Morgunblaðið - 15.07.2021, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Það er heilmikið að gera, töluverðar
skemmdir urðu á vegamannvirkjum
hér í kring vegna vatnavaxtanna um
daginn og við erum á fullu við að
koma vegum í samt lag. Það mun
taka einhvern tíma,“ segir Heimir
Gunnarsson, tæknifræðingur hjá
Vegagerðinni á Akureyri, við frétta-
ritara Morgunblaðsins.
Við Þverá á Eyjafjarðarbraut
eystri grófst efni frá steyptum stokki
í kjölfar mikils flóðs ofan úr Garðs-
árdal. „Það skolaði undan stokknum,
áin fór að draga með sér efni úr fyll-
ingunni þar til hún hrundi,“ segir
Heimir.
Eldri brú notuð
fyrir léttari umferð
Framkvæmdir hafa staðið yfir af
krafti, en verið er að grafa frá
stokknum og síðan þarf að fylla að
honum á ný. Ekki er að sögn Heimis
þörf á að setja nýjan stokk á þessum
stað.
Meðan á viðgerð stendur er um-
ferð beint um hjáleið yfir eldri brú
örlítið ofar og svo verður næstu vik-
ur. Hún tekur þó aðeins léttari um-
ferð og til að mynda þurfa mjólk-
urbílar að taka á sig lengri krók.
Skemmdir urðu á vegum víðar,
m.a. fór vegur um Fnjóskadal í sund-
ur og var um skeið lokaður á tveimur
stöðum.
Verður dágóð upphæð
Heimir segir að enn hafi ekki gef-
ist tími til að reikna út hversu mikið
tjón varð á vegamannvirkjum í kjöl-
far flóðanna, það verði gert þegar
um hægist.
„Við erum enn ekki komin með
verðmiða, en eflaust verður þetta á
endanum dágóð upphæð,“ segir
hann.
Vegamannvirki skemmd-
ust í kjölfar leysinganna
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Eyjafjörður Mikið flóð ofan úr Garðsárdal skolaði efni úr fyllingu við stokk
yfir Þverá við Eyjafjarðarbraut eystri. Viðgerð mun taka nokkrar vikur.
- Gripið til við-
gerða við Þverá á
Eyjafjarðarbraut
Mörkin 6 - 108 Rvk.
s:781-5100
Opið: 11-18 virka daga
Lokað á laugardögum í sumar.
www.spennandi-fashion.is
ÚTSALA - ÚTSALA - ÚTSALA
40% AFSLÁTTUR AF FATNAÐI OG SKÓM!
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
40%-
60%
ENN MEIRI
AFSLÁTTUR
SUMAR-
ÚTSALAN
HAFIN
40-50%
afsláttur
Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á facebook
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Mikið úrval af fallegum vestum
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Atvinna
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU
AÐ LÁTA
GERA VIÐ?