐ HINU. HVENÆR LENDIR ÞAÐ A BOTNI HYLDÝPISINS? HVENÆR GERIST KRAFTAVERKIÐ, SEM mAttur tröarinnar nær ekki að umfaðma, og hvenær mun ljös vonarinnar daga í algeru von- LEYSINU? EINMANA MAÐUR KROSSLEGGUR HENDURNAR OG SEGIR: „GUÐ VERI ÞINNI AUMU SAL LlKNSAMUR, VINUR MINN, FÖÐURLAND MITT." THOMAS MANN: DOKTOR FAST (niðurlag). -AMLOÐI HEFIR SAMÍfiL ar kröfur til skóla sem félags- og uppeldisstofn- ana. Af þessum ástæðum er skilningur þorra fólks hérlendls á félagslífi rangur. öllum finnst sjálf sagt, að þeir, sem stunda einhvers konar félags- störf, leggi á sig aukaálag. Fólk hugsar sem svo: „Nú, þetta er það, sem það sóttist eftir, svo gjöj ri það svo vel." Allt of oft vill líka brenna við, að þeir, sem að einhverju leyti taka þátt í félag- slífi skóla, verða annaðhvort aftur úr í námi eða sinna því starfi, sem þeir tóku að sér, ekki sem skyldi. Félagslíf og félagsstörf í skólanum sitja algerlega é hakanum, og vafamál er, hvort ekki veröur alveg að kasta þeim fyrlr borð, í stað þess að láta félagslíf véra í eðlilegu samhengi við námið (þó að ég sé ekki tilbúin að segja. hvernig það yrði í framkvæmd). Sjálfsagt þykir að öll félagssarfsemi sé utan ramma skólastarfsins, þótt augljóslega megi sjá, að samvinna, samræður. sjál fstæð vinnubrögð og ýmiss konar skapandi starf, hvort sem það er verklegt eða bóklegt, er ekki síður þroskandi og menntandi en margt 1 okkar fast^jótaða og oft þrautleiðinlega kennslufyrir- komulagi,- þó að í okkar gamla kerfi megi finna margt gott rétt eins og í öllu öðru skipulagi. Flest okkar hafa vit á að koma ekki nálægt .félagsstarfi nema þá einstöku sinnum til að skem- mta sér eina kvöldstund. En einstaka kjánar Hvern fjárann þýðir orðið félagslíf í hugum nem- enda í M.R.? Finnst nemendum þeir vera að sinna einhverri óljósri, gamalli hefð? Kannski er það einhver lynd þörf eða angi af uppreisn til þess að vinna og hugsa eitthvaö á eigin spýtur öðruvísi en allir aðrir, en láta ekki mata okkur látlaust á skólaverkefnum, sem við meðtökum samviskusamlega Jafnvel er hugsanlegt, að þeir, sem stunda félags- líf, séu „exhibitionistar", þótt flestum þyki það súr biti. aeði fyrr og síðar hafa ritnefndarmenn og fleiri kvartað um áhugaleysi skólafélaga sinna á almennu menningar- og félagslífi skóla okkar. Er þessi deyfð kannski sönnun þess, hversu vel skóla- kerfinu hefur tekist að gera okkur að góðum og þægum borgurum? Skólamál, þjóðfélagsmál og þar með pólitík eru mjög tengd öfl, þó að háværar raddir hafi verið um það, að pólitík og skóli eigi ekkert sameiginlegt. En svo að ég víki nú aftur að félagslífinu og hugsanlegum orsökum fyrir deyfð nemenda, þá er ekki sennilegt. að þar megi einungis um kenna leti og sinnuleysi nemenda gagnvart umhverfi sínu. Or- sakirnar hljóta einnig að vera hjá yfirvöldunum. Um það má svo deila, hvort einungis er um að kenna skólayfirvöldum eða yfirvöldunum, sem stjórna landinu hverju sinni. Mergur málsins er auðvitað sá, að skólayfir- völdin gera ekki ráð fyrir félagslífi. Og um leið gegna skólarnir ekki hlutverki sínu sem uppeldis- stofnanir eins og skyldi. A okkar dögum eru gerð- Legg ég nú til, að skiþuð verði ráð nemenda og kennara í hverjum sfcóla, sem skiluöu svo áliti hvert um sig, og unnið yrði svo úr þeim úrlausnum af fulltrúum nemenda og skólayfirvalda. Það yrði a.m.k. skref í áttina til úrbóta á þessu sviði,- þó að mlklu fleira en það, sem ég hef drepið hér á, þurfi að taka til endurskoðunar. Af þessum sökum má segja, að skólayfirvöld eigi næsta leik. En hvers eru þau megnug í ihald- sömu þjóðfélagi? En þrátt fyrir íhaldssamt þjóð- félag, tel ég, að skólayfirvöld geti komið dálit- ið meira en verið hefur lengi til móts við okkur nemendur og kennara. Efalítið mundi takast eðli- legra og skemmtilegra samband milli þessara aðil- ja, kennara og nemenda, ef þeir fengju fleiri tæk- ifæri en nú til að vinna saman að þessum verkefn- um. Eg er viss um, að báðum aðiljum líkar illa þau skipti eins og nú er komið málum, en sætta sig við það af gömlum vana.

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.