Fréttablaðið - 23.10.2021, Side 67
Trjáræktarverkefnið í Síerra
Leóne hefst á komandi
vikum og mánuðum en
verkefnið mun hafa víðtæk
áhrif á samfélagið, auka
fæðuöryggi fólks á svæðinu
og sporna við áhrifum lofts-
lagsbreytinga.
Til stendur að planta allt að
tveimur milljónum trjáa á næstu
tveimur árum, fyrir árslok 2023,
í Síerra Leóne. „Verkefnið er
hluti af stærra verkefni Alþjóða
Rauða krossins í Afríku þar sem
á að planta fimm milljörðum
trjáa fyrir lok 2030. Við byrjum
hægt og byggjum upp reynslu og
góðan grunn. Vonandi getum við
stækkað verkefnið í framtíðinni,
því þörfin er mikil fyrir aukna
trjárækt, ekki bara í Síerra Leóne
heldur víðar í Afríku og um heim
allan,“ segir Atli Viðar Thorsten-
sen, sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða
krossins.
Verkefnið er styrkt af utan-
ríkisráðuneytinu og Mannvinum
Rauða krossins. „Landgræðsluskól-
inn kemur einnig að verkefninu
með sérþekkingu á landgræðslu og
endurheimt lífríkis og tengslanet.
Hér er því um stóra og flotta
teymisvinnu hins opinbera, Rauða
krossins og almennings að ræða,“
segir Atli.
Hvers vegna Síerra Leóne?
„Síerra Leóne er eitt fátækasta
land í heimi og hefur á síðustu
árum gengið í gegnum hræðilega
borgarastyrjöld, ebóla-faraldur,
efnahagslegar þrengingar vegna
heimskreppunnar og nú enn vegna
heimsfaraldurs Covid-19. Aðgengi
íbúa, sérstaklega afskekktari sam-
félaga, að hreinu vatni, sjálfbærum
orkugjöfum og heilbrigði er afar
lítið og ólæsi er algengt.“
Hvaða áhrif munu trén hafa á
umhverfið og fólkið?
„Áhrifin eru margþætt og til
lengri tíma munu allir íbúar Síerra
Leóne hagnast á verkefninu.
Endurheimt skóglendis og gróðurs
mun auka fæðu- og vatnsöryggi,
bæta heilsu íbúa og viðnáms-
þol gegn loftslagsbreytingum.
Trjárækt mun enn fremur veita
efnahagslegan ávinning og stuðla
að verndun líffræðilegs fjölbreyti-
leika.“
Skammtímaáhrif munu ná til
um 30 þúsund manns í rúmlega 60
samfélögum þar sem skógareyðing
hefur verið mikið vandamál.
„Samfélögin voru valin í verkefnið
á grundvelli slæmrar stöðu íbúa,
skorts á aðgengi að nauðsynjum og
berskjöldun gagnvart hamförum,
skorti á vernd og samfélagslegri
þátttöku. Áhersla er lögð á þá íbúa
héraðanna sem hafa misst lífs-
viðurværi sitt vegna áhrifa lofts-
lagsbreytinga.
Samhliða trjárækt þarf að
finna leiðir til að draga almennt
úr skógarhöggi sem er oft nauð-
synlegt til þess að elda matvæli.
Ein leiðin er að finna skilvirkari
eldunarleiðir sem krefjast minna
eldsneytis. Önnur leið er að styðja
fólk við að finna sjálfbæra fram-
færslumöguleika, því skógarhögg
er ein leið til að afla tekna í sam-
félögunum. Í samráði við sam-
félögin verða völdum einstakling-
um sem stuðla að gróðureyðingu
boðin tækifæri til sjá fyrir sér án
ágangs á umhverfið, meðal annars
með fjárstyrk og þjálfun sem
hefur reynst vel í öðrum tilfellum.
Einnig verður íbúum á svæðinu
boðin þjálfun og annar stuðningur
við framleiðslu á orkusparandi
eldofnum til að minnka þörf á
kolum og timbri.
Hafa skal í huga að við erum að
tala um afskekkt samfélög þar sem
hvorki er rennandi vatn, rafmagn
né aðgengi að öðrum orkugjöfum
í hýbýlum en að fella og nýta tré.
Þetta verður stór og nauðsynlegur
þáttur í verkefninu til að sporna
við frekara skógarhöggi. Sam-
félögin sjálf sjá um að planta trjám
og huga að þeim. Trén verða einnig
fjölnota og því verður það hagur
fólksins að viðhalda skógunum.
Ef tekst að minnka þörf fyrir
eldivið fyrir matreiðslu teljum við
að skógarhögg verði ekki áfram
vandamál.“
Skiptir máli hvernig trjám er
plantað?
„Það fer eftir því hvar trjánum
er plantað en það verða fjölnota
tré sem hafa margvísleg áhrif. Trén
mega ekki raska líffræðilegu jafn-
vægi og hafa neikvæð áhrif heldur
munu þau passa inn í lífríkið sem
fyrir er. Þau binda meðal annars
vatn í jarðvegi til að draga úr líkum
á flóðum á rigningartímabili og
auka fæðuöryggi. Hafa má í huga
að í Síerra Leóne vaxa tré mun
hraðar en á Íslandi og verða mun
fljótar að gagni. Sé rétt staðið að
gróðursetningu trjáa gagnast hún
einnig við að stemma stigu við
neikvæðum áhrifum gróðurhúsa-
lofttegunda.“
Eru f leiri svona verkefni á
döfinni?
„Við hjá Rauða krossinum á
Íslandi höfum mikinn hug á því
að koma fleiri svona verkefnum af
stað en til þess þurfum við aukinn
stuðning. Þá er ég að tala um
aukinn stuðning Mannvina Rauða
krossins, stjórnvalda og atvinnu-
lífsins. Þetta er risastórt verkefni
sem við öll þurfum að takast á við
í sameiningu með langtímamark-
mið að leiðarljósi. Þá gæti Sjálf-
bærnisjóður Rauða krossins komið
sterkur inn,“ segir Atli.
Meginmarkmið Sjálfbærnisjóðs
Rauða krossins er styðja við heims-
markmið Sameinuðu þjóðanna
um sjálfbæra þróun. Þar má
nefna aðgengi að hreinu vatni, að
stuðla að heilbrigði og jafnrétti
kynjanna, koma í veg fyrir hungur
og fátækt og sporna gegn loftslags-
breytingum. Sjálfbærnisjóðurinn
brúar bilið á milli þriðja geirans,
stjórnvalda og fyrirtækja til að
vinna saman að þessum mark-
miðum Sameinuðu þjóðanna,
bæði í verkefnum okkar á Íslandi
og á alþjóðavettvangi.
„Fyrirtæki gegna lykilhlutverki
þegar kemur að markmiðum Sam-
einuðu þjóðanna. Það finnst að
vaxandi fjöldi fyrirtækja innleiðir
í starfsemi sína lykilárangursmæli-
kvarða, til að mæla og sannreyna
áhrif á samfélags- og umhverfis-
mál í samræmi við heimsmark-
miðin um sjálfbæra þróun. Með
því að taka upp meðvitaða stefnu í
samfélagslegri ábyrgð skapa fyrir-
tæki verðmæti fyrir alla hagaðila
og tryggja að rekstur samræmist
sjálfbærniviðmiðum. Velgengni
fyrirtækja mótast þannig ekki
eingöngu af skammtímahagnaði
heldur af langtímastefnu um sam-
félagsábyrgð og sjálfbærni,“ segir
Atli að lokum. n
Trjáræktarverkefni bætir afkomu í Síerra Leóne
Atli Viðar Thor-
stensen segir að
trjáræktarverk-
efnið í Sierra
Leone muni
hafa víðfeðm
áhrif á afkomu
fólks á svæð-
unum og sporna
gegn loftslags-
breytingum.
Starfsmenn Öryggismið-
stöðvarinnar hafa um nokk-
urt skeið tekið rafrænt nám-
skeið frá Rauða krossinum
með mjög góðum árangri.
Öryggismiðstöðin og Rauði kross-
inn hafa um nokkurt skeið átt í
samstarfi í tengslum við rafræna
fræðslu starfsmanna Öryggis-
miðstöðvarinnar. Starfsmenn
hafa tekið vel í fræðsluna að sögn
Bjarka Péturssonar, sérfræðings
hjá Öryggismiðstöðinni, sem segir
hana nýtast vel í starfi. „Samstarfið
hófst eftir að við fengum upp-
lýsingar frá Rauða krossinum um
aðgengilegt skyndihjálparnám-
skeið á vefnum. Við útbjuggum
leiðbeiningar sem við settum upp
í fræðslukerfinu okkar varðandi
hvernig starfsfólk getur sótt
skyndihjálparnámskeiðið rafrænt.
Í kjölfarið geta stjórnendur fylgst
með hvaða starfsmenn opna leið-
beiningarnar og klára námskeiðið.“
Færni sem skiptir máli
Hann segir það hafa verið
heillaskref að veita starfsfólki
fyrirtækisins aðgengi að rafrænu
skyndihjálparnámskeiði svo það
gæti öðlast nauðsynlega fræðslu
og hæfni í skyndihjálp. „Vaninn er
að halda skyndihjálparnámskeið
árlega í höfuðstöðvum okkar sem
gagnvirkt staðnámskeið til þess
að starfsfólk geti fengið að athafna
sig í skyndihjálp. Vegna Covid-19
var ekki mögulegt að halda stað-
námskeið yfir langan tíma og því
reyndist rafrænt skyndihjálpar-
námskeið eina færa leiðin til þess
að bjóða starfsfólki okkar upp
á nauðsynlega fræðslu í skyndi-
hjálp.“
Bjarki segir mjög mikilvægt að
færni í skyndihjálp sé til staðar inni
á öllum vinnustöðum. „Í öryggis-
geiranum er hún skylda og það er
okkar faglega mat að vinnustaðir
setji skyndihjálparnámskeið inn í
almenna starfsmannafræðslu. Það
er stutt á milli feigs og ófeigs og slys
gera sjaldnast boð á undan sér. Því
betur sem fólk er undirbúið, þeim
mun meiri líkur eru á að málum
ljúki farsællega.“
Bar strax árangur
Sem fyrr segir hafa starfsmenn
Öryggismiðstöðvarinnar tekið
fræðslunni vel og hefur hún
gagnast þeim vel í starfi. „Sem
dæmi var einn starfsmaður
nýbúinn að horfa á rafrænt nám-
skeið þegar neyðarboð barst inn
á stjórnstöð. Starfsmaðurinn hélt
ró sinni, bað viðkomandi að lýsa
einkennum sínum og samkvæmt
þeim var viðkomandi að upplifa
einkenni hjartaáfalls. Starfsmaður-
inn sýndi fram á rétt viðbrögð og
veitti viðkomandi faglega aðstoð
símleiðis á meðan viðbragðsaðilar
voru á leið á vettvang. Viðkomandi
var komið undir læknishendur og
atvikið hlaut farsælan endi. Starfs-
maðurinn er eftir á að hyggja ekki
viss um að hann hefði vitað hvað
viðkomandi hefði verið að ganga
í gegnum ef hann hefði ekki verið
nýbúinn að horfa á fræðsluefnið.
Þetta atvik er góð áminning um
mikilvægi þess að kunna rétt við-
brögð í fyrstu hjálp og rifja hana
upp reglulega.“
Frekari samvinna fyrirhuguð
Bjarki á von á frekari samstarfi við
Rauða krossinn á næstu árum. „Við
stefnum á að fá afhent fleiri rafræn
námskeið frá Rauða krossinum.
Þessi námskeið hafa verið haldin
sem staðnámskeið hjá Rauða
krossinum í gegnum tíðina en
eru nú komin yfir á rafrænt form.
Þetta eru nokkur námskeið sem
eru klæðskerasniðin að mörgum
starfstengdum þáttum innan
okkar raða. Við teljum að nám-
skeiðin komi til með að aðstoða
starfsfólk okkar við að vera betur
í stakk búið að bregðast við ýmsu
sem getur komið upp á í þeirra
störfum. Einnig er jákvætt fyrir
starfsfólk að hafa aðgengi að hag-
nýtu fræðsluefni sem kennir því
ákveðna verkferla og rétt viðbrögð
í störfum sínum.“ n
Slys gera sjaldnast
boð á undan sér
Bjarki Pétursson er sérfræðingur hjá Öryggismiðstöðinni, FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Því betur sem fólk
er undirbúið, þeim
mun meiri líkur eru á að
málum ljúki farsællega.
Bjarki Pétursson
7LAUGARDAGUR 23. október 2021 HJÁLPIN