Morgunblaðið - 08.07.2021, Page 64

Morgunblaðið - 08.07.2021, Page 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021 Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Gott úrval af gæðakjötiá grillið Opnunartími 8:00-16:30 Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Plata með hinn óvenjulega titil Einbeittur brotavilji kom út fyrir helgi. Að baki þessari fjórtán laga plötu stendur Sálgæslan, sem er sérverkefni Sigurðar Flosasonar saxófónleikara, en hann hefur fengið einvalalið söngvara og hljóð- færaleikara með sér í lið. Söngvararnir sjö eru ekki af verri endanum; Helgi Björns, KK, Andrea Gylfadóttir, Stefán Hilm- arsson, Friðrik Ómar, Jógvan Han- sen og Rebekka Blöndal. „Þetta er allt frábært fólk sem ég hef unnið með í gegnum tíðina í alls konar verkefnum og það er gaman að það sé til í að koma í þessa vitleysu með manni,“ segir Sigurður. Þórir Baldvinsson leikur á Hammond-orgel, Einar Scheving á trommur og Andrés Þór Gunn- laugsson á gítar, auk þess sem nokkrir aðrir tónlistarmenn aðstoð- uðu við gerð plötunnar, Ari Bragi Kárason á trompet, Samúel J. Samúelsson á básúnu, Matthías Stefánsson á fiðlu og Bryndís Björgvinsdóttir á selló. Systurnar djassinn og blúsinn Að sögn Sigurðar er tónlistin á mörkum djass, blús og sálartón- listar. „Þessi snertiflötur djass og blús, blúsuð djasstónlist eða djöss- uð blústónlist, hefur höfðað til mín alveg frá því ég var unglingur. Þetta eru svona systrafyrirbæri, djassinn og blúsinn, og eiga mjög eðlilega samleið. Það er stórt skurðmengi þeirra á milli og þessi tónlist á plötunni er einhvers stað- ar þar.“ Sigurður segir plötuna hafa sprottið upp úr vangaveltum um blús og þau umfjöllunarefni sem koma við sögu innan þeirrar tón- listarstefnu. „Þetta á sér reyndar sögu aftur í eldri plötur sem ég hef gert, það eru instrumental plötur þar sem Hammond-orgelið er í for- grunni, eins og er á þessari plötu. Ég á einar þrjár þannig að baki. Þær heita Bláir skuggar, Blátt ljós og Blátt líf og þótt þar séu engir textar þá eru titlar sem vísa í þess- ar áttir. Þar var ég að velta fyrir mér blúsumfjöllunarefnum og komst að þeirri niðurstöðu að þar væri oft um að ræða orð sem byrja á bókstafnum F,“ segir Sigurður og hlær. „Það er kannski ekki það sem fólki dettur fyrst í hug. En þar koma við sögu fangelsi, fyllirí, framhjáhald og ferðalög og fimmta F-ið er jafn vel fjandinn sjálfur. Ég fór að leika mér að því að búa til lög sem yfirfærðu þennan amer- íska blúsveruleika á íslenskan veruleika. Það var fyrst bara í titl- unum á lögunum en svo fór ég að föndra við að setja texta við nokk- ur þeirra laga sem áður voru bara instrumental og svo búa til ný lög og texta, út frá sömu grunnhug- mynd. Þá kemur meira kjöt á bein- in.“ Kemur í stórum gusum Einbeittur brotavilji er að sögn Sigurðar í beinu framhaldi af ann- arri plötu sem kom út fyrir síðustu jól og ber titilinn Blásýra. Hann segir þetta í rauninni vera sama verkefnið, sum laganna á nýju plöt- unni hafi verið hljóðrituð á sama tíma og lögin á Blásýru en önnur síðar. „Þannig að þetta er svona einn bunki af tuttugu og fjórum lögum sem koma þarna saman á systurplötum,“ segir Sigurður. „Það er stundum þannig að þegar ég byrja á einhverju þá kemur stór gusa. Þarna er komin dálítið stór gusa af þessu og svo kemur kannski stór gusa af einhverju öðru næst.“ Hann bætir við að árið 2011 hafi Sálgæslan gefið út sína fyrstu plötu, sem bar titilinn Dauði og djöfull, svo Einbeittur brotavilji sé í raun sjötta platan í þessu verkefni, þar sem alls eru þrjár instrumental plötur og þrjár sungnar. Umfjöllunarefnin á Einbeittum brotavilja eru óvenjuleg og segir Sigurður plötuna nokkurs konar „óð til íslenska smáglæpamanns- ins“. Þar koma við sögu brenni- vínsberserkir, eltihrellar, siðleys- ingjar og smákrimmar. Hann segir að ýmislegt ólöglegt komi fyrir í textunum og ýmsir vinklar á sam- skipti kynjanna sem kalla má tabú eða eru á einhverjum mörkum, til dæmis swing-menningin. „Þetta er gert með bros á vör eða glotti út í annað, en þetta eru auðvitað alvarlegir hlutir líka. Ég er svona að leika mér að því að hlæja með þessum heimi og líka að velta fyrir mér hvort megi skrifa texta um hvað sem er. Við erum orðin það nútímaleg í íslensku samfélagi að við ættum eiginlega að vera komin lengra en svo að bara samþykkja þessa hluti. Ef þeir eru orðnir algerlega normal- íseraðir þá hljótum við að mega brosa að þeim eins og öllu hinu,“ segir saxófónleikarinn. „Geysilega gaman“ „Ég satt að segja hlæ upp úr eins manns hljóði þegar ég er að semja þessa texta. Ég hef geysi- lega gaman af þessu. Fyrir mér er þetta líka ákveðin skemmtitónlist. Mest af því sem ég hef gert á mín- um ferli er alvarlegri djasstónlist, instrumental og kannski nútíma- legri, ýmist frumsamin eða djass- standardar. Þetta er svolítið annar gír. Það er dálítil frelsun í því, þetta er ákveðið hliðarspor eða „alter ego“-mál fyrir mig, aftöppun fyrir annars konar sköpunargáfu eða sköpunarþrá.“ Sigurður vonar að hlustendur deili með honum gleðinni. „Ég er að vona að einhverjum sem ekki eru djassunnendur geti fundist þetta skemmtilegt. Ég finn það á þeim sem heyra þessa tónlist að margir brosa líka og hafa gaman af þessu. Þetta er aðgengilegri og einfaldari músík en mikið af þeim djassi sem ég spila annars.“ Tónlistarmaðurinn Þórir Bald- ursson hefur verið í stóru hlutverki á plötunum sex, þar sem hann leik- ur mest á Hammond-orgel. „Þetta er byggt svolítið utan um Hamm- ond-orgelið, þessi blús- og kirkju- hljómur sem það hefur er í þessu öllu saman. Þórir er aðeins farinn að reskjast, hann er nær áttræðu en sjötugu, en lætur engan bilbug á sér finna og það er alveg frá- bært. Það er gaman að geta doku- menterað hann svona.“ Óður til íslenska smáglæpamannsins Morgunblaðið/Unnur Karen Sálgæslan Sigurður Flosason saxófónleikari leikur sér að því að semja lög og texta um ýmislegt sem kalla má tabú. - Ný plata Sálgæslunnar, Einbeittur brotavilji, er komin út - Saxófónleikarinn Sigurður Flosason segir þetta skemmtitónlist á mörkum djass og blús - Óvenjuleg og ögrandi umfjöllunarefni Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Spike Lee er mættur til Cannes þar sem hin virta kvikmyndahátíð er hafin í 74. sinn. Lee er formaður aðaldómnefndar hátíðarinnar og sá fyrsti þeldökki í langri sögu hennar. Lee sagði á fundi með fjöl- miðlamönnum á þriðjudag að Cannes væri merkasta kvikmynda- hátíð heims og að með þeim orðum sínum væri hann þó ekki að gera lítið úr öðrum hátíðum. Lee hefur mætt reglulega á hátíðina allt frá því fyrsta kvikmynd hans, She’s Gotta Have It frá árinu 1986, var frumsýnd þar. Árið 1989 var önnur kvikmynd eftir hann, Do the Right Thing, einnig frumsýnd í Cannes en hlaut þó ekki aðalverðlaunin. Sú fjallar um átök fólks af ólíkum uppruna og kynþáttahatur í Brook- lyn og nefndi Lee á fundinum að enn í dag, rúmum 30 árum síðar, væri svart fólk ofsótt í Bandaríkj- unum. Minntist hann morðsins á George Floyd í því sambandi. Hátíðin stendur yfir til 17. júlí og verða kvikmyndir margra heimskunnra leikstjóra frum- sýndar. AFP Formaður Spike Lee í Cannes. Hér sést hann með frönsku leikkonunni Mel- anie Laurent (t.h.) og hinni fransk-senegölsku Mati Diop sem er leikstjóri. Fyrsti þeldökki for- maðurinn í Cannes

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.