Morgunblaðið - 08.07.2021, Side 26

Morgunblaðið - 08.07.2021, Side 26
26 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021 Blephaclean Hágæða blautklútar sem vinna vel á frjókornaofnæmi. Góð tvenna við frjókornaofnæmi Fæst í völdum apótekum og Eyesland gleraugnaverslunum. Dry Eyes Augnhvíla sem hægt er að kæla og hjálpar við frjókornaofnæmi. Einnig hægt að hita í örbylgjuofni. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Vegfarendur um Ægisíðu geta nú skoðað nýendurgerðan grásleppu- skúr sem komið var upp við Gríms- staðavör í byrjun mánaðar en ráð- gert er að endurgera alla grásleppuskúrana í náinni framtíð til að varðveita merka sögu skúr- anna á 20. öldinni. „Þetta er mjög skemmtilegt og gaman að því að sögu sem er ekki eldri en þetta sé haldið við og gríðarlega mikilvægt,“ segir María Karen Sigurðardóttir, deildarstjóri minjavörslu og rannsókna hjá Borgarsögusafni Reykjavíkur. Lengi verið í niðurníðslu Við Ægisíðuna var gert út alla 20. öldina og var þá helst um hrognkelsaveiðar að ræða og voru þá grásleppuskúrarnir nýttir sem vinnuskúrar. Skúrarnir hafa nú lengi verið í niðurníðslu og illa farnir en upp kom sú hugmynd að endurgera skúrana þegar lagt var af stað með verkefnin Betri hverfi hjá Reykja- víkurborg. Var meðal annars farið í jarðvegsskipti í kringum skúrana og tiltekt gerð á svæðinu. Var þá vestasti grásleppuskúrinn fjar- lægður til viðgerðar og var umsjón hennar í höndum Trausta Sigurðs- sonar smiðs. „Það var farið í að skoða svæðið og hreinsa til og gera fínt og þá kom upp sú hugmynd að hlúa að grásleppuskúrunum og endurgera þá því þeir voru margir orðnir mjög illa farnir og viðkvæmir fyrir veðrum og vindum. Það var ákveðið að setja peninga í þetta verkefni sem Borgarsögusafn fékk í sínar hendur,“ segir María. Í framhald- inu var vestasti grásleppuskúrinn fjarlægður til viðgerðar og var um- sjón verksins í höndum Trausta Sigurðssonar smiðs en hann fylgdi viðgerðaráætlun sem unnin var á safninu. Farið í frumgögn og heimildir „Svo var bara farið í frumgögn og heimildir, þannig að við fundum ljósmyndir og slíkt. Þegar það var búið var farið í að taka klæðn- inguna af skúrnum og þá kom í ljós að þar undir var tjörupappír,“ segir María og bætir við að tjörupappa- klæðningin hafi einkennt útlit skúr- anna lengi vel þegar þeir voru not- aðir. Var markmiðið að færa skúrinn í það horf en sjá má skúr- inn tjöruklæddan með lektum á mynd frá 1966 sem var meðal ann- ars stuðst við við endurgerð hans. „Svo kom í ljós að [skúrinn] hafði verið smíðaður meðal annars úr kassafjölum, sem eru það efni sem var til og notað á þeim tíma, bara til að nýta allt sem hægt er að nýta. Í dag köllum við þetta sjálfbærni, að nýta það efni sem við höfum í umhverfinu fyrir lítinn sem engan pening. Þannig að þarna inni í skúrnum má sjá þess- ar kassafjalir og stimpla frá hinum og þessum fyrirtækjum í New York og Þýskalandi og slíkt sem er mjög gaman að sjá,“ segir María. Ekki hefur enn verið ákveðið hvaða hlutverki endurgerðu skúr- arnir muni gegna, öðru en að skapa skemmtilegt umhverfi og auka aðgengi fólk að sögu svæð- isins, en María segir að meðal annars séu hugmyndir á sveimi um að nýta skúrana sem búnings- klefa fyrir sjósund. „Það er svona ýmislegt í gangi,“ bætir hún við. „Það á eftir að þróast í samráði við þá hópa sem hafa verið í kring- um þetta verkefni og jafnvel bara að íbúar komi með tillögur um hvað þeir vilja að verði gert. Þann- ig að þetta er allt gert í samráði við þá sem hafa áhuga og vilja nýta þetta og njóta þess að vera þarna.“ Einnig náttúruminjar Hún segir minjagildi grásleppu- skúranna ómetanlegt og gríðarlega mikilvægt. „Þetta er hluti af þessu umhverfi, búið að vera þarna alla 20. öldina. Í 100 ár að minnsta kosti og jafnvel lengur. Þetta er ósnortin fjara sem ekkert hefur verið fyllt upp þannig að þetta eru líka náttúruminjar. Þetta er grunnurinn að því sem fólkið lifði á í Vesturbænum þar sem mikið var um útræði,“ segir María. „Þetta er hluti af þessari sögu: atvinnusögu, útvegssögu og hafs- sögu. Hvernig Reykjavík byggðist upp. Þannig að þetta er gríðarlega mikilvægt.“ Segir María að verkefnið sé ekki síður mikilvægt fyrir upplifun veg- farenda sem fara um svæðið en á svæðinu eru borð og bekkir og svæði til að setjast niður og horfa á sjóinn. „Það er hægt að labba þarna um fjöruna. Þarna eru dráttarteinar sem voru notaðir til að draga bátana upp, sem er reyndar farið að sjá á. Þarna eru líka dráttarspil og eitt og annað. Þarna eru fal- legar minjar um söguna, sem eru í alfaraleið. Þar sem fólk er að ganga með börnin sín og hjóla og haupa og stunda ýmiss konar úti- vist,“ segir María. „Það er mjög skemmtilegt að fara um svæði sem á sér sögu.“ Morgunblaðið/Unnur Karen Grásleppuskúr Vestasti grásleppuskúrinn á Ægisíðu hefur nú verið endurgerður eftir viðgerðaáætlun Borgar- sögusafns Reykjavíkur. Ráðgert er að endurgera alla grásleppuskúrana til að varðveita merka sögu svæðisins. Morgunblaðið/Unnur Karen Fyrra horf Klæðningin á endurgerða grásleppuskúrnum var endurnýtt að mestu leyti og er hann meðal annars gerður úr gömlum kassafjölum. Grunnurinn að því sem fólk lifði á - Vestasti grásleppuskúrinn á Ægisíðu hefur verið endurgerður og færður í fyrra horf - „Þetta er hluti af sögunni: atvinnusögu, útvegssögu og hafssögu. Hvernig Reykjavík byggðist upp“ Ljósmynd/Jóhann Vilberg Árnason 1966 Hér má sjá grásleppuskúrinn í upprunalegri mynd, tjöruklæddan með lektum, en stuðst var við þessa mynd, sem tekin var af Jóhanni Vilberg Árnasyni, við endurgerð skúrsins sem líkist nú mikið upprunalegri mynd sinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.