Fréttablaðið - 23.10.2021, Síða 32

Fréttablaðið - 23.10.2021, Síða 32
Íslenskukennsla fyrir útlendinga Umsóknarfrestur 5. nóvember 2021 Viðbótarúthlutun 2021-2022 Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem eru ekki hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Áformað er að verja allt að 150 m.kr. til íslenskukennslu útlendinga árið 2021-22 sem viðbót við fjármagn sem útdeilt er fyrir hvort árið um sig. Úthlutuninni er ætlað að svara aukinni eftirspurn og er miðuð að námskeiðum sem haldin verða síðari hluta árs 2021 og fyrri hluta árs 2022. Umsóknarfrestur er til 5. nóvember 2021, kl. 15:00. Markmiðið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru hér á landi og skráðir eru með lögheimili í þjóðskrá, tækifæri til að öðlast nauðsynlega færni í íslensku til að geta orðið virkir samfélagsþegnar á Íslandi. Hælisleitendur eru þó undanþegnir kröfu um skráningu í Þjóðskrá á meðan málefni þeirra eru til skoðunar hjá stjórnvöldum. Fræðsluaðilar, fyrirtæki og stofnanir sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Krafa er gerð um að námskeið sem hlýtur styrk skuli hafa skýra og sýnilega tengingu við Evrópska tungumálarammann. Fyrirtæki eða stofnanir, sem ekki eru viðurkenndir framhaldsfræðsluaðilar, þurfa að láta undirritaðan samning við viðurkenndan fræðsluaðila, sem annast kennsluna, fylgja umsókninni. Upphæð sjóðsins er samþykkt af Alþingi í fjárlögum fyrir árið 2021. Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á rannis.is. Nánari upplýsingar veitir Skúli Leifsson, verkefnastjóri á mennta- og menningarsviði, islenskukennsla.utlendinga@rannis.is, sími 515 5843. Þær segja mikla fordóma ríkja gagnvart lyfjagjöf þó sýnt hafi verið fram á að lyfjameðferð leiði ekki til fíknar. að sitja og vinna verkefni í tíma. Ég gat alveg unnið heima en það fór í taugarnar á kennaranum sem hélt að ég væri með lélegt vinnusiðferði. Hann var farinn að draga mig mark- visst niður fyrir verkefni sem voru góð,“ útskýrir Dóra. Einn daginn brast hún í grát á bókasafninu og kom þá eldri nem- andi til hennar og huggaði hana. Reyndist það vera Tyrfingur Tyrf- ingsson leikskáld. Hann hvatti hana til að kvarta, sem hún gerði, og eftir athugun á málinu voru grunsemdir Dóru staðfestar og fékk hún að taka 100 prósent lokaverkefni. „Ég verð ævinlega þakklát fyrir Tyrfing. Hann fékk mig til að standa með sjálfri mér og mótmæla þessu óréttlæti.“ Alda segist hafa verið allt öðru- vísi. Hún slugsaði í námi og náði að redda sér korter í lokun. Hún þurfti pressu til að vinna verkefni sín sem var að sjálfsögðu streituvaldandi. „Ég var ekki vinnusöm ef mér fannst námsefnið leiðinlegt. Ég var hræðilegur nemandi þangað til rétt fyrir lokaprófin. Þá fór ég í þetta „crunch mode“. Ég var alltaf með fimm í vinnueinkunn og tíu í lokaprófum og algjör vinnuhestur í hópverkefnum því ég fékk svo mikið samviskubit gagnvart fólki sem þurfti að vinna með mér.“ Konurnar tvær gera óspart grín að sér en eru duglegar að benda hvor annarri á þegar sjálfsgagnrýnin fer af stað. Hér skýtur Dóra inn í: „Þú varst greinilega góður námsmaður fyrst þú fékkst tíu í lokaprófum.“ „Já, ég veit,“ svarar Alda. „En ert farin að gagnrýna aðferðina,“ bætir Dóra við. „Já, alveg týpískt ADHD,“ segir Alda. „Alltaf að gagnrýna sjálfa sig,“ botnar Dóra. „Og bera saman,“ segja þær á sama tíma og hlæja. Alda segist hafa upplifað mikinn kvíða og keyrt sig út á tvítugsaldri. Hún rifjar upp fyrsta samtalið við móður sína þar sem hún bar upp spurninguna um hvort hún ætti ekki að fara í greiningu. „Mamma, ég held að ég sé með ADHD.“ Svar- aði þá móðir hennar: „Nei, nei, Alda mín. Þetta er ekki svo slæmt. Ertu ekki bara þreytt?“ Að fara í grein- ingu var enn mikið feimnismál. Dóra hefur svipaða sögu að segja. „Foreldrar mínir eiga til dæmis erf- itt með að horfast í augu við að ég sé með ADHD því mér hefur tekist að gera það sem ég vildi í lífinu,“ segir Dóra. Eldri systir hennar er líka með ADHD sem er meira „týpískt“ að sögn Dóru. Foreldrar hennar áttu fullt í fangi með systur hennar á meðan Dóra lærði snemma að setja upp grímu. Dóra var þó ekkert minna ofvirk þótt hún virtist yfir- veguð og róleg á yfirborðinu. „Oft er talað um ofvirkan heila. Ég hélt að ég væri með athyglisbrest en heilinn minn var samt snarofvirkur og stoppaði ekki.“ Ofvirkni kemur stundum ólíkt fram hjá konum og körlum og konur greinast því oft seinna á ævinni. Á sama tíma og ungur strákur iðar í skinninu og getur ekki setið kyrr er stelpan með allt í gangi í huganum og virkar utan við sig eða eins og hún geti ekki hætt að tala. „Við konur greinumst seint vegna þess að við erum góðar í að fela það,“ segir Alda. „Við setjum upp grímu og erum með mikla aðlögunarhæfni,“ segir Dóra. Fordómar gegn lyfjum Borgarfulltrúarnir segja mikla for- dóma ríkja gagnvart lyfjagjöf en líkt og ADHD samtökin hafa margoft bent á sýna rannsóknir að meðferð með örvandi lyfjum leiði ekki til fíknar. Í raun virðast börn og ung- menni, sem hafa fengið meðferð með örvandi lyfjum, síður líkleg til að leiðast út í misnotkun á vímu- efnum en önnur börn með ADHD. Alda segir lyfin hafa breytt miklu í sínu lífi. „Þessi lyf fara illa í fólk sem er ekki með ADHD en eru mjög róandi fyrir okkur. Ég náði að sofna betur eftir að ég fór á lyfin því þá róaðist ofhugsandi heilinn minn,“ segir Alda. Dóra segir heilann fara einmitt á milljón þegar hún leggst upp í rúm. „Þá fer af stað eitthvert ótrú- legt greiningarferli. Ég vissi ekki að svefnvandi væri hluti af þessu fyrr ég ræddi við fólk sem vissi betur.“ Miklar umræður hafa skapast um lyfjanotkun eftir að kona var svipt tímabundið ökuréttindum fyrir að keyra „undir áhrifum ADHD- lyfja“ sem hún hafði fengið löglega uppáskrifuð af lækni sínum eftir greiningu. Dóra og Alda segja þetta dæmi um rótgróna fordóma bæði gegn ADHD og fíkniefnaneytendum í kerfinu. Staðan hefur ekki batnað, þvert á móti eru lögin strangari. „Einu sinni var hægt að sækja þriggja mánaða skammt í einu en núna er bara hægt að leysa út lyf nákvæmlega þrjátíu dögum eftir fyrsta skammt. Þetta á að koma í veg fyrir sölu á svörtum markaði en hlutfall þeirra sem misnota ADHD- lyf er í heildarmyndinni mjög lágt,“ segir Alda. Bæði hún og Dóra hall- ast að skaðaminnkunarúrræðum. „Ef það eru einstaklingar að mis- nota þetta er þá ekki betra að þeir fái öruggari lyf heldur en einhverja stórhættulega blöndu frá einhverj- um fúskara úti í bæ?“ Alda segist þó hafa tekið eftir miklum breytingum í umræðunni síðustu tíu árin. „Nú er búið að lyfta smánarhulunni af ADHD. “ Kaffið er búið en Alda hefur ekki snert við banana sínum enda beinir hún allri sinni athygli að blaða- manninum rétt eins og Dóra. Út um gluggann má sjá tvo aðra borgarfull- trúa á Vonarstræti stinga saman nefjum yfir einhverri skýrslu og spyr þá blaðamaður hvað það þýði fyrir stefnumál þeirra að vera með ADHD. Dóra er fyrri til að svara. „Ákveðið umburðarlyndi og for- dómaleysi fylgir því að vera með greiningu. Ég hef lagt mikla áherslu á að skapa skólakerfi sem tekur mið af þörfum einstaklingsins og lyftir honum upp á hans forsendum.“ Alda styður þessa hugsjón. „Fjöl- breytileikinn er lykillinn að góðu samfélagi. Við Dóra eigum það sam- eiginlegt að brenna fyrir okkar mál- efnum og vinna að þeim markvisst. Kannski er það ástæðan fyrir því að við völdum báðar þennan veg.“ Þær segja erfitt að breyta kerfinu. „Skólakerfið er svo miðstýrt hér á Íslandi. Bæði ríki og sveitarfélög stýra skólanum og það eru of margir kokkar í eldhúsinu. Þess vegna er svo erfitt að knýja fram eina heild- stæða breytingu,“ segir Alda. Dóra segir menntastefnu Reykja- víkurborgar snúast um að láta draumana rætast. „Stefnan er meðal annars byggð á því að reyna að skapa einstaklingsmiðuð tækifæri fyrir börn. Þetta er umfangsmikið verkefni og við þurfum að halda áfram á sömu braut. Þetta snýst líka um hvernig við menntum kennar- ana okkar og hvaða námsgögn við notum. Þó við séum með metnaðar- fulla menntastefnu í Reykjavík er námsgagnagerð í höndum ríkisins.“ Fyrst og fremst segja þær mikil- vægast fyrir fólk með ADHD að hætta samanburðinum. „Við erum öll að gera okkar besta. Allir heilar eru margbreytilegir og sérstaklega meðal ADHD-fólks,“ segir Dóra. „Við erum með mismunandi hæfileika og þurfum að innbyggja meiri fjölbreytileika á öllum svið- um,“ segir Alda að lokum og lítur niður á óétinn ávöxtinn á borð- inu. „Týpískt ADHD, ég gleymdi að borða.“ „Alveg týpískt,“ segir Dóra og brosir. n Við konur greinumst seint vegna þess að við erum góðar í að fela það. Ragnhildur Alda 32 Helgin 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.