Skólablaðið - 15.11.1977, Síða 32
OUID NOVI
Elne klelne Revolution.
Byltingaröflin í skólanum hafa loks náð takmarki
sinu. Öðum smádrengjum sjúkum í blóð og ofbeldi
tókst með hjálp verkfallsvarða BSRB að hafa Guðna
rector Guðmundsson undir og hrekja kennara og
áhugasama og iðna nemendur á flótta, voru þessir
aðilar ekki ánægðlr fyrr en durum skólans hafði
verið læst og öll kennsla felld niður, þá loks
hrósuðu þeir sigri. Ofbeldið hafði borið sigur-
orð af lærdómsfýsninni, upplausn sigrað lög og
reglu.
Hve langt á að liða þessum stjórnleysingjum að
ganga? í>urfa þeir að drepa einhvem, brenna
skólann, sprengja alþingishúsið, svivirða dóm-
kirkju, eyðileggja lýðveldið og rasna iðnrekendum
áður en yfirvöldin gera sér ljóst að þessa menn
verður að taka úr umferð og taka ekki á þeim
með neinum silkihönskum, með illu skal illt út
reka. Var fyrir þessa menn sem upplýstir borgarai
þessa lands börðust 1874, 1918, 1933» 1944 og
1949? NEIo’
Vér krefjumst tafarlausra aðgerða. Vestrænni
menningu verður að bjarga. Minnumst frumherja,
Jóns Sigurðssonar, Thórs Jensen, Bjama Benedikts-
sonar, Einars Benediktssonar og Haralds Böðvars-
sonar, sem vér berjum á postulum eyðileggingar
og stjórnleysis.'
Rís upp þú unga íslands merki: með lögum skal
land byggja.'
Ný von.
Að undanfömu hafa spilling og úrkynjun riðið
húsum hér í Menntaskólanum, á fallanda fæti hafa
verið góðir siðir og fornar dyggðir, viðurkenndu
og velmetnu lífsviðhorfi hefur verið varpað fyrir
róða og hefur rétthugsandi mönnum blöskrað þessi
þróun.
En nú er öldin önnuríJ!
Stofnað hefur verið framsækið ungfascistafélag
hér i skólanum, skal það snúa vöm i sókn og
kveða niður allar kenndir til marxisma, anarkisma.
borgaralegrar frjálshyggju og annarra ummerkja
úrkynjunar og lágkúru og hefur félagið það að
leiðarljósi að tilgangurinn helgi meðalið.
Þetta félag, sem nefnt er II Futuro, lýtur
leiðsögn trausts og ástsæls ungherja hér í
skóla, II Duce er hann kallaður af samherjum
jafnt sem andstæðinum, samherjar hans segja þetta
nafn fullir trúnaðartrausts og elsku, andstæðing-
arnir fullir hatri og ótta. II Duce hefur þegar
gert þann usla í herbúðum óvinanna að vart munu
þeir eiga sér viðreisnar von, þó er ástæða til
að minna alla ungfascista á að sofna ekki á verð-
inum og víkja hvergi af vegi félagsins og leið-
togans til þess að illum öflum niðurrifs og eyði-
leggingar takist ekki að hreiðra um sig á ný í
skólanum.
Að lokum: Til allra ungfascista:
Fylgjum foringjanum, hinum goðumlíka II Duce,
og félagi hans, II Futuro, til sigurs.' Berjum
á andstæðingunum, kommonistum, anarkistum, júðum,
negrum, kynvillingum, námsmönnum, "menningar-
róttæklingum", abyssiníumönnum, dvergum, brúnum
börnum, mótmælendum, mormónum, guðleysingjum,
fjölgyðismönnum, heiðingjum, hreyfihömluðum, hug-
fötluðum, svíum og öllum þeim sem ekkl teljast
til hinnar goðlegu hreyfingar fascista.' Avanti.'
Til sigurs.'
Alldóre Torgeiri
gialdcheri
di Futuri.
GLATAÐUR VINUR
AMICUS RARA AVIS EST.
við vorum vinir
og höfðum verið svo lengi sem ég mundi
enn þá kom HtJN.......
jáj hún (sicJ) sem tók hann frá mér
hann var ekki lengur venör
og það voru ekki lengur föstudagar
hjá Alfredó skransala.
Spurt er (með hliðsjón af þríburafæðingunni
í Grímsey), hve marga aðgöngumiða á ritnefndar-
dansleikinn ex-verðlaunahafi í iðni, siðprýði og
háttvísi (hjá Kiwanisklúbbnum pabba síns) hafi
eiginlega á prjónunum að fá...
Sagan af litla hestinum og hvíta riddaranum.
Einu sinni fyrir langalangalöngu átti ung og
fögur mær heima hjá ömmu sinni í litlu husi í
skóginum. Hún var voðavoðahamingjusöm hjá ömmu
sinni og þeim leið báðum voðavoðavel. En þegar
yfir þjóðina dundu miklar hörmungar, hor og land-
skjálftar varð gamla amman að lata ungu stulkuna
frá sér þvi hún átti ekki lengur mat handa þeim.
Litla stúlkan fór á vergang og kynntist vondu
fólki, þar á meðal var gömul og ljót garlakerlíng
sem garlaði hana að helli sínum og breytti henni
þar í lítinn hest vegna þess að henni þóttu
hrossabjúgu hið mesta lostæti. En sem garlanomii
mundaði sveðjuna bar þar að fátækan hvítan ridd-
ara nýkominn heim úr Jórsalaför, hann var hest-
laus og er hann heyrði neyðaróp veslings mærinnar
"Ég er bara litill hestur.'"
aumkaði hann sig yfir litla hestinn og frelsaði
hann úr höndum garlakerlíngarinnar. Æ síðan hafa
litli hesturinn og hvíti riddarinn fylgst að og
fer mjög vel á með þeim, úti er ævintýri.
BAD LOSER?
Hvað var Jón Bragi eignlega að reyna að segja
á fyrsta skólafundinum?
EXSPECTOR?
Hver er Amlóðl? - Haft er eftir ólygnum, að
slóðir höfundar greinar um Thomas Mann megi rekja
allt til Freiburg im Breisgau...
HOOfíAY FOfí THEU.S.A.l
Nýlega tilkynnti geimferðastofnun Bandaríkjanna
um wal á nýjum hópi geimfara sem leggja skulu
aðrar reikistjörnur og sólir undir forsjá Guðs
eigins lands. Wakti það sérstaka athygli að meða]
hinna nýju geimfara war einn íslendingur og er
það að sögn mikill heiður að komast í þennan hóp
útwaldra. Er þar um að ræða Kristin Andersen
sem mun werða radíó-amatör geimfarsins Argonaut I
sem leggur af stað í sina fyrstu ferð fljótlega.
A meðfylgjandi mynd má sjá Kristin Andersen
og Jimmy Carter forseta U.S.A. en þeir eru miklir
winir og hafa lengi werið.
RURUS OG PREST(YNJU)DOTTIRIN
I nánd við bókhlöðu þjóðarinnar á Hverfisgötu
stendur eilitið hús; eitt af síðustu vígjum ísl.
tændamenningar. Þar býr sveitapllturlnn. Rækt
hans við arfleifð ungmennafélaganna er til fyrir-
myndar öllum þeim, er telja vit og vensl æðri
víni og vífi. Pilturinn hefir frá blautu barns-
beini lagt land undir fót og verður lengi í minn-
um höfð lystirelsa hans og fáeinna útvaldra í
garðland Reykvíkinga við Korpúlfsstaði. Hann hef-
ur framar öðrum á valdi sínu samrasmt göngulag
fomt, fer álútur, einn saman, og fylglst þannig
með viðgangi og vextl móður jarðar.
Eftir þriggja ára strangt nám við virðuleg-
ustu menntastofnun þjóðarinnar fór þó ekki hjá
þvi að ys og þys borgarlífsins, spilling æskunnar,
og þó einkum og sérílagi lestir latínunemandi
bekkjarfélaga hans síuðust inn í mjólkurhvít hug-
arfylgsni þessa eðlisborna fjósamanns. Hann leit-
aði eftir félagskap fáklæddra dansmeyja á öldur-
húsum. Rauf templaraeiðinn, sem hann sór bamungui
I ofanálag freistaði hann svo siðprúðra skólasyst-
ra sinna, sem enga vansa máttu vita, með því að
vera til fara líkt og náradansmær úr austurlöndum
efri...
Eitt sinn var stráksi á leið i vertshús það,
er síðarmeir var ort um „nú er hún Tjamarbúð
stekkur". I ölblindu villtist hann þó inn í heljai
mikla beige-lita höll, er rís við æðri enda Aust-
urstrætis og er kennd við samtök, stofnuð í eina
tið af General Booth. Og viti menn, sem hann sat
þar inni, lyktandi af saurlífi, gekk til hans
stúlka, björt yfirlitum. Skein innri friður úr
ásjónu hennar, var hún íklædd einkennisbúningi,
svörtum að lit, búningi, sem vígður er friði og
fyrlrgefnlng Krists Jesú. Hún tuggði togleður af
miklum móð. Til hennar orti hann svo drápu mikla:
1 stormi æstum skjól mitt er
ó, Yrsa, þú og ættin þín.
Afi þinn af öllum ber,
ekki er slðri mamman fín.
Veit ég þinna vensla tal,
um Vimma, Gylfa og Steina spaka.
Það er mikið ættarval,
ég ætla þig til konu að taka....