Fréttablaðið - 23.10.2021, Side 48
Skóla- og frístundasvið
Skólastjóri við Hólabrekkuskóla
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu skólastjóra við Hólabrekkuskóla.
Hólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli í Breiðholti með um 480 nemendur og 70 starfsmenn. Mikil gróska einkennir
skólaþróun í Hólabrekkuskóla, áhersla er lögð á skapandi starf og gagnreynda kennsluhætti sem skila árangri í fjölbreyttum
og fjölmenningarlegum nemendahópi. Leiðarljós Hólabrekkuskóla eru virðing, gleði og umhyggja. Unnið er eftir Uppbyggingar-
stefnunni og skólinn er í innleiðingarferli að verða Réttindaskóli UNICEF og að fá Regnbogavottun Reykjavíkurborgar á þessu
skólaári. Nemendaþing skólans er haldið árlega í tengslum við nemendalýðræði. Heildaráætlun skólans byggir á grunnþáttum
menntastefnunnar Látum draumana rætast og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Í Hólabrekkuskóla er megin áhersla lögð á mál og læsi þar sem yfirskriftin er Lestur til árangurs. Þar er byggt á heildstæðum
samræmdum aðferðum sem allir kennarar nota frá 1. til 10. bekkjar.
Snillismiðja Hólabrekkuskóla nýtir stafræna tækni til að auðga menntun og veita nemendum fjölbreytt tækifæri til sköpunar og
tjáningar. Skólinn er í miklu samstarfi við grenndarsamfélagið, vinnur að styrktum þróunarverkefnum og tekur þátt í erlendum
samstarfsverkefnum.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og hefur víðtæka reynslu og þekkingu
á grunnskólastarfi.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, „Látum draumana rætast“, þar sem
leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari, greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda
á skólastarfið, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar.
Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. janúar 2022. Umsóknarfrestur er til og með 7. nóvember 2021.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Skólastjórafélags Íslands.
Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veita Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, og Ragnheiður E. Stefánsdóttir,
mannauðsstjóri, sími 411 1111. Netföng: soffia.vagnsdottir@reykjavik.is / ragnheidur.e.stefansdottir@reykjavik.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við
aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Reykjavíkurborgar.
• Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi
skólans.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á
grunnskólastigi.
• Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í
skólastarfi.
• Stjórnunarhæfileikar.
• Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða fram-
sækna skólaþróun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Leitum að öflugum yfirhjúkrunarfræðingi svæðis á HSN Blönduósi
Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduósi auglýsir laust starf yfirhjúkrunarfræðings svæðis.
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. desember 2021 eða eftir samkomulagi.
Leitað er að áhugasömum einstaklingi til að taka þátt í áframhaldandi þróun og uppbyggingu starfstöðvarinnar til framtíðar í samræmi
við stefnu HSN. Yfirhjúkrunarfræðingur ber faglega, stjórnunarlega og rekstrarlega ábyrgð.
Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri hjúkrunar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini og íslenskt hjúkrunarleyfi. Tekið er á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu stofnunarinnar
www.hsn.is og einnig er hægt að smella á hlekkinn hér að neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin. Umsókn fylgi jafnframt starfsferilskrá og upplýsingar um nám og fyrri störf. Umsækjendur eru auk þess beðnir um að skila
kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfi og sýn á starfið.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.11.2021
Nánari upplýsingar veita
Guðný Friðriksdóttir - gudnyf@hsn.is - 860 7750 og Kristjana E Guðlaugsdóttir - kristjanag@hsn.is
Helstu verkefni og ábyrgð
• Fagleg og stjórnunarleg ábyrgð á hjúkrunarþjónustu og stoð-
starfsemi hennar, samkvæmt skipuriti
• Þátttaka í klínísku starfi, vaktir að hluta
• Staðarumsjón
• Tekur þátt í gerð áætlana varðandi rekstur og tryggir að rekstur
og starfsmannamál séu í samræmi við fjárhagsáætlun
• Tekur þátt í þverfaglegu samstarfi, þróun þjónustu og stjórnun
verkefna á starfsstöðinni og þvert á stofnun
• Hefur umsjón með starfsemi starfsstöðvarinnar samkvæmt
skipuriti ásamt yfirlækni
• Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu
Hæfniskröfur
• Íslenskt hjúkrunarleyfi og a.m.k. 5 ára starfsreynsla við hjúkrun
• Viðbótarmenntun á sviði heilbrigðisvísinda, viðskiptafræði eða
stjórnunar kostur
• Farsæl stjórnunarreynsla og góð samskiptafærni
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Góð tölvukunnátta
• Kennari í 1. bekk. 100%
• Kennari í hönnun og smíði. 100%
• Stuðningsfulltrúi í sérdeild fyrir nemendur með
einhverfu. 80%
Nánari upplýsingar á vef Reykjavíkurborgar:
http://reykjavik.is/laus-storf og hjá Hreiðari
Sigtryggssyni skólastjóra í síma 5533188 og á
hreidar.sigtryggsson@rvkskolar.is.
Lausar stöður í Langholtsskóla
á vorönn 2022
SAMBAND ÍSLENSKRA SVEITARFÉLAGA
Starf lögfræðings hjá Sambandi
íslenskra sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga hyggst ráða tímabundið
lögfræðing á lögfræði- og velferðarsviði. Lögfræðingar
sambandsins koma fram fyrir þess hönd við undirbúning
lagafrumvarpa og stjórnvaldsfyrirmæla sem varða sveitar-
félögin og vinna að upplýsingagjöf, ráðgjöf og fræðslu til
sveitarfélaga. Lögfræðingurinn mun starfa ásamt öðrum
lögfræðingum og sérfræðingum sviðsins að margþættum
og síbreytilegum verkefnum, sem geta meðal annars varðað
málefni félagsþjónustu, húsnæðismál og skipulags- og
byggingamál, ásamt almennri aðstoð við sveitarfélög um
túlkun laga og reglna sem varða starfsemi sveitarfélaga.
Gerð er krafa um embættispróf í lögfræði eða meistarapróf
í lögum, ásamt góðri þekkingu á stjórnsýslurétti. Reynsla
af störfum á þeim málefnasviðum sem að ofan greinir er
kostur, ásamt þekkingu og áhuga á málefnum sveitarfélaga.
Gott vald á íslensku máli í ræðu og riti og hæfni í framsetn-
ingu upplýsinga er skilyrði. Góð kunnátta í a.m.k. einu öðru
Norðurlandamáli og ensku er æskileg, sem og góð tölvu-
þekking, bæði til öflunar og úrvinnslu upplýsinga.
Leitað er að hæfum einstaklingi sem hefur til að bera
frumkvæði, sjálfstæði, þjónustulund, hæfni í mannlegum
samskipt-
um, nákvæmni í vinnubrögðum og forystu- og skipulag-
shæfileika. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf
sem fyrst.
Föst starfsaðstaða getur verið utan höfuðborgarsvæðisins,
að þeirri forsendu uppfylltri að mögulegt verði að tryggja
fullnægjandi starfsaðstöðu nærri heimili umsækjanda en
einnig á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga í
Reykjavík.
Gert er ráð fyrir að ráðið verði í starfið til eins árs.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veita
Guðjón Bragason, sviðsstjóri lögfræði- og velferðarsviðs,
netfang: gudjon.bragason@samband.is, eða
Valur Rafn Halldórsson sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs,
netfang: valur@samband.is eða í síma 515-4900.
Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vin-
nustaður sem býður upp á opið vinnuumhverfi, samheldinn
starfsmannahóp og skapar starfsmönnum gott svigrúm til
starfsþróunar. Umsækjendum er bent á að frekari upplýsin-
gar um Samband íslenskra sveitarfélaga eru á heimasíðun-
ni, www.samband.is. Þar er einnig að finna starfslýsingu
fyrir starfið og mannauðsstefnu sambandsins.
Umsóknir, merktar Umsókn um starf lögfræðings á lög-
fræði- og velferðarsviði, berist eigi síðar en mánudaginn
8. nóvember nk. til Sambands íslenskra sveitarfélaga,
Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík, eða í tölvupósti
til samband@samband.is.
8 ATVINNUBLAÐIÐ 23. október 2021 LAUGARDAGUR