Fréttablaðið - 23.10.2021, Page 22

Fréttablaðið - 23.10.2021, Page 22
Ég er ekki með neinar beinagrindur í skápn- um. Ég keypti hluta- bréf í Árvakri af Sam- herja fyrir fjórum árum síðan. Ég skulda þeim ekki neitt og þeir mér ekkert heldur. Eyþór Arnalds hætti í Tappa Tíkarrassi 17 ára, tók menntaskólann utanskóla til að einbeita sér að selló­ leiknum og varði mörgum vikum í munkaklaustrum. Hann hefur átt líf í tónlist, viðskiptum og pólitík enda segir hann mikilvægt að endurnýja sig. Það hefur hann svo sannarlega gert, er ástfanginn af ungri listakonu og stendur í fyrsta sinn á sviði í Hörpu í næstu viku, vopnaður sellóinu. Á fallegu heimili í Vesturbænum býr Eyþór ásamt Ástríði Jósefínu Ólafsdóttur og sonum hans tveim­ ur sem deila búsetu milli foreldra sinna. Þegar gengið er inn blasir sellóið f ljótt við en á tímum Tod­ mobile var það aðalsmerki Eyþórs. Hann er farinn að æfa sig fyrir tón­ leikana í Eldborg eftir viku en Eyþór hefur ekki spilað með sínum gömlu félögum í 15 ár. „Ég þakka Covid fyrir að sellóið var tekið fram og rykið dustað af því. Þegar ég var í sóttkví lappaði ég upp á það, en ég hafði ekki skipt um strengi í ansi langan tíma og tók svo upp verk eftir Bach.“ Það kom sér vel að hljóðfærið var hætt að rykfalla þegar fyrrverandi Todmobile­félagi Eyþórs, Þorvaldur Bjarni, hafði samband og stakk upp á að sveitin kæmi aftur saman. „Þetta er ákveðin rót, góð rót,“ segir hann, sáttur við að hafa aftur sameinast sínum gömlu félögum sem hann sagði skilið við fyrir fimmtán árum þegar hann fór að einbeita sér að öðru. „Ég er þannig gerður að ég tek eitthvað fyrir og einbeiti mér að því þar til ég tek eitthvað annað fyrir. Ég er ekki með neinar beinagrindur í skápnum Eyþór tók unglingsárin út á annan hátt en margir. Rokkið átti hug hans allan frá 13 til 17 ára og svo ein- beitti hann sér að sellóinu og klassíkinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Eyþór Arnalds hætti í Tappa Tíkarrassi 17 ára og tók menntaskólann utanskóla til að einbeita sér að sellóleik. Hann hefur átt líf í tónlist, viðskiptum og pólitík enda segir hann mikilvægt að endurnýja sig. Það hefur hann sjálfur gert, er ástfanginn á leið á svið Eldborgar. Þannig hefur rauði þráðurinn verið í mínu lífi. Maður er búinn að eiga mörg skeið: mikið í listum, mikið í viðskiptum og svo líka pólitík.“ Vildi ekki verða leikari Grunnurinn og uppeldið var þó í listunum. „Mamma, Sigríður Eyþórsdóttir, var leikstjóri. Hún kenndi mörgum núlifandi leikurum og stofnaði til að mynda leikhópinn Perluna sem systir mín Bergljót stjórnar nú í dag. Ég byrjaði því í leikhúsinu,“ segir Eyþór en bendir á að pólitíkin sé ekki algjörlega ólík leiklistinni. „Að vissu leyti er póli­ tíkin með sitt svið, sínar persónur og leikendur og sinn söguþráð.“ Eyþór fór mikið með mömmu sinni í leikhúsið og lék í Þjóðleik­ húsinu sem barn. „Svo hætti ég að leika þegar ég var 12 ára,“ rifjar hann upp og hlær. „Ég ákvað þá að ég ætlaði ekki að vera leikari. Á þeim tímapunkti ætlaði ég að verða stjarneðlisfræðingur. Það mistókst en félagi minn sem ætlaði sömu leið lét þó drauminn rætast og er í dag stjarneðlisfræðingur. Ég fór í annað og stofnaði hljómsveit með Björk Guðmunds, Eyjólfi Jóhannessyni og Jakobi Smára Magnússyni,“ rifjar hann upp og á auðvitað við Tappa Tíkarrass. Hætti í rokkinu fyrir klassíkina Eyþór segist ekki sjá eftir því að hafa sveigt af braut á leið til stjarneðlis­ fræðináms og hellt sér út í rokkið kornungur. „Ég sé ekki eftir þessum skiptum því þarna átti sér stað ákveðin sköpun sem var aðeins á þessu eina augnabliki í íslenskri tónlistarsögu. Við sem þjóð vorum að koma út úr austur­evrópsku skömmtunarþjóð­ félagi þar sem ekki mátti selja erlent súkkulaði, hvað þá bjór. Það var aðeins einn útvarpsþáttur í viku, Áfangar, sem spilaði ný lög,“ rifjar hann upp. Eyþór ólst upp í Árbænum til tólf ára aldurs þegar fjölskyldan færði sig í Vesturbæinn en vinirnir og hljóm­ sveitarfélagar komu víða að. „Þegar internetið og farsímarnir voru ekki til kynntust unglingar þvert á hverfin. Það voru hljóm­ sveitir í mörgum bílskúrum og voða fljótt að spyrjast út ef einhver var góður,“ segir hann en sjálfur var Eyþór bassaleikari og söngvari með Tappa Tíkarrassi og sveitin vakti mikla athygli í kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Rokk í Reykjavík, þar sem hún átti tvö lög. Stuttu síðar hætti Eyþór í sveitinni og segja má að hann hafi sagt skilið við rokkið aðeins 17 ára gamall. Munkaskeiðið „Ég hætti til að snúa mér alfarið að klassíkinni. Þetta var akkúrat öfugt við jafnaldrana sem þarna fóru inn á sitt villtasta skeið en ég var meira á einhverju munkaskeiði,“ segir Eyþór sem lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð. Námið stundaði hann þó utanskóla til að geta betur nýtt tímann til að æfa sig á sellóið. „Maður reynir að taka hlutina föstum tökum,“ segir hann og við erum sammála um að í dag hefði hann líklega verið sendur í greiningu. „Nei, það var ekki búið að finna upp þessar almennu greiningar þegar ég var unglingur. Ég er voða feginn því ég hefði klárlega verið greindur með eitthvað og ekki mátt gera það sem ég gerði,“ svarar hann og jánkar því að líklega sé hann einhvers staðar á hinu fræga rófi. Eyþór einbeitti sér að sellóleik og tónsmíðum og tók lítinn þátt í félagslífi á menntaskólaárunum. „Það má segja að það hafi verið mikið meira rót á mér á aldrinum 13 til 16 ára. Svo var það bara selló­ ið. Ég fór svo meira að segja í tvö klaustur í kringum tvítugt. Mig langaði að kynnast merkilegu lífi munkanna. Ég fór í klaustur sem heitir Solemnes og er franskt móð­ urklaustur Clervaux­klaustursins sem Laxness dvaldi í á sínum tíma í Lúxemborg.“ Eyþór dvaldi í nokkrar vikur í klaustrinu sem er að hans sögn hvað fremst í gregor­söng. „Ég fór þangað til að syngja með munk­ unum. Það voru fimm messur á sól­ arhring og vaknað klukkan fimm og aðeins mátti tala í eina klukku­ stund á dag,“ rifjar Eyþór upp. Ofríki virkar ekki „Ég náði líka að kynnast kommún­ ismanum í Austur­Evrópu áður en hann leið undir lok og ég myndi segja að þetta hafi allt saman verið hluti af menntun minni.“ Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is 22 Helgin 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.