Morgunblaðið - 15.07.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.07.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021 Þegar nóttin sýnir klærnar eftir Ólaf Unnsteinsson Nýr, íslenskur tryllir sem fær hárin til að rísa. Sagan gerist að mestu leyti í Mosfellsbænum – nánar tiltekið í Kvosinni – sem nú er vettvangur dularfullra atburða og hryllilegra morða. Skelfingin eftirYrsa Daley-Ward Hispurslaus og óvægin – en jafnframt ljóðræn og einstaklega vel skrifuð – reynslusaga sem veitir lesand- anum innsýn í heim eiturlyfja, vændis og mannlegs breyskleika. Nýjar bækur frá Fást í verslunum Pennans-Eymundssonar og Forlagsins, penninn.is og forlagid.is Riga miðaldaborg frá 12. öld. Gamli tíminn og nýi mætast í borg sem ekki á sinn líka. Miðstöð menningar og lista við Eystrsaltið. Vissir þú að Riga er ein mesta Jólaborg Evrópu ? Fyrsta jólatréð í heiminum sem var skreytt, var í Riga fyrir rúmum 500 árum eða árið 1510. Aðventutíminn er svo sannarlega rétti tíminn til að heimsækja Riga þar sem stór hluti borgar- innar hefur verið skreyttur og skapar einstakt andrúmsloft sem fangar alla sem þangað koma á þessum tíma ársins. Jólamarkaðir eru í gamla sögulega hluta borgar- innar en sá hluti er á minjaskrá UNESCO. Síðast en ekki síst má nefna allar verslunar- miðstöðvarnar og aðrar verslanirnar sem kaup- þyrstir íslendingar ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Þar má finna gæðavörur, merkjavörur, allt það sem fólk er vant frá Íslandi og meira til. Gerðu góð kaup fyrir jólin Síðumúli 29, 108 Reykjavík | Sími 588 8900 info@transatlantic.is | www.transatlantic.is . Aðventuferð tilRiga Innifalið: Flug ásamt öllum sköttum og gjöldum, hótel með morgunmat, akstur til og frá flugvelli, innlendur farastjóri. 95.600 á mann í 2ja manna herbergi 26. til 29. nóvember og 3. til 6. desember 2021 Jólahátíðin í Riga Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is „Þetta er að ákveðnu leyti endur- speglun á hvernig kerfið er vanmátt- ugt að takast á við mál af þessu tagi og koma til móts við þolendur,“ segir Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræð- ingur og prófessor við Háskóla Ís- lands, varðandi umræðuna í sam- félaginu um metoo-byltinguna og ásakanir um kynferðisofbeldi á samfélagsmiðl- um. Ingólfur Þór- arinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, og lög- maður hans Vil- hjálmur Hans Vilhjálmsson hafa kært til lögreglu 32 nafnlausar sögur sem Tiktok-hóp- urinn Öfgar birti. Í sögunum er Ing- ólfur sakaður um kynferðisofbeldi og áreitni. Hann krefst þess að þeim sem standi á bak við þessar sögur verði refsað fyrir ærumeiðingar. Þá hafa fimm einstaklingar fengið kröfubréf þar sem farið er fram á miskabætur og afsökunarbeiðni vegna ummæla sem látin voru falla á netinu eða í fréttum sem birtust í fjölmiðlum. „Það er ekki nokkur leið fyrir okk- ur að segja til um hvað sé í sjálfu sér þarna á ferðinni. Þetta er eitthvað sem gerist á milli tveggja einstak- linga fyrst og fremst. Öllu grautað saman í umræðunni, sumt alvarleg brot, en annað mögulega frekar ámælisvert eða siðferðislega rangt og er óþægileg lífsreynsla sem fólk er ekki endilega að kæra,“ segir Helgi og nefnir í því samhengi alla umræðuna um hvernig réttarkerfið sé í stakk búið til að takast á við slík mál. „Staðan er nú þannig að margir vilja frekar bíta á jaxlinn og láta þetta yfir sig ganga en að stíga fram í réttarkerfinu. Þessir þolendur hafa því fundið annan farveg sem er hluti af þessari samskiptabylgju, metoo, þar sem þeir geta tjáð sína reynslu sem þeir töldu sig ekki geta gert áð- ur, en þá var kannski enginn vett- vangur til þess,“ segir Helgi og bætir við að þolendur upplifi réttarkerfið vanmáttugt til að taka á reynslu þeirra. „Að sumu leyti er því kominn nýr farvegur til þess að stíga fram í kjölfar metoo. Við viljum aftur á móti ekki sjá málum háttað á þessum grundvelli sem blasir við okkur núna, þetta er ekki réttarríkið sem við sjáum fyrir okkur í siðuðu sam- félagi. Að hópur einstaklinga taki sig saman gegn einum nafngreindum einstaklingi með aðstoð samfélags- miðla þar sem aðeins önnur hliðin kemur fram og ekki er unnt að svara fyrir ásakanirnar. Við viljum að þeg- ar mál af þessu tagi koma upp séu þau uppi á yfirborðinu og jafnræðis gætt. Maður skilur þolendur samt mjög vel því þeir virðast ekki sjá annan farveg til að lýsa reynslu sinni. Þetta segir okkur til um það hvernig ferli mála af þessu tagi er háttað í samfélaginu,“ segir Helgi, það vanti viðunandi farveg fyrir þol- endur til þess að leita réttar síns. Lýsir ákveðnu varnarleysi „Það er eitthvað að í meðferð mála af þessu tagi og því þurfum við að líta í eigin barm hvað það snertir. Þessi staða núna lýsir ákveðnu varnar- og máttleysi. Margir sitja inni með ein- hverja óþægilega reynslu sem þeir hafa ekki getað fundið farveg til þess að koma á framfæri fyrr en núna,“ segir Helgi og telur mikilvægt að koma til móts við þolendur af ýmsu tagi vegna samskipta kynjanna og annars slíks. „Þarna er einhver reynsla sem æpir á mann að ekki sé hægt að vinna úr í gegnum réttar- kerfið, einkum vægari kynferðis- brot. Réttarríkið er byggt á ákveðnum meginreglum, sem kemur svo í ljós að er mjög þröngt nálar- auga fyrir reynslu einstaklinga af þessu tagi þar sem til að mynda tveir aðilar eigast við með ólíka upplifun. Því veltir maður fyrir sér hvort það vanti ekki eitthvert millistig, ákveðna sáttamiðlun eða borgara- legt úrræði, sem hægt er að leita til án þess að fara beinlínis inn í þetta hefðbundna réttarkerfi til þess að leita sátta,“ segir Helgi og nefnir að einnig vanti úrræði til stuðnings ger- endum sem í flestum tilfellum eru karlmenn í sambandi við samskipti og annað slíkt. Helgi segir að lokum að það sé mikilvægt að gæta jafn- ræðis allra sem koma að málinu. „Að sjálfsögðu á fólk að stíga fram með slæma reynslu sem það hefur en það hlýtur að vera betri farvegur en að taka þann sem er ásakaður af lífi á samfélagsmiðlum án þess að viðkom- andi fái rönd við reist. Svo er mik- ilvægt fyrir okkur að líta í eigin barm, hefur ekki eitthvað brugðist hjá okkur í samfélaginu gagnvart málum af þessu tagi. Þetta hlýtur að segja okkur að við þurfum að gera enn betur, ekki bara varðandi máls- meðferðina sjálfa, heldur ekki síður varðandi samskipti kynjanna og eitr- aða karlmennsku sem enn virðist því miður gæta í of ríkum mæli.“ „Endurspeglar vanmáttugt kerfi“ - Vantar ákveðið millistig fyrir þolendur kynferðisbrota Morgunblaðið/Ernir Metoo Ásakanir á netinu um kyn- ferðisbrot eru nú áberandi. Helgi Gunnlaugsson Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Bæjarhátíðin Bryggjudagar á Þórs- höfn er haldin um helgina og hefst í dag. Þorpið færist í hátíðarbúning, skrautlegir fánar prýða ljósastaura og bæjarbúar skreyta hús og garða. Fádæma veðurblíða hefur verið um skeið og allt stefnir í sömu átt um helgina. Dagskráin er fjölbreytt og hefur Bryggjudaganefnd kapp- kostað að hafa eitthvað við allra hæfi. Í dag verður fyrirtækið EVA- home með opnunarkynningu á starf- semi sinni en í kvöld verður messa í Sauðaneskirkju á Langanesi og tón- leikar í kirkjunni að messu lokinni, þar sem þau Jonni, Jitka og Kristín flytja ljúfa tónlist. Dorgveiðikeppni verður á bryggj- unni á laugardagsmorgni og mikið líf verður við íþróttahúsið: hoppukast- ali, froðufjör og brunaslöngubolti, að ógleymdu hinu vinsæla kassabíla- ralli. Gönguferð á Flautafell heillar eflaust göngugarpa en Ferðafélagið Norðurslóð stendur fyrir henni á laugardag og þann dag verður einn- ig opnuð sýning í Sauðaneshúsi á Langanesi, „Að sækja björg í björg“. Hápunktur laugardagsins er stór- dansleikur í Þórsveri fram eftir nóttu. Mikill áhugi er á Langanesþraut- inni sem hefst á föstudaginn. Það er áheitaþraut Ungmennafélags Lang- nesinga og í þrautinni felst að hjóla eða skokka frá Fontinum, ysta tanga Langaness, til Þórshafnar, alls 50 km. Öflugt fólk hefur safnað í nokk- ur lið sem byrjuð eru að safna áheit- um en söfnunin er til uppbyggingar á íþróttasvæðinu á Þórshöfn þar sem hafnar eru framkvæmdir við tartan-hlaupabraut. Aldurstakmark er ekkert. Ungmennafélagið stendur fyrir öflugu og metnaðarfullu íþrótta- starfi í byggðarlaginu og státar fé- lagið m.a. af Íslandsmeisturum í yngsta aldursflokki bæði í 60 og 600 metra hlaupi og einnig í langstökki. UMFL og Langanesbyggð standa saman að uppbyggingu íþróttasvæð- isins og margir velunnarar styðja íþróttastarfið. Áheitaliðin fjölmenna væntanlega í íþróttahúsið eftir þrautina en þar er í boði ramm- íslensk kjötsúpa á vegum eldri borg- ara. Fólk er þegar farið að streyma í bæinn en fjölmenni hefur verið á tjaldstæðinu undanfarið í veðurblíð- unni. Leikhópurinn Lotta verður með sýningu í skrúðgarðinum á sunnu- daginn og alla helgina er opið í Fræðasetri um forystufé en þar stendur yfir ljósmyndasýning. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Bæjarhátíð Bæjarbúar hafa æft stíft fyrir Langanesþrautina á morgun. Bryggjudagar að hefjast á Þórshöfn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.