Fréttablaðið - 23.10.2021, Side 69

Fréttablaðið - 23.10.2021, Side 69
Heilsueflandi samfélag Landsþing hvetur stjórnvöld til að stuðla að heilsueflandi samfélagi með öllum tiltækum ráðum. Hæfileg hreyfing, nægur svefn, hvíld, hollt mataræði og jákvæð félagsleg gildi eru lykill að velferð allra landsmanna. Einnig skorar Landsþing á skólayfirvöld að setja skýr mörk um notkun snjallsíma í grunnskólum. Endurhæfing Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands hefur í áratugi vakið athygli á heildrænni meðferð í endurhæfingu og það hefur sýnt sig að starfsemi hennar er mikilvægur hlekkur í heilbrigðisþjónustu landsins. Hún byggir á hreyfingu við hæfi, hvíld og heilsusamlegu mataræði í umvefjandi umhverfi. Lögð er áhersla á að einstaklingurinn beri ábyrgð á eigin heilsu. Sjálfbærni og samfélagsleg ábyrgð eru hornsteinar Heilsustofnunar. Landsþing hvetur stjórnvöld til þess að huga betur að endurhæfingu og forvarnagildum á Íslandi. Nikótínpúðar og orkudrykkir Landsþing NLFÍ hvetur til átaks í fræðslu um skaðsemi munntóbaks, sérstaklega í formi tilbúinna nikótínpúða. Aukin notkun nikótínpúða meðal barna og unglinga er áhyggjuefni en fæst þeirra hafa neytt nikótíns í öðru formi. Neysla koffín- og orkudrykkja getur valdið svefnleysi og ýmsum kvillum hjá börnum og fullorðnum en efla þarf fræðslu um þessa tegund drykkja. Umhverfis- og loftlagsmál Landsþing NLFÍ skorar á íslensk stjórnvöld að grípa tafarlaust til afdráttarlausra og öflugra aðgerða til að snúa við þeirri ógnvænlegu þróun sem nú blasir við í loftslagsmálum og ógnar öllu lífríki. Einnig verður að standa vörð um ósnortin víðerni í náttúru Íslands og fyrirbyggja að mikill ágangur ferðamanna skaði viðkvæma náttúru Íslands. Varðandi endurvinnslu er nauðsynlegt að samræma reglur um flokkun og endurvinnslu á landsvísu. Lífrænn landbúnaður á Íslandi Landsþing NLFÍ krefst þess að stjórnvöld hefji þegar í stað vinnu við aðgerðaáætlun um eflingu lífrænnar framleiðslu. Ísland stendur öðrum Evrópulöndum langt að baki á því sviði. Nú stefna lönd Evrópusambandsins að því að innan tíu ára (árið 2030) verði 25% nytjalands vottað lífrænt og er þar unnið eftir fjölþættri áætlun um þróunarstarf á sviði lífræns landbúnaðar, vöruþróunar og neytendamála. Í grannlöndum okkar er markvisst unnið að stigvaxandi notkun lífrænna matvæla í stóreldhúsum mennta-, öldrunar- og heilbrigðisstofnana. Lífrænar ræktunar- og eldisaðferðir draga úr gróðurhúsaáhrifum með aukinni bindingu kolefnis í landbúnaði og rannsóknir staðfesta að þær skila hreinni matvælum með fjölþættari næringarsamsetningu. Landsþing bendir á að tryggja þarf að ákvæðum reglugerðar um merkingar á matvælum sem framleidd eru úr erfðabreyttum lífverum og afurðum þeirra sé framfylgt. Tryggja þarf að upprunamerkingar matvæla séu réttar og greinilegar. Ályktanir 38. landsþings Náttúrulækningafélags Íslands Náttúrulækningafélag Íslands Laugavegi 7 - 101 Reykjavík - Sími: 552 8191 - www.nlfi.is Berum ábyrgð á eigin heilsu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.