Fréttablaðið - 23.10.2021, Blaðsíða 91

Fréttablaðið - 23.10.2021, Blaðsíða 91
Nýr gæðaostur á Goðdölum Vesturós er margslunginn ostur þar sem sætur og silkimjúkur hnetukeimur mætir villtu og spennandi bragði. Vesturós S K A G F I R S K U R G Æ Ð A O S T U R Eitt magnaðasta augnablikið var þegar þau lyftust öll upp í loft, og eina tónlistin var villtur slagverks- leikur. TÓNLIST Aion Verk eftir Önnu Þorvaldsdóttur og Ernu Ómarsdóttur Aðstoðardanshöfundur: Lovísa Ósk Gunnarsdóttir. Stjórnandi: Anna-Maria Helsing. Sinfóníuhljómsveit Íslands lék, Íslenski dansflokkurinn dansaði Eldborg í Hörpu fimmtudaginn 21. október Jónas Sen Headbanging + sinfóníuhljómsveit = rugl. Nei, þetta er ekki jafna sem gengur upp. Nema á tónleikum Sin- fóníuhljómsveitar Íslands á fimmtu- dagskvöldið. Hljóðfæraleikararnir sátu ekkert bara prúðir og spiluðu. Þeir dönsuðu á tímabili og tónlistin sem þeir fluttu vakti upp drauga. Þetta var Aion sem samanstendur af tónlist eftir Önnu Þorvaldsdóttur og dansi eftir Ernu Ómarsdóttur. Aion þýðir eilífð, og verkið mun hafa verið innblásið af hugsun um tímann og ferðalag á milli vídda. Það var svo sannarlega annarsheimslegt. Tónlistin samanstóð af löngum hljómum og skringilegum tóna- hendingum, eins og ávallt þegar tónskáldið er annars vegar. Hljóm- arnir voru ómstríðir, en fullir af stemningu, myrkir og lokkandi. Þeir kölluðu fram í hugann heim galdra og andatrúar. Þyngdarlaus dans Dansinn, sem var eftir Ernu Ómars- dóttur, var framkvæmdur af átta dönsurum úr Íslenska dansflokkn- um. Fólkið dansaði oftast þétt saman og myndaði þannig alls konar skúlp- túra. Dansinn virtist þyngdarlaus, það var eins og skúlptúrarnir svifu um í geimnum. Rétt eins og tónlistin var dansinn undarlegur. Í smásögunni The Preserving Machine eftir Philip K. Dick óttast maður nokkur um menningarverð- mæti ef ragnarök skyldu verða. Hann býr því til vél sem getur breytt nótna- bókum í dýr. Svo sleppir hann þeim út í náttúruna. Þannig vonast hann til að tónlistin lifi af hrun siðmenn- ingarinnar. En úti í náttúrunni breyt- ast dýrin, þau fá klær og vígtennur. Eftir nokkurt skeið fangar maðurinn eitt dýrið. Það hafði áður verið fúga eftir Bach. Hann setur það í vélina og út koma nótur. Þær eru óskiljanlegar og viðbjóðslegar. Náttúran hefur sigrað. Mér fannst eitthvað svipað gerast í Aion. Tónlistin byrjaði eins og fínt kokteilboð, þar sem allir eru upp- strílaðir og tala yfirborðslega. Byrjun verksins var furðuleg, dansararnir og hljóðfæraleikararnir virkuðu áhuga- lausir. Þegar stjórnandinn, Anna- Maria Helsing, lötraði inn, var nánast eins og hún nennti þessu ekki. Þetta var ekki listafólk fullt af eldmóði, heldur mánudagsmorgunn á skrif- stofu Skattsins. Mögnuð stígandi Síðan gerðist eitthvað. Dansinn varð meira og meira lifandi, furðuveran sem dansararnir mynduðu fór að læðast inn á svæði hljóðfæraleikar- anna. Lífrænn skúlptúrinn vafði sig utan um hljómsveitarstjórann á tímabili; það var falleg stund. Aginn sem einkennir sinfóníuhljómsveit gufaði smám saman upp, og þá byrj- aði fyrrnefnt headbanging. Dansar- arnir sameinuðust hljómsveitinni, samruni hins sjáanlega og heyran- lega var alger. Eins og áður var vikið að ein- kenndist dansinn af þyngdarleysi. Það smitaðist yfir í hljóðfærin. Eitt magnaðasta augnablikið var þegar þau lyftust öll upp í loft, og eina tón- listin var villtur slagverksleikur. Smám saman urðu hljóðfærin líka meira og meira partur af dansinum. Þau sameinuðust skúlptúrnum í lokin. Það var eins og þau hefðu öðlast sjálfstætt líf handan við vald spilaranna. Agi klassíkurinnar var horfinn, eitthvað allt annað hafði tekið yfir. Þetta var orgía náttúru- krafta sem orð fá ekki lýst. Stígand- in í tónlist og dansi, frá því að vera áhugalaus og passíf yfir í brjálæðis- lega raðfullnægingu, var stórfengleg. Á eftir keyrði ég út úr Hörpu. Fyrir utan sá ég að tunglið var fullt og ég spangólaði. n NIÐURSTAÐA: Magnaður dans og mögnuð tónlist; einstök skemmtun. Dansandi sinfóníuhljómsveit Aion sem samanstendur af dansi eftir Ernu Ómarsdóttur og tónlist eftir Önnu Þorvaldsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI LAUGARDAGUR 23. október 2021 Menning 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.