Fréttablaðið - 23.10.2021, Qupperneq 65
Ég veit nákvæm-
lega hvernig þeim
líður, sérstaklega þegar
þau eru enn þá ný hérna.
Fayrouz Nouh
Rauði krossinn rekur
núorðið sennilega stærstu
fatakeðju landsins en versl-
anir er að finna á fjórum
stöðum á höfuðborgarsvæð-
inu og svo eru níu staðsettar
á landsbyggðinni. Búðirnar
selja endurseljanleg föt úr
fatagámum Rauða krossins
um land allt.
Elsa Vestmann, fatahönnuður með
meiru, er starfsmaður hjá fataverk-
efni Rauða krossins og fataflokk-
ari. Þá sér hún um samfélagsmiðla
Rauða kross-búðanna á höfuð-
borgarsvæðinu og netverslunina.
„Vinsældir verslana með notuð
föt fara sívaxandi og neytendur
verða æ meðvitaðri um kosti þess
að velja notað frekar en nýtt,“ segir
Elsa og vill hún hrósa Z-kynslóð-
inni sérstaklega fyrir sitt framtak.
„Ég sé mikinn áhuga hjá unga
fólkinu sem velur notað fram
yfir nýtt, og ekki bara til að spara
pening. Tölur segja að einn af
hverjum þremur af Z-kynslóðinni
kaupi notaðar flíkur.“ Samfélags-
miðlar spila líka sterkt inn í. „Þetta
er orðið það meginstraums að Kim
Kardashian gengur í notuðum
flíkum. Þetta finnst mér spenn-
andi þróun,“ segir Elsa.
Fataflokkunin í Reykjavík
flokkar textíl frá höfuðborgar-
svæðinu og landsbyggðinni og
sendir söluhæfar flíkur í verslan-
irnar í Reykjavík og um land allt.
Akureyri og Keflavík sjá um eigin
flokkun.
„Flokkunin gengur hratt
fyrir sig og það þarf
að hafa gott
auga. Við höfum
líka í huga
hvað selst núna
og hvað síðar.
Það er klass-
ískt að sumar-
fötin komi í lok
sumars. Þau eru
geymd fram á næsta vor
svo þau seljist almennilega.
Sama gildir um glimmer, pallíettur
og glamúr. Það selst best í nóvem-
ber og desember, en lítið hina
mánuðina.“
Möguleikar í endurnýtingu
„Aukning á því að fatahönn-
uðir kaupi af okkur hráefni sem
er ósöluhæft í verslunum okkar
er bein afleiðing af samstarfi
okkar við Listaháskólann.
Á öðru ári fatahönn-
unar er námskeið þar
sem nemendur skapa
línu úr endurnýttum
hráefnum frá Rauða
krossinum. Eftir það
leita margir hönn-
uðir til okkar áfram.
Það sem ekki fer í búðir eða
til hönnuða er sent með gámum til
útlanda. Þjóðverjar taka við miklu
en þeir eru stórir í textílendur-
vinnslu. Allur textíll býður upp á
möguleika í endurvinnslu. Ef efnið
hentar ekki áfram í nývinnslu má
vinna það í einangrun og fleira.
Draumurinn væri auðvitað að við
þyrftum ekkert að flytja úr landi
og gætum unnið úr öllum hrá-
efnum sjálf.“
Elsa bendir á að grænþvottur sé
algengur í tískuheiminum. „Stórar
fataverslanir selja föt úr „endur-
nýttum textíl“. Vandinn er sá að
engar reglur gilda um sönnunar-
byrði um magn endurunnins efnis
í f lík. Oft er fóðrið úr endurnýttu
pólýester en restin úr „virgin“ efni.
Keðjurnar eru oft með litlar línur
úr endurunnum efnum en brenna
svo mörg tonn af fatnaði sem eng-
inn hefur gengið í og hefur verið
fluttur þvers og kruss um heiminn.
Vissulega eru möguleikar fólgnir í
endurnýttum textíl en þá þurfa að
liggja sannanir fyrir því að hann sé
umhverfisvænn.“
Endurnýtum
Elsa fékk sjokk þegar hún
byrjaði að vinna við fata-
flokkunina 2019. „Við
fáum til okkar um 7-10
tuttugu feta gáma og
um 100 litla grennd-
argáma troðfulla af
textíl í viku hverri.
Meðal-Íslendingur
losar sig við um 20
kíló af textíl á ári
hverju. Það er rosalegt
magn.“
Neikvæð umhverfisáhrif
af einni nýrri flík segir hún koma
flestum á óvart. „Ef þú velur bara
einu sinni notaða flík fram yfir
nýja úr ósnortnu efni, ertu að
spara því sem nemur mengun
mörg hundruð bifreiða í eitt ár.
Það munar svo ótrúlega miklu að
endurnýta.“
Það er gaman að grafa
„Í fataflokkuninni fáum við
reglulega nostalgíukast. Stundum
fáum við heilu tímahylkin frá ein-
hverjum, kannski 40 tryllt outfit
frá 2001. Tískan siglir alltaf í hringi
og núna er þúsaldartískan einmitt
það allra heitasta. Það er líka yfir-
leitt þannig að ef þú finnur eina
fullkomna flík í verslun með notuð
föt, þá ertu kominn á bragðið.
Tískufíklarnir elska að koma í
Rauða krossinn og grafa upp gull-
molana. Við höldum líka reglulega
kílómarkaði í f lokkunarstöðinni
okkar og þeir eru alltaf mjög vin-
sælir,“ segir Elsa.
Ósamberanleg gæði
„Ég birti mynd af skyrtu á
Instagram-reikningi Rauða kross-
búðanna um daginn. Fyrrverandi
eigandi skyrtunnar setti athuga-
semd við færsluna og sagðist hafa
keypt hana í verslun í Danmörku
með notuð föt.
Næsti kaupandi mun því vera
að minnsta kosti þriðji eigandi
skyrtunnar, sem segir sitt um
endingu og notagildi fatnaðar sem
framleiddur er með gæði í huga en
ekki magn. Innanhúss tölum við
ekki um notuð föt lengur, heldur
klassísk föt. Þú ert að fá mikil gæði
á lágu verði. Og ekki skemmir fyrir
að hver flík er einstök.
Þetta á ekki við um
flestan tískufatnað
í dag.
Ég sé stórt
samasem-
merki milli
aukinnar
netverslunar
og fata sóunar.
Margar af
netsíðunum
selja mjög ódýr
föt í hrikalegum
gæðum. Efnin eru þunn, illa sniðin
og endast illa. Fyrir utan kol-
efnissporið eitt og sér kaupir fólk
margar flíkur og notar svo kannski
eina eða tvær, því afgangurinn er
ekki eins og hann leit út á vef-
síðunni eða passar ekki. Við sjáum
mikið magn af þessum flíkum í
flokkuninni sem eru enn þá með
merkimiðanum.
Ef fólk hugsar um uppá-
haldsflíkina sína, þá er hún það
örugglega ekki af því hún var svo
ótrúlega ódýr. Líklega er hún það
vegna þess að efnið er æðislegt,
sniðið gott og hún passar vel.“ n
Það munar svo ótrúlega miklu að endurnýta
Vinkonurnar Katrín Eiríks-
dóttir og Fayrouz Nouh
kynntust fyrir nokkrum
árum en þær búa í sama
fjölbýlishúsi á Akureyri. Þær
eru leiðsöguvinir sýrlenskr-
ar fjölskyldu sem kom sem
flóttafólk til Íslands nýlega.
Fayrouz kom sjálf til Íslands sem
flóttamaður árið 2016 og naut
aðstoðar leiðsöguvinar. Hún
segir það hafa hjálpað sér mjög
mikið. Þess vegna vildi hún gerast
leiðsöguvinur núna fyrir aðrar
fjölskyldur.
„Mér finnst þetta verkefni
mikilvægt vegna þess að það gerir
líf f lóttamanna á Íslandi miklu
léttara, og lætur þeim líða eins og
þau séu ekki einmana hér, heldur
með mikinn stuðning, sem hjálpar
mjög mikið. Ég var mjög spennt
fyrir þessu verkefni vegna þess
að ég er með sömu reynslu og
nýja fólkið, en það sem er mikil-
vægara er að ég fékk að vinna með
Katrínu, sem er mjög náin vinkona
mín,“ segir Fayrouz.
Katrín byrjaði að vinna í opnu
húsi fyrir flóttafólk og innflytj-
endur fyrir ári síðan og sló til þegar
óskað var eftir fólki í leiðsöguvina-
verkefnið.
„Fayrouz er ein besta vinkona
mín og er sjálf frá Sýrlandi. Við
fórum saman í þetta. Við komumst
í samband við sýrlenska fjölskyldu
í gegnum verkefnastjóra hjá Rauða
krossinum,“ segir Katrín.
Fjölskyldan samanstendur af
foreldrum með tvo syni, 12 og 15
ára, og svo er dóttir á leiðinni. Þær
Fayrouz og Katrín hitta fjölskyld-
una reglulega og segja að vinasam-
band hafi tekist með þeim.
„Ég reyni að hitta þau næstum
daglega, þótt það sé bara til að
kíkja til þeirra í 10 mínútur,“ segir
Fayrouz.
Félagslegur stuðningur
Katrín segir að verkefnið snúist
um að vera félagslegur stuðningur
fyrir fjölskylduna. „Við fengum
smá leiðsögn um það fyrst hvers
er ætlast til af okkur. Svo höfum
við þróað þetta samband út frá
þörfum fjölskyldunnar. Við hittum
þau ekki eins mikið þessa daga af
því mamman á von á sér á næstu
vikum. En ég fór í mat til þeirra á
sunnudaginn og við höfum hist
í kaffi hjá Fayrouz og nokkrum
sinnum hjá þeim.
Síðan ætlum við að plana meira
þegar barnið er komið yfir fyrstu
vikurnar,“ segir hún.
Fayrouz segir að þegar þau
hittist spjalli þau um daglega
lífið og hvernig allt var í Sýrlandi.
„Við förum saman út í búð og við
hjálpuðum verðandi móðurinni
að redda því sem þarf fyrir komu
barnsins. Við höfum líka heim-
sótt aðrar fjölskyldur og vini með
þeim.“
Eins og áður segir fékk Fayrouz
sjálf leiðsöguvini sem léttu henni
lífið og hjálpuðu henni að kynnast
samfélaginu þegar hún kom til
Íslands.
„Þau gáfu mér andlegan
stuðning og voru alltaf til staðar
fyrir mig,“ segir hún og bætir við
að reynsla hennar af því að vera
flóttamaður gagnist vel þegar hún
er leiðsöguvinur.
„Ég veit nákvæmlega hvernig
þeim líður, sérstaklega þegar þau
eru enn þá ný hérna. Ég var heppin
með það að ég kunni ensku þegar
ég kom, það hjálpaði mér með öll
samskiptin, en á sama tíma tók
ég eftir því hversu erfitt það var
fyrir hina flóttamennina að tala
við leiðsöguvini sína. Mér finnst
mikilvægt að vera með leiðsögu-
vini sem kunna sama tungumálið.“
Líður vel að hjálpa öðrum
Fayrouz og Katrín mæla báðar með
að gerast leiðsöguvinir.
„Mér finnst fólk kannski ekki
þora að gefa sig að fólki sem kemur
frá annarri menningu, sérstaklega
ef það eru tungumálaörðugleikar,“
segir Katrín.
„En það að bara stökkva inn í
þetta og byrja á þessu verkefni
opnar augu manns mikið. Ég hef
fengið svo nýja sýn á lífið, bara
við það að kynnast Fayrouz, sem
var undir allt öðrum kringum-
stæðum, og svo að kynnast þessari
fjölskyldu í gegnum sjálfboðaliða-
starf. Ég hef eignast fjölskylduvini
fyrir lífstíð. Svo finnst mér æðislegt
fyrir dætur mínar að fá að kynnast
öðruvísi menningu. Mér finnst
þetta mjög skemmtilegt og þau eru
mjög þakklát svo ég held við séum
öll að fá eitthvað út úr þessu.“
Fayrouz tekur undir þetta og
segir: „Það lætur manni líða vel
þegar maður er að hjálpa öðru
fólki sem þarf á hjálp að halda.“ n
Fá nýja sýn á lífið
Fayrouz og Katrín eru góðar vinkonur og leiðsöguvinir sýrlenskrar fjölskyldu
en Fayrouz kom sjálf sem flóttamaður frá Sýrlandi til Íslands árið 2016.
Flíkurnar sem fást á nytjamörkuðum eins og Rauða kross-búðunum eru ein-
stakar. Þá er skemmtilegast að grafa eftir gullmolunum.
Elsa Vestmann sér meðal annars um
Instagram-reikning Rauða kross-
verslananna. MYNDIR/AÐSENDAR
5LAUGARDAGUR 23. október 2021 HJÁLPIN