Fréttablaðið - 23.10.2021, Síða 88

Fréttablaðið - 23.10.2021, Síða 88
Ég vil að sögurnar séu bæði æsispennandi, skondnar og líka áhugaverðar þannig að lesendur fái eitthvað meira út úr lestrinum en bara spennu og skemmtun. Organisti/Tónlistarstjóri óskast Sóknarnefndir Brautarholts – og Reynivallasókna Kjalarnessprófasts- dæmi auglýsa eftir organista/tónlistarstjóra í 30% fasta stöðu við Reynivallaprestakall frá 1. janúar 2022. Leitað er eftir einstaklingi sem: • Hefur metnað fyrir tónlistaþætti helgihaldsins. • Hefur áhuga á að viðhalda og efla enn frekar öflugan kirkjukór. • Er tilbúinn í gott samstarf við sóknarprest prestakallsins. Laun samkv. kjarasamningi organista hjá FÍH og launanefndar Þjóðkirkjunnar. Umsóknir skulu sendar rafrænt til bjorn@brautarholt.is Umsóknarfrestur er til 1. desember n.k. Allar upplýsingar um starfið gefa: Björn Jónsson, formaður Brautarholtssóknar 892-3042 - bjorn@brautarholt.is sr. Arna Grétarsdóttir, sóknarprestur 865-2105 - arna.gretarsdottir@kirkjan.is Nýlega kom út þriðja bókin í hinum vinsæla þríleik Snæ- björns Arngrímssonar um vinina Millu og Guðjón G. Georgsson og fólkið í Álftabæ. Handbók Gullgrafarans er titillinn á nýju bókinni. kolbrunb@frettabladid.is Fyrsta bókin í f lokknum, Rann- sóknin á leyndardómum Eyði- hússins, hreppti Íslensku barna- bókaverðlaunin og bók númer tvö, Dularfulla styttan og drengurinn sem hvarf, hlaut Barnabókaverð- laun Reykjavíkurborgar. „Það var mjög uppörvandi að hreppa tvenn verðlaun fyrir tvær bækur. Nú vona ég að ég hafi heppn- ina með mér og fái þrenn verðlaun fyrir þrjár bækur. Verðlaun eru góð en það hefur ekki síður verið gleðilegt að fá bréf frá krökkum sem skrifa að bækurnar um Millu og Guðjón G. Georgsson séu uppá- haldsbækurnar þeirra,“ segir Snæ- björn. Eins og veruleikinn Hann segir að í sínum huga sé þetta síðasta bókin í bókaflokknum. „Svo getur vel verið að það breytist. Þegar ég skrifaði fyrstu bókina var ég ekki að hugsa um að skrifa fleiri bækur um þennan söguheim. En svo fann ég að ég kunni svo vel við aðalper- sónurnar, Millu og Guðjón, fannst gaman að skrifa um þau og það varð til þess að ég ákvað að bæta við tveimur spennusögum um Millu og Guðjón og þetta litla þorp með öllu sínu góða og sérkennilega fólki. Þar að auki fékk ég góð viðbrögð frá les- endum og það hvatti mig enn frekar. Fyrir mér eru skriftirnar leikur, ég skemmti mér og ég geri mitt besta til að skemmta þeim sem lesa. Ég vil að sögurnar séu bæði æsispennandi, skondnar og líka áhugaverðar þann- ig að lesendur fái eitthvað meira út úr lestrinum en bara spennu og skemmtun.“ Snæbjörn segist halda ýmsu opnu í þessari lokabók. „Satt að segja útskýri ég í byrjun bókar af hverju mörg smáatriði eru enn á huldu þegar sögunni lýkur. Milla er sögu- maður bókarinnar. Hún er orðin full- orðin þegar hún skráir atburði sem áttu sér stað þegar hún var barn. Að sjálfsögu man hún ekki alveg hvernig hlutirnir voru og það var líka margt sem hún skildi ekki þegar atburð- irnir áttu sé stað. Þetta er eins og veruleikinn, þar skilur maður ekki alltaf af hverju hlutirnir fara eins og þeir fara. Þess vegna er ekki bundinn slaufa á allt í sögunni.“ Leitar að metsölubókum Snæbjörn stofnaði á sínum tíma bókaforlagið Bjart og hóf einnig bókaútgáfurekstur í Danmörku. Árið 2017 seldi hann forlög sín. Nú er hann í vinnu hjá danska for- laginu Gutkind sem er dótturfor- lag hins þekkta sænska forlagsrisa Bonnier. „Bonnier mokar peningum inn í Gutkind í þessum uppbygg- ingarfasa og ætlar að gera að þriðja stærsta forlagi Danmerkur. Mitt hlutverk er að finna metsölubækur fyrir forlagið. Það er mikill hugur í starfsmönnum Gutkindforlagsins, þeir eru áhugasamir um að koma bókum til fólks og eru góðir í að vekja athygli á útgáfubókum sínum. Þarna er góður andi, gífurlegur kraftur og þarna eru notaðar alveg nýjar aðferðir til að koma bókum á markaðinn.“ Snæbjörn segist ekki hafa áhyggj- ur af því að bóklestur muni fara snarminnkandi í nánustu framtíð. „Lestur hefur satt að segja aukist á síðustu árum. Það hefur bara breyst hvernig lesendur innbyrða sinn bókmenntaskammt. Fólk kaupir ekki bara prentaðar bækur í bókabúðum, það er áskrifendur að streymisveitum, les rafbækur og hlustar á hljóðbækur. Ef fólk hætti að lesa færi það mikils á mis. Ég er ekki eitt augnablik í vafa um að maður græðir alveg óskaplega mikið á bóklestri, líf mitt er til dæmis svo miklu betra og ríkara vegna þess að ég hef enn næga einbeitingarhæfni og gef mér tíma til að sökkva mér í bóklestur.“ n Skriftirnar eru leikur Ég geri mitt besta til að skemmta þeim sem lesa, segir Snæbjörn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI kolbrunb@frettabladid.is Næstkomandi þriðjudag 26. október kl. 19.30 í Tíbrá flytur Blásarakvint- ettinn Hviða verk eftir frönsk tón- skáld – verk sem fáheyrð eru á tón- leikum. Á efnisskrá tónleikanna eru Trois Pièces Brèves eftir Jaques Ibert, Wind Quintet nr. 1 eftir Jean Françaix, Le Tombeau de Couperin eftir Maurice Ravel og Sextett fyrir blásarakvintett og píanó eftir Francis Poulenc. Blásarakvintettinn Hviða er nýr blásarakvintett en meðlimir hans kynntust við störf í Sinfóníuhljóm- sveit Íslands og önnur samspils- störf. n Fáheyrð blásaratónlist Franska tónskáldið Maurice Ravel. kolbrunb@frettabladid.is Samband höfundar og ritstjóra getur verið margslungið og haft óvænt áhrif á verkið sem unnið er að. Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason og Æsa Guðrún Bjarna- dóttir, ritstjóri hjá Forlaginu, koma hér saman og spjalla um samstarf sitt í kringum nýja skáldsögu Hall- gríms – 60 kíló af kjaftshöggum. Bókin er framhald af verðlaunabók- inni 60 kílóum af sólskini sem kom út árið 2018. Höfundur tekur upp þráðinn að þremur árum liðnum í Segulfirði. Viðburðurinn er á vegum Ritlistar og Bókmennta- og listfræðastofnun- ar og er sá fyrsti af þremur þar sem nýútkomnar bækur verða kynntar um leið og samvinna höfundarins og ritstjórans verður könnuð. Spjall Hallgríms og Æsu fer fram í stofu 008 í Veröld, húsi Vigdísar þriðjudaginn 26. október kl. 12-13. Viðburðurinn er opinn almenningi og er aðgangur ókeypis. n Rithöfundur og ritstjóri Hallgrímur Helgason rithöfundur. kolbrunb@frettabladid.is Dagur kartöflunnar verður í garð- skála Grasagarðs Reykjavíkur í dag, laugardaginn 23. október, kl. 11-13. Áhugafólk um kartöflurækt fær þar fræðslu um frækartöflur. Á Íslandi eru ræktaðar bleikar, dökkrauðar, skærgular, fjólubláar, svartar og jafnvel doppóttar kart- öflur. Sumar eru ljúffengar á meðan aðrar slá ekki í gegn hvað bragðgæði varðar en allar eiga það sameigin- legt að vera ræktaðar upp af kart- öflufræjum. Þátttaka er ókeypis. n Spennandi nýjungar Kartöflur eru ómissandi hluti af matarmenningu, eins og allir vita. 48 Menning 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 23. október 2021 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.