Fréttablaðið - 23.10.2021, Qupperneq 6
Formaður Skotvís segir kröfu
dýraverndunarsinna um
rjúpnaveiðibann úr lausu
lofti gripna. Friðun hafi engu
skilað. Formaður Jarðarvina
er ósammála og segir veið-
arnar fásinnu.
ser@frettabladid.is
NÁTTÚRA Áki Ármann Jónsson, for-
maður Skotvís, segir kröfu dýra-
verndunarsinna um rjúpnaveiði-
bann vera úr lausu lofti gripna, enda
ógni veiðimenn ekki stofninum,
heldur miklu fremur náttúrulegar
sveiflur, rétt eins og vistfræðingar
hafi bent á.
Fréttablaðið hefur síðustu daga
fjallað um afkomu rjúpnastofnsins
á Íslandi, en samkvæmt mælingum
er hann sá minnsti frá því mælingar
hófust 1995 – og telja Jarðarvinir,
sem berjast gegn veiðinni, að hann
sé nú minni en árið 2002 þegar
þáverandi umhverfisráðherra afréð
að banna veiði um nokkurra ára bil.
Áki Ármann segir þá friðun
engu hafa skilað enda enginn
samanburður til staðar til að meta
árangur af henni. Veiðidögum hafi
hins vegar fækkað eftir 2005, úr 69
niður í 22 og sölubann sett á. Einn-
ig hafi áróður Skotvís um hóflegar
veiðar borið árangur því nú heyri
magnveiði sögunni til. Veiðin hafi
dregist saman um 50 til 60 prósent
frá árunum fyrir sölubann og veiði-
álagið minnkað úr 30 prósentum
niður í liðlega 10 prósent.
Þessu andæfir Ole Anton Bielt-
vedt, formaður Jarðarvina, sem
berst fyrir alfriðun rjúpunnar,
en hann segir Skotvís láta einskis
ófreistað til að réttlæta veiðar sínar
og dráp á saklausum og varnar-
lausum dýrum, sér til skemmtunar:
„Nú fullyrða þessir menn að veiðar
fimm þúsund manna hafi engin
áhrif á stofn rjúpu. Þetta er auðvitað
hrein fásinna,“ segir Ole Anton, en
það sannist best á því að stofn rjúpu,
sem var hruninn vegna veiða árið
2002, hafi rokið upp við friðun 2003
og 2004, rétt eins og upplýsingar
vistfræðinga sýni.
Áki Ármann lætur þessi orð ekki
slá sig út af laginu: „Rjúpunni stafar
lítil ógn af okkur veiðimönnum
þegar stóra myndin er skoðuð, og
vel að merkja, hafi menn áhyggjur
þá er þegar búið að grípa til róttæk-
ustu aðgerða í þessum efnum sem
sögur fara af, en veiðin nú er tvöfalt
minni en fyrir veiðibannið,“ segir
Áki Ármann og leggur áherslu á að
félagsmenn Skotvís vilji umfram allt
stunda ábyrgar veiðar.
„Það skal þó sagt hér að viðkomu
rjúpunnar hefur hrakað mikið á
nýrri öld, frá því að hún var með 8,6
unga að meðaltali niður í 6,4. Það er
mjög alvarlegt og þarf að rannsaka
betur,“ segir Áki Ármann og áréttar
að veiðin hafi líka minnkað, eða úr
69 þúsund rjúpum, fyrir veiðibann,
í 20 til 30 þúsund eftir það.
En óttast hann að umhverfis-
ráðherra láti undan þrýstingi og
banni rjúpnaveiðar í vetur? „Nei,“
segir hann, „enda eru veiðarnar
sjálf bærar að mati Náttúrufræði-
stofnunar og Umhverfisstofnunar
að teknu tilliti til varúðarreglu – og
á meðan svo er veiðum við rjúpu.“ ■
Rjúpunni stafar lítil
ógn af okkur veiði-
mönnum þegar stóra
myndin er skoðuð.
Áki Ármann
Jónsson,
formaður
Skotvís
Leiðtogi í þjónustu
og upplifunum
Hefst 22. nóvember
Námið kennir aðferðir til að bæta upplifun viðskiptavina og býr til þekkingu og færni
sem hjálpar fyrirtækjum að auka ánægju og viðskiptatryggð og þannig tekjur.
Nánari upplýsingar: www.akademias.is/service
Rjúpnaveiðimenn segja að alfriðun
skili engu til verndunar stofnsins
Formaður Skotvís og Jarðarvina eru á öndverðum meiði hvað alfriðun á
rjúpnastofninum varðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
gar@frettabladid.is
SKIPULAGSMÁL Byg gingar f ull-
trúinn í Reykjavík hefur heimilað
byggingu fjögurra til sex hæða
fjölbýlishúss á Háaleitisbraut 1. Er
leyfið veitt til lóðarhafans sem er
Sjálfstæðisflokkurinn.
Um verður að ræða steinsteypt
hús, klætt málmklæðningu, með
alls 47 íbúðum. Atvinnurými
verður í hluta jarðhæðar og húsinu
fylgir bílakjallari.
Eins og kunnugt er eru höfuð-
stöðvar Sjálfstæðisf lokksins, Val-
höll, á Háaleitisbraut 1. ■
Sjálfstæðismenn
byggja fjölbýli
Háaleitisbraut 1. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
hjorvaro@frettabladid.is
KVIKMYNDIR „Það eru engin orð
sem geta lýst hversu sorgmæddur ég
er og hversu mikið áfall það er fyrir
mig að þessi skelfilegi atburður hafi
átt sér stað og Halyna Hutchins hafi
verið tekin frá okkur í blóma lífsins.
Hutchins var allt í senn eiginkona,
móðir og mikilsvirtur samstarfs-
maður,“ segir Baldwin í yfirlýsingu
sinni en slysaskot hans varð Hatch-
ins að bana.
„Ég mun vinna náið með lögreglu
við rannsókn málsins. Þá hef ég
sett mig í samband við eiginmann
hennar og boðið honum aðstoð
mína,“ segir hann.
Baldwin taldi sig vera að skjóta
púðurskoti úr leikmun en þess í
stað hæfði raunverulegt skot kvik-
myndaleikstjórann og varð henni
að bana. Nánar má lesa um slysa-
skotið á bls. 58 í blaðinu. ■
Alec Baldwin
harmi sleginn
birnadrofn@frettabladid.is
TRÚMÁL Nýtt trúfélag, Menningar-
félag gyðinga, hefur verið skráð
í trúfélagsskráningu þjóðskrár
og eru þar 38 meðlimir skráðir.
Menningarsetur múslima hefur
verið afskráð. Nú eru skráð alls 53
trú- og lífsskoðunarfélög í þjóð-
skrá.
Skráðum einstaklingum í þjóð-
kirkjunni fækkaði um 94 frá 1.
desember á síðasta ári þar til
þann 1. október síðastliðinn. Nú
eru 229.623 einstaklingar skráðir í
þjóðkirkjuna, sem er fjölmennasta
trúfélag landsins.
Næst f jölmennast a t r ú félag
landsins er Kaþólska kirkjan með
rétt rúmlega 14.700 skráða með-
limi og Fríkirkjan í Reykjavík með
um tíu þúsund meðlimi.
Meðlimum í Siðmennt hefur
fjölgað mest samkvæmt skrán-
ingum í trú- og lífsskoðunarfélög
hjá Þjóðskrá Íslands. Þeim fjölgaði
um 334 meðlimi á tímabilinu frá 1.
desember 2020 til 1. október 2021,
á sama tímabili fjölgaði um 311
meðlimi í Ásatrúarfélaginu.
Mest fækkun var í félagi Zúista
en þeim fækkaði um 225 meðlimi
á umræddu tímabili.
Vitund er það trúfélag sem
hefur fæsta skráða meðlimi, þeir
eru einungis þrír talsins. Í félag-
ið Nýja Avalon eru skráðir fimm
meðlimir.
Í upphafi þessa mánaðar voru
4,6 prósent landsmanna skráð
utan trúfélaga, eða rúmlega 29
þúsund manns. ■
Menningarsetur múslima afskráð
Þann 1. október voru 229.623 ein-
staklingar skráðir í þjóðkirkjuna, sem
er fjölmennasta trúfélag landsins.
Halyna HutchinsAlec Baldwin
6 Fréttir 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ