Morgunblaðið - 15.07.2021, Síða 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021
ALMERÍA
16. - 27. JÚLÍ | 11 NÆTUR
FLUG OG GISTING
VERÐ FRÁ:
79.900 KR.
*Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
OG 2 BÖRN. INNIFALIÐ Í VERÐI
FLUG, GISTING, INNRITAÐUR
FARANGUR OG HANDFARANGUR
INNIFALIÐ Í VERÐI
FLUGSÆTI BÁÐAR LEIÐIR
FLUG OG HANDFARANGUR
FLUG
VERÐ FRÁ:
39.900 KR.*
WWW.UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓP. | 585 40000 | INFO@UU.IS
Unnur Freyja Víðisdóttir
Esther Hallsdóttir
Síðasti dagur bólusetninga í Laugar-
dalshöll var í gær en ekki er gert ráð
fyrir að Höllin verði nýtt aftur undir
bólusetningar eftir sumarfrí heilsu-
gæslunnar. Ákvörðun liggur ekki fyr-
ir um áframhaldandi fyrirkomulag
þeirra.
Rúmlega 90 prósent einstaklinga
16 ára og eldri hafa fengið að minnsta
kosti einn skammt af bóluefni við Co-
vid hér á landi, en 83,5 prósent eru
fullbólusett.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra fékk sína seinni sprautu í
gær. Hún sagði við mbl.is að fram-
gangur bólusetninga hér á landi væri
ævintýri líkastur og að Íslendingar
mættu vera stoltir.
„Ég held að engan hafi órað fyrir því
hversu hratt vísindasamfélaginu tókst
að búa til bóluefni gegn Covid-19 yfir
höfuð og síðan hversu vel hefur gengið
bæði að afla þessara bóluefna fyrir
okkur hér og að skipuleggja bólusetn-
ingarnar. Við getum verið mjög stolt af
okkur sjálfum og þeim gangi sem hef-
ur verið í bólusetningum. Samfélagið
hefur verið mjög til í þetta. Það er mik-
ill vilji í íslensku samfélagi. Svo hefur
starfsfólkið á gólfinu unnið þrekvirki
þannig að mér finnst þetta vera svolít-
ið þeirra dagur í dag,“ sagði Svandís
m.a.
Meðal þeirra sem hafa haft yfirum-
sjón með bólusetningum á höfuðborg-
arsvæðinu er Ragnheiður Ósk Er-
lendsdóttir, framkvæmdastjóri
hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins.
Hún segir verkefnið hafa gengið
vel og það sé samstöðu almennings og
starfsfólks að þakka.
„Það sem stendur helst upp úr í
þessu öllu saman er frábært viðhorf
almennings. Hversu vel hann hefur
einhvern veginn tekið þessu verkefni,
mætt vel og sýnt biðlund í biðröðum.
Þetta er náttúrulega heljarinnar
verkefni. Við höfum aldrei farið í
svona stórt verkefni með þessum
hætti áður,“ segir Ragnheiður.
Eftirminnilegast í ferlinu þykir
henni þegar starfsfólkið hljóp um bæ-
inn til að koma út afgangsbóluefni,
svo sem í vikunni þegar farið var með
75 skammta um borð í skipið Viking
Jupiter. „Það hefur verið algert mottó
hjá okkur að enginn skammtur fari til
spillis. Við höfum lagt gífurlega vinnu
í það að koma öllum skömmtum út til
þeirra sem þurfa,“ segir hún.
Ekki með alvarleg einkenni
Fimm greindust með Covid utan
sóttkvíar á þriðjudag, en þar af voru
þrír bólusettir að fullu en tveir ekki.
45 manns eru nú í eftirliti hjá Co-
vid-göngudeild Landspítalans með
virkt smit. Langflestir þeirra eru
bólusettir og enginn með alvarleg ein-
kenni.
Runólfur Pálsson, einn yfirmanna
göngudeildarinnar, minnir á að þrátt
fyrir að fólk sé að fullu bólusett þá
fylgi smiti einangrun sem og sóttkví
fyrir þá sem viðkomandi hefur um-
gengst. Það sé mikið inngrip í líf fólks.
Þá sé mikilvægt að halda áfram ein-
staklingsbundnum sóttvörnum.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn-
ir hefur sagt að viðbúið sé að smit ber-
ist inn í landið. „Þá er það bara spurn-
ingin hvort þessi útbreidda
bólusetning hér haldi almennilega.
Við vitum líka að þeir sem eru bólu-
settir geta tekið smit, þannig að þetta
er ekki óvænt. Það sem við bindum
vonir við er að þeir sem eru bólusettir
og taka smit veikist ekki eins alvar-
lega og ef þeir væru óbólusettir. Er-
lendar rannsóknir sýna það í raun og
veru.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bólusett Síðasti dagur fjöldabólusetninga í Laugardalshöll fyrir sumarfrí var í gær en ekki er gert ráð fyrir að opna þar aftur. Þórólfur sóttvarnalæknir segir viðbúið að smit berist inn í landið.
Síðustu sprautur á lofti í Höllinni
- Yfir 90 prósent hafa fengið einn bóluefnaskammt við Covid - Fimm smit greindust utan sóttkvíar á
þriðjudag - 45 eru í eftirliti á Covid-göngudeild, flestir bólusettir og enginn með alvarleg einkenni
Efnisneysla Íslendinga er sú þriðja
mesta í Evrópu, samkvæmt nýjum
gögnum frá Eurostat, hagstofu
Evrópusabambandsins.
Efnisneysla er mælikvarði á
magn hráefnis sem hagkerfi notar,
bæði úr náttúru landsins og inn-
flutt, að frádregnu því hráefni sem
er flutt úr landi.
Efst á listanum eru Finnland og
Noregur. Gögnin fyrir Finnland
eru frá 2020 en gögnin um Ísland
og Noreg frá 2019. Hér var efnis-
neysla 30,2 tonn á einstakling árið
2019 en meðaltal ESB var um 14
tonn sama ár og 13,4 tonn árið
2020.
Vegir, ál og fiskur vega þyngst
Það skýrist helst af neyslu Íslend-
inga á steinefnum en samkvæmt
upplýsingum frá Hagstofunni skýr-
ist það meðal annars af því að mikið
magn þarf af hráefni til að byggja
upp vegakerfið. Ísland er einnig of-
arlega í neyslu á málmum. Þar er
aðallega um að ræða báxíð og ann-
að ál sem flutt er til málmvinnslu í
álverum. Í neyslu Íslendinga á líf-
massa vegur fiskveiði þyngst en að-
eins hluti af þeim fiski sem veiðist
nýtist til útflutnings.
Á vef Hagstofunnar kemur fram
að Ísland hafi verið með mestu
efnissöfnun á einstakling í Evrópu
þegar bygging Kárahnjúkavirkj-
unar stóð yfir, enda var um að ræða
stærstu einstöku framkvæmd í Evr-
ópu á þeim tíma. Einnig hafi verið
mikil aukning hér á landi á árunum
2016 og 2017 vegna innflutnings
flugeldsneytis. esther@mbl.is
31,3 30,8
30,2 29,1
27,7
25,0 24,9
22,3
20,6 19,8
18,8 18,6
17,8 17,5
16,4
14,4 14,3
13,4 13,4 13,3 13,3
11,8 11,7 11,6 11,2 11,0 10,3
8,9 8,5 8,1 7,4
Efnisneysla á Íslandi og í nokkrum Evrópulöndum árið 2020
Tonn efnis á hvern íbúa
Heimild: Eurostat
*Tölur frá 2019
Fi
nn
la
nd
N
or
eg
ur
*
Ís
la
n
d
*
Rú
m
en
ía
Ei
st
la
nd
Sv
íþ
jó
ð
D
an
m
ör
k
Ír
la
nd
Lú
xe
m
bo
rg
B
úl
ga
ría
Au
st
ur
rík
i
Li
th
áe
n
Ký
pu
r
Pó
lla
nd
Po
rt
úg
al
U
ng
ve
rja
la
nd
Té
kk
la
nd
Þý
sk
al
an
d
E
S
B
m
e
ð
a
lt
a
l
Le
tt
la
nd
Sl
óv
en
ía
B
el
gí
a
M
al
ta
Sl
óv
ak
ía
Kr
óa
tía
Sv
is
s*
Fr
ak
kl
an
d
G
rik
kl
an
d
H
ol
la
nd
Sp
án
n
Íta
lía
Steinefni
Lífefni
Orkuefni
Málmar
Efnisneysla á Íslandi mikil