Morgunblaðið - 08.07.2021, Síða 54
✝
Sonja María
Carlsen fædd-
ist 2. september
1946. Hún lést 26.
júní 2021 á Líkn-
ardeild Kópavogs.
Foreldrar Sonju
voru Svava Schiöth
Lárusdóttir, f.
4.10. 1910, d. 21.9.
1991 og Carl Ant-
on Carlsen, f. 20.1.
1908, d. 21.12.
1973.
Alsystkin: Helgi Ottó Carl-
sen, f. 5.7.1933, d. 25.7. 2010,
Erik Ásbjörn Carlsen, f. 22.11.
1935, d. 10.2. 2018, Kolbrún
Anna Carlsen, f. 21.8. 1941, d.
3.5. 2002, Svavar Marteinn
Carlsen, f. 10.4. 1938.
Sammæðra systkin: Helga
Schiöth Snorra-
dóttir, f. 9.6. 1951
og Ólafur Snorra-
son, f. 2.7. 1953.
Með fyrrverandi
eiginmanni sínum,
Óskari Sigurpáls-
syni, f. 21.12. 1945,
átti hún dæturnar:
Helgu Björk Ósk-
arsdóttur, f. 24.12.
1965, Rósmary Ósk
Óskarsdóttur, f.
8.11. 1968, Sonju Guðrúnu Ósk-
arsdóttur, f. 10.2. 1971, og Kar-
en Hrönn Óskarsdóttur, f. 8.11.
1973.
Sonja María átti fimm barna-
börn og fimm barnabarnabörn.
Útförin fer fram frá Linda-
kirkju í dag, 8. júlí 2021,
klukkan 15.
Mamma.
Núna ertu farin, elsku mamma,
á besta stað sem hugsast getur.
Heim til Jesú Krists, frelsara okk-
ar, heim í hið himneska þar sem
himinninn er blárri en blár og
grasið er grænna en grænt og þar
sem Drottinn okkar og frelsari
dvelur. Þú tókst á móti Jesú og
fórst með frelsisbænina á sjúkra-
beði þínum. Þvílík forréttindi það
voru og dýrð sé Guði einum fyrir
það.
Þú varst hetja og fórst í gegnum
lífið með góða skapið að vopni.
Hetja sem gekkst með fimm börn
þrátt fyrir sjúkdóma og afleiðingar
hans á líkama þinn. Hetja sem
gerðir það besta úr því sem þú
hafðir. Þú vildir aldrei neina hjálp
og reyndir að gera allt sjálf en auð-
vitað voru stundir þar sem þú
þurftir hjálp og þá fékkstu hana
frá dætrum þínum, systkinum eða
ættingjum og vinum. Þú elskaðir
börn og dýr og varst alltaf með þau
nálægt þér.
Það var langt á milli okkar,
elsku mamma, þar sem ég hef búið
í Danmörku í mörg ár, þú elskaðir
Danmörku enda ertu ættuð þaðan.
Þér fannst svo gaman að heyra
sögurnar af því fólki sem hafði hitt
eða sem þekkti frænda okkar,
skipstjórann Curt Carlsen sem
kenndur var við Flying Enterp-
rice. Í starfi mínu sem hjúkrunar-
fræðingur hitti ég marga sem
höfðu sögur að segja um hann.
Captain Curt var frægur á árum
áður og fékk hetjulegar móttökur
hjá Truman forseta í USA! Í hvert
skipti sem ég kom til þín gat ég
sagt þér frá einstaklingum sem
höfðu hitt hann. Það gladdi þig
mikið.
Ég er svo glöð að hafa sagt þér
frá því á síðasta ári að mér fyndist
þú vera algjör hetja. Þú varðst svo
hissa og glöð. Kannski varstu hissa
að einhverjum skyldi finnast eitt-
hvað um þig! Því ég veit að líf þitt
var allt annað en létt, alveg frá því
þú varst mjög ung. Þú talaðir oft
um það í gegnum lífið og skildir
ekkert undan að manni fannst.
Hláturinn og góða skapið voru þitt
vopn og kannski skjöldur! Skjöld-
urinn var að fela sorgina svo aðrir
sæju það ekki! Það var oft stutt í
grátinn hjá þér, elsku mamma.
En ég man þig samt alltaf sem
syngjandi og trallandi og dillandi
glaða í gegnum lífið, og ég er nokk-
uð viss um að þann eiginleika hef-
ur þú gefið mér. Það var alltaf
stutt í hláturinn og ófá hlátur-
sköstin sem við áttum saman.
Þú varst svo góð við börnin mín,
Rakel, Jóhönnu og Jónatan og
vildir allt fyrir þau gera. Nú sit ég
hérna í Danmörku og skrifa til þín
bréf og trúi því varla að þú sért
farin frá okkur. Ég fékk ekki að
faðma þig, elsku mamma mín, eða
segja þér allt sem mig langaði til
að segja, þess vegna þetta litla
bréf.
Sonja María
Carlsen
Þú varst búin að vera veik svo
lengi, eiginlega síðan ég man eftir
mér, og nú undir það síðasta bað
ég Jesú um að taka þig heim úr
þessum dauðans veika líkama, því
ég vissi að þú fengir dýrðarlíkama
hjá Jesú.
Ég gleðst með óumræðilegri
gleði yfir því að ég mun hitta þig
aftur heima hjá Jesú og þá get ég
faðmað þig og kysst og við höfum
heila eilífð til að vera saman og
spjalla saman og gera fullt af ótrú-
lega spennandi hlutum í eilífðinni á
himnum. Það er svo gott að vita af
þér í kærleikanum hjá Jesú og það
hlýtur að vera alveg stórkostlegt
að finna fyrir þeim kærleika sem
er æðri öllum skilningi. Við
sjáumst, elsku mamma mín, á
himnum, og það verða fagnaðar-
fundir hjá okkur. Ég þakka Jesú
fyrir að hafa gefið mér þig fyrir
móður, elsku mamma mín, og ég
hefði ekki viljað hafa það öðruvísi.
Ég þakka Guði fyrir þig og bið
Hann um að senda kærleikskveðju
til þín.
Þín dóttir,
Helga Björk.
Elsku mamma mín. Núna ertu
komin heim til Jesú frelsara þíns,
laus úr þínum veika líkama og
komin með nýjan dýrðarlíkama.
Ég er svo þakklát Guði fyrir þig
mamma og hlakka svo til að hitta
þig aftur, manstu alveg eins og
við töluðum um. Líf þitt var ekki
auðvelt mamma en hjá Jesú eru
engin tár, engin sorg og engir
sjúkdómar. „Standið eigi við gröf
mína og grátið, ég er ekki þar. Ég
sef ekki, ég er í vindinum þjót-
andi, ég er í snjókorninu glitr-
andi, ég er sólarljós á þroskuðu
korni, ég er hið ljúfa regn að
hausti, standið eigi við gröf mína
og grátið, ég er ekki þar, ég dó
ekki.“
Elska þig mamma.
Þín dóttir,
Sonja.
Fyrir rúmlega tuttugu og einu
ári hittum við Sonju í fyrsta sinn.
Hún kom til okkar í Vallarhúsin
til að sækja um að vera „amma“
strákanna. Nokkrar „ömmur“
komu til að sækja um og engin
þeirra náði að heilla Ágúst og
Skarphéðin eins mikið og Sonja
okkar. Þeir fóru strax til hennar
og vildu helst að hún fengi rúm í
herberginu þeirra.
Fyrstu kynni okkar voru þau
hversu skemmtileg og hreinskilin
Sonja var og hversu stolt hún var
af stelpunum sínum.
Strákarnir voru ekki róleg-
heitabörn en hún talaði aldrei um
að þeir væru ómögulegir eða
óþekkir, alltaf frábærir og henni
þótti svo sannarlega vænt um þá.
Sonja kenndi þeim nægjusemi,
kenndi þeim að nota strætó, elda
mat, útiveru og ekki má gleyma
kindereggjunum sem henni þótti
góð og skemmtileg, þau minna allt-
af á Sonju okkar.
Okkur Kidda er alltaf minnis-
stætt þegar við komum úr vinnu
einn föstudaginn og Sonja og
strákarnir ekki heima. Við hringd-
um og könnuðum hvort þau væru í
Kötlufellinu og það var raunin.
Sonja tilkynnti okkur Kidda að við
fengjum ekki strákana þetta kvöld
því þeir ættu að sofa hjá henni.
Okkur fannst þetta heldur skrítið
enda ekki oft sem þeir voru allir í
pössun annars staðar og við viss-
um að það var ekki auðvelt. Henni
fannst við þurfa að eiga smátíma
ein og við værum þreytt. Sonja átti
eftir að gera þetta oft næstu árin.
Svo er það minningin um Sonju
þegar hún fékk sér ís með strákun-
um, setti í skál og sótti sósu og
skellti yfir hjá sér. Svipurinn á
henni var frekar skrítinn sögðu
strákarnir svo þeir kíktu á hvað
hún setti á ísinn sinn. Þetta var
sósulitur, þeir veltust um af hlátri
og vildu að hún fengi sér aðra skál.
Sonja var ekki vön að henda neinu
og reyndi að borða þetta en gafst
upp að lokum. Strákarnir vilja
meina að þetta hafi verið í eina
skiptið sem Sonja henti mat svo
þeir sæju til.
Sonja náði að fanga hjarta okk-
ur með gleði sinni og hjartahlýju.
Það var ótrúlegt hvað hún gaf af
sér þrátt fyrir veikindi sín og að
mörgu leyti erfitt líf. En hún
kvartaði sjaldan, brosti bara og
hristi af sér það sem neikvætt var.
Þótt við höfum hist lítið síðast-
liðin tvö ár þá voru símtölin reglu-
leg og alltaf gott að heyra röddina
hennar Sonju. Elsku Sonja okkar,
lífið er tómlegt án þín en við mun-
um alltaf minnast þín með brosi á
vör og þakklæti fyrir að þú hafir
verið í lífi okkar. Takk fyrir allt, við
sjáumst þegar okkar tími kemur.
Elsku Helga Björk, Rósmary
Ósk, Sonja Guðrún, Karen Hrönn
og fjölskyldur, við sendum ykkur
innilegar samúðarkveðjur með von
um að allar góðar vættir gefi ykk-
ur styrk.
Steinunn Rósa, Kristján
(Kiddi), Einar Sveinn, Ágúst
Ingi og Skarphéðinn Andri.
✝
Halldór Pét-
ursson fæddist
8. janúar 1958 í
Reykjavík. Hann
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 30. júní
2021. Hann var
sonur Péturs
Ingvasonar, f. 4.
ágúst 1933, d. 27.
maí 2012. Móðir
hans er Elín Krist-
ín Halldórsdóttir, f. 11. desem-
ber 1938. Systkini hans voru
Ingvi Pétursson, f. 4. desem-
ber 1959, Þóra Pétursdóttir, f.
4. apríl 1962, d. 28. júní 1965,
Lilja Pétursdóttir, f. 13. mars
1963, Pétur Pétursson, f. 4.
ágúst 1969 og Þóra Péturs-
dóttir, 21. ágúst 1973.
Halldór kvæntist 7. október
1978 Ágústu Hansdóttur, f. 14.
nóvember 1958, d. 1. janúar
2020. Faðir hennar var Hans
Ragnar Sigurjónsson, f. 16.
júlí 1927, d. 30. desember 2013
og móðir hennar var Ingibjörg
Guðbjörnsdóttir, f. 3. sept-
ember 1929, d. 11. júlí 2008.
Systkini Ágústu eru Sigurjón,
f. 28 febrúar, d. 6. júní 1964,
Anna, f. 6. ágúst 1952, Ása, f.
6. febrúar 1957, Unnur, f. 27.
apríl 1961 og Sigurjón Hans-
son, f. 11. maí 1965.
Börn Halldórs
og Ágústu eru
Pétur, f. 7. júlí
1979 og Arnar
Már, f. 7. ágúst
1984. Sambýlis-
kona Arnars er
Birna Ármey
Þorsteinsdóttir, f.
3. maí 1984, dóttir
þeirra er Ágústa
Elín Arnarsdóttir,
f. 28. febrúar
2021, systkini hennar sam-
mæðra eru Hafdís Birta, f. 13.
september 2004, Ármann
Guðni, f. 22. febrúar 2006 og
Lilja María, f. í apríl 2010.
Halldór var þekktastur fyrir
að vinna í fiskvinnslu, fyrir ut-
an örfá ár þar sem hann var
bóndi. Hann stofnaði fyrir-
tækið H. Pétursson ehf. þar
sem þau hjónin unnu saman
ásamt sonum sínum. Honum
þótti gaman að ferðast og þá
sérstaklega með eiginkonu
sinni, bæði erlendis og innan-
lands. Á sínum seinni árum
spiluðu þau hjónin mikið golf
ásamt því að fara í veiðiferðir
saman.
Útförin fer fram þann 8. júlí
2021 frá Útskálakirkju í Garði
fyrir þá nánustu, einnig verð-
ur athöfnin send út í Gerða-
skóla og hefst hún klukkan 14.
Við Dóri kynntumst í
Bjarmalandinu þar sem syst-
urnar Gústa og Unnur bjuggu,
Dóri og Gústa í hrútakofanum
(forstofuherbergið), alltaf til
nóg af nammi, spilað á gítar,
hlegið og grínast fram eftir
kvöldum, eða alvarlegar um-
ræður um landsins gagn og
nauðsynjar.
Við unnum saman í BÚR í
nokkur ár, nokkuð stór vinnu-
staður á þessum árum, Dóri sá
um starfsmanna- og verkstjórn,
langir vinnudagar, allt unnið af
yfirvegun og í góðri samvinnu
eins og einkenndi vinnubrögð
Dóra.
Með stírurnar í augunum
staulaðist ég í vinnuna, mættur
í BÚR á slaginu sjö, það fyrsta
sem ég sé er Dóri við klukkuna
og stundum þarf ég jafnvel að
bíða í röð.
Árin líða Dóri og Gústa setj-
ast að í Garðinum, þar hefst
uppbygging á eigin fyrirtæki
sem rekið var með glæsibrag,
dugnaður, útsjónarsemi og
samvinna Dóra og Gústu ein-
kenndi þá uppbyggingu og
rekstur.
Við Unnur og strákarnir fór-
um í margar fjölskylduferðir,
tjald- og veiðiferðir innanlands
með Gústu, Dóra, Pétri og
Arnari, og ferðir erlendis, ávallt
mikið hlegið og geggjað fjör,
Dóri þessi mikli fagurkeri heill-
aðist af gulli og ýmiskonar
glingri, oft ýmislegt verslað í
fjarlægum löndum, gott auga
fyrir fallegum bílum, gott að
láta Dóra skoða áður en kaupin
voru gerð. Alltaf gaman að
rabba um afurðasölumálin, þar
var Dóri á heimavelli, lá okkur
oft hátt rómur, gaman hjá okk-
ur enda keppnismenn til sjávar
og sveita, alltaf góður húmor og
virðing.
Svo er sjö mínútna pása, við
skulum nota hana vel, reykja
eina rettu eða tvær, ef við verð-
um lengur verður Dóra ekki um
sel og Stulli karlinn verður al-
veg ær.
Að lokum þetta:
Takk fyrir tryggð og hlýhug
við okkur, minn kæri, strákana
okkar Unnar, Árna, Hans og
Bjarka, alltaf tilbúinn að lið-
sinna þeim, horfa á keppnis-
leiki, hvetja og hrósa, enda Dóri
KR-ingur í húð og hár.
Eins og þeir vita sem þekktu
ykkur Gústu voruð þið oft á
ferðalögum erlendis um lengri
eða skemmri tíma, Gústa mín
lagði af stað í ferðina til Sól-
skinslandsins aðeins og undan
þér til þess að undirbúa komu
þína, nú eruð þið vonandi sam-
einuð og ferðist um nýjar víddir
saman í ást og hlýju.
Elsku Pétur, Arnar og fjöl-
skyldur, hugur minn er hjá ykk-
ur.
Minningin um þig og Gústu
þína lifir áfram með okkur,
snillingarnir okkar.
Þangað til næst, virðing og
friður.
Pjetur Árnason.
Ég og almættið erum ekki
„dús“ þessa dagana og reyndar
ekki þessi misserin. Það er
þyngra en tárum taki að horfa á
eftir vinum sínum yfirgefa
þessa jarðvist langt um aldur
fram. Halldór Pétursson, æsku-
vinur minn, er horfinn á braut
til fundar við Gústu sína sem
hann missti fyrir ætternisstap-
ann á fyrsta degi síðasta árs.
Þau kynntust ung og giftu sig
tvítug að aldri. Búskap sinn
hófu þau í Reykjavík en gerðust
síðan bændur um nokkurra ára
skeið en meginhluta ævinnar
bjuggju þau í Garðinum þar
sem þau undu sér vel með son-
unum tveimur, Pétri og Arnari
Má. Þar ráku þau um árabil öfl-
uga fiskverkun, H.Pétursson
ehf., en Halldór var lærður í
þeim fræðum frá Fiskiðnaðar-
skólanum í Hafnarfirði.
Vinátta okkar Halldórs
spannar um fimmtíu ár. Við
kynntumst í skátunum sem
unglingar og náðum strax vel
saman. Margt var brallað, farið
í útilegur og haft gaman eins og
ungra manna er háttur. Aldrei á
þessum áratugum trosnaði hinn
öflugi strengur vináttunnar sem
myndaðist á æskuárum okkar.
Samskiptin voru mismikil á
tímabilum en alltaf var eins og
við hefðum hist í gær þegar
komið var saman.
Það kom eins og þruma úr
heiðskíru lofti þegar í ljós kom
hversu alvarleg veikindi Hall-
dórs voru. Hann hélt þeim fyrir
sig og var reyndar alltaf lítið
fyrir að flíka persónulegum
málum. Eftir að Gústa veiktist
alvarlega 2012 en náði sæmileg-
um bata ferðuðust þau mikið og
stunduðu golfíþróttina með vin-
um sínum.
Það er huggun harmi gegn að
nú hafa Halli og Gústa náð sam-
an aftur. Þau fullkomnuðu hvort
annað.
Kristinn Dagur Gissurarson.
Halldór Pétursson
54 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 2021
Fallinn er frá Ólaf-
ur B.Thors, einstak-
ur heiðursmaður,
traustur í samskipt-
um með ljúfa og góða
nærveru sem ein-
kenndist af hlýleika og gleði.
Ólafur hafði yfirbragð höfðingja,
glæsilegur maður með rólegt og yf-
irvegað fas, en viðmótið sem hann
sýndi viðmælendum sínum bar vott
um þann mannvin sem hann vissu-
lega var.
Samskipti okkar Ólafs og sam-
vinna hófst á sviði viðskipta þegar
hann sat í stjórn tveggja hluta-
félaga sem ég veitti forstöðu, Þró-
unarfélags Íslands hf. og Kögun hf.
þar sem hann var stjórnarformað-
ur um tíma. Í störfum sínum í þess-
um félögum lagði Ólafur alltaf gott
til mála og stóð vel við bakið á fram-
kvæmdastjóra í erfiðum málum.
Gott var að leita til Ólafs með
vandamál sem taka þurfti á, hann
bjó yfir mikilli reynslu úr viðskipta-
lífi og stjórnmálum auk þess að
hafa þann eiginleika að vera fljótur
að greina stöðu mála.
Ólafur var fyrrverandi stjórn-
Ólafur B. Thors
✝
Ólafur B. Thors
fæddist 31. des-
ember 1937. Hann
lést 28. júní 2021.
Útför Ólafs var
gerð 6. júlí 2021.
málamaður þegar
leiðir okkar lágu
saman, maður sem
náð hafði æðstu met-
orðum innan stjórn-
kerfis Reykjavíkur-
borgar. Það þurfti þó
ekki löng kynni til að
átta sig á að Ólafur
var í eðli sínu ekki sá
„stríðsmaður“ sem
einkennir marga
stjórnmálamenn.
Ólafur var ekki maður átaka, hann
valdi að leysa deilumál með frið-
samlegum hætti væri slíkt mögu-
legt. Þrátt fyrir það ljúfa viðmót
sem einkenndi Ólaf gat hann verið
harður í samskiptum ef á þurfti að
halda. Ég minnist atviks þegar
háttsettur embættismaður reyndi
að skerða möguleika Kögunar hf.
til að sinna verkum sínum. Sem
stjórnarformaður félagsins kom
Ólafur með mér á fund með emb-
ættismanninum. Á löngum ferli hef
ég ekki séð mann halda jafn fast á
málum og Ólafur gerði á þeim
fundi, enginn hávaði og fasið rólegt
en festan í málflutningi slík að eng-
um duldist hver hafði yfirhöndina.
Við fráfall Ólafs vil ég þakka það
traust sem hann sýndi mér í sam-
starfi okkar og þá vináttu sem hélst
löngu eftir að við hættum að vinna
saman.
Gunnlaugur M. Sigmundsson.
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að
andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-,
útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að-
gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur
lesið minningargreinar á vefnum.
" 1+.&*0 +4 (/ ,&&( *!!3%)#&-(4 *0
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber
að höndum og aðrar gagnlegar
*!!3%)#&-(4 '23(/(4 (/)2(&$+&$*0
við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát