Fréttablaðið - 23.10.2021, Page 48

Fréttablaðið - 23.10.2021, Page 48
Skóla- og frístundasvið Skólastjóri við Hólabrekkuskóla Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu skólastjóra við Hólabrekkuskóla. Hólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli í Breiðholti með um 480 nemendur og 70 starfsmenn. Mikil gróska einkennir skólaþróun í Hólabrekkuskóla, áhersla er lögð á skapandi starf og gagnreynda kennsluhætti sem skila árangri í fjölbreyttum og fjölmenningarlegum nemendahópi. Leiðarljós Hólabrekkuskóla eru virðing, gleði og umhyggja. Unnið er eftir Uppbyggingar- stefnunni og skólinn er í innleiðingarferli að verða Réttindaskóli UNICEF og að fá Regnbogavottun Reykjavíkurborgar á þessu skólaári. Nemendaþing skólans er haldið árlega í tengslum við nemendalýðræði. Heildaráætlun skólans byggir á grunnþáttum menntastefnunnar Látum draumana rætast og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Í Hólabrekkuskóla er megin áhersla lögð á mál og læsi þar sem yfirskriftin er Lestur til árangurs. Þar er byggt á heildstæðum samræmdum aðferðum sem allir kennarar nota frá 1. til 10. bekkjar. Snillismiðja Hólabrekkuskóla nýtir stafræna tækni til að auðga menntun og veita nemendum fjölbreytt tækifæri til sköpunar og tjáningar. Skólinn er í miklu samstarfi við grenndarsamfélagið, vinnur að styrktum þróunarverkefnum og tekur þátt í erlendum samstarfsverkefnum. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og hefur víðtæka reynslu og þekkingu á grunnskólastarfi. Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, „Látum draumana rætast“, þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska. Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari, greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt og annað er málið varðar. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. janúar 2022. Umsóknarfrestur er til og með 7. nóvember 2021. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Skólastjórafélags Íslands. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf. Nánari upplýsingar veita Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri grunnskólahluta fagskrifstofu, og Ragnheiður E. Stefánsdóttir, mannauðsstjóri, sími 411 1111. Netföng: soffia.vagnsdottir@reykjavik.is / ragnheidur.e.stefansdottir@reykjavik.is Helstu verkefni og ábyrgð: • Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Reykjavíkurborgar. • Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans. • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun. • Bera ábyrgð á samstarfi aðila skólasamfélagsins. Menntunar- og hæfniskröfur: • Leyfi til að nota starfsheitið kennari. • Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla á grunnskólastigi. • Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi. • Stjórnunarhæfileikar. • Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun. • Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða fram- sækna skólaþróun. • Lipurð og hæfni í samskiptum. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Leitum að öflugum yfirhjúkrunarfræðingi svæðis á HSN Blönduósi Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduósi auglýsir laust starf yfirhjúkrunarfræðings svæðis. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. desember 2021 eða eftir samkomulagi. Leitað er að áhugasömum einstaklingi til að taka þátt í áframhaldandi þróun og uppbyggingu starfstöðvarinnar til framtíðar í samræmi við stefnu HSN. Yfirhjúkrunarfræðingur ber faglega, stjórnunarlega og rekstrarlega ábyrgð. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri hjúkrunar. Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert. Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini og íslenskt hjúkrunarleyfi. Tekið er á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu stofnunarinnar www.hsn.is og einnig er hægt að smella á hlekkinn hér að neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn fylgi jafnframt starfsferilskrá og upplýsingar um nám og fyrri störf. Umsækjendur eru auk þess beðnir um að skila kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfi og sýn á starfið. Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 08.11.2021 Nánari upplýsingar veita Guðný Friðriksdóttir - gudnyf@hsn.is - 860 7750 og Kristjana E Guðlaugsdóttir - kristjanag@hsn.is Helstu verkefni og ábyrgð • Fagleg og stjórnunarleg ábyrgð á hjúkrunarþjónustu og stoð- starfsemi hennar, samkvæmt skipuriti • Þátttaka í klínísku starfi, vaktir að hluta • Staðarumsjón • Tekur þátt í gerð áætlana varðandi rekstur og tryggir að rekstur og starfsmannamál séu í samræmi við fjárhagsáætlun • Tekur þátt í þverfaglegu samstarfi, þróun þjónustu og stjórnun verkefna á starfsstöðinni og þvert á stofnun • Hefur umsjón með starfsemi starfsstöðvarinnar samkvæmt skipuriti ásamt yfirlækni • Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu Hæfniskröfur • Íslenskt hjúkrunarleyfi og a.m.k. 5 ára starfsreynsla við hjúkrun • Viðbótarmenntun á sviði heilbrigðisvísinda, viðskiptafræði eða stjórnunar kostur • Farsæl stjórnunarreynsla og góð samskiptafærni • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi • Góð tölvukunnátta • Kennari í 1. bekk. 100% • Kennari í hönnun og smíði. 100% • Stuðningsfulltrúi í sérdeild fyrir nemendur með einhverfu. 80% Nánari upplýsingar á vef Reykjavíkurborgar: http://reykjavik.is/laus-storf og hjá Hreiðari Sigtryggssyni skólastjóra í síma 5533188 og á hreidar.sigtryggsson@rvkskolar.is. Lausar stöður í Langholtsskóla á vorönn 2022 SAMBAND ÍSLENSKRA SVEITARFÉLAGA Starf lögfræðings hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga Samband íslenskra sveitarfélaga hyggst ráða tímabundið lögfræðing á lögfræði- og velferðarsviði. Lögfræðingar sambandsins koma fram fyrir þess hönd við undirbúning lagafrumvarpa og stjórnvaldsfyrirmæla sem varða sveitar- félögin og vinna að upplýsingagjöf, ráðgjöf og fræðslu til sveitarfélaga. Lögfræðingurinn mun starfa ásamt öðrum lögfræðingum og sérfræðingum sviðsins að margþættum og síbreytilegum verkefnum, sem geta meðal annars varðað málefni félagsþjónustu, húsnæðismál og skipulags- og byggingamál, ásamt almennri aðstoð við sveitarfélög um túlkun laga og reglna sem varða starfsemi sveitarfélaga. Gerð er krafa um embættispróf í lögfræði eða meistarapróf í lögum, ásamt góðri þekkingu á stjórnsýslurétti. Reynsla af störfum á þeim málefnasviðum sem að ofan greinir er kostur, ásamt þekkingu og áhuga á málefnum sveitarfélaga. Gott vald á íslensku máli í ræðu og riti og hæfni í framsetn- ingu upplýsinga er skilyrði. Góð kunnátta í a.m.k. einu öðru Norðurlandamáli og ensku er æskileg, sem og góð tölvu- þekking, bæði til öflunar og úrvinnslu upplýsinga. Leitað er að hæfum einstaklingi sem hefur til að bera frumkvæði, sjálfstæði, þjónustulund, hæfni í mannlegum samskipt- um, nákvæmni í vinnubrögðum og forystu- og skipulag- shæfileika. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Föst starfsaðstaða getur verið utan höfuðborgarsvæðisins, að þeirri forsendu uppfylltri að mögulegt verði að tryggja fullnægjandi starfsaðstöðu nærri heimili umsækjanda en einnig á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í starfið til eins árs. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veita Guðjón Bragason, sviðsstjóri lögfræði- og velferðarsviðs, netfang: gudjon.bragason@samband.is, eða Valur Rafn Halldórsson sviðsstjóri rekstrar- og útgáfusviðs, netfang: valur@samband.is eða í síma 515-4900. Samband íslenskra sveitarfélaga er framsækinn vin- nustaður sem býður upp á opið vinnuumhverfi, samheldinn starfsmannahóp og skapar starfsmönnum gott svigrúm til starfsþróunar. Umsækjendum er bent á að frekari upplýsin- gar um Samband íslenskra sveitarfélaga eru á heimasíðun- ni, www.samband.is. Þar er einnig að finna starfslýsingu fyrir starfið og mannauðsstefnu sambandsins. Umsóknir, merktar Umsókn um starf lögfræðings á lög- fræði- og velferðarsviði, berist eigi síðar en mánudaginn 8. nóvember nk. til Sambands íslenskra sveitarfélaga, Borgartúni 30, pósthólf 8100, 128 Reykjavík, eða í tölvupósti til samband@samband.is. 8 ATVINNUBLAÐIÐ 23. október 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.