Morgunblaðið - 15.07.2021, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
T
íminn vinnur með þeirri
þróun að ferðamenn greiði
fyrir aðgang að vinsælum
ferðamannastöðum,“ segir
Jóhanna Hjartardóttir á Helgafelli í
Helgafellssveit við Stykkishólm.
Fjögur ár eru síðan byrjað var að
innheimta gjald af þeim sem fara á
fellið þar við bæinn.
Sú sögn fylgir að þau sem
ganga upp í fyrsta sinn fái þrjár ósk-
ir sínar uppfylltar. Hefja skal göng-
una við leiði Guðrúnar Ósvíf-
ursdóttur í kirkjugarði
Helgafellskirkju, þaðan skal ganga
upp án þess að líta nokkru sinni til
baka, mæla aldrei orð á leiðinni og
fara loks með bænir sínar – á óska-
stund – í rústum kapellu sem er efst
á fellinu, sem er 73ja metra hátt.
Helgafell er sá staður á landinu sem
sterkastur átrúnaður fylgir að þessu
leyti. Fleiri eru til, enda er landið
fullt af helgisögum og ævintýrum af
ýmsum toga.
„Já, þessi átrúnaður hefur lengi
verið við lýði. Auðvitað er allur
gangur á því hvort óskir fólks ræt-
ast. Sumir segja svo vera og hafa
greint mér frá því og eru ánægðir
með að svo hafi orðið,“ segir Jó-
hanna.
Viðhorfin eru jákvæðari
Á degi hverjum yfir sumarið
kemur alltaf fjöldi fólks að Helgafelli
og fer í fjallgöngu. Því fylgir eðlilega
álag á umhverfi staðarins; gras hef-
ur troðist niður, þurft hefur að setja
upp gangstíga, tröppur og alllangt
er síðan salernisaðstöðu var komið
upp nærri bílastæðunum við fjallið.
Af þessu hafa landeigendur á
Helgafelli, Jóhanna og Hjörtur Hin-
riksson, faðir hennar, haft nokkurn
kostnað án þess að fá stuðning úr
opinberum sjóðum á móti. „Við urð-
um að hefja innheimtu lágmarks-
gjalds af ferðamönnum sem hingað
koma. Þetta eru 400 kr. á mann, sem
er mjög hóflegt,“ segir Jóhanna.
„Fyrst þegar við byrjuðum að rukka
voru viðbrögð Íslendinga sterk og
neikvæð. Fólk fannst fráleitt að
greiða fyrir afnot af náttúru og
landi, þótt í einkaeigu væri. Nú eru
viðhorfin önnur og jákvæðari.
Bandaríkjamönnum t.d. finnst þetta
ekkert mál, enda er rík hefð fyrir
umhverfisgjöldum og ferðamanna-
tollum þar vestra, til dæmis í þjóð-
görðum þar.“
Óskastundin er ekki ókeypis
Töfrar! Ferðmenn greiða
400 kr. þegar gengið er á
Helgafell hjá Stykkis-
hólmi. Draumarnir
verða oft að veruleika.
Flestir greiða sáttir, ekki
síst Bandaríkjamenn.
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Áfangastaður Hið helga fjall sem svo margir ganga á. Minjagripasala er í litla húsinu sem stendur í brekkurótunum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Helgfellingar Hjörtur Hinriksson
bóndi og Jóhanna dóttir hans.
Söguganga verð-
ur í Heiðmörk í
kvöld, fimmtu-
daginn 15. júlí, og
verður lagt upp kl.
18 frá svonefndu
Borgarstjóraplani
sem er norðarlega
á svæðinu. Kári
Gylfason verður
sögumaður í ferð-
inni og greinir frá upphafi og þróun
skógræktarstarfs í Heiðmörk sem
hófst árið 1950. Ferðafélag Íslands
og Skógræktarfélag Reykjavíkur
gangast fyrir fjórum skógargöngum í
sumar – þremur í Heiðmörk og þeirri
fjórðu við Rauðavatn. Skógargöng-
urnar eru í léttara lagi, tveggja til
þriggja klukkutíma langar.
Fróðleikur í Heiðmörk
Söguganga
Horft yfir Hjalla-
dal í Heiðmörk.
Sumaropnun í
Hlíðarfjalli ofan
Akureyrar tekur
gildi í dag og
verður opið fjóra
daga í viku til 5.
september. Til-
valið er, segir í til-
kynningu, fyrir
fólk að taka sér
far upp að Strýtu-
skála með stóla-
lyftunni Fjarkanum en þaðan er
gönguleið upp á brún Hlíðarfjalls.
Hægt er að taka reiðhjól með sér í
stólalyftuna en margar skemmtilegar
leiðir eru á svæðinu. Fjarkinn er í
gangi á fimmtu- og föstudögum kl.
17-21, á laugardögum kl. 10-18 og
sunnudaga 10-16.
Hlíðarfjall við Akureyri
Fjall og Fjarki
Leikur og líf
í lausu lofti.