Morgunblaðið - 15.07.2021, Síða 36

Morgunblaðið - 15.07.2021, Síða 36
36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Gelísprautun • Gefur náttúrulega fyllingu • Grynnkar línur og hrukkur • Sléttir húðina Gelísprautun er náttúruleg andlitslyfting án skurðaðgerðar sem framkvæmd er með náttúrulegu fjölsykrunum frá Neauvia Organic. Tímapantanir í síma 533 1320 Búumyfir 20 ára reynslu í húðmeðferðum -Þitt útlit.Okkar þekking. Á undanförnum fimm árum til upp- hafs yfirstandandi árs fjölgaði íbúum lands- ins um rúmlega 36.000 manns, 2,1% á ári að meðaltali. Ekk- ert annað land í norð- anverðri Evrópu kemst í hálfkvisti við þessa íbúafjölgun en hún er borin uppi af aðflutningi frá útlöndum eins og alkunna er. Suðvesturland hefur tekið á móti stærstum hluta fjölg- unarinnar en það er hér skilgreint sem landsvæðið frá Árborg í austri til og með Borgarbyggð í vestri. Þetta svæði er að verða samhang- andi þéttbýlissvæði í mörgu tilliti þótt byggðin sjálf sé ekki samfelld. Íbúum á suðvesturhorni landsins hefur fjölgað um 2,4% á ári að meðaltali undanfarin fimm ár og voru þeir orðnir nær 293.000 í upphafi árs. Rúmlega 71.00 manns búa utan Suðvesturlands og þeim hefur fjölgað um 1,0% á ári undanfarin fimm ár. Íbúaþróun ein- stakra sveitarfélaga á tímabilinu frá árs- byrjun 2016 til árs- byrjunar 2021 er sýnd í meðfylgjandi töflu. Þar kemur fram að hún er afar mismunandi. Sum sveitarfélög á svæðinu eru mun fámennari en einstök hverfi í stærstu bæj- arfélögunum og íbúaþróun hverf- anna er einnig mismunandi. Réttur þriðjungur íbúafjölgunar á Suðvesturlandi á þessu tímabili átti sér stað í Reykjavík en þrátt fyrir það var hlutfallsleg fjölgun í höfuðborginni minni en í flestum sveitarfélögum á svæðinu. Í þeim efnum hafa Mosfellsbær, Reykja- nesbær og Árborg vinninginn, öll með fjölgun sem nemur um það bil fjórðungi og næstum þriðjungi í Mosfellsbæ. Það vekur athygli að þrátt fyrir það mikla áfall sem Suðurnes urðu fyrir vegna nær al- gerrar stöðvunar á starfsemi á Keflavíkurflugvelli hélt íbúum þar áfram að fjölga í fyrra. Íbúafjölgun á Seltjarnarnesi og í Hafnarfirði er mun hægari en í öðrum sveit- arfélögum höfuðborgarsvæðisins. Hvalfjarðarsveit og Borgarbyggð skera sig úr miðað við önnur sveit- arfélög á Suðvesturlandi. Þar er fjölgun miklu minni en annars staðar og meira í líkingu við það sem á við um landsbyggðina að öðru leyti. Búferlaflutningar eru stærsta breytan í íbúaþróun Suðvestur- lands. Í heildina eru þeir að baki ¾ af íbúafjölguninni. Flutningar milli landa skipta hér mestu máli en 90% nettóaðflutnings á Suðvest- urlandi eru vegna flutninga milli landa og þeir skýra 2⁄3 allrar fjölg- unar íbúa á þessu svæði. Þarna er þó að finna mikinn mismun milli einstakra sveitarfélaga og reyndar innan þeirra líka. Fjögur sveit- arfélög á svæðinu hafa búið við nettóbrottflutning innanlands: mestu munar að frá Reykjavík fluttu yfir fjögur þúsund fleiri en þangað komu innanlands á und- anförnum fimm árum. Sá flutn- ingur var hins vegar nær algerlega vegna þess að fólk flutti í önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Hafnarfjörður kemur næstur og sker sig úr vegna þess að þar skiptist tapið nokkurn veginn jafnt milli flutnings í önnur sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins og sveit- arfélög utan þess, væntanlega að mestu á Suðurnes. Hvalfjarð- arsveit og Borgarbyggð hafa einn- ig tapað íbúum til annarra sveitar- félaga. Mosfellsbær og Garðabær hafa hins vegar tekið á móti veru- legum fjölda fólks frá öðrum sveit- arfélögum innan höfuðborgarsvæð- isins og það hefur Kópavogur gert líka þótt í minni mæli sé. Í öllum þessum sveitarfélögum hafa ný íbúðasvæði verið tekin í notkun á þessu tímabili meðan þróunin í Reykjavík hefur einkennst af þétt- ingu byggðar innan þegar byggðra svæða. Árborg hefur tekið við inn- lendum aðflutningi, væntanlega bæði af höfuðborgarsvæði og frá öðrum stöðum. Það er í flutningum milli landa sem munurinn á sveitarfélögunum er mest sláandi. Reykjavík ein og sér tók á móti 53% af öllum að- flutningi frá útlöndum til Suðvest- urlands síðastliðin fimm ár. Þar eru millilandaflutningar meiri en sem nemur heildarfjölgun íbúa. Í Reykjanesbæ var tekið á móti rúmlega 3.000 manns frá öðrum löndum en sá hópur var þó ein- ungis 70% af fjölgun í sveitarfé- laginu. Hafnarfjörður er á sama báti og Reykjavík, þangað fluttu fleiri erlendis frá en sem nemur íbúafjölguninni og sama gildir um Hvalfjarðarsveit og Borgarbyggð. Þar nemur aðflutningur frá útlönd- um þrefaldri fjölgun íbúa þannig að margir hafa flust þaðan annað innanlands. Þessar tölur sýna að hinn mikli uppgangur sem verið hefur á Suð- vesturlandi undanfarin ár hefur dreifst um öll þau sveitarfélög sem hér hafa verið til umfjöllunar, en með mismunandi hætti. Færa má rök fyrir því að vöxturinn tak- markist við Akranes í norðri þar sem Borgarbyggð og Hvalfjarð- arsveit hafa þróast mun líkar því sem hefur verið að gerast annars staðar á landsbyggðinni. Íbúaþró- un undanfarinna ára hefur haft mikil áhrif á samsetningu íbúa- fjöldans í sveitarfélögunum og í einstökum hverfum. Eftir Sigurð Guðmundsson » Það vekur athygli að þrátt fyrir það mikla áfall sem Suðurnes urðu fyrir vegna nær algerr- ar stöðvunar á starfsemi á Keflavíkurflugvelli hélt íbúum þar áfram að fjölga í fyrra. Sigurður Guðmundsson Höfundur er skipulagsfræðingur. Þröngt mega sáttir sitja – íbúaþróun á Suðvesturlandi Íbúaþróun á Suðvesturlandi frá 1. janúar 2016 til 1. janúar 2021 Íbúafjölgun Búferlaflutningar 2016-2020, aðfluttir umfram brottflutta Fjöldi % Samtals % af íbúafjölgun Milli landa % af íbúafjölgun Innanlands Reykjavík 10.802 8,8% 7.027 65% 11.201 104% -4.174 Kópavogur 4.192 11,9% 2.767 66% 1.919 46% 848 Seltjarnarnes 300 6,7% 177 59% 158 53% 19 Garðabær 2.976 19,5% 2.472 83% 643 22% 1.829 Hafnarfjörður 1.498 5,2% 494 33% 1.781 119% -1.287 Mosfellsbær 3.108 31,8% 2.595 83% 480 15% 2.115 Kjósarhreppur 33 15,0% 37 112% 14 42% 23 Reykjanesbær 4.443 27,2% 3.771 85% 3.111 70% 660 Grindavík 413 12,8% 306 74% 266 64% 40 Vogar 183 15,2% 122 67% 108 59% 14 Suðurnesjabær 647 20,1% 520 80% 239 37% 281 Akranes 789 11,2% 566 72% 299 38% 267 Hvalfjarðarsveit 25 3,9% 15 60% 42 168% -27 Borgarbyggð 121 3,3% 80 66% 357 295% -277 Skorradalshreppur 13 24,5% 13 100% 1 8% 12 Árborg 2.246 26,5% 1.957 87% 386 17% 1.571 Hveragerði 315 12,7% 311 99% 81 26% 230 Ölfus 413 20,6% 349 85% 137 33% 212 Suðvesturland 32.517 12,3% 23.579 73% 21.223 65% 2.356 Heimild: Hagstofa Íslands Ég vil byrja á því að hrósa landlæknisemb- ættinu fyrir það hversu vel hefur verið staðið að málum í því að verja þjóðina gegn Covid-19. Erindi mitt varðar hins vegar aðra veiru, hpv-veiruna, sem veldur ekki aðeins leghálskrabbameini heldur einnig krabba- meini í skapabörmum, leggöngum, endaþarmi og hálsi. Í lok síðustu aldar var hávær um- ræða um að bólusetja ætti ungar stúlkur fyrir hpv-veirunni. Til eru nokkrar tegundir hpv og var talað um það digrum rómi að nú ætti að fara að bólusetja íslenskar stúlkur með bóluefni sem virkaði á 72% af hpv-veirunum. Einhvern veginn hélt ég á þeim tíma að þetta væri það besta sem væri í boði, en á mark- aðnum var lengi búið að vera til annað og betra lyf. Hafist var handa við að bólusetja ungar stúlkur með Ceravarix sem er vörn gegn hpv-veirum af gerð 16 og 18. Á þessum sama tíma var hægt að kaupa bóluefni af gerðinni Gardasil sem var vörn gegn hpv- veirum af gerðinni 6, 11, 16 og 18. Af hverju var útboðinu þannig háttað að hægt var að taka tilboði upp á lakara lyf en það sem best gerðist á þeim tíma? Var þá þegar búið að ákveða að íslenskar konur væru ekki meira virði en svo að ann- ars flokks lyf væru nógu góð? Nú hefur tíminn liðið og í dag stendur til boða lyf sem heitir Gardasil 9 og þetta lyf veitir vörn gegn hpv-veirum 6, 11, 16, 18, 31, 33, 45, 52 og 58. Auk þess sem þetta lyf ræðst líka gegn kynfæravörtum, en það gerir Ceravarix-lyfið ekki. Með því að halda áfram að velja lyf sem ekki nær öllum hpv- veirunum höldum við áfram að við- halda þörf fyrir skim- anir við legháls- krabbameini og hpv-veirunni, speglanir, keiluskurði, leghálsnám og legnám. Þrátt fyrir öll þessi inngrip deyja nokkrar konur á ári úr leghálskrabbameini sem er algerlega hægt að koma í veg fyrir. Til þess að útrýma þessum vágesti úr okk- ar samfélagi þarf að bólusetja allt ungt fólk (bæði kyn) með Gardasil 9. Karl- menn deyja vissulega ekki úr leg- hálskrabba en þeir eru smitberar. Á meðan þeir eru ekki bólusettir hringsólar þessi veira í samfélaginu. Til að bæta gráu ofan á svart var ákveðið að senda sýnin sem þarf að rannsaka til Danmerkur og hafa konur þurft að bíða mánuðum sam- an eftir niðurstöðum. Sem betur fer stendur til að gera bragarbót á því. Verst af öllu er samt að sýnum hef- ur líka verið fleygt. Dómgreind kvensjúkdómalækna sem sýnin tóku var gefið langt nef og mörgum eig- endum þessara sýna hefur að lík- indum brugðið. Ofan á allt saman hefur það heyrst að aðeins sýnum frá kvenkyns kvensjúkdómalæknum hafi verið fleygt. Öll meðferð þessa málaflokks lýsir mikilli kvenfyr- irlitningu. Hvenær ætlar landlæknir að tryggja íslenskum ungmennum bólusetningu gegn hpv og spara konum þjáningar og ótímabær dauðsföll? Er það rétt að aðeins sýnum frá kvenkyns læknum hafi verið fleygt? Með von um að land- læknir svari spurningum mínum sem fyrst. Af hverju fá íslensk- ar konur annars flokks þjónustu? Eftir Erlu Björk Þorgeirsdóttur Erla Björk Þorgeirsdóttir » Opið bréf til land- læknis um aðgerðir gegn hpv-veirunni. Höfundur er verkfræðingur. erla.bjork66@gmail.com

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.