Fréttablaðið - 23.10.2021, Page 38

Fréttablaðið - 23.10.2021, Page 38
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Rauði Kross Íslands Rauði krossinn á Íslandi hefur sinnt mannúð- arverkefn- um í tæp hundrað ár. » dyr fyrir mig sem gerði mér kleift að halda áfram að lifa. Erfiðasti tíminn var þegar ég kom fyrst til Íslands og leitaði til lögreglunnar til að sækja um hæli hér,“ segir Sayed. „Lögreglan setti mig á sóttkvíarhótelið, en það leið vika þangað til ég komst að því að ég væri í sóttkví, fram að því hélt ég að þetta væru f lóttamanna- búðir.“ Sayed segir að dvölin þar hafi verið erfið, en að starfsfólk hót- elsins hafi auðveldað hana. „Bara það að tala við fólkið þegar það fær mat og láta það vita að þú sért til staðar breytir miklu. Það er svo gott að vita að það er hjálp til staðar ef þörf krefur og þetta er það sem ég geri fyrir gestina á hótelinu núna,“ segir hann. „Vð pössum upp á að fólki líði ekki illa og reynum að auð- velda því lífið. Það var erfitt að vera einn og innilokaður á sóttkvíarhótelinu dögum saman eftir allt sem ég hafði gengið í gegnum, en einn morguninn opnaði ég dyrnar og þá var þar einstaklega indæl eldri kona sem var að koma með morg- unmat handa mér,“ segir Sayed. „Á þessum tíma þorðu margir ekki út úr húsi af ótta við heimsfaraldur- inn en þarna var hún hugrökk í sjálfboðastarfi að hjálpa mér, þó að hún þekkti mig ekki neitt. Þá hugsaði ég með mér að ef hún gæti hjálpað þá gæti ég það líka, þannig að ég ákvað að fara í sjálfboðastarf fyrir Rauða krossinn um leið og ég gæti. Um leið og ég losnaði úr sóttkví fór ég svo að kenna flótta- mönnum ensku.“ Draumur að vinna fyrir Rauða krossinn Það er starf sem hentaði Sayed vel, því tungumál hafa alltaf legið vel fyrir honum og hann talar sex; pashto, úrdú, arabísku, ensku og tvö staðbundin tungumál frá Afganistan. Hann er líka að læra íslensku núna. Örfáum dögum eftir að Sayed fékk íslensku kenni- töluna sína var honum svo boðið launað starf hjá Rauða krossinum. „Það var algjör draumur,“ segir hann. „Þá voru liðnir næstum fimm mánuðir síðan ég var á sóttkvíarhótelinu en Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður sóttvarnahúsanna, hafði uppi á mér til að bjóða mér starfið. Ég hafði alls konar reynslu sem Rauði krossinn gat nýtt og ég greip að sjálfsögðu tækifærið til að endurgjalda Rauða krossinum alla ómetanlegu aðstoðina. Ég spurði ekki einu sinni hvort þetta væri launað starf, ég var bara ánægður með að fá að leggja Rauða krossinum lið, en svo reyndist þetta vera launuð vinna,“ segir Sayed. „Það hafði verið draumur minn að klæðast einkennisbúningi Rauða krossins og hjálpa öðrum, það gefur manni ánægju sem hverfur aldrei.“ Gylfi Þór er hetja „Gylfi Þór er einstakur maður sem er orðinn fyrirmyndin mín. Hann hefur hjálpað mér í gegnum alla mína erfiðleika og var alltaf til staðar. Ég vil þakka honum innilega frá dýpstu hjartarótum fyrir allt sem hann hefur gert fyrir mig og alla aðra,“ segir Sayed. „Hann er algjör hetja sem hefur staðið vaktina í framlínunni allan tímann og lagt allt í vinnuna sína. Ég get ekki þakkað honum nóg. Ég er líka bara mjög þakklátur allri íslensku þjóðinni. Þetta er besta þjóð í heimi. Það er augljóst þegar maður ferðast um heiminn og kynnist aðstæðum annars staðar. Nú er þetta heimili mitt og mér líður eins og ég hafi alltaf búið á Íslandi,“ segir Sayed að lokum. ■ Sayed Hashem Qureshi gekk í gegnum mikla erfiðleika áður en hann kom til Íslands og þurfti að skilja fjölskylduna sína eftir í Af- ganistan. Nú er Ísland orðið heimili hans og hann vinnur á sóttkvíarhóteli Rauða krossins. Hann vonast til að geta komið fjölskyldunni sinni til Íslands og úr hættu. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Vilt þú gerast sjálf- boðaliði? Skráðu þig á raudikrossinn.is Það er nóg að byrja á Ekkert vandamál er of stórt eða of lítið fyrir netspjall 1717 2 23. október 2021 LAUGARDAGURHJÁLPIN Rauði krossinn á Íslandi kynnir hér í þessu blaði nokkur verkefni félagsins sem um 3.000 sjálfboðaliðar sinna um allt land á degi hverjum. Við höfum líkt og aðrir þurft að laga starf okkar, verkefni og þjónustu að þörfum fólks og aðstæðum á tímum farsóttar. Undanfarin misseri hafa loftslagsbreytingar, jarð- hræringar, eldgos og ofanflóð einnig kallað á aukna viðbragðsgetu Rauða krossins. Þá hefur félagið aukið þjónustu sína til að bregðast við félagslegri einangrun og vanlíðan margra í samfélaginu. Verkefni Rauða krossins eru ef til vill mikilvægari nú en nokkru sinni fyrr, svo sem fræðast má um í blaðinu. Rauði krossinn er viðbragðsfélag sem tekst af ábyrgð og fagmennsku á við áskoranir eins og þann heimsfaraldur sem nú vonandi fer að sjá fyrir endann á. Ekki má þó gleyma því að þessari viðureign er ekki lokið né heldur þeirri staðreynd að ekki sitja allir íbúar heims við sama borð hvað varðar aðgengi að vörnum og heilbrigðis- þjónustu til að takast á við þennan vágest. Heims- faraldurinn mun þó vonandi færa þjóðum heims þann lærdóm að samkennd og samstaða hefur aldrei verið eins mikilvæg. Við horfum bjartari augum til framtíðarinnar en vitum þó líka að margir finna fyrir vanlíðan, kvíða og óvissu um hvað morgundagurinn beri í skauti sér. Ekki má gleyma stærstu áskorun samtímans, loftslagsbreyt- ingum. Þá reynir ekki síður á samvinnu allra þjóða til þess að vernda berskjölduðustu hópana. Grunnstef í öllum verkefnum Rauða krossins er að stuðla að sjálfbærni samfélaga og aukinni samfélags- legri ábyrgð. Nýstofnuðum Sjálfbærnisjóði Rauða krossins á Íslandi er einmitt ætlað að brúa bil á milli þriðja geirans, stjórnvalda og fyrirtækja til að vinna saman að sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Það er von mín að þú, lesandi góður, verðir margs vísari um þau mikilvægu störf sem Rauði krossinn sinnir hér heima og erlendis. Starf Rauða krossins á Íslandi er borið uppi af sjálf- boðaliðum um allt land og væri ekki mögulegt án þeirra. Þá leggja Mannvinir Rauða krossins, fólk sem styrkir félagið mánaðarlega, grunninn að öflugu starfi og gera okkur kleift að sinna áfram þjónustu við þá er höllum fæti standa. ■ Ágæti lesandi Sveinn Kristinsson formaður Rauða krossins á Íslandi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.