Morgunblaðið - 15.07.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.07.2021, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIR Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021 Yfirvöld í Ástralíu hafa framlengt útgöngubann í stórborginni Sydney í að minnsta kosti tvær vikur en bann- inu átti að ljúka á morgun. Nú þegar hefur útgöngubann ver- ið í borginni í þrjár vikur en Delta- afbrigði Covid-19 hefur herjað á borgina. Síðustu daga hafa greinst tæplega 100 ný smit daglega en Ástralir hafa hlotið mikið lof fyrir gott gengi í meðhöndlun á faraldr- inum. Stefna yfirvalda í Nýja Suður- Wales, þar sem Sidney er að finna, er á þá leið að takmörkunum verði ekki aflétt fyrr en fjöldi nýrra smita er kominn nær núlli. Er því ljóst að núverandi takmarkanir munu gilda til að minnsta kosti 30. júlí. Fólki er heimilað að fara að heiman til að stunda líkamsrækt, kaupa nauð- synjavörur, vinna og fara til læknis en skólar eru lokaðir og íbúar eru hvattir til þess að halda sig heima. 10% fengið bólusetningu „Ég skil vel að fólk hafi áhyggjur og sé kvíðið, þar á meðal ég sjálf. Ekkert af okkur vill vera í þessum aðstæðum en það er okkar hlutverk að halda samfélaginu öruggu,“ segir Gladys Berjiklian, forsætisráðherra Nýja Suður-Wales. Hún segist einn- ig skilja vel gagnrýni á útgöngu- bannið en að ákvörðunin sé tekin á grundvelli ráðgjafar sérfræðinga í heilbrigðismálum. Einungis um 10% af Áströlum hafa fengið bólusetningu gegn veir- unni. Síðan heimsfaraldurinn hófst hafa meira en 31 þúsund tilfelli greinst í Ástralíu og um 900 ein- staklingar látist. urdur@mbl.is AFP Veira Útgöngubann heldur áfram í Sidney næstu tvær vikurnar. Enn útgöngu- bann í Sidney - Aflétta þegar engin smit greinast 119 einstaklingar eru nú í ein- angrun með Covid-19-smit í Fær- eyjum. Veiran hefur leikið lausum hala á eyjunum undanfarna daga en sjö greindust smitaðir í fyrra- dag. Ákveðið var í gær að aflýsa sum- artónlistarhátíð sem halda átti í byrjun ágúst. Von er á Margréti Danadrottn- ingu í heimsókn til Færeyja í dag ef veður leyfir en ekki hefur viðrað til flugferða í vikunni. FÆREYJAR Veiran leikur lausum hala í Færeyjum Smit 112 eru nú í einangrun. Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Að minnsta kosti 72 eru látnir eftir óeirðir í Suður-Afríku. Óeirðirnar hafa staðið yfir frá því í síðustu viku eftir að Jacob Zuma, fyrrverandi for- seti landsins, var fangeslaður. Yfir 1.300 manns hafa verið handteknir. Zuma, sem er 79 ára, var dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar fyrir að sýna dómstólum lítilsvirð- ingu en hann sætir ákæru fyrir spill- ingarmál í forsetatíð sinni, frá 2009 til 2014. Zuma gaf sig fram við lögreglu í síðustu viku en stuðningsmenn hans segja dóminn vera nornaveiðir og hvöttu til mótmæla sem hafa stig- magnast með miklu ofbeldi og því breyst í óeirðir. Óeirðirnar hófust í heimahéraði Zuma, KwaZulu-Natal, en hafa breiðst út víða, meðal annars til Jó- hannesarborgar. Þar létust tíu manns eftir troðning í verslunarmið- stöð í úthverfinu Soweto. Ræna og rupla Mótmælendur hafa látið óánægju sína í ljós með ýmsum hætti, eldar hafa verið kveiktir, þjóðvegum lokað en þjófnaður og skemmdarverk hafa verið mest áberandi. Yfirvöld kölluðu eftir aðstoð hersins til að halda mót- mælendum í skefjum en þau óttast nú skort á matvælum og eldsneyti, þá sérstaklega til fátækari svæða. Þau biðla til almennings að taka ekki lögin í eigin hendur. „Vandamálið hefst þegar fólk fer sjálft og skýtur aðra. Það er sama réttlæti og mafían notast við. Örygg- ið hverfur þegar fólk tekur lögin í eig- in hendur,“ segir Bheki Cele, lög- regluráðherra Suður-Afríku. Konungur Zulu-ættbálksins, Misu- zulu Zulu, segir óeirðirnar færa þjóð- inni mikla skömm. Raskar dreifingu bólefna Cyril Ramaphosa, forseti landsins, hefur lýst ofbeldinu sem því versta sem íbúar Suður-Afríku hafa upplifað síðan aðskilnaðarstefnu stjórnvalda á milli hvítra og svartra lauk árið 1990. Óeirðirnar standa yfir á sama tíma og bylgja kórónuveirufaraldursins geisar. Á hverjum degi látast um 600 manns í Suður-Afríku af veirunni og hafa óeirðirnar raskað dreifingu á bóluefni. Alls hafa um 2 milljónir smitast af veirunni og 65 þúsund lát- ist af völdum hennar. 72 látnir í óeirðum í Suður-Afríku - Mótmæla fangelsun fyrrverandi forsetans - Yfir 1.300 handteknir - Kveikja elda, loka þjóðvegum, stela og fremja skemmdarverk - Mesta ofbeldi í landinu síðan aðskilnaðarstefnan var afnumin AFP Ringulreið Yfirvöld kölluðu eftir aðstoð hersins til að ráða við óeirðirnar. Í gær voru fimm ár liðin frá því að 19 tonna vörubíl var ekið inn í mik- inn mannfjölda sem var saman kominn til að fagna bastilludeg- inum, þjóðhátíðardegi Frakka, við strandgötu í borginni Nice í Frakk- landi. Alls létu 86 lífið, þar af tíu börn, og hátt í 500 slösuðust, margir lífs- hættulega. Atvikið, sem virtist við fyrstu sýn hafa verið slys, reyndist skipulögð árás á mannfjöldann af íslamska ríkinu. Að sögn sjónar- votta sveigði bílstjórinn, Mohamed Lahouaiej-Bouhlel, til og frá á göt- unni til að hæfa sem flesta sem á vegi hans urðu. Þegar út úr bílnum var komið hóf maðurinn skotárás á fólksfjöldann þar til hann var sjálf- ur skotinn til bana á vettvangi af lögreglu. Minnast fórnarlamba hryðjuverkaárásarinnar Fimm ár lið- in frá árás- inni í Nice AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.