Morgunblaðið - 15.07.2021, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 15.07.2021, Qupperneq 22
22 FRÉTTIR Tækni MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021 Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is LÉTTU ÞÉR LÍFIÐ Fagfólk STOÐAR veitir nánari upplýsingar og ráðgjöf. Fjölbreytt úrval göngugrinda sem auka öryggi og tækifæri til hreyfingar og útivistar Verð frá 39.800,- FRÉTTASKÝRING Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Það var rafmagnað andrúmsloftið í Shanghai annan dag nóvembermán- aðar 2015. Fjölda fólks dreif að flug- skýli í útjaðri borgarinnar og eft- irvæntingin skein úr augum fólks. Tilefnið var enda ekki smátt í snið- um. Þar fékk umheimurinn í fyrsta sinn að líta augum farþegaþotuna C919 sem þá hafði verið í smiðum í tæpan áratug. Enn hefur vélin ekki verið tekin í þjónustu flugfélaga en sú stund nálgast óðfluga. Talið er víst að kín- versk stjórnvöld muni veita vélinni flughæfnisskírteini áður en langt um líður. Og nú er gert ráð fyrir að China Eastern Airlines muni veita fyrstu vélinni viðtöku fyrir lok árs. Það markar tímamót þar sem tveir risar hafa síðustu einokað markað- inn með stærri farþegaþotur hinn bandaríski Boeing og evrópski Air- bus. Greiningaraðilir eru á einu máli um að C919 muni ekki ógna stöðu fyrrnefndra risa á allra næstu árum en að vélin undirstriki þá staðreynd að Kínverjar ætla ekki að láta Vest- urlöndum markaðinn eftir til langr- ar framtíðar. Ef það er eitthvað sem kínverski drekinn býr yfir, þá er það þolinmæði og áætlanir til langrar framtíðar. COMAC frá 2008 Það var árið 2008 sem yfirvöld í Kína stofnuðu flugvélaframleiðand- ann Commercial Aircraft Corpor- ation of China. Tók félagið við fyrri verkefnum stjórnvalda á sviði flugvélaþróunar og undir lok stofn- ársins þandi farþegavél af gerðinni ARJ21 hreyfla sína í fyrsta sinn í jómfrúarflugi sínu. Er þar um að ræða smáþotu sem tekur 78-90 manns í sæti og hafa um 70 slíkar vélar verið afhentar 23 viðskiptavin- um á síðustu árum. Samkvæmt upp- lýsingum frá COMAC hafa 616 pantanir borist í vélar af þessu tagi. ARJ21-vélin etur kappi við fleiri framleiðendur en C919 er ætlað að gera enda nokkrir framleiðendur að vélum í stærðarflokkinum sem tekur um eða undir 100 farþega. Þegar fram líða stundir gæti C919 tekið slaginn við vélar á borð við A320 úr smiðju Airbus og MAX-vélarnar frá Boeing. Líta menn þar ekki síst til innanlandseftirspurnar í Kína. Taki stjórnvöld þar í landi ákvörðun um að láta kínversk flugfélög velja C919 vélina fram yfir þær sem keppinaut- arnir framleiða gæti það bæði skotið traustum stoðum undir framleiðslu COMAC en einnig valdið miklum búsifjum fyrir Airbus og Boeing. Síðarnefnda fyrirtækið hefur gefið það út að kínverski markaðurinn muni þurfa 9.360 farþegavélar á næstu tveimur áratugum en það er fimmtungur væntrar eftirspurnar í heiminum öllum. Jafnvel þótt ekkert fyrirtæki utan Kína myndi veðja á C919 — vélin er alls ekki eins hag- kvæm í rekstri og A320 og MAX — þá er kínverski markaðurinn það stór að hann skiptir máli í öllu sam- hengi. Þúsundir milljarða til verksins Það hefur ekki reynst ódýrt æv- intýri að höggva í þotumarkaðinn með þeim hætti sem Kínverjar hafa gert. Þannig sagði Scott Kennedy, sérfræðingur hjá Center for Strate- gic and International Studies í Washington í samtali við fréttastofu AFP í lok júní að kínversk stjórn- völd hefðu nú þegar lagt einhvers- staðar á bilinu 49-72 milljarða doll- ara í þróun C919, jafnvirði 6.000 til 9.000 milljarða króna. Er það mun meiri fjárhæð en sem nemur rík- isstyrkjum til handa Airbus og Bo- eing yfir sama tímabil. Enn sem komið er býr kínverska hagkerfið ekki yfir nægilegri þekk- ingu til þess að smíða frá grunni vél á borð við C919. Þannig sækir CO- MAC marga af mikilvægustu íhlut- unum í vélina til framleiðenda utan Kína. Bendir fyrrnefndur Kennedy á að 82 birgjar þjónusti framleiðandann við smíðina en af þeim séu aðeins 14 kínverskir. Vængir og skrokkur eru smíðaðir í Kína en lendingarbúnað- ur, hugbúnaður ásamt hreyflum koma frá framleiðendum á borð við CFM, Honeywell, General Electric og Rockwell Collins. Jafnt og þétt mun þekkingin þó aukast innan- lands og á komandi áratugum er gert ráð fyrir að fleiri fyrirtæki muni spretta upp innan Kína sem geti þjónustað COMAC með flókn- ari þætti framleiðslunnar. Næstu skref Sérfræðingar og samkeppnisaðil- ar fylgjast náið með þróun mála á vettvangi kínverska flugdrekans og hefur Guillaume Faury, forstjóri Airbus m.a. viðurkennt að fyrirtæki hans og Boeing geti ekki litið fram hjá koma COMAC á markaðinn. Kínverjar eiga þó enn eftir að sigrast á mörgum hindrunum áður en C919 tekur að renna út af færi- bandi framleiðandans í Shanghai. Það tekur langan tíma að koma framleiðslugetu á jafn flóknum bún- aði og þessum í gagnið. Þá benti Rob Morris, sérfræðingur hjá ráð- gjafarfyrirtækinu Ascend by Ciri- um, á það í viðtali við Financial Timaes að rekstur og viðhald flug- véla væri ekki síður áskorun en framleiðslan. „Velgengni á sviði farþegaflug- vélaframleiðslu snýst ekki aðeins um getuna til að hanna, framleiða og afhenda flugvélar heldur einnig get- una til að styðja öllum stundum árs- ins við rekstur vélanna út og í gegn- um allan líftíma þeirra.“ Drekinn mikli hefur sig til flugs - Kínverjar gera strandhögg á flugvélamarkaðnum - Meira en 1.000 pantanir liggja fyrir í nýja farþega- þotu sem tekur allt að 168 farþega - Sækir búnað og tækni til rótgróinna framleiðenda á Vesturlöndum COMAC C919 Jómfrúarflug vélarinnar náðist á mynd í maí 2017 og síðan hefur vélin verið í stöðugum prófunum. Senn verður fyrsta vélin afhent kaupanda og þá mun fyrst koma í ljós hvort COMAC búi yfir þeim styrk sem talinn er þurfa til þess að framleiða og þjónusta jafn flókinn tæknibúnað og þotur eru. COMAC C919 » Tekur 158-168 farþega í sæti » Vélin er 38,9 metrar að lengd » Vænghafið er 35,8 metrar » Knúin áfram með tveimur CFM LEAP-1C hreyflum » Jómfrúarflugið var í maí 2017 » Gert er ráð fyrir fyrstu af- hendingu fyrir lok árs » COMAC hefur fengið yfir 1.000 pantanir í vélina Þótt COMAC leggi nú höfuðáherslu á að koma C919-vélinni á markað horfir fyrirtækið lengra inn í fram- tíðina. Þannig hefur um langt skeið verið á teikniborðinu breiðþota sem fengið hefur viðurnefnið C929 og mun vélin að líkindum verða fram- leidd í samstarfi milli COMAC og United Aircraft Corporation sem er í meirihlutaeigu rússneska ríkisins. Samkvæmt upplýsingum frá Kín- verjum mun vélin taka 280 farþega í sæti og drægni hennar verða um 12.000 km. Með því gæti skapast samkeppni við breiðþotufram- leiðslu Airbus og Boeing sem eng- inn flugvélaframleiðandi hefur snert á síðastliðna áratugi. Þótt verkefnið sé komið á rek- spöl, og hafi verið á teikniborði fyr- irtækjanna frá árinu 2012, er ekki gert ráð fyrir að vélin muni líta dagsins ljós fyrr en árið 2025 og að hún verði ekki opinberlega kynnt fyrr en undir lok áratugarins. Líkt og í tilfelli C919 búa ríkin tvö ekki yfir tækni til þess að fullbúa vél af þessu tagi og því hefur verið rætt um að hreyflar vélarinnar muni annaðhvort koma úr smiðju Rolls- Royce eða General Electric. Fyrirætlanir COMAC og UAC gefa hins vegar til kynna að náð- arár Boeing og Airbus séu senn að baki. Fyrirtækin tvö hafa lengi elt grátt silfur saman en „vopnahlé“ sem þau gerðu sín í milli fyrr á árinu er kannski helsta merkið um að nú sé risin ný ógn. Enn á ný birt- ist hún í austri. Tölvuteikning/COMAC Flogið Comac 929 verður engin smásmíði ef hún kemst af teikniborðinu. Breiðþota á teikniborði Kínverja og Rússa
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.