Morgunblaðið - 15.07.2021, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 15.07.2021, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Í Suður-Afríku ríkir glundroði. Í gær höfðu óeirðir staðið í sex daga samfleytt. 72 höfðu látið lífið svo vitað væri og rúm- lega 1.200 manns verið varpað í fang- elsi. Fólk hefur farið um verslunarkjarna með ránum og gripdeildum, samgöngur eru í molum og ástandið er farið að hafa áhrif í iðnaði og landbúnaði. Óttast er að skortur geti orðið á mat og eldsneyti. Í þokkabót geisar kórónuveiru- faraldurinn sem aldrei fyrr í Suð- ur-Afríku og í gær létust þar 633 af völdum veirunnar. Þá er óttast að ástandið gæti riðið á slig bólu- setningarherferð sem var að kom- ast á skrið. Óeirðirnar blossuðu upp eftir að Jacob Zuma, fyrrverandi for- seti landsins, gaf sig fram til að afplána 15 mánaða dóm fyrir að neita að svara spurningum rann- sóknarnefndar um spillingu í for- setatíð hans. Zuma gaf sig fram sjálfviljugur skömmu áður en frestur til þess rann út. Var mörg- um létt að hann skyldi ekki láta sækja sig með valdi og vonuðu að þá myndi ekki skerast í odda, en það var öðru nær. Þótt fangelsun Zuma hafi verið kveikjan að róstunum snúast óeirðirnar ekki um hann. Alda glæpa og ofbeldis fer nú um land- ið og þeir sem minnst mega sín munu fara verst út úr óöldinni. Um þessar mundir á sér stað uppgjör í Afríska þjóðarráðinu, sem ráðið hefur lögum og lofum í stjórnmálum í Suður-Afríku frá því að aðskilnaðarstefnan leið undir lok. Flokkurinn leiddi á sín- um tíma baráttuna gegn hvíta minnihlutanum í landinu. Hann var bannaður og leiðtogar hans hröktust ýmist í útlegð eða var varpað í fangelsi. Aðskilnaðarstefnan leið undir lok í byrjun tíunda áratugarins eftir að hafa verið formlega við lýði frá 1948. Árið 1994 varð Nel- son Mandela, sem setið hafði 27 ár í fangelsi fyrir baráttu sína gegn aðskilnaðarstefnunni, fyrsti svarti forseti landsins eftir sigur Afríska þjóðarráðsins í fyrstu kosningunum sem opnar voru öll- um íbúum landsins óháð litarafti. Mandela var mikilhæfur stjórnmálamaður og var það ekki síst fyrir skörungsskap hans og stjórnvisku að það tókst að af- nema ómannúðlega stjórnarhætti hvíta minnihlutans með áherslu á fyrirgefningu og sátt og koma þannig í veg fyrir að allt færi í bál og brand. Hann ávann sér virð- ingu um allan heim meðan hann sat í fangelsi og ekki minnkaði vegur hans eftir að hann varð for- seti. Þegar hvíti minnihlutinn fór frá voru öllum tryggð jöfn pólitísk réttindi, en eftir stóð hið efna- hagslega misrétti. Auður landsins var áfram í höndum hvíta minni- hlutans. Þremur áratugum síðar er staðan sú að óvíða er munurinn milli ríkra og fá- tækra jafn mikill að mati Alþjóðabank- ans og þrír af hverj- um fimm búa við fá- tækt. Ofbeldi er viðvarandi og tíðni morða með því hæsta sem gerist eða 35,8 á hverja 100 þúsund íbúa. Kórónuveiran hefur haft skelfileg áhrif. Öllu var skellt í lás til að stöðva útbreiðslu veir- unnar. Talið er að í fyrra hafi efnahagur landsins dregist saman um 7% og fór atvinnuleysi í 32,6% á fyrsta fjórðungi þessa árs. Afríska þjóðarráðið hefur verið einrátt í Suður-Afríku frá því að aðskilnaðarstefnan leið undir lok. Flokkurinn lifir vitaskuld á að hafa leitt baráttuna gegn hvíta minnihlutanum, en einokun á póli- tísku valdi hefur ekki verið hon- um holl. Spilling hefur sett mark sitt á flokkinn og um hana snýst yfirstandandi uppgjör. Jacob Zuma er einn af foringj- unum úr baráttu Afríska þjóðar- ráðsins á tímum aðskilnaðarstefn- unnar. Hann sat í fangelsi á Robben-eyju líkt og Mandela. Zuma varð forseti 2009 og sagðist ætla að berjast gegn fátækt. 2018 setti flokkurinn hann af vegna spillingar og Cyril Ramaphosa tók við af honum. Zuma og hirð hans er gefið að sök að hafa dregið sér óheyrilegt fé. Ramaphosa heldur fram að Zuma hafi kostað Suður-Afríku 500 milljarða suðurafrískra randa eða rúmar fjórar billjónir króna, sem slagar hátt í heildareignir ís- lensku lífeyrissjóðanna. Ramaphosa vill uppræta spill- ingu í flokknum og nýtur mikils stuðnings, en þarf þó að eiga við þá í flokknum, sem leggja áherslu á arfleifðina frá tímum aðskiln- aðarstefnunnar og líta svo á að verið sé að sverta flokkinn. Einn stuðningsmaður Zuma gekk svo langt að líkja ástandinu nú við yfirráðatíma hvíta minnihlutans. Á tímum aðskilnaðarstefnunnar hefði verið reynt að þagga niður í fólki og senda það í útlegð og það sama gerðist nú. Ofbeldið nú hefur ekki orðið til þess að forustumenn úr Afríska þjóðarráðinu hafi stigið fram til varnar Zuma. Það kann að vera að Afríska þjóðarráðinu takist að halda pólitískum ítökum sínum í sveitarstjórnarkosningunum í haust og almennum kosningum eftir þrjú ár. Það yrði þó ekki síst út af því að ekki hefur orðið til neitt pólitískt mótvægi við það, sem bógur er í. Það er hins vegar áfall fyrir Afríska þjóðarráðið að nú þurfi að kalla á herinn til full- tingis lögreglu við að stöðva róst- urnar í landinu og beita vopnum gegn fólkinu sem það áður barðist fyrir. Það er ekki síður áfall fyrir flokkinn að á tæpum þremur ára- tugum við völd hafi ekki tekist að gera meira til að draga úr fátækt í einu iðnvæddasta og auðugasta ríki álfunnar. Mikið veltur á því hvernig nú tekst að lægja öld- urnar. Áfall fyrir Afríska þjóðarráðið að ekki hafi tekist að gera meira til að draga úr fátækt í langri valdatíð þess} Óöld í Suður-Afríku Þ etta er ákveðinn endahnútur á að þetta verði að veruleika,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson þegar hann skrifaði undir samkomulag við Dag B. Eggertsson borgar- stjóra. Ráðherrann bætti við að ráðuneyti hans hafi unnið hörðum höndum allt kjör- tímabilið við að koma Sundabraut á dagskrá. „Sundabraut mun dreifa álagi, leysa umferð- arhnúta og verður gríðarleg samgöngubót fyrir alla þá sem ferðast til og frá höfuðborg- arsvæðinu – og fyrir alla ferðamáta. Brúin verður aðgengileg fyrir gangandi og hjólandi og verður kennileiti borgarinnar. … Sunda- brautin er efst á verkefnalistanum mínum. Við kynntum legu brautarinnar í byrjun febr- úar.“ Margir urðu spenntir að heyra að nú væri kominn „ákveðinn endahnútur“ á þetta mál sem hefur verið á dagskrá í nærri 40 ár. Samkvæmt ráðherranum liggur fyrir að brautin liggi um brú. Nánast allt klárt. Nánari skoðun bendir þó til þess að þetta sé hvorki „ákveðið“ né „endahnútur“. Orðabókin segir að enda- hnútur sé að „ljúka verkinu að fullu“. Samkvæmt ráð- herranum „gætu“ framkvæmdir hafist eftir fimm ár. Skoðum „samkomulagið“ betur. Í viðtali við mbl.is segir Sigurður Ingi: „Þessi viljayfirlýsing [ekki sam- komulag?] okkar borgarstjórans í dag staðfestir sameig- inlega sýn, að nú sé komin fram þessi leið, valkostir sem eru uppi og hvaða verkefni eru næst.“ Næstu skref samkvæmt yfirlýsingunni eru: 1. Félagshagfræðileg greining á þverun Kleppsvíkur. 2. Að henni lokinni verði hafist handa við að undirbúa breytingar á aðalskipulagi borg- arinnar, sem feli í sér endanlegt leiðarval Sundabrautar. 3. Rýni á öllum umhverfisþáttum. 4. Rýni á mótvægisaðgerðum vegna hugs- anlegra neikvæðra áhrifa af umferð fyrir nærliggjandi hverfi. 5. Skoðaðar líklegar breytingar á dreifingu umferðar. 6. Samtal við íbúa og aðra hagaðila. 7. Áframhaldandi hönnun. 8. Undirbúningur o.s.frv. Dagur borgarstjóri er skýrmæltur að venju: „Ég fagna þessari yfirlýsingu. Það er mikilvægt að leiðarval og undirbúningur Sundabrautar sé í traustum og góðum farvegi og að verkefnið sé unnið í víðtæku samráði. Þessi yfirlýsing tryggir það og undirstrikar mikilvægi samráðs við íbúa og hagsmunaaðila í næstu skrefum. Sundagöng og Sundabrú eru áfram meginvalkostirnir. Í kjölfar félagshagfræðilegrar greiningar tekur við frekari samanburður og rýni á öllum umhverfisþáttum og mót- vægisaðgerðum vegna hugsanlegra neikvæðra áhrifa af umferð fyrir nærliggjandi hverfi.“ Sagt er að munnlegt samkomulag sé ekki pappírsins virði. Viljayfirlýsingar eru enn minna virði. „Það er mikil vinna fram undan þó að grafan birtist kannski ekki fyrr en árið 2026,“ segir Sigurður Ingi. Kannski birtist hún aldrei. Benedikt Jóhannesson Pistill Sundabraut eða sýndarbraut? Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Árni Matthíasson arnim@mbl.is Í eina tíð entust heimilistæki svo að segja endalaust, ryk- sugur soguðu áratugum sam- an, ísskápar gengu í erfðir og reka mátti niður tjaldhæla með far- símum. Nú er allt með öðrum brag, ekkert endist lengur en ábyrgðin og þegar kemur að því að gera við kost- ar það álíka mikið eða meira en ný tæki. Ef hægt er að gera við þau yfirleitt. Ekki hefur orðið minni tæknibylt- ing í framleiðslu á raftækjum en í tækjunum sjálfum, plast leysir af málma og lím skrúfur og verður æ erfiðara að taka tækin í sundur til að gera við þau. Þegar við bætist að mörg eru þau með innbyggða eins- konar smátölvu til að stýra græjunni er þar komið meira sem getur bilað og er erfitt eða ógerningur að gera við. Ekki bætir svo úr skák þegar framleiðendur gera viðgerð- armönnum jafnvel erfitt fyrir. Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, undirritaði nýverið tilskipun sem sneri að réttinum til að gera við, eins og það var orðað, en í því felst að framleiðendur tækja, bílar og drátt- arvélar þar meðtalin, mega ekki hanna tækin svo að ógerningur sé að gera við þau. Aðallega snýr þessi til- skipun að dráttarvélaframleið- endum vestan hafs, enda hefur sá stærsti í þeim efnum, John Deere, komið í veg fyrir að hægt sé að gera við vélarnar nema hjá viðurkennd- um verkstæðum. Tilskipunin er þó einnig túlkuð svo að framleiðendur annarra tækja, til að mynda farsíma, þvottavéla, ísskápa og sjónvarps- tækja, þurfi að bregðast við. Þing Evrópusambandsins sam- þykkti álíka reglugerð fyrir stuttu, en hún á að gera tækjaeigendum auðveldara að gera við tæki eins og farsíma, fartölvur og spjaldtölvur. Framleiðendum er einnig bannað að stytta líftíma tækja vísvitandi og þurfa að tryggja að hægt sé að gera við tæki eins og þvottavélar, upp- þvottavélar, ísskápa, sjónvarpstæki og hárþurrkur í áratug hið minnsta, en með því er átt við að varahlutir og handbækur verði tiltæk þann tíma. Einnig hafa sum baráttu- samtök fyrir réttinum til að gera við krafist þess að beinlínis verði bann- að að líma tæki saman. Baráttan fyrir því að hægt sé að gera við raftæki er fyrst og fremst barátta um að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og minnka sóun, enda er nærri sextíu milljón tonnum af notuðum raftækjum hent á hverju ári. Takist að lengja líftíma raftækja má draga úr losuninni – ef tekst að lengja hann um eitt ár minnkar útblástur koltvísýrings um 2,1 milljón tonna á ári. Hún snýr þó líka að því að gera fólki kleift að nota tæki sem lengst, til að mynda að skipta um rafhlöðu án þess að kaupa nýjan síma, svo dæmi sé tek- ið. Nú er það svo að hægt er að skipta um rafhlöður í flestum sím- um, en snúið fyrir almenning að gera það, ólíkt því sem var forðum, sællar minningar. Núorðið eru sím- arnir límdir saman, ekki endilega til að koma í veg fyrir að hægt sé að endurnýja í þeim kram, heldur til að hægt sé að hafa þá sem léttasta, rennilegasta og þynnsta og um leið að rykverja þá og gera jafnvel vatnshelda, sem er orðið nokkuð al- gengt með farsíma í dag. Það er því líklegt að ef almenningur á sjálfur að geta gert við sitthvað í símanum verði þeir kubbslegri og þyngri. Kannski eins og gamli Nokia-síminn í skúffunni. Barist fyrir lengri líftíma raftækja pxfuel.com/Creative Commons Áfall Alla jafna skiptir fólk um farsíma á þriggja ára fresti, enda er raf- hlaðan þá orðin léleg, en ýmislegt fleira getur líka bjátað á. Alla jafna endist líþíum-rafhlaða ekki nema í tvö til þrjú ár, 300 til 500 hleðslur. Fyrir vikið má gera ráð fyrir því að obbinn af AirPods, vinsælustu heyrn- artólum heims, sem seldust á árunum 2017 til 2019, 104 milljónir setta (með hleðsluboxi), séu nú á ruslahaugum heimsins. Sama á náttúrlega við um heyrnartól annarra framleiðenda sem ekki er heldur hægt að gera við, ekki einu sinni að taka í sundur með góðu móti enda aldrei gert gert ráð fyrir að hægt sé að gera við þau. SKAMMVINN GLEÐI Haugamatur í milljónavís Apple AirPods
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.