Fréttablaðið - 23.10.2021, Page 98

Fréttablaðið - 23.10.2021, Page 98
Svona líður mér akk- úrat núna og mér má líða svona. odduraevar@frettabladid.is Áki Ármann Jónsson formaður Skotvís – Skotveiðifélags Reykjavíkur Áki segir ljóst að ekki haf i verið farið eftir grund- vallarreglum við meðferð skot- vopna á tökustað kvikmyndarinnar Rust þar sem stjörnuleikarinn Alec Baldwin varð samstarfskonu sinni að bana og slasaði annan alvarlega með voðaskoti. Áka finnst líklegt að tveimur kúlum hafi verið hleypt af. „Eins og við kennum á námskeið- um þá á aldrei að meðhöndla vopn nema með öryggið á og að það sé óhlaðið en alltaf á að fara með vopn eins og þau séu hlaðin,“ útskýrir Áki. „Jafnvel þótt maður sé viss um að þau séu óhlaðin. Og aldrei að beina byssu að neinu nema maður sé viss um að maður ætli að skjóta, að þetta sé bráðin sem maður ætli að veiða.“ Áki segir ljóst, líkt og fréttir benda til, að alvöru kúlur hafi verið í byssu leikarans, án þess að hann vissi af því. Þegar hann er spurður hvernig ein kúla geti sært tvo segir Áki: „Sko, af því að það var verið að gera vestra þarna, þá er þetta líklega annaðhvort riffill eða skammbyssa og manni þætti líklegra að þetta hefðu verið tvö skot sem hann hefði þá verið að skjóta úr skammbyssu, og það hafi bara verið alvöru kúlur og að hann hafi skotið tveimur skotum,“ segir Áki. „Það svona er helst sú sviðsmynd sem manni dettur í hug. Af því annar fær hana í öxlina og hinn í magann. Ég sé ekki alveg fyrir mér að sama kúlan nái því nema með einhverri ótrúlegri atburðarás,“ segir Áki. „En maður skilur ekki hver kemur með alvöru kúlur á svona sett. Nema þetta hafi átt að nota í öðrum tilgangi seinna. Þetta er náttúrulega algjört grundvall- aratriði.“ n Líklega tvær kúlur í voðaskotinu hjá Alec Baldwin n Sérfræðingurinn Stórleikarinn Alec Baldwin er gersamlega miður sín eftir að voðaskotið varð kvik- myndatöku- konunni Halyna Hutchins að bana. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Yrja Kristinsdóttir og Marit Davíðsdóttir vinna að því að bæta andlega líðan barna og ungmenna með Gleðiskrudd- unni sinni þar sem þeim er kennt að beita því sem þær stöllur kalla gleðiverkfæri. svavamarin@frettabladid.is Yrja Kristinsdóttir og Marit Davíðs- dóttir leggja fram Gleðiskrudduna sína en í henni vinna þær með það sem þær kjósa að kalla gleðiverkfæri og er ætlað að efla sjálfsþekkingu og vellíðan barna og ungmenna á grundvelli jákvæðrar sálfræði. Gleðiskrudduverkefnið byggir á sameiginlegu lokaverkefni þeirra í jákvæðri sálfræði við Háskóla Íslands. Þær segja stoltar frá því að Gleðiskruddan hafi í upphafi verið þunnt hefti sem endaði bæði sem bók og námskeið sem miðar að því að gera áskoranir lífsins yfirstígan- legri. Góð verkfærakista „Ég var áður nemendaráðgjafi og fann hversu mikill kvíði var innra með krökkunum og hversu erfitt þau áttu með að finna sig og áhuga- svið sín. Það vantaði ákveðin bjarg- ráð við þessum vanda,“ útskýrir Yrja og Marit grípur boltann og bendir á að þær hafi tengt þetta við sín eigin æskuár. „Það vantaði snemmtæka íhlutun í forvarnarskyni. Grípa börnin áður en þau falla.“ Þær segja bókina byggja á 21 þema úr jákvæðri sálfræði og mynda grunn námskeiðsins. „Við erum að bera á borð það sem hefur verið rannsakað innan þessa geira og þau verkfæri sem við þekkjum. Hvert og eitt barn á að geta valið sér verkfæri.“ Aukin áhersla færðist á jákvæða sálfræði upp úr aldamótum og þær benda á að áður hafi alltaf verið ein- blínt á sjúkdómshliðina frekar en að rannsaka það þegar fólki farnast vel. „Það er enginn að neyða okkur til að vera hamingjusöm,“ útskýrir Yrja. „Margar tilfinningar geta verið í gangi og þær eiga rétt á sér. Það þarf að kenna börnunum að setja nafn á þessar tilfinn- inga. Svona líður mér akkúrat núna og mér má líða svona. Í stað þess að leggja áherslu á það sem er neikvætt erum við að leggja áherslu á það sem við viljum sjá meira af,“ heldur Yrja áfram. „Það er svo ótrúlega mikilvægt að efla vel- líðan og sjálfstyrkingu.“ Ótrúlega góð viðbrögð Námskeiðin, sem miðast við sjö til tólf ára krakka, hafa vakið mikla lukku hjá bæði börnum og foreldrum en Gagn og gaman með gleðiverkfærum Gleðiskrudda vinkvennanna byrjaði sem lítið hefti í Háskólanum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Gleðiverkfærin hjálpa krökkunum að tjá tilfinningar sínar. MYND/AÐSEND Gleðiskruddan Helstu áherslur eru að efla: n Sjálfsþekkingu n Bjartsýni og von n Styrkleika n Trú á eigin getu n Gróskuhugarfar n Núvitund bókin er skrifuð með sex til fimmtán ára börn í huga og jafnvel yngri. „Það er dásamlegt að sjá börn ná árangri. Sum þeirra hafa mætt og verið alveg inni í sér en eru farin að rétta upp hönd og segja frá í lok nám- skeiðs. Það gefur manni ótrú- lega mikið að sjá þau blómstra á þennan hátt.“ Yrja segir viðbrögðin við verkefninu hafið farið fram úr þeirra björtustu vonum. „Við höfum verið beðnar um að halda foreldranámskeið, sem við erum búnar að setja á dag- skrá, þar sem foreldrarnir vilja geta tekið meiri þátt og skilja það sem börnin hafa verið að læra. Þetta hefur ýtt undir meiri samveru- stundir heima og okkur hlýnar svo í hjartanu við það.“ Þakklætisæfingar Þegar þær eru spurðar hvað þær séu að gera með börnunum á námskeið- inu segja þær markmiðasetningu og þakklætisþrennuna vera meðal þess sem stendur upp úr. „Við eigum báðar yngri börn sem við höfum gert þakklætisæfingar með. Þær snúast um að nefna þrjá hluti sem þau eru þakklát fyrir í dag og í lífinu, það ýtir undir jákvæðar tilfinningar,“ segja þær brosandi. „Oft er líka talað um að börn séu svo dugleg og maður spyr sig af hverju? Þau þurfa þetta innihaldsríka hrós. Þá blómstra þau og trúa á sjálf sig. Það er svo geggjað.“ Yrja og Marit hafa staðið straum af öllum kostnaði við bókina og námskeiðin sjálfar en Gleðiskrudd- una og frekari upplýsingar um nám- skeiðin má nálgast á vefsíðunni glediskruddan.is. n odduraevar@frettabladid.is Fárra væntanlegra kvikmynda er beðið með jafni mikilli eftirvænt- ingu, í það minnsta í nördaheimum, og þriðju Marvel-myndarinnar um Köngulóarmanninn, Spider Man: No Way Home. Myndin er enda undir slíkum leyndarhjúp að enn er lítið um kynningarefni. Þessi skortur krist- allast ágætlega í því að á vefsíðu Laugarásbíós hékk um tíma „falsað“ auglýsingaveggspjald fyrir mynd- ina. Líklega eftir einhvern ofurákaf- an aðdáanda sem kemur upp um sig með því að rangnefna myndina Where is My Home? Annars var svo vel að verki staðið að vel hefði mátt ætla að plakatið væri ekta. Þegar Fréttablaðið forvitnaðist um hvernig aðdáendaföndur hefði ratað á vef kvikmyndahússins var fátt um svör hjá Laugarásbíói og spurningum um þessa heldur létt- vægu yfirsjón var vísað til dreifing- araðila myndarinnar. Skömmu síðar var síðan hið glæsilega Where‘s My Home?-plakat horfið af vefnum og í staðinn komið viðurkennt , svart og leyndardómsfullt plakat fyrir rétt- nefnda No Way Home. Heimagerða veggspjaldið sýnir þrískiptan Köngulóarmann leikar- anna Toby Maguire, Andrew Gar- field og Tom Holland sem allir hafa leikið Lóa en hermt er að þeir muni allir koma við sögu í öfugsnúinni tímalínu myndarinnar. n Fölskum Lóa flaggað á vefnum Brandarinn sem hvarf af bíósíðunni. Nú er það svart eftir leiðréttinguna. 58 Lífið 23. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.