Fréttablaðið - 23.10.2021, Page 37
LAUGARDAGUR 23. október 2021
Hjálpin
Rauði krossinn | fánamerki
Fréttablað Rauða krossins
Sayed segir að það sé algjör draumur að fá að vinna fyrir Rauða krossinn og að hann sé gríðarlega þakklátur íslensku þjóðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Sayed Hashem Qureshi flúði til
Íslands frá Afganistan við upp-
haf kórónaveirufaraldursins og
var fyrsti gesturinn á sóttkvíar-
hóteli Rauða krossins. Nú er hann
starfsmaður þar og hjálpar fólki
sem er í sömu sporum og hann var
áður. Hann segir að þar með hafi
draumur ræst.
Talibanar gerðu árás um nótt
„Í Afganistan rákum við bróðir
minn gistihús og við ákváðum að
kenna börnum og konum ensku
þar á kvöldin í sjálfboðastarfi, því
margir hafa ekki efni á slíku námi.
En vandamálið var að svæðið sem
gistihúsið var á var undir stjórn
talibana á næturnar,“ segir Sayed.
„Þeir bönnuðu okkur að halda
áfram að kenna og sögðu að við
værum að snúa fólki frá íslam og
að vestrænni menningu, sem var
auðvitað ekki satt.
Við héldum að við værum
öruggir en því miður versnaði
ástandið og eina nóttina gerðu þeir
árás á heimili okkar. Þeir bönkuðu
á dyrnar og um leið og bróðir
minn opnaði myrtu þeir hann
þar sem hann stóð. Svo brenndu
þeir gistihúsið okkar,“ segir Sayed.
„Faðir minn hafði eytt ævinni í að
mennta okkur bræðurna og gat
ekki hugsað sér að missa mig líka,
svo hann sagði mér að flýja, sama
hvað það kostaði. Ég yfirgaf því
heimilið mitt og hef ekki snúið
aftur. Ég skildi eiginkonuna mína,
föður minn og þrjú börn bróður
míns eftir. Nú stjórna talibanar
öllu landinu og þeir hafa bannað
enskukennslu í skólum og bannað
stúlkum að ganga í skóla.
Ástæðan fyrir því að ég kom til
Íslands er sú að faðir minn vildi að
ég færi til lands sem myndi ekki
senda mig aftur til Afganistan og
Ísland var eina landið sem kom
til greina,“ segir Sayed. „En fjöl-
skyldan mín glímir enn við mikla
erfiðleika og ég vona innilega að
þau komist hingað. Konan mín
á mjög erfitt og ég hef miklar
áhyggjur af henni. Henni hefur
liðið illa síðan ég flúði og hún
glímir við kvíðaköst eftir árásina.
Það er líka mjög erfitt að vera kona
í Afganistan núna og hún hefur
engan stuðning. Ég hef líka miklar
áhyggjur af bróðursonum mínum,
þeir eiga engan annan að og ég er
að reyna að ættleiða þá.“
Fór strax í sjálfboðastarf
„Eftir þetta átti ég mjög erfitt og
þjáðist af áfallastreituröskun, en
ég hef getað talað við sálfræðing og
jafnað mig, þökk sé Rauða kross-
inum,“ segir Sayed. „Það opnaði »
Gerðu mér kleift að halda áfram að lifa
Sayed Hashem Qureshi flúði valdatöku talibana í Afganistan og starfar nú á sóttkvíarhóteli Rauða krossins. Hann
er gríðarlega þakklátur forstöðumanni sóttkvíarhúsanna og íslensku þjóðinni, en óttast um fjölskyldu sína.