Fréttablaðið - 23.10.2021, Qupperneq 2
Þá er gripið fyrr inn í, einstakl-
ingurinn þarf síður að leggjast
inn og batinn birtist að öllum
líkindum fyrr.
Helga Sif Friðjónsdóttir,
sérfræðingur í geðhjúkrun
Gert er ráð fyrir 161
gesti í sæti á 1. hæð og
28-50 gestum í kjallara.
Markaregn í Laugardalnum
Dagný Brynjarsdóttir skoraði eitt marka íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta þegar liðið vann glæsilegan 4-0 sigur gegn Tékklandi í undankeppni HM 2023 á
Laugardalsvelli í gær. Svava Rós Guðmundsdóttir og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir voru einnig á skotskónum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Nýtt teymi byggt á hug-
myndafræði Frú Ragnheiðar
tekur til starfa og mun veita
fólki með fíkni- og geðvanda
þjónustu. Laufeyjarnafnið
skírskotar til „ömmunnar“ í
Grjótaþorpinu.
lovisa@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Í byrjun október
tók til starfa á meðferðareiningu
fíknisjúkdóma Landspítalans við
Hringbraut nýtt teymi, sem kallast
Laufey – nærþjónusta fíknimeðferð-
ar og þjónustar fólk sem glímir við
bæði alvarlegan fíkni- og geðvanda.
Teymið er nefnt í höfuðið á Lauf-
eyju Jakobsdóttur eða „ömmunni“
í Grjótaþorpinu eins og margir
þekktu hana.
Hópurinn sem teymið þjónustar
telur líklega um 50 til 100 manns.
„Við erum að taka við teymi
sem hefur sinnt fólki sem glímir
við alvarlegan samþættan vanda
og byggjum áframhaldandi þróun
þjónustunnar að töluverðu leyti
á reynslu Frú Ragnheiðar og vett-
vangsþjónustu sem þar er veitt,“
segir Helga Sif Friðjónsdóttir, sér-
fræðingur í geðhjúkrun í geðþjón-
ustu Landspítalans.
„Markmið okkar er að færa þjón-
ustuna út af spítalanum og til fólks-
ins,“ segir Helga Sif og segir að það
séu margar rannsóknir sem bendi
til þess að fólk nýti betur þjónust-
una þegar hún er nær og að þannig
sé hægt að koma í veg fyrir að alvar-
leiki vandans haldi áfram að þróast.
„Þá er gripið fyrr inn í, einstakl-
ingurinn þarf síður að leggjast inn
og batinn birtist að öllum líkindum
fyrr,“ segir hún.
Helga Sif segir að með þessum
hætti sé hægt að bæta lífsgæði þessa
hóps til muna. Þjónusta við þennan
hóp var áður á göngudeild á Kleppi
sem er staðsettur á Kleppsgörðum
fjarri búsetukjörnum og gistiskýl-
um og það hafi einnig ýtt undir
mikilvægi þess að færa þjónustuna
á Hringbraut því það hafi hentað
hópnum illa að ferðast á Klepp.
„Auk þess, ef fólk þarf á innlögn
að halda, þá er bráðaþjónusta og
móttökudeildir geðþjónustunnar á
Hringbraut, þannig að það er mikil-
vægt líka,“ segir Helga Sif.
Þjónusta teymisins verður þó lík-
lega umfangsmeiri og ef vel gengur
sér Helga Sif fram á að geta útvíkkað
hana enn frekar og þá fyrir f leiri
markhópa.
„Við erum búin að óska eftir því
að fá bíl, verðum með nálaskipta-
þjónustu og munum gera hlutina
öðruvísi en við höfum verið að gera
í geðþjónustunni áður,“ segir hún.
Helga Sif segir að með því að bæta
þjónustu við hópinn með þessum
hætti sé gert ráð fyrir að innlögnum
fækki, því að vandi notenda verður
ekki eins alvarlegur ef þeir fá þjón-
ustu við hæfi á réttum tíma.
„Ef þetta þróunarverkefni gengur
vel þá er nauðsynlegt að skoða hvort
og þá hver tækifærin eru til útvíkk-
unar á þjónustunni til þeirra sem
eru í virkri vímuefnanotkun en
ekki með eins alvarlegan geðrænan
vanda.“ ■
Laufeyjarteymið fer til fólks
með fíkni- og geðvanda
Helga Sif Friðjónsdóttir er brautryðjandi á vett vangi skaða minnkunar fyrir
fíkni efna neyt endur og aðra jaðar setta hópa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
gar@frettabladid.is
SKIPULAGSMÁL Til stendur að inn-
rétta mathöll í Pósthússtræti 3 og 5.
Að því er fram kemur í umfjöllun
byggingarfulltrúans í Reykjavík um
umsókn fasteignafélagsins Reita á
að breyta núverandi starfsemi á 1.
hæð í mathöll með alls tólf rekstrar-
einingum. Gert sé ráð fyrir 161 gesti
í sæti á 1. hæð og 28 til 50 gestum í
kjallara.
Breytingar feli meðal annars í
sér nýja glerbyggingu á baklóð og
endurbyggingu á skúr á lóðinni.
Byggingarfulltrúi hefur nú veitt
samþykki fyrir breytingunum. Ýmis
starfsemi er nú í Pósthússtræti 3 og
Hitt húsið er með aðsetur í Pósthús-
stræti 5 þar sem Pósturinn var eitt
sinn með höfuðstöðvar sínar.
Nú þegar eru í borginni mathallir
í Borgartúni, á Höfða, Hlemmi og á
Granda. ■
Innrétta mathöll í Pósthússtræti
Pósthússtræti 3-5.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
adalheidur@frettabladid.is
DÓMSMÁL Ákvörðun um áfrýjun
nýuppkveðins dóms í Rauðagerðis-
málinu liggur nú hjá ríkissaksókn-
ara. „Það sem liggur fyrir er að fara
yfir dóminn og gögn málsins. Að því
loknu verður tekin ákvörðun um
það hvort málinu verður áfrýjað,“
segir Sigríður Friðjónsdóttir ríkis-
saksóknari aðspurð um næstu skref.
Nokkrar leiðir varðandi áfrýjun
málsins eru mögulegar. Þótt Angj-
elin Mark Sterkaj hafi játað að hafa
orðið Armando Bequiri að bana í
Rauðagerði 13. febrúar og fengið
16 ára fangelsisdóm fyrir morðið,
er dómum í manndrápsmálum
nær undantekningarlaust áfrýjað,
annaðhvort af hinum dómfellda
eða ákæruvaldinu.
Þrjú voru sýknuð af ákæru fyrir
manndráp í málinu. Til greina
kemur að ákæruvaldið áfrýi dómi
hvað þau öll varðar eða hluta
þeirra. ■
Ríkissaksóknari
fer yfir dóminn
og gögn málsins
Sigríður Frið-
jónsdóttir ríkis-
saksóknari
2 Fréttir 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ