Morgunblaðið - 08.07.2021, Page 63
ÍÞRÓTTIR 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021
Handknattleikskonan Ásdís Guð-
mundsdóttir hefur framlengt samn-
ing sinn við Íslandsmeistara KA/
Þórs til næstu tveggja ára. Ásdís,
sem er 23 ára gömul og leikur sem
línumaður, er uppalin hjá félaginu
og hefur verið algjör lykilmaður í
liðinu undanfarin ár. Hún skoraði
85 mörk í 18 leikjum á síðustu leik-
tíð þegar liðið varð bæði Íslands- og
deildarmeistari og var m.a. valin í
íslenska A-landsliðið fyrir frammi-
stöðu sína á tímabilinu þar sem hún
lék í umspilsleikjunum í vor gegn
Slóveníu um sæti á HM.
Ásdís kyrr hjá
meisturunum
Morgunblaðið/Þórir Tryggvason
Meistari Ásdís Guðmundsdóttir
fagnar marki í leik með KA/Þór.
Tiana Ósk Whitworth og Mímir Sig-
urðsson keppa í dag fyrst Íslend-
inganna á Evrópumeistaramóti
U23 ára í frjálsíþróttum sem hefst í
Tallinn í Eistlandi í dag og stendur
til sunnudags.
Tiana keppir snemma í undan-
rásum í 100 metra hlaupi kvenna og
Mímir tekur síðdegis þátt í undan-
keppninni í kringlukasti.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir
keppir í 200 metra hlaupi á mótinu,
Erna Sóley Gunnarsdóttir í kúlu-
varpi og Baldvin Þór Magnússon í
5.000 metra hlaupi.
Tiana og Mímir
á EM í dag
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Tallinn Tiana Ósk Whitworth
keppir í 100 metra hlaupi í dag.
EVRÓPULEIKIR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Gætu Breiðablik, FH og Stjarnan öll
komist í aðra umferðina í hinni nýju
Evrópukeppni karla í fótbolta, Sam-
bandsdeild Evrópu?
Stutta svarið er já, þau ættu öll að
eiga möguleika á því, en það kemur
betur í ljós í kvöld þegar liðin mæta
andstæðingum sínum frá Írlandi og
Lúxemborg í fyrri leikjunum í fyrstu
umferð keppninnar.
FH og Stjarnan spila bæði heima-
leiki sína í kvöld. FH tekur á móti
Sligo Rovers í Kaplakrika klukkan
18 en Stjarnan fær Bohemians í
heimsókn í Garðabæinn þar sem
flautað verður til leiks klukkan 19.45.
Lið Breiðabliks er hins vegar
komið til Lúxemborgar og mætir þar
Racing Union klukkan 17 að íslensk-
um tíma.
Erfiðara verkefni FH
FH og Stjarnan eiga á brattann að
sækja, sérstaklega FH-ingar þar
sem Sligo Rovers er sterkara lið en
Bohemians. Mikill uppgangur hefur
verið hjá írskum liðum síðustu ár og
sem dæmi komst Dundalk í riðla-
keppni Evrópudeildarinnar síðasta
haust og Shamrock Rovers sömu-
leiðis fyrir nokkrum árum.
Sligo Rovers er nú jafnt Shamrock
Rovers á toppi írsku úrvalsdeild-
arinnar en keppni þar er hálfnuð, 19
umferðir búnar af 36. Írar breyttu
sínu tímabili frá vetrartímabili yfir í
að spila frá mars og fram í nóvember
til þess að félagsliðin ættu meiri
möguleika á að ná langt í Evr-
ópukeppni.
Bohemians er í fjórða sæti, átta
stigum á eftir Sligo og Shamrock.
Sligo vann Bohemians á mjög sann-
færandi hátt, 4:0, í lok júní.
Sligo er í Evrópukeppni í fyrsta
sinn í sjö ár. Síðast, sumarið 2014, sló
liðið út Banga frá Litháen, 4:0 sam-
tals, en tapaði síðan 3:4 samtals fyrir
Rosenborg frá Noregi.
Bohemians lék í Evrópukeppni í
fyrsta sinn í átta ár síðasta sumar.
Þá var aðeins einn leikur, liðið gerði
1:1-jafntefli við Fehérvár frá Ung-
verjalandi en féll út í vítaspyrnu-
keppni.
Jafnir leikir við írsku liðin
Leikir írskra og íslenskra liða hafa
nær alltaf verið jafnir. Alls hafa fé-
lagslið þjóðanna mæst í 22 Evrópu-
leikjum og staðan er jöfn, átta sigrar
á hvora þjóð og sex leikir hafa endað
með jafntefli. Írar hafa hinsvegar
átta sinnum komist áfram í ellefu
viðureignum, oftar en einu sinni á
fleiri skoruðum mörkum á útivelli en
nú er einmitt búið að fella þá reglu úr
gildi.
Síðast lék Stjarnan við Shamrock
Rovers árið 2017 og tapaði báðum
leikjum 0:1. Árið 2016 lék FH við
Dundalk og leikirnir enduðu 2:2 og
1:1 sem nægði Írunum til að komast
áfram.
Bohemians kom hingað til lands
árið 2012 og fékk óvæntan skell gegn
Þór á Akureyri, 5:1, eftir 1:1 jafntefli
í fyrri leiknum á Írlandi. Þórsarar
léku þá í 1. deild en komust í Evr-
ópukeppni með því að leika til úrslita
í bikarkeppninni 2011.
Bæði írsku liðin eru fyrst og
fremst skipuð írskum leikmönnum.
Nokkrir Englendingar eru með
Sligo ásamt Nýsjálendingi og Jam-
aíkumanni. Hjá Bohemians eru tveir
Skotar og leikmenn frá Nígeríu og
Madagaskar í leikmannahópnum.
Fjölþjóðlegir mótherjar Blika
Breiðablik rennir frekar blint í
sjóinn varðandi styrkleika mótherja
sinna, Racing Union frá Lúxemborg,
en liðin mætast á þjóðarleikvang-
inum Stade Josy Barthel í dag.
Leikvangurinn rúmar 8.000 áhorf-
endur en aðeins 2.000 manns mega
koma á leikinn í dag af sóttvarnar-
ástæðum.
Racing Union hafnaði í fjórða sæti
í Lúxemborg í vetur en síðasti leikur
liðsins var í lokaumferð deildarinnar
30. maí. Þetta er því fyrsti leikur
Racing á nýju tímabili.
Racing er fjölþjóðlegt lið með
marga franska leikmenn innanborðs
en einnig leikmenn frá Þýskalandi,
Japan, Alsír, Belgíu, Malí, Senegal,
Kongó og Angóla.
Racing Union hefur margoft skipt
um nafn í sögunni og bæði unnið
meistaratitla og spilað Evrópuleiki
sem Spora Lúxemborg, Union Lúx-
emborg og Aris Bonnevoie. Núver-
andi félag varð til úr sameiningu
Spora og Union árið 2005 og hefur
frá þeim tíma unnið einn titil en fé-
lagið varð bikarmeistari árið 2018.
Íslensk lið hafa fjórum sinnum
mætt liðum frá Lúxemborg og kom-
ist áfram í öll skiptin. Valur árið
1967, KR árið 1995, Keflavík árið
2005 og FH árið 2008. Markatalan í
átta leikjum er 22:10, íslensku lið-
unum í vil.
Lið frá Lúxemborg hafa hins veg-
ar mjög sótt í sig veðrið á undan-
förnum árum. Dudelange, meistarar
í landinu samfleytt frá 2016 til 2019,
hefur komist tvisvar í riðlakeppni
Evrópudeildarinnar á undanförnum
þremur árum og m.a. slegið út lið frá
Póllandi og Rúmeníu.
_ Breiðablik og Valur samein-
uðust um leiguflug í Evrópuleiki
sína. Valsmenn millilentu í Lúx-
emborg á leið til Zagreb í Króatíu,
skildu Blikana þar eftir, og taka þá
síðan aftur með til Íslands eftir leik-
inn í Lúxemborg í kvöld.
_ FH og Stjarnan fara á sama
hátt með sameiginlegu leiguflugi til
Írlands þar sem bæði liðin spila gegn
Sligo Rovers og Bohemians á
fimmtudaginn í næstu viku.
_ Ef FH-ingar slá út Sligo Rovers
mæta þeir Rosenborg frá Noregi í 2.
umferð.
_ Ef Stjörnumenn slá út Bohemi-
ans mæta þeir Dudelange frá Lúx-
emborg í 2. umferð.
_ Ef Blikar slá út Racing Union
mæta þeir Austria Vín frá Austurríki
í 2. umferð.
Íslensku liðin þrjú
gætu öll komist áfram
- Heimaleikir FH og Stjörnunnar við Írana í Sligo Rovers og Bohemians í kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Evrópa Brynjar Gauti Guðjónsson og Björn Daníel Sverrisson spila á heimavelli í kvöld með Stjörnunni og FH.
Amber Kristin Michel, markvörður Tindastóls, var besti leikmaðurinn í 9.
umferð Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Mic-
hel, sem er bandarísk, 24 ára gömul, leikur sitt annað tímabil með Tinda-
stóli, en hún kom til félagsins frá San Diego-háskóla síðasta sumar og
hjálpaði liðinu upp í úrvalsdeildina. Í sumar hefur hún átt hvern stórleik-
inn á fætur öðrum, nú síðast þegar Tindastóll lagði Stjörnuna óvænt á úti-
velli í fyrrakvöld, 1:0. Hún fékk tvö M fyrir frammistöðu sína þar og hlaut
þá einkunn í fjórða sinn í fyrstu níu leikjum nýliðanna í deildinni.
Agla María Albertsdóttir er í liði umferðarinnar í sjötta sinn á tíma-
bilinu, en úrvalsliðið má sjá hér fyrir ofan. vs@mbl.is
9. umferð
í Pepsi Max-deild kvenna 2021
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
24-3-3
Amber Michel
Tindastóll
Mist
Edvardsdóttir
Valur
Hulda Björg
Hannesdóttir
Þór/KA
María Dögg
Jóhannesdóttir
Tindastóll
Liana Hinds
ÍBV
Colleen Kennedy
Þór/KA Dóra María
Lárusdóttir
Valur
Linda Líf Boama
Þróttur
Eva Núra
Abrahamsdóttir
Selfoss
Delaney Baie Pridham
ÍBV
Agla María
Albertsdóttir
Breiðablik
6
3
3
3
2
2
2
Michel best í 9. umferðinni
Á árunum 2011 til 2017 var
hálfgert blómaskeið hjá íslensk-
um karlaliðum í fótbolta hvað
varðar árangur í Evrópumótum
félagsliða.
Stjarnan komst í fjórðu um-
ferð árið 2014 og spilaði til úr-
slita um sæti í riðlakeppni Evr-
ópudeildar, FH komst þrisvar í
þriðju umferð á árunum 2013 til
2017 og bæði KR og Breiðablik
komust í þriðju umferð á þessu
tímabili.
En síðan hefur sigið á ógæfu-
hliðina. Íslensku liðin töpuðu öll-
um Evrópuleikjum sínum á árinu
2020. Vissulega léku þau alla
nema einn á útivöllum vegna
kórónuveiruvesensins.
Undanfarin tvö ár hafa ís-
lensku karlaliðin unnið einn leik
og gert þrjú jafntefli í sautján
Evrópuleikjum. Með þeim afleið-
ingum að dýrmætt Evrópusæti
hefur tapast en á næsta tímabili,
2022-23, verða aðeins þrjú ís-
lensk lið í Evrópukeppni í stað
fjögurra fram að þessu.
Nú eru Evrópumótin aftur í
sviðsljósinu. Valsmenn léku í
Króatíu í gærkvöld og FH, Stjarn-
an og Breiðablik spila öll í kvöld.
Mikið er í húfi.
Íslensku liðin þurfa að ná
góðum árangri í Evrópumót-
unum í ár til þess að eiga mögu-
leika á að rétta sinn hlut á ný og
ná fjórða íslenska liðinu í Evr-
ópukeppni á ný, helst frá og með
sumrinu 2023.
Góðir sigrar hjá einu þeirra
gætu dugað en krafan hlýtur að
vera að í það minnsta Breiðablik
komist áfram og FH og Stjarnan
nái alla vega sigri í öðrum hvor-
um sinna leikja – helst báðum.
Þetta eru sameiginlegir hags-
munir íslensku liðanna, bæði
fjárhagslegir, og svo til að standa
vörð um styrk og stolt íslenska
fótboltans á alþjóðavettvangi.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is