Fréttablaðið - 23.10.2021, Qupperneq 51
HORFIR ÞÚ
TIL FRAMTÍÐAR?
Skrifstofa Alþingis auglýsir nýtt og spennandi
starf framtíðarfræðings á nefndasviði og leitar að
jákvæðum, framsæknum og drífandi einstaklingi
í starfið. Í því felst sérfræðiaðstoð við nýja
framtíðarnefnd Alþingis, sbr. 35. gr. laga nr.
80/2021, en nefndinni er meðal annars ætlað að
fjalla um áskoranir og tækifæri Íslands til framtíðar,
til að mynda með tilliti til tæknibreytinga og
sjálfvirknivæðingu, umgengni við náttúru Íslands og
lýðfræðilegra breytinga.
Starfið felur meðal annars í sér gerð greininga og
sviðsmynda fyrir framtíðarnefndina, aðstoð við
stefnumótun og áætlanir ásamt öflun og úrvinnslu
ýmissa gagna. Unnið er í teymisvinnu með
sérfræðingum nefndasviðs eftir efni og verkefnum.
Starfið felur í sér tækifæri til mótunar nýrra verkefna
í lifandi og skemmtilegu starfsumhverfi.
• Fagleg aðstoð og ráðgjöf við framtíðarnefnd Alþingis.
• Gerð og greining sviðsmynda.
• Aðstoð við stefnumótun og áætlanagerð.
• Öflun, greining og úrvinnsla gagna.
• Vinna við skýrslugerð og útgáfu annars efnis.
• Skipulag og umsjón með starfi nefndarinnar.
• Háskólapróf á meistarastigi sem nýtist í starfi.
• Reynsla af greiningarvinnu og stefnumótun.
• Þekking eða reynsla á sviði framtíðarfræða er kostur.
• Jákvæðni, skipulagsfærni og framúrskarandi
samskiptahæfni.
• Ríkt frumkvæði og sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
• Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti.
• Góð tungumálakunnátta, einkum í ensku en
Norðurlandamál eru kostur.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hæfniskröfur
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem forseti
Alþingis og Félag starfsmanna Alþingis hafa gert. Tekið er
mið af jafnréttisáætlun skrifstofu Alþingis við ráðningar.
Umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt prófskírteinum og
kynningarbréfi þar sem umsækjandi rökstyður umsókn
sína og lýsir hæfni sinni til starfsins. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Umsóknir um starfið gilda í sex mánuði frá auglýsingu
þessari.
Um starfsemi Alþingis, skrifstofu þingsins og nefndasvið,
sjá vef Alþingis.
Sótt er um starfið á starfatorg.is
Umsóknarfrestur er til og með 08.11.2021
Frekari upplýsingar um starfið
gildi skrifstofu alþingis eru
framsækni | virðing | fagmennska
Nánari upplýsingar veitir:
Hildur Eva Sigurðardóttir, forstöðumaður nefndasviðs,
í síma. 563-0500.
Forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar
Við leitum að öflugum leiðtoga í stjórnendateymi VÍS til að leiða hóp sem sinnir framúrskarandi viðskiptastýringu,
sölu og þjónustu við fyrirtæki.
Hlutverk fyrirtækjaráðgjafar er einnig að sinna samstarfi á sviði forvarna og áhættumati á fyrirtækjaviðskiptum.
Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á að rækta og viðhalda langtíma viðskiptasamböndum.
Saman ætlum við að breyta því hvernig tryggingar virka og fækka tjónum og slysum viðskiptavina.
Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni
Þekking og reynsla af viðskiptastýringu á fyrirtækja-
markaði
Umtalsverð reynsla af stjórnun
Þekking og skilningur á rekstri fyrirtækja og atvinnulífinu
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Menntunar- og hæfniskröfur
Ábyrgð á viðskiptastýringu, ráðgjöf, sölu og þjónustu
við fyrirtæki
Ábyrgð á forvarnarsamstarfi við fyrirtæki
Ábyrgð á áhættumati á nýjum og núverandi viðskiptum
Nýta sóknartækifæri á fyrirtækjamarkaði
Leiða umbótastarf sem færir þjónustu við fyrirtæki yfir í
stafrænar lausnir
Leiða hóp starfsmanna í átt að markmiðum okkar og
sinna markvissri endurgjöf
Helstu verkefni og ábyrgð
Sæktu um í gegnum starfasíðuna okkar á vis.is/storf. Þar lætur þú fylgja starfsferilsskrá og kynningar-
bréf þar sem þú gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstyður hvernig þú uppfyllir hæfniskröfur.
Umsóknarfrestur er til og með 31. október. Við hvetjum öll þau sem uppfylla hæfniskröfur til að
sækja um óháð kyni.
Nánari upplýsingar veitir Hafdís Hansdóttir framkvæmdarstjóri þjónustu hafdis@vis.is eða
Agla Sigríður Björnsdóttir hjá Ráðum ráðningarstofu agla@radum.is
Ert þú leiðtoginn
sem við leitum að?
Það sem við höfum upp á að bjóða
Framúrskarandi vinnustað með einstaka vinnustaðamenningu || Fyrirmyndarfyrirtæki með áherslu á jafnrétti
Nýsköpunarumhverfi - við elskum hugrekki || Fyrirtæki sem hugsar til framtíðar með því að leggja áherslu á sjálfbærni
Tækifæri til þess að vaxa og dafna – í lífi og starfi
VI
S1
0-
20
21
Fyrirtæki
ársins 2021
hagvangur.is