Fréttablaðið - 23.10.2021, Síða 74
Ég var búin
að átta mig
á því að
það væri
bara ein
leið fær, að
horfast í
augu við
þetta, ef ég
ætlaði að
geta stund-
að mína
íþrótt og
verða ég
aftur.
Við sjáum vissulega að
líkamsímyndarvandi
er til að mynda talsvert
algengt vandamál hjá
íþróttafólki í ýmsum
greinum.
Birna Varðardóttir vinnur nú
að rannsókn um næringar-
ástand íslensks íþróttafólks.
Sjálf þekkir hún af eigin
raun sem íþróttakona hver
áhrif ófullnægjandi nær-
ingar á árangur geta verið en á
unglingsárunum glímdi hún
við átröskun.
Áhug inn á hlaupum
kviknaði þegar ég próf-
aði um 12 ára gömul
að taka þátt í f imm
kílómetra víðavangs-
hlaupi,“ segir Birna, sem í dag er
doktorsnemi í íþrótta- og heilsu-
fræði við Háskóla Íslands. „Fram að
því hafði ég prófað ýmsar íþróttir
en aldrei fundið mig almennilega.
Ég hafði líka lent í frekar alvarlegu
einelti og sjálfsmyndin var svolítið
eftir því. Fljótlega eftir þetta fór ég
að æfa frjálsar með áherslu á hlaupin
og varð fljótt mjög metnaðarfull. Á
brautinni fann ég ákveðna viður-
kenningu og þótti ansi efnileg. Það
er kannski til marks um mína full-
komnunaráráttu að ég fór að leita
leiða til að ná enn þá lengra og þar
kom mataræðið og þyngdartap inn.
Þetta er hættulegt því fyrst virkar
þetta og maður nær að bæta sig og
jafnvel ansi mikið og hratt en svo
lendir maður bara á vegg.“
Var búin að missa tökin
Birna var nýbyrjuð í Versló þegar fór
að halla undan fæti. „Ég hafði gengið
það mikið á mig og mína orku að
skyndilega átti ég erfitt með að
komast upp tröppurnar í skólanum.“
Birna segir það hafa tekið hana
svolítinn tíma að viðurkenna fyrir
sjálfri sér og fólkinu sínu að í óefni
væri komið. „Það var erfitt að átta
sig á að maður væri búinn að missa
tökin. Orkuleysið birtist á margan
máta í daglegu lífi og á æfingum
hætti ég til dæmis að ráða við hraða-
breytingar úr hægu skokki í sprett og
öll afkastageta hrundi. Það var mjög
sérstakt að upplifa þetta. Það er ekki
alltaf samasem-merki á milli átrask-
ana og undirþyngdar en þarna var
ég komin í verulega undirþyngd.
Fjölskyldan hafði miklar áhyggjur,
ég var kölluð á fundi í skólanum,
tók eftir að stöðvarstjórar í ræktinni
voru farnir að fylgjast með mér og ég
man eftir sundferð þar sem laugar-
vörðurinn fylgdist sérstaklega með
því að ég hefði það yfir laugina.
Orkuleysið var bara orðið algjört.
En maður var samt alltaf að vona
að þetta myndi reddast einhvern
veginn.“
Útbjó sitt eigið teymi
Birna var greind með átröskun á
Barna- og unglingageðdeild (BUGL)
og sótti nokkur viðtöl þar. „Ég fann
þó f ljótt að það var ekki leiðin
sem ég var reiðubúin að fara sem
íþróttakona og ákvað í samvinnu
við foreldra mína að hætta í þeirri
meðferð. Ég bjó mér hálfpartinn
til mitt eigið teymi. Ég var með ein-
stakan styrktarþjálfara í gegnum
þetta allt og á frábæra fjölskyldu
auk þess sem ég fór til hjartalæknis,
næringarfræðings og annarra sér-
fræðinga. Ég var búin að átta mig á
því að það væri bara ein leið fær, að
horfast í augu við þetta, ef ég ætlaði
að geta stundað mína íþrótt og verða
ég aftur. Ég var komin í vítahring.“
Birna tók sér árs frí frá keppni,
fékk grænt ljós á að stunda léttar
styrktaræfingar en vann aðallega
í að byggja sjálfa sig upp. „Eftir ár
hafði ég varla snert hlaupaskóna og
prófaði að taka 10 kílómetra hlaup
og bætti mig mikið. Ég var nokkuð
þyngri en ári áður en það var mikið
kikk að finna að orkan var komin
aftur og skilaði sér í bættum árangri.
Þyngdaraukningin og styrkurinn
gerði mikið fyrir mig. Það var gott
að færa áhersluna frá þessum útlits-
og þyngdarmiðaða fókus og yfir á
næringu og orku, afkastagetu og
bara alla líðan.“
Birna fór að stunda Boot camp af
fullum krafti og segir þjálfara sinn
þar hafa stutt sig vel. „Það var mikil-
Íþróttafólk upplifir pressu
vegna útlits og þyngdar
Birna fékk áhuga á hlaupum aðeins 12 ára gömul og fór fljótt að leita leiða til að bæta árangurinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
vægt að vinna með einhverjum sem
sýndi mér góðan skilning.“
Meðvituð um mörk sín
Birna segist hafa verið komin í
þokkalegt jafnvægi síðasta ár sitt í
menntaskóla og nú, sjö árum síðar,
þurfi hún að vera nokkuð meðvituð
um sig. „Ég náði fullum bata en það
þýðir ekki að það verði aldrei neitt
erfitt aftur eða ákveðnir hlutir geti
ekki triggerað.“
Birna segist hafa verið inn og út úr
keppnum síðustu árin en samhliða
hlaupunum hafi hún líka fundið sig
í kraftlyftingum og farið að blanda
þessu saman. „Ég finn að að vissu
leyti þoli ég ekki sama hlaupaálag
og áður og þarf að vera meðvituð
um það hvar mörkin mín liggja.
Líkaminn er pínu á varðbergi þar.“
Birna lærði næringarfræði við
Háskóla Íslands og bætti í framhaldi
við sig meistaragráðu í íþróttanær-
ingarfræði í Hollandi. „Nú á doktors-
námið og RED-Í rannsóknarverk-
efnið hug minn allan.“
RED-Í rannsóknin fer fram í
tveimur hlutum, fyrri hlutinn er
rafrænn spurningalisti sem lagður er
fyrir þátttakendur sem uppfylla skil-
yrði um að hafa náð 15 ára aldri og
vera afreks- eða framhaldsiðkendur
í sinni grein. Svo munu um 100 þátt-
takendur fá boð um þátttöku í frek-
ari mælingum eftir áramót.
„Það er enn hægt að skrá sig til
leiks og viljum við fá sem f lest
íþróttafólk til að taka þátt í þessu
með okkur,“ segir Birna og hvetur
íþróttafólk sem vill taka þátt til að
kanna málið á heimasíðunni redi. hi.
is og tengdum samfélagsmiðlum.
Rannsakar næringu íþróttafólks
„Þessi hlutfallslegi orkuskortur
(Relative Energy Deficiency in Sport,
RED-S) sem við erum að skoða sér-
staklega í RED-Í getur átt sér ýmsar
orsakir. Allt frá því að fólk er að æfa
mjög mikið og gerir sér ekki grein
fyrir að það þurfi að borða þetta
mikið, eða gleymir einfaldlega að
borða, og til klínískra átraskana.
Við sjáum vissulega að líkams-
ímyndarvandi er til að mynda tals-
vert algengt vandamál hjá íþrótta-
fólki í ýmsum greinum, meðal
annars hérlendis. Sé litið til alþjóð-
legra rannsókna þá virðist algengi
neikvæðrar líkamsímyndar, átrask-
ana og/eða RED-S nokkuð breytilegt
milli íþróttagreina en getur sannar-
lega komið upp hjá öllu íþróttafólki.“
„Í grunninn á allt íþróttafólk það
sameiginlegt að vera metnaðarfullt
og leita ólíkra leiða til að ná árangri.
Oft kemur mataræðið þar f ljótt
upp sem mögulegur árangursauk-
andi þáttur. Sumt íþróttafólk upp-
lifir innri og/eða ytri pressu til að ná
fram breytingum á þyngd og líkams-
samsetningu. Oft er svo talað um til
dæmis úthaldsíþróttir eins og hjól
og hlaup, fagurfræðilegar greinar
eins og fimleikar og ballett, og þess-
ar eiginlegu þyngdarflokkaíþróttir
sem áhættugreinar hvað þetta allt
snertir.“
Tabú í umræðunni
Birna segir þetta hafa verið ákveðið
tabú í umræðunni en sjálf hafi hún
talað og skrifað opinskátt um sína
baráttu frá upphafi. „Það er mikil-
vægt að umræðan sé opin og fólk
upplifi sig ekki eitt. Á sínum tíma
fannst mér umræðan hér heima
mjög lítil og lokuð en erlendis hefur
margt íþróttafólk stigið fram og ég
sótti svolítið í að lesa um það. En
umræðan um andlegar áskoranir
og fleira þessu tengt hefur aukist til
muna síðustu árin og fólk bæði orðið
opnara fyrir að segja frá og hlusta.“
Birna leggur áherslu á að íþróttir
auki ekki líkurnar á átröskunum en
það séu ákveðnir þættir í umhverfi
þeirra sem þurfi að kunna að vinna
rétt með og ætlunin sé að nota
niðurstöður rannsóknarinnar til
þessa. „Við sjáum fyrir okkur að
byggja á niðurstöðunum við þróun
íslenskra ráðlegginga, matstækja og
forvarna fyrir íþróttahreyfinguna.
Þannig gætum við gripið fólk fyrr og
betur en ella. Við vitum líka að í dag
getur verið yfir árs bið að komast að
hjá átröskunarteymum Landspítal-
ans, sem er mikið áhyggjuefni. Sjálf
upplifði ég vanmátt og þekkingar-
leysi víða en var heppin að finna þá
aðstoð sem ég þurfti. Við þurfum
að hafa einhvern meiri strúktur í
kringum þessa hluti og við viljum
byggja það upp. Eins þarf aukna
vitundarvakningu hjá þjálfurum
og í raun öllum fagaðilum sem vinna
með íþróttafólki á einn eða annan
hátt. Það skiptir máli að þeir þekki
merkin og viti hvernig eigi að nálgast
og styðja einstaklinginn í þessu, sem
getur vissulega verið mjög vanda-
samt en engu að síður gríðarlega
mikilvægt,“ segir Birna að lokum. n
RED-Í
Rannsóknin sem ber heitið
RED-Í er hluti af doktors-
verkefni Birnu í íþrótta- og
heilsufræði við Háskóla
Íslands en leiðbeinendur og
samstarfskonur hennar í verk-
efninu eru þær dr. Sigríður Lára
Guðmundsdóttir og dr. Anna
Sigríður Ólafsdóttir. Mark-
mið rannsóknarinnar er að
meta næringarástand íslensks
íþróttafólks; með áherslu á
það sem kallast tiltæk orka,
algengi og áhættuþættir hlut-
fallslegs orkuskorts í íþróttum
(RED-S).
Á heimasíðunni red.hi.is
má finna allar upplýsingar um
verkefnið og leiðbeiningar
varðandi þátttöku.
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
34 Helgin 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ