Morgunblaðið - 08.07.2021, Blaðsíða 60
60 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021
VIÐ LEITUM AÐ
LISTAVERKUM
Áhugasamir geta haft samband í
síma 551-0400
ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ
50 ÁRA Ragnheiður Inga
fæddist 8. júlí 1971 á
sveitabænum Hátúni á Ár-
skógsströnd. Þar ólst hún
upp við sveitastörf og um-
hyggju. Hún fór fljótt að
sækja sér einnig vinnu við
sjóinn og vann öll unglings-
árin í G-Ben í salti og slori.
Hún útskrifaðist sem stúd-
ent frá VMA og síðan sem
ferðaráðgjafi frá Ferða-
málaskóla Íslands 1994.
Núna í vor var hún að ljúka
við BA-nám í lögreglufræði
við Háskólann á Akureyri
og hún stefnir að meist-
aranámi í sálrænum áföll-
um og ofbeldi.
Ragnheiður hefur mik-
inn áhuga á útivist og líður
hvergi betur en uppi á fjöll-
um, úti á sjó eða í líkamsrækt, auk þess að mála í frístundum. Hún hefur unn-
ið margvísleg störf í ferðaþjónustu og öðrum starfsgreinum. „Ég hef mikinn
áhuga á að dunda mér ein, en hef samt á sama tíma mikla þörf fyrir tjáningu.
Mannleg samskipti eru listgrein sem er vandmeðfarin og áhugaverð.
Svo vil ég koma því að að ég er hrikalega vel gift handlögnum manni og
klárum með afbrigðum. Ég elska fjölskyldu mina, vini og fólk almennt og er
gífurlega stolt af börnunum mínum. En það leynist svolítill púki í mér líka og
mér finnst alls ekki leiðinlegt að fíflast.“
FJÖLSKYLDA Ragnheiður Inga er gift Sigtryggi Sigtryggssyni, f. 4.5.
1971, kerfisfræðingi. Börn þeirra eru Viktor Emil, f. 10.4. 2000, sem er að
keppa í ólympískri þríþraut og Ísfold Marý, f. 28.4. 2004, sem spilar með
meistaraflokki Þórs/KA í fótbolta. Foreldrar Ragnheiðar eru hjónin Ingi-
björg Ólafsdóttir hannyrðakona, f. 2.7. 1933 og Höskuldur Bjarnason, bíl-
stjóri, f. 8.6. 1929, d. 26.11. 2019. Þau bjuggu í Hátúni á Árskógsströnd þar
sem Ingibjörg býr enn.
Ragnheiður Inga Höskuldsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Reyndu að finna einhverjar nýjar
leiðir til þess að hrinda áhugamálum þínum
í framkvæmd. Mundu að draumar þínir
geta orðið að veruleika ef þú ert óhræddur.
20. apríl - 20. maí +
Naut Óákveðni heftir sköpunargleðina,
þess vegna skaltu vera fljótur að gera upp
hug þinn. Stíg þú fyrsta skrefið.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er enginn tími til að hika eða
efast – þú ert of upptekinn við að gera
huga og líkama gott. Ef þú nýtur þess sem
þú ert að gera, líður tíminn einfaldlega án
þess að honum sé sóað.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú hefur góðan byr í seglin en þarft
að gæta þess að fara ekki fram úr sjálfum/
sjálfri þér. En þér er óhætt að treysta á
innsæi þitt.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Lausnirnar sem leiða til betra lífs eru
augljósar, svo augljósar að þú gætir hafa
misst af þeim. Leitaðu samvinnu við aðra.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Sumar aðstæður hefur þú ekki á
valdi þínu svo þú þarft að reikna með þeim
án þess að geta breytt þeim.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Gættu þess að blanda þér ekki um of í
málefni annarra því það gæti orðið til þess
að þér verði kennt um annarra mistök.
Reyndu að horfa jákvæðum augum fram á
við.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Stundum verður þú að sætta
þig við að aðrir stjórni ferðinni. Sýndu meiri
auðmýkt gagnvart öðrum og umhverfi
þínu.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Mundu að fara vel með það
sem þér er trúað fyrir. Nú er tækifærið til
að bera á borð stórar hugmyndir og byrja
ný hættuspil.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Það er engu líkara en allir hlutir
gangi upp hjá þér í dag. Sýndu öðrum þol-
inmæði, ekki síst í verkefnum sem tengjast
sameiginlegum eignum.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Ákvarðanir blasa við, taktu þær
hratt og af festu. Stundum þurfum við bara
að taka því sem að höndum ber án of mik-
illa vangaveltna.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Öllu gríni fylgir einhver alvara svo
þú skalt gæta orða þinna og hafa aðgát í
nærveru sálar.
kynntist hlaupaþjálfaranum hérna í
bænum, Mörthu Ernst, en hún var
jógakennari líka. Ég byrjaði að
hlaupa og ákvað að fara til hennar í
jógatíma til að teygja eftir hlaupin.
Þar komst ég að því að jógað er
miklu meira en bara líkamsteygjur
og heillaðist gjörsamlega. Þegar
Martha fór frá Ísafirði, ákvað ég að
fara í jógakennaranám og lærði í
Jóga- og blómadropaskóla Krist-
bjargar og fór suður í lotunám. Árið
2013 opnaði ég Silfurtorg jóga-
stúdíó. Fyrst voru bara nokkrar
konur hjá mér, en síðan óx áhuginn
og ég hef líka verið með sérstök
karlanámskeið. Ég vildi miðla því
sem ég hafði lært til annarra og
þetta hefur undið upp á sig. Ég
kenni í stúdíóinu, en svo fer ég líka á
leikskóla með jógakennslu fyrir
börnin. Svo hef ég líka verið að
kenna eldri borgurum jóga, þar sem
við notum stóla til stuðnings. Á
sumrin erum við með jógatíma úti í
guðs grænni náttúrunni og göngum
hér upp í Naustahvíld og erum þar.
Það er fallegasti og besti jógasalur-
inn sem til er.“
Það hafði vantað svona verslun í bæ-
inn, en þegar fleiri slíkar verslanir
komu á markaðinn stuttu síðar
ákváðum við að draga okkur út úr
þessu.“
Gunnhildur hafði alltaf verið mik-
ið fyrir útivist en upp úr 2010 fór
hún að hreyfa sig markvissar. „Ég
G
unnhildur Gestsdóttir
fæddist 8. júlí 1961 á
Suðureyri við Súganda-
fjörð. „Það var þægi-
legt þorpslíf á Suður-
eyri, sjómannskonur og allir hjálp-
uðust að með uppeldi barnanna,
enda mikil samhygð í samfélaginu.
Ég man eftir miklum snjóum á vetr-
um og svo frábærum, sólríkum
sumrum. Minningarnar eru alltaf
svo bjartar.“ Gunnhildur gekk í
Barnaskóla Suðureyrar en fór í
heimavistarskólann á Reykjanesi
við Ísafjarðardjúp í 10. bekk.
„Þetta var bara það sem foreldrar
barna stóðu frammi fyrir, að þurfa
að senda börnin sín frá sér til að
fara í skóla. Ég var ekkert illa hald-
in af heimþrá eða öðru slíku og þetta
var svolítið ævintýri að fara alla leið
inn í Djúp og vera allan veturinn og
læra að standa á eigin fótum. Auð-
vitað hafði maður aðhald af starfs-
fólkinu sem ég minnist alltaf með
hlýhug.“
Gunnhildur fór í húsmæðraskól-
ann á Ísafirði árið 1979 og var fljót-
lega komin á fast. „Við Albert
kynntumst mjög fljótlega eftir að ég
kom á Ísafjörð og vorum ágætis vin-
ir. Smám saman kviknaði ástin og
við ákváðum að ganga þennan veg
saman í lífinu.“
Gunnhildur og Albert fóru að búa
og 1980 fóru þau að byggja hús inni í
Hnífsdal og fluttu í það tveimur ár-
um síðar. Eftir nokkur ár fæddist
Sif Huld, dóttir þeirra, og fjórum ár-
um síðar kom sonurinn, Arnar Frið-
rik. Á meðan Gunnhildur var að
sinna börnum og búi vann hún ýmis
störf, vann t.d. á Vefstofu Guðrúnar
Vigfúsdóttur og var síðar aðstoð-
armaður tannlæknis um tíma. Hún
hóf nám í Menntaskólanum á Ísa-
firði um það leyti sem sonur hennar
fæddist, en tók sér hlé og útskrif-
aðist árið 1999. Ekki hugði hún á
frekara nám að sinni, en ákvað að
fara í fyrirtækjarekstur. „Ég og vin-
kona mín, Valdís Óladóttir, rákum
Blómabúð Ísafjarðar um nokkurra
ára skeið. Þegar við hættum þeim
rekstri stofnaði ég nokkrum árum
síðar snyrtivöruverslunina Silf-
urtorg og var með hana í þrjú ár.
Árið 2017 ákvað fjölskyldan að
opna nýtt fyrirtæki í bænum, Dokk-
una Brugghús ehf. þar sem þau
brugga bjóra sem heita nöfnum sem
vísa í vestfirsk staðarheiti og minni,
eins og Dynjandi, Drangi, Djúpið,
svo einhverjir séu nefndir. „Þetta
hófst eiginlega með því að sonur
okkar fór inn á Breiðdalsvík og kíkti
inn á Beljandi Brugghús og varð
stórhrifinn. Hann sagði við pabba
sinn að fyrst hægt væri að reka
þetta fyrirtæki í Breiðdalsvík, ætti
það að vera hægt á Ísafirði.“ Fyrir-
tækið er sannkallað fjölskyldufyrir-
tæki, því Gunnhildur og Albert eiga
það með börnum sínum. „Síðan er
það tengdasonur minn, Hákon, og
skólabróðir hans, Valur Norðdahl,
sem eru bruggmeistararnir okkar.“
Ári eftir stofnun Dokkunnar Brugg-
húss ehf. opnuðu þau gestastofu þar
sem fólk gat komið og smakkað
framleiðsluna. Þau keyptu á síðasta
ári húsnæði fyrir reksturinn og tóku
allt í gegn. „Við erum að sjá fjölda
Íslendinga og útlendinga sem koma
hingað til okkar að smakka bjórinn
okkar. Mörgum finnst gaman af því
Gunnhildur Gestsdóttir jógakennari – 60 ára
Fjölskyldan Þessi mynd er tekin fyrir tveimur árum af fjölskyldunni. Fremri röð frá vinstri: Hermann Alexander
með hundinn Elvis, Gunnhildur með Hinrik Bjarna, Friðrik Unnar, Albert Marzelíus með Hákon Huldar og Albert
Marzelíus, nafni afa síns. Aftari röð frá vinstri: Arnar Friðrik, Thelma Ósk, Sif Huld og Hákon Hermannsson.
Úr faðmi fjalla blárra
Kubbinn Hoppað með Skutulsfjörð
og Snæfjallaströndina í baksýn.
Til hamingju með daginn