Fréttablaðið - 23.10.2021, Page 91
Nýr gæðaostur á Goðdölum
Vesturós er margslunginn ostur þar sem sætur og silkimjúkur
hnetukeimur mætir villtu og spennandi bragði.
Vesturós
S K A G F I R S K U R G Æ Ð A O S T U R
Eitt magnaðasta
augnablikið var þegar
þau lyftust öll upp í
loft, og eina tónlistin
var villtur slagverks-
leikur.
TÓNLIST
Aion
Verk eftir Önnu Þorvaldsdóttur
og Ernu Ómarsdóttur
Aðstoðardanshöfundur:
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir.
Stjórnandi: Anna-Maria Helsing.
Sinfóníuhljómsveit Íslands lék,
Íslenski dansflokkurinn dansaði
Eldborg í Hörpu
fimmtudaginn 21. október
Jónas Sen
Headbanging + sinfóníuhljómsveit
= rugl. Nei, þetta er ekki jafna sem
gengur upp. Nema á tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands á fimmtu-
dagskvöldið. Hljóðfæraleikararnir
sátu ekkert bara prúðir og spiluðu.
Þeir dönsuðu á tímabili og tónlistin
sem þeir fluttu vakti upp drauga.
Þetta var Aion sem samanstendur
af tónlist eftir Önnu Þorvaldsdóttur
og dansi eftir Ernu Ómarsdóttur.
Aion þýðir eilífð, og verkið mun
hafa verið innblásið af hugsun um
tímann og ferðalag á milli vídda. Það
var svo sannarlega annarsheimslegt.
Tónlistin samanstóð af löngum
hljómum og skringilegum tóna-
hendingum, eins og ávallt þegar
tónskáldið er annars vegar. Hljóm-
arnir voru ómstríðir, en fullir af
stemningu, myrkir og lokkandi. Þeir
kölluðu fram í hugann heim galdra
og andatrúar.
Þyngdarlaus dans
Dansinn, sem var eftir Ernu Ómars-
dóttur, var framkvæmdur af átta
dönsurum úr Íslenska dansflokkn-
um. Fólkið dansaði oftast þétt saman
og myndaði þannig alls konar skúlp-
túra. Dansinn virtist þyngdarlaus,
það var eins og skúlptúrarnir svifu
um í geimnum. Rétt eins og tónlistin
var dansinn undarlegur.
Í smásögunni The Preserving
Machine eftir Philip K. Dick óttast
maður nokkur um menningarverð-
mæti ef ragnarök skyldu verða. Hann
býr því til vél sem getur breytt nótna-
bókum í dýr. Svo sleppir hann þeim
út í náttúruna. Þannig vonast hann
til að tónlistin lifi af hrun siðmenn-
ingarinnar. En úti í náttúrunni breyt-
ast dýrin, þau fá klær og vígtennur.
Eftir nokkurt skeið fangar maðurinn
eitt dýrið. Það hafði áður verið fúga
eftir Bach. Hann setur það í vélina og
út koma nótur. Þær eru óskiljanlegar
og viðbjóðslegar. Náttúran hefur
sigrað.
Mér fannst eitthvað svipað gerast
í Aion. Tónlistin byrjaði eins og fínt
kokteilboð, þar sem allir eru upp-
strílaðir og tala yfirborðslega. Byrjun
verksins var furðuleg, dansararnir og
hljóðfæraleikararnir virkuðu áhuga-
lausir. Þegar stjórnandinn, Anna-
Maria Helsing, lötraði inn, var nánast
eins og hún nennti þessu ekki. Þetta
var ekki listafólk fullt af eldmóði,
heldur mánudagsmorgunn á skrif-
stofu Skattsins.
Mögnuð stígandi
Síðan gerðist eitthvað. Dansinn varð
meira og meira lifandi, furðuveran
sem dansararnir mynduðu fór að
læðast inn á svæði hljóðfæraleikar-
anna. Lífrænn skúlptúrinn vafði
sig utan um hljómsveitarstjórann á
tímabili; það var falleg stund. Aginn
sem einkennir sinfóníuhljómsveit
gufaði smám saman upp, og þá byrj-
aði fyrrnefnt headbanging. Dansar-
arnir sameinuðust hljómsveitinni,
samruni hins sjáanlega og heyran-
lega var alger.
Eins og áður var vikið að ein-
kenndist dansinn af þyngdarleysi.
Það smitaðist yfir í hljóðfærin. Eitt
magnaðasta augnablikið var þegar
þau lyftust öll upp í loft, og eina tón-
listin var villtur slagverksleikur.
Smám saman urðu hljóðfærin líka
meira og meira partur af dansinum.
Þau sameinuðust skúlptúrnum í
lokin. Það var eins og þau hefðu
öðlast sjálfstætt líf handan við vald
spilaranna. Agi klassíkurinnar var
horfinn, eitthvað allt annað hafði
tekið yfir. Þetta var orgía náttúru-
krafta sem orð fá ekki lýst. Stígand-
in í tónlist og dansi, frá því að vera
áhugalaus og passíf yfir í brjálæðis-
lega raðfullnægingu, var stórfengleg.
Á eftir keyrði ég út úr Hörpu. Fyrir
utan sá ég að tunglið var fullt og ég
spangólaði. n
NIÐURSTAÐA: Magnaður dans
og mögnuð tónlist; einstök
skemmtun.
Dansandi
sinfóníuhljómsveit
Aion sem samanstendur af dansi eftir Ernu Ómarsdóttur og tónlist eftir
Önnu Þorvaldsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
LAUGARDAGUR 23. október 2021 Menning 51