Fréttablaðið - 23.10.2021, Side 30
Það var
ekkert mál
að hlusta á
fyrirlestur
en ég átti
erfitt með
að sitja og
vinna
verkefni í
tíma.
Dóra Björt
Dóra Björt Guðjónsdóttir og
Ragnhildur Alda María Vil
hjálmsdóttir borgarfulltrúar
deila kannski ekki nákvæm
lega sömu hugsjónum í
borgarpólitíkinni en þær hafa
þó fetað svipaða braut og
mætt sams konar áskorunum
enda báðar með ADHD.
„Oft er talað um ADHD sem vanda
mál en ég lít svo á að þetta sé ofur
máttur sem dreif mig út í pólitík
ina,“ segir Dóra Björt Guðjónsdóttir
Pírati og hneppir að sér kápunni.
Ragnhildur Alda María Vilhjálms
dóttir Sjálfstæðiskona hendir sinni
kápu frá sér og segist taka heils
hugar undir með Dóru.
Þær stilla sér upp fyrir ljósmynd
ara Fréttablaðsins og spjalla við
blaðamann við spegilslétta Tjörn
ina í Reykjavík á fallegum haust
degi. Við veltum fyrir okkur hvort
það sé of kalt til að sleppa kápu.
„Kápa? Ekki kápa? Kápa.“
Við röltum í kringum Ráðhúsið
og smellum af nokkrum myndum
og mætum öðrum borgarfulltrúum
á leið út úr húsi. Nokkrum sinnum
staldra konurnar við og benda á
samstarfsfólk sitt og segja glaðar í
bragði: „Þessi er með ADHD. Já, og
þessi líka.“ Að lokinni myndatöku
dregur blaðamaður þá ályktun að
hálf borgarstjórnin hljóti að vera
annað hvort með athyglisbrest eða
ofvirkni.
„Já, það eru nefnilega fjölmargir
jákvæðir eiginleikar ADHD sem
nýtast vel í pólitík,“ segir Alda.
Dóra Björt og Alda eiga það sam
eiginlegt að vera hugmyndaríkar,
listrænar og miklir eldhugar með
óseðjandi forvitni. Þær eiga auð
velt með að sjá stóru myndina og
vinna einstaklega vel undir pressu
en þetta eru einkenni ADHD sem
stundum gleymast enda er svo oft
einblínt á neikvæðu hliðarnar.
Alda kallar þetta listamanna
sálina að geta þrifist og lifað í öllu
með of hugsandi hvatvísi. „Það
getur verið furðulegur kokteill,“
segir Alda. „Já, og mjög þreytandi,“
skýtur Dóra inn í.
Nú röltum við um Ráðhúsið og
upp tröppurnar að skrifstofurými
þar sem er lítið kaffihorn. Dóra seg
ist vera nýbúin að fá greiningu og
lýsir gríðarlegum létti og uppljóm
un þegar hún fékk staðfestinguna.
Hún ákvað að láta til skarar skríða
eftir að hún lenti á vegg í borgar
stjórn. „Ég byrjaði í borgarstjórn
og hætti bara að sofa,“ útskýrir
Dóra og af þakkar kaffibollann.
Þegar hún byrjaði í borgarstjórn var
hún einnig að kenna í háskólanum
og að reyna að vinna sig í gegnum
lágt sjálfsmat. „Það er mikið basl
að burðast með í pólitík þegar allir
eru að reyna að draga mann niður
og gagnrýna mann.“
Þegar hún leit yfir augnablikin
í lífi sínu sem kyntu undir þessu
lága sjálfsmati sá hún tenginguna
við ADHD. „Allt í einu tengdust allir
punktarnir á korti lífs míns.“
Blaðamaður fær kaff ibolla í
hendurnar og er stefnan þá tekin
niður ganginn. Alda nælir sér í ban
ana, útskýrir að hún hafi gleymt að
borða í morgun. Aðspurð segist
hún hafa fengið sína greiningu 23
ára gömul eftir að hún las sér til um
ADHD í sálfræðitíma í háskólanum.
Hún segir samnemendur sína hafa
lagt tvo og tvo saman meðan hún
var í afneitun.
„Ég afsakaði allt og sagðist bara
vera smá utan við mig og eiga erfitt
með að sofa. Svo las ég mér til um
þetta í sálfræðitíma og áttaði mig á
því að ég væri skólabókardæmi um
konu með ADHD.“
Alda segir ákveðið innsæi fylgja
greiningunni. „Fyrir mér var mjög
mikilvægt að fá greiningu. Ég tékk
aði í öll boxin og það var mikill
léttir þegar sálfræðingurinn stað
festi grunsemdir mínar.“
Kaótískur heili
Við erum komin í Hamingjubúð,
huggulegt fundarherbergi á ann
arri hæð Ráðhússins. Hér eru litríkir
sófar og stór rifblaðka sem stendur
fyrir framan plaggat af Mahatma
Gandhi. Undirrituð verður að taka
fram að það er frekar magnað að
taka viðtal við tvær konur með
ADHD því samtalið f lýgur fram
og til baka í tíma og rúmi meðan
við göngum um húsið. Við förum
hliðarleiðir í sögunni og stöldrum
stundum við á áhugaverðum og
óvenjulegum stöðum eins og í sögu
eftir Virginiu Woolf.
Blaðamaður spyr konurnar tvær
hvernig þessi eiginleiki lýsi sér í
þeim og Dóra og Alda skiptast á að
telja upp einkennin og nánast botna
hvor aðra í annarri hverri setningu.
„Ég get étið upp, innfært og þulið
upp ótrúlegar staðreyndir en get
ekki munað nöfn fyrir mitt litla líf,“
segir Alda. „Sama hér,“ segir Dóra
skælbrosandi og heldur áfram: „Ég á
ótrúlega erfitt með að muna nöfn og
ég rata ekki neitt.“ Alda hlær. „Sama
hér! Google Maps breytti lífi mínu.“
Og Dóra tekur undir. „Ég get farið á
sama stað tíu sinnum en þarf samt
að nota Google Maps.“
Segjast þær sía upplýsingar öðru
vísi en f lestir. „Dæmigerðir stærð
fræðingar taka línulega nálgun í
hugsunarhætti en fólk með ADHD
tekur allt mengið,“ segir Alda. „En
þannig er heimurinn. Hann er kaot
ískur, ekki línulegur,“ segir Dóra.
„Einmitt,“ segir Alda. „Við erum
alltaf að hugsa um alla mögulega
áhrifaþætti og út frá því reynum við
að komast að bestu niðurstöðunni.“
Dóra segir athyglisbrest vera
ákveðið rangnefni. Þetta sé fyrst
og fremst ofureinbeiting. „Ef ég er
að vinna með eitthvað sem skiptir
mig máli get ég sest niður og ein
beitt mér í margar klukkustundir,“
segir hún. „Ég skil abstrakt hugtök
og samhengi hlutanna mjög vel. Ég
er með fræðilegan heila og elska að
sitja við rannsóknir en þá teikn
ast upp allur heimurinn og ég skil
hvernig allt hangir saman.“
Alda kinkar kolli. „Forvitni fylgir
þessu. Algjör óseðjandi forvitni.“
Góðar í feluleik
Dóra og Alda voru báðar með lágt
sjálfsálit þegar þær voru yngri og
eru enn að vinna í því. Þær áttu
erfitt með að passa inn í rammann
í grunnskóla og menntaskóla og
upplifðu fordóma í kringum sig eins
og umræðuefnið væri tabú. Skólinn
var ekki jarðvegur þar sem þær gátu
blómstrað.
Dóra lýsir leiðinlegu atviki í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
þegar kennari dró verkefnaein
kunnir hennar markvisst niður því
honum líkuðu ekki vinnuaðferðir
hennar.
„Ég mætti snemma í skólann en
seint í tímann og var að sjálfsögðu
lækkuð í einkunn fyrir lélega mæt
ingu. Það var ekkert mál að hlusta
á fyrirlestur en ég átti erfitt með
Rata ekki neitt og muna engin nöfn
Ingunn Lára
Kristjánsdóttir
ingunnlara
@frettabladid.is
Borgarfulltrúarnir Dóra Björt og Ragnhildur Alda hafa mætt sams konar áskorunum enda báðar með ADHD og ræða það á hispurslausan og skemmtilegan hátt. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
„Ég afsakaði allt og
sagðist bara vera smá
utan við mig og eiga
erfitt með að sofa. Svo
las ég mér til um þetta í
sálfræðitíma og áttaði
mig á því að ég væri
skólabókardæmi um
konu með ADHD.
Dóra Björt
30 Helgin 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ