Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.10.2021, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 23.10.2021, Qupperneq 28
Aukaverkanir vegna lyfs Edna segist hafa upplifað miklar aukaverkanir við lyfi því sem hún fékk ávísað gegn geðhvörfum. „Ég fann hnúta í brjóstum og óttaðist að um krabbamein væri að ræða. Það var rannsakað og reyndist vera um stækkaða kirtla að ræða og komst ég að því að um þekkta aukaverkun lyfsins væri að ræða. Ég var því ekki tilbúin að halda áfram á þeim lyfjum. Ég vildi frekar vinna með mína djöfla. Lyfjameð- ferð er að mínu mati plástur. Ég ákvað að hætta og hagnýta allt það sem mér hafði verið kennt. Skap- sveiflur mínar mátti líka að mörgu leyti rekja til hormónabreytinga og vanvirks skjaldkirtils.“ Hún segist hafa náð að halda sér í ágætis jafnvægi, jafnvel í gegnum erfiða tíma, en foreldrar hennar féllu frá með árs millibili. „Ég trúi á óhefð- bundnar lækningar og hef mikla trú á að heilbrigður lífsstíll hafi áhrif til góðs.“ „Frá því ég var á geðdeild hef ég fundið þörf fyrir að vinna með þessa leiklistaraðferð,“ segir Edna en megininntak heimildarmyndar- innar er að velta fyrir sér hvernig leiklist geti hjálpað fólki sem glímir við geðræna kvilla. „Ég vildi að það væri aðaláhersla myndarinnar og leitaði að fólki sem vildi vinna með þetta áfram.“ Geðveikt leikhús Þær Ásthildur Kjartansdóttir og Anna Þóra Steinþórsdóttir fram- leiða og leikstýra myndinni sem nú er í sýningu í Bíó Paradís. „Upp- haf lega vildu þær gera mynd um leikhópinn Húmor,“ segir Edna, en áhugaleikhópurinn „Húmor“ lýsir sér sjálfur sem geðveiku leikhúsi fyrir alla. „En þær fengu ekki styrk til þess heldur til að gera mynd um líf mitt,“ segir Edna en leikhópurinn kemur töluvert við sögu í myndinni. „Ég er mjög þakklát fyrir það. Það var æðislegt að sjá myndina. Mér fannst lokaútkoman frábær.“ Edna leitaði til Hlutverkaseturs sem býður upp á umgjörð, hvatn- ingu og stuðning fyrir þá sem vilja viðhalda virkni og komast aftur út á vinnumarkaðinn. „Þar fékk ég frábærar móttökur hjá Elínu Ebbu Ásmundsdóttur framkvæmdastjóra. Ég sagði henni að mig langaði að þróa aðferð. Hún sá að ég var bæði með leiklistar- Edna segist hafa náð að halda sér í ágætis jafn- vægi. Jafnvel í gegnum erfiða tíma þegar for- eldrar hennar féllu frá með árs millibili. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Ekki einleikið Ásthildur kynntist Ednu fyrir sex árum þegar hún kom í áheyrnar- prufu til hennar fyrir hlutverk í bíómyndina Tryggð. „Þá komst ég að því að Edna var að vinna með leikhóp hjá Hlutverkasetri og hreifst af því hvernig hún notaði leiklistina til að hjálpa fólki með geðræn vandamál. Ég ákvað þá að gera heimildamynd um hana og leik- hópinn.“ Í framhaldinu fékk Ásthildur Önnu Þóru Steinþórsdóttir til liðs við sig og haustið 2016 fylgdu þær Ednu og leikhópnum Húmor til Bratislava þar sem hópurinn tók þátt í leiklistarhátíð fyrir jaðar- hópa og þannig byrjaði þetta ferli. „Hugmyndin var fyrst að gera heimildarmynd um Ednu og hóp- inn en smám saman breyttist hún og fókusinn fór að vera meira á Ednu og hennar sögu.“ Ásthildur þekkti vel sögu Ednu, sem hefur verið að kljást við geð- ræn veikindi í mörg ár. Þannig færðist aðalfókus myndarinnar yfir á Ednu og þær ákváðu að hún segði sögu sína með eigin leiklistarað- ferð og með atvinnuleikurum. Áshildur og Anna Þóra unnu lengi að þeirri hugmynd. Skrifuðu saman handrit og gerðu tilraunir með ýmsar útfærslur áður en þær ákváðu að taka stóran hluta myndarinnar upp á sviðinu í Tjarnar- bíói og að nota ljósmyndir og gömul myndbönd úr lífi Ednu sem leikmynd. Leikararnir Valur Freyr Einarsson og Sólveig Guðmunds- dóttir voru til í að taka þátt í þessu verkefni og það gekk upp. Leikstjórarnir Anna Þóra Steinþórsdóttir og Ásthildur Kjartansdóttir. Leikhúsið býður upp á möguleika í bataferl- inu og þessi leiklistar- tækni byggir á þeirri hugmyndafræði. Ég fann að ég var að veikjast, mér var alveg sama hvort ég lifði eða dó. menntun og lífsreynslu, ég væri „un loco professional“,“ segir hún og hlær. „Ég vildi búa til leiklistaraðferð fyrir fólk með geðræna kvilla. Þetta var bara draumur, en þessi draumur er að rætast. Ég er viss um að leiklist getur hjálpað.“ Edna stofnaði Leik- hópinn Húmor í samstarfi við fólk á Hlutverkasetri, og þar er hún í dag leikstjóri. „Við erum enn að þróa okkar aðferðir en finnum að þetta hjálp- ar. Leiklistin er oft eins og margir tímar hjá sálfræðingi,“ segir Edna en í hópnum er alls konar fólk, með greiningar og ekki, jafnvel í afneitun eins og hún segir í myndinni. En þau eiga það sameiginlegt að vilja hjálp- ast að og finna styrk í samstöðunni. Edna vill leita fjölbreyttari leiða að geðheilsu og myndin fjallar um það. „Læknar vita kannski hvað er að en ekki endilega hvernig eigi að leysa það. Leikhúsið býður upp á möguleika í bataferlinu og þessi leiklistartækni byggir á þeirri hug- myndafræði.“ Þær Ásthildur Kjartansdóttir og Anna Þóra Steinþórsdóttir eru handritshöfundar, leikstjórar og framleiðendur heimildarmyndar- innar Ekki einleikið sem sýnd er í Bíó Paradís. n Úr heimildarmyndinni Ekki einleikið, eða Acting out, sem sýnd er í Bíó Paradís. Leikararnir Valur Freyr Einarsson og Sólveig Guðmundsdóttir ásamt Ednu.  H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Styrkir úr Tónlistarsjóði Umsóknarfrestur til 1. nóvember Tónlistarsjóður auglýsir eftir styrkumsóknum til verkefna sem efnt verður til á tímabilinu 1. janúar – 30. júní 2022. Hlutverk Tónlistarsjóðs er að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Upplýsingar og umsóknargögn er að finna á www.rannis.is. Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi. Umsóknarfrestur rennur út 1. nóvember 2021 kl. 15.00. Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári, í maí og nóvember. Rannís, Borgartúni 30, 105 Reykjavík Sími: 515 5800 tonlistarsjodur@rannis.is. 28 Helgin 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.