Morgunblaðið - 08.07.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 08.07.2021, Qupperneq 12
12 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021 Tilboðsfrestur er 6. ágúst 2021 Sótt er um lóð á Mínum síðum á hafnarfjordur.is. Búið er að marka lágmarksverð í lóðina sem er kr. 98.000.670. Tilboð undir lágmarksverði teljast ógild. Tilboð í lóð ásamt öllum fylgigögnum þurfa að berast fyrir kl. 13 föstudaginn 6. ágúst. Sama dag á sama tíma verða tilboðin opnuð í bæjarráðssal í Ráðhúsi Hafnarfjarðar. Nánari upplýsingar á: hafnarfjordur.is H ja lla b ra u t 4 9 Einstök lóð fyrir tíu sérbýli á jaðri útivistarsvæðis viðVíðistaðatún Hafnarfjarðarbæ auglýsir eftir tilboðum í lóð á rótgrónum og fjölskylduvænum stað í norðurbæ Hafnarfjarðar. Á lóðinni er heimilt að byggja þrjú einbýlishús á einni hæð og tvö tveggja hæða raðhús, annað með þremur íbúðum og hitt með fjórum. Samtals tíu sérbýli í skjólsælli og aðlaðandi vistgötu. Stutt er í alla verslun, þjónustu og menningu. Staðsetningin er einstök, við norðvestur jaðarVíðistaðatúns sem er vinsælt svæði með fjölbreyttum möguleikum til útivistar. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Gríðarlegur vöxtur hefur verið hjá útivistarversluninni Fjallakofanum í gegnum tíðina en í dag opnar versl- unin í nýju 1.700 fermetra húsnæði í Hallarmúla 2. Halldór Hreinsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, opnaði verslunina ásamt fjölskyldu sinni fyrir 17 árum í 17 fermetra húsnæði á annarri hæð í Bæj- arhrauni 14 í Hafnarfirði en versl- unin hefur heldur betur sótt í sig veðrið á þessum árum. Halda sig við gullnu regluna „Þótt maður sé búinn að vera lengi í þessum bransa er alltaf jafn gaman þegar maður er að byggja nýtt hús eða flytja í ný heimkynni þannig að það að flytja eitt stykki Fjallakofa og inn í svona merkilegt hús sem Hallarmúlinn er, það vekur bara kátínu og gleði og ekkert ann- að,“ segir Halldór í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að lykill- inn að velgengni fyrirtækisins sé meðal annars sá að fókusinn hafi alltaf verið á viðskiptavininn. „Þetta er alveg eins og í boltanum. Við er- um að keppa við gríðarlegan fjölda af öðrum stórum og sterkum fyr- irtækjum en við erum með svo sterkan fókus á okkar spil og hvaða leikkerfi við erum að nota. Við erum ekki mikið að horfa á hina,“ segir Halldór. „Við höfum alltaf náð ár- angri með því að halda okkur við þessa gullnu reglu að horfa vel og „fókusera“ fram á veginn. Vera ekk- ert endilega að kíkja hinum megin á næstu akgrein, á næstu fyrirtæki.“ Covid og eldgosið hjálpuðu til Halldór staðfestir að sprenging hafi orðið í útivist á Covid-tímum sem hafi meðal annars orðið til þess að ákveðið var að stækka húsnæði verslunarinnar. „Það er búið að vera svona í Covid- ástandinu. Þá þurfti fólk svo- lítið að hlúa að andlegri heilsu og það er ekkert betra til þess en að fara út fyrir hússins dyr og rölta um náttúruna. Þá þarf fólk að klæða sig og fyrst og fremst að skóa sig sæmi- lega,“ segir Halldór sem bendir á að skósalan á Scarpa-skóm og öðrum vinsælum útivistarvörum hafi nán- ast tvöfaldast á síðasta ári. „Svo kemur gosið ofan á þetta og svo koma ferðamennirnir aftur. Við vorum bara nauðbeygð til að stækka og anna veltuaukningunni og fjölg- uninni sem er að koma á hverjum degi,“ segir hann og bætir við að gríðarleg aukning hafi einnig verið á sölu á netinu undanfarið. Eins og ítalska landsliðið „[Netverslun] er í veldisvexti þannig að það er ekki bara gangandi traffíkin heldur líka nettraffíkin sem er enn þá meiri,“ segir Halldór. Halldór segir stemninguna hjá fyrirtækinu minna á stemninguna í ítalska landsliðinu. „Okkur líður eins og ítalska lands- liðinu. Við erum bara á leiðinni í úr- slitin. Við erum eins og krakkar sem eru í dótabúð en eru að stækka hana alveg um helming,“ segir hann og bætir við að spennan sé gríðarleg. Nýja verslunin í Hallarmúla tekur nú við sem flaggskip fyrirtækisins en áfram verður einnig verslun á Laugavegi 11 og í Kringlunni 7 þó að sú síðarnefnda verði með aðeins breyttu sniði sem verður tilkynnt síðar. Halldór segir að mun rýmra verði um fatnað, aðrar útivistarvörur og auðvitað viðskiptavini verslunar- innar í nýja húsnæðinu auk þess sem enn betur verður hægt að þjónusta þá. „Við erum alltaf að reyna að bæta þjónustuna eins og hægt er. Við horfum alltaf á viðskiptavininn sem okkar vinnuveitanda,“ segir Halldór. Úr 17 fermetrum í 1.700 á 17 árum - Gullna reglan að einblína á viðskiptavininn frekar en samkeppnina og horfa fram á við - Halldór: „Okkur líður eins og ítalska landsliðinu. Við erum bara á leiðinni í úrslitin“ Morgunblaðið/Unnur Karen Nýtt Góður andi er í nýju húsnæði Fjallakofans í Hallarmúla 2 að sögn framkvæmdastjórans Halldórs Hreinssonar. Spenna Starfsmenn Fjallakofans eru spenntir fyrir nýjum tímum í 1.700 m² húsnæði í Hallarmúla.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.