Fréttablaðið - 23.10.2021, Síða 16
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Sif
Sigmarsdóttir
n Mín skoðun
n Gunnar
Hann þótti
traustur og
trúverð-
ugur af því
að alvaran
að baki
orðum
hans var
þrungin
merkingu.
Veröldin
stendur á
barmi hyl-
dýpis en
váin sem
við sjáum
er hugsan-
legur
skortur á
Hvolpa-
sveitar-
varningi
fyrir jólin.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
Fjölskyldunni var boðið í fimm ára afmæli
nýverið. Boðskortinu fylgdu reglur um
afmælisgjafir. Þær voru afþakkaðar. Gætu
gestir hins vegar ekki setið á sér mátti færa
afmælisbarninu eitthvað ætilegt eða eitthvað
notað úr eigin fórum. Ég blótaði ábyrgðar-
fullum, loftslagsmeðvituðum foreldrunum
í sand og ösku. Skildu þau ekki að við sem
höfðum þekkt dóttur þeirra frá fæðingu vild-
um tjá væntumþykju okkar í gljáfægðu harð-
plasti, batteríknúnu með blikkandi ljósum?
Skildu þau ekki að útivinnandi foreldrar hafa
ekki tíma til að fara í gegnum skápana í leit að
einhverju heillegu sem gengið gæti í endur-
nýjun lífdaga og þess vegna fann Amazon
upp „one-click buy“ takkann?
Sextíu og tveir dagar eru nú til jóla. Andi
Ebenezer Scrooge svífur hins vegar yfir
vötnum hér í Bretlandi þar sem ég bý. Breskir
kaupmenn vöruðu nýverið við aðsteðjandi
vá. Vöruskortur gæti skollið á fyrir jólin
vegna tafa á vöruflutningum. Greiningar-
deild Shore Capital telur líkur á að jólagjafir
barna muni ekki standast væntingar. Helst
sé hætta á skorti á leikföngum og rafmagns-
tækjum og spáir fjárfestingasjóðurinn því að
jólin „gætu orðið martraðarkennd“.
Líf eða lífsstíll
Vegna heimsfaraldursins vörðum við fjöl-
skyldan síðustu jólum í London en ekki á
Íslandi. Við reyndum þó að líkja eftir íslensk-
um jólum. Við höfðum uppi á tegund af græn-
um baunum í dós sem voru jafn maukkenndar
og Ora-baunir. Við keyptum sænskar pipar-
kökur, þýskt rauðkál og reykta andabringu
sem við töldum okkur trú um að smakkaðist
eins og hangikjöt. Á miðju jólaborðinu var
hins vegar tóm sem ekki tókst að fylla.
Í heilt ár hef ég hlakkað til að gæða mér á
íslenskri rjúpu um jólin. Ég varð því hvumsa
þegar fréttir bárust af ástandi íslenska
rjúpna stofnsins sem hefur sjaldan mælst
minni. Ég bölvaði Náttúrufræðistofnun
Íslands í sand og ösku sem lagði til tak-
markaðar veiðar. Skildu þau ekki að rjúpa er
órjúfanlegur hluti jólanna? Skildu þau ekki
að ég fékk enga rjúpu í fyrra svo að ég á skilið
að fá rjúpu í ár?
Stórhátíðir, jól og afmæli hverfast um
hefðir. En það er ekki aðeins á tyllidögum
sem við viljum hafa hlutina eins og þeir hafa
alltaf verið.
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna,
COP26, fer fram í Glasgow í nóvember. Gögn,
sem lekið var til fjölmiðla í lok vikunnar,
sýna að fjöldi þátttökuríkja þrýstir nú á
um breytingar á skýrslu vísindamanna um
hvernig berjast megi gegn loftslagsvánni.
Ráðunautur olíumálaráðuneytis Sádi-Arab-
íu krefst þess að öllum ummælum um „að
brýn þörf sé á minnkun á hvers konar losun“
sé eytt úr skýrslunni. Brasilía og Argentína,
helstu nautakjötsræktendur heims, leggjast
gegn því að minnst sé á mikilvægi þess að
dregið sé úr kjötneyslu.
Baráttukonan Greta Thunberg er svartsýn
í aðdraganda COP26. Hún sakar þjóðar-
leiðtoga um að neita „að viðurkenna að við
stöndum frammi fyrir vali milli þess að
bjarga lífi á jörðinni eða lífsstíl sem stendur
ekki undir sér“.
Svartsýni Gretu er á rökum reist. Veröldin
stendur á barmi hyldýpis en váin sem við
sjáum er hugsanlegur skortur á Hvolpa-
sveitarvarningi fyrir jólin. Við smellum á
„one-click“ gereyðingartakkann á Amazon
jafnvel þótt við vitum að tímanum sem
sparast stelum við af komandi kynslóðum.
Rjúpa, olía, nautasteik; við erum öll Sádi-
Arabía inn við beinið.
Breytingar eru ógnvekjandi. En þótt hlut-
irnir verði öðruvísi þurfa þeir ekki að vera
verri. Fimm ára vinkona mín var himin-
lifandi með notaðan kjól af dóttur minni í
afmælisgjöf. Því eina gjöfin sem skiptir máli,
einu væntingarnar sem þurfa að standast,
eina tómið sem þarf að fylla, er framtíðin. n
Við erum öll Sádi-Arabía
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
• Austurströnd 14
• Hringbraut 35
PREN
TU
N
.IS
NÝBAKAÐ
BRAUÐ
ALLA DAGA
.......................................
www.bjornsbakari.is
Það er ekki úr vegi að máta þýsk
stjórnmál við þau íslensku nú um
stundir enda leið ekki nema dagur
á milli þingkosninganna í þessum
löndum í síðasta mánuði, en ólíkt
Íslandi verður skipt um stjórn í Þýskalandi
– og nýr kanslari jafnaðarmanna tekur við
stjórnartaumunum eftir 16 ára valdatíma
Angelu Merkel og kristilegra demókrata í
landinu.
Tímamótin eru augljós. Einhver hógværasti
maður þýskra stjórnmála, Olaf Scholz, mun
leiða nýja ríkisstjórn jafnaðarmanna, græn-
ingja og frjálsra demókrata á næstu árum,
en fréttaskýrendur telja að þessi lágvaxni og
granni borgarstjóri frá Hamborg verði líklega
stærsti og sterkasti leiðtogi Evrópu á næstu
árum. Og það án alls hávaða og láta.
Auðvitað er löngu vitað að Þjóðverjar kjósa
öðru fremur af skynsemi og láta upphrópanir
sem vind um eyru þjóta. En kosningasigur
Scholz er engu að síður merkilegur. Hófstilltur
málflutningur hans í aðdraganda kosning-
anna féll í kramið. Hann þótti traustur og
trúverðugur af því að alvaran að baki orðum
hans var þrungin merkingu.
Enda fór svo að hann lyfti jafnaðarmönnum
úr fimmtán prósenta fylgi í tæplega 26 pró-
senta stuðning landsmanna, upp fyrir gengi
Kristilegra demókrata sem borið hafa höfuð
og herðar yfir aðra f lokka um langt árabil.
Skilaboð Scholz voru skýr, jafnt inn á við
og út á við. Fyrir utan það sjálfsagða, að láta
verkin tala í umhverfismálum, vildi hann
auka tekjujöfnuð landsmanna til að skapa
samstöðu í landinu. Fyrsta verk hans yrði að
hækka lágmarkstímakaup verkafólks úr 1.400
krónum í 1.800 krónur, sem er ríf lega fjórð-
ungs hækkun.
Þá talaði hann fyrir því að sameina ólíkar
fylkingar í Þýskalandi með áherslu á lýðræðis-
legt umburðarlyndi og víðsýni, en með því að
sýna hver öðrum virðingu myndu Þjóðverjar
af ólíkum uppruna sækja fram en ekki aftur.
Eins lagði hann kapp á að Þjóðverjar leiddu
fjórðu iðnbyltinguna, en tæknin væri að taka
fram úr manninum – og héldu landsmenn
ekki vöku sinni í þeim efnum myndi hagkerfi
heimamanna lamast frekar en laskast.
Loks kvaðst hann ætla að styrkja sam-
vinnu Evrópuþjóða með því að semja við þær
Austur-Evrópuþjóðir sem reka lestina í mann-
réttindum fremur en að skamma þær og refsa
þeim.
Svona talar sigurvegari. Af alvöru og ábyrgð.
Hávaðalaust. n
Hávaðalaust
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 23. október 2021 LAUGARDAGUR