Fréttablaðið - 23.10.2021, Side 74

Fréttablaðið - 23.10.2021, Side 74
Ég var búin að átta mig á því að það væri bara ein leið fær, að horfast í augu við þetta, ef ég ætlaði að geta stund- að mína íþrótt og verða ég aftur. Við sjáum vissulega að líkamsímyndarvandi er til að mynda talsvert algengt vandamál hjá íþróttafólki í ýmsum greinum. Birna Varðardóttir vinnur nú að rannsókn um næringar- ástand íslensks íþróttafólks. Sjálf þekkir hún af eigin raun sem íþróttakona hver áhrif ófullnægjandi nær- ingar á árangur geta verið en á unglingsárunum glímdi hún við átröskun. Áhug inn á hlaupum kviknaði þegar ég próf- aði um 12 ára gömul að taka þátt í f imm kílómetra víðavangs- hlaupi,“ segir Birna, sem í dag er doktorsnemi í íþrótta- og heilsu- fræði við Háskóla Íslands. „Fram að því hafði ég prófað ýmsar íþróttir en aldrei fundið mig almennilega. Ég hafði líka lent í frekar alvarlegu einelti og sjálfsmyndin var svolítið eftir því. Fljótlega eftir þetta fór ég að æfa frjálsar með áherslu á hlaupin og varð fljótt mjög metnaðarfull. Á brautinni fann ég ákveðna viður- kenningu og þótti ansi efnileg. Það er kannski til marks um mína full- komnunaráráttu að ég fór að leita leiða til að ná enn þá lengra og þar kom mataræðið og þyngdartap inn. Þetta er hættulegt því fyrst virkar þetta og maður nær að bæta sig og jafnvel ansi mikið og hratt en svo lendir maður bara á vegg.“ Var búin að missa tökin Birna var nýbyrjuð í Versló þegar fór að halla undan fæti. „Ég hafði gengið það mikið á mig og mína orku að skyndilega átti ég erfitt með að komast upp tröppurnar í skólanum.“ Birna segir það hafa tekið hana svolítinn tíma að viðurkenna fyrir sjálfri sér og fólkinu sínu að í óefni væri komið. „Það var erfitt að átta sig á að maður væri búinn að missa tökin. Orkuleysið birtist á margan máta í daglegu lífi og á æfingum hætti ég til dæmis að ráða við hraða- breytingar úr hægu skokki í sprett og öll afkastageta hrundi. Það var mjög sérstakt að upplifa þetta. Það er ekki alltaf samasem-merki á milli átrask- ana og undirþyngdar en þarna var ég komin í verulega undirþyngd. Fjölskyldan hafði miklar áhyggjur, ég var kölluð á fundi í skólanum, tók eftir að stöðvarstjórar í ræktinni voru farnir að fylgjast með mér og ég man eftir sundferð þar sem laugar- vörðurinn fylgdist sérstaklega með því að ég hefði það yfir laugina. Orkuleysið var bara orðið algjört. En maður var samt alltaf að vona að þetta myndi reddast einhvern veginn.“ Útbjó sitt eigið teymi Birna var greind með átröskun á Barna- og unglingageðdeild (BUGL) og sótti nokkur viðtöl þar. „Ég fann þó f ljótt að það var ekki leiðin sem ég var reiðubúin að fara sem íþróttakona og ákvað í samvinnu við foreldra mína að hætta í þeirri meðferð. Ég bjó mér hálfpartinn til mitt eigið teymi. Ég var með ein- stakan styrktarþjálfara í gegnum þetta allt og á frábæra fjölskyldu auk þess sem ég fór til hjartalæknis, næringarfræðings og annarra sér- fræðinga. Ég var búin að átta mig á því að það væri bara ein leið fær, að horfast í augu við þetta, ef ég ætlaði að geta stundað mína íþrótt og verða ég aftur. Ég var komin í vítahring.“ Birna tók sér árs frí frá keppni, fékk grænt ljós á að stunda léttar styrktaræfingar en vann aðallega í að byggja sjálfa sig upp. „Eftir ár hafði ég varla snert hlaupaskóna og prófaði að taka 10 kílómetra hlaup og bætti mig mikið. Ég var nokkuð þyngri en ári áður en það var mikið kikk að finna að orkan var komin aftur og skilaði sér í bættum árangri. Þyngdaraukningin og styrkurinn gerði mikið fyrir mig. Það var gott að færa áhersluna frá þessum útlits- og þyngdarmiðaða fókus og yfir á næringu og orku, afkastagetu og bara alla líðan.“ Birna fór að stunda Boot camp af fullum krafti og segir þjálfara sinn þar hafa stutt sig vel. „Það var mikil- Íþróttafólk upplifir pressu vegna útlits og þyngdar Birna fékk áhuga á hlaupum aðeins 12 ára gömul og fór fljótt að leita leiða til að bæta árangurinn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI vægt að vinna með einhverjum sem sýndi mér góðan skilning.“ Meðvituð um mörk sín Birna segist hafa verið komin í þokkalegt jafnvægi síðasta ár sitt í menntaskóla og nú, sjö árum síðar, þurfi hún að vera nokkuð meðvituð um sig. „Ég náði fullum bata en það þýðir ekki að það verði aldrei neitt erfitt aftur eða ákveðnir hlutir geti ekki triggerað.“ Birna segist hafa verið inn og út úr keppnum síðustu árin en samhliða hlaupunum hafi hún líka fundið sig í kraftlyftingum og farið að blanda þessu saman. „Ég finn að að vissu leyti þoli ég ekki sama hlaupaálag og áður og þarf að vera meðvituð um það hvar mörkin mín liggja. Líkaminn er pínu á varðbergi þar.“ Birna lærði næringarfræði við Háskóla Íslands og bætti í framhaldi við sig meistaragráðu í íþróttanær- ingarfræði í Hollandi. „Nú á doktors- námið og RED-Í rannsóknarverk- efnið hug minn allan.“ RED-Í rannsóknin fer fram í tveimur hlutum, fyrri hlutinn er rafrænn spurningalisti sem lagður er fyrir þátttakendur sem uppfylla skil- yrði um að hafa náð 15 ára aldri og vera afreks- eða framhaldsiðkendur í sinni grein. Svo munu um 100 þátt- takendur fá boð um þátttöku í frek- ari mælingum eftir áramót. „Það er enn hægt að skrá sig til leiks og viljum við fá sem f lest íþróttafólk til að taka þátt í þessu með okkur,“ segir Birna og hvetur íþróttafólk sem vill taka þátt til að kanna málið á heimasíðunni redi. hi. is og tengdum samfélagsmiðlum. Rannsakar næringu íþróttafólks „Þessi hlutfallslegi orkuskortur (Relative Energy Deficiency in Sport, RED-S) sem við erum að skoða sér- staklega í RED-Í getur átt sér ýmsar orsakir. Allt frá því að fólk er að æfa mjög mikið og gerir sér ekki grein fyrir að það þurfi að borða þetta mikið, eða gleymir einfaldlega að borða, og til klínískra átraskana. Við sjáum vissulega að líkams- ímyndarvandi er til að mynda tals- vert algengt vandamál hjá íþrótta- fólki í ýmsum greinum, meðal annars hérlendis. Sé litið til alþjóð- legra rannsókna þá virðist algengi neikvæðrar líkamsímyndar, átrask- ana og/eða RED-S nokkuð breytilegt milli íþróttagreina en getur sannar- lega komið upp hjá öllu íþróttafólki.“ „Í grunninn á allt íþróttafólk það sameiginlegt að vera metnaðarfullt og leita ólíkra leiða til að ná árangri. Oft kemur mataræðið þar f ljótt upp sem mögulegur árangursauk- andi þáttur. Sumt íþróttafólk upp- lifir innri og/eða ytri pressu til að ná fram breytingum á þyngd og líkams- samsetningu. Oft er svo talað um til dæmis úthaldsíþróttir eins og hjól og hlaup, fagurfræðilegar greinar eins og fimleikar og ballett, og þess- ar eiginlegu þyngdarflokkaíþróttir sem áhættugreinar hvað þetta allt snertir.“ Tabú í umræðunni Birna segir þetta hafa verið ákveðið tabú í umræðunni en sjálf hafi hún talað og skrifað opinskátt um sína baráttu frá upphafi. „Það er mikil- vægt að umræðan sé opin og fólk upplifi sig ekki eitt. Á sínum tíma fannst mér umræðan hér heima mjög lítil og lokuð en erlendis hefur margt íþróttafólk stigið fram og ég sótti svolítið í að lesa um það. En umræðan um andlegar áskoranir og fleira þessu tengt hefur aukist til muna síðustu árin og fólk bæði orðið opnara fyrir að segja frá og hlusta.“ Birna leggur áherslu á að íþróttir auki ekki líkurnar á átröskunum en það séu ákveðnir þættir í umhverfi þeirra sem þurfi að kunna að vinna rétt með og ætlunin sé að nota niðurstöður rannsóknarinnar til þessa. „Við sjáum fyrir okkur að byggja á niðurstöðunum við þróun íslenskra ráðlegginga, matstækja og forvarna fyrir íþróttahreyfinguna. Þannig gætum við gripið fólk fyrr og betur en ella. Við vitum líka að í dag getur verið yfir árs bið að komast að hjá átröskunarteymum Landspítal- ans, sem er mikið áhyggjuefni. Sjálf upplifði ég vanmátt og þekkingar- leysi víða en var heppin að finna þá aðstoð sem ég þurfti. Við þurfum að hafa einhvern meiri strúktur í kringum þessa hluti og við viljum byggja það upp. Eins þarf aukna vitundarvakningu hjá þjálfurum og í raun öllum fagaðilum sem vinna með íþróttafólki á einn eða annan hátt. Það skiptir máli að þeir þekki merkin og viti hvernig eigi að nálgast og styðja einstaklinginn í þessu, sem getur vissulega verið mjög vanda- samt en engu að síður gríðarlega mikilvægt,“ segir Birna að lokum. n RED-Í Rannsóknin sem ber heitið RED-Í er hluti af doktors- verkefni Birnu í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands en leiðbeinendur og samstarfskonur hennar í verk- efninu eru þær dr. Sigríður Lára Guðmundsdóttir og dr. Anna Sigríður Ólafsdóttir. Mark- mið rannsóknarinnar er að meta næringarástand íslensks íþróttafólks; með áherslu á það sem kallast tiltæk orka, algengi og áhættuþættir hlut- fallslegs orkuskorts í íþróttum (RED-S). Á heimasíðunni red.hi.is má finna allar upplýsingar um verkefnið og leiðbeiningar varðandi þátttöku. Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is 34 Helgin 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.