Morgunblaðið - 15.07.2021, Side 38

Morgunblaðið - 15.07.2021, Side 38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021 Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Úrval af rafdrifnum hvíldarstólum Opið virka daga 11-18 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Komið og skoðið úrvalið Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Baðherbergið, sem Berglind kallar að vísu baðstofu, er útbúið infrarauð- um klefa, dásamlegu baðkari og sturtu. Berglind vissi nákvæmlega hvaða stemningu hún vildi skapa í rýminu og naut aðstoðar Júlíu And- ersen hjá ASK arkitektum við skipu- lagið. Sigurður og bróðir hans sáu svo um meirihluta vinnunnar. „Við hjónin vinnum oft langa og stranga daga í veitingarekstrinum og mig langaði ekki bara í klósett- herbergi, mig langaði í baðstofu. Þar sem við gætum notið þess að hvíla okkur og láta líða úr okkur. Siggi elskar að fara í bað og mig langaði í infrarauðan klefa til að losa streitu, vöðvabólgu,“ segir Berglind í viðtali við Smartland. Berglind lagði áherslu á að bað- herbergið yrði praktískt, en samt fal- legt og tímalaust. Hún gekk út frá því að þetta yrði afslappandi bað- stofa. „Lýsingin skipti miklu, það gerði mikið að taka loftið niður. Það þarf að vera nógu bjart til þess að hægt sé að farða sig en líka haft kósí birtu og mik- ilvægt að geta hlustað á góða tónlist. Við erum líka með mörg börn í heimili, svo það er gott að hafa svona gott hvíldarathvarf innan heimilisins. Við opnuðum úr gamla litla baðher- berginu yfir í annað herbergi til þess að hafa það nógu stórt til þess að rúma sturtu, baðkar og infraklefann en það er líka pláss á gólfinu til að setjast og teygja á og hugleiða og svo setti ég góðan stól svo að það er hægt að spjalla saman og þess vegna lesa,“ segir Berglind. Hún segir ákvörðunina um að hafa infrarauðan klefa hafa verið mjög góða. Hann nýtist öllum fjölskyldu- meðlimum sem hafa vanalega í nægu að snúast. Berglind og Sigurður reka veitingastaðina GOTT og Pítsagerð- ina í Vestmannaeyjum. „Það er mikil streita í þeirri vinnu sem við erum í og við erum mikið á hlaupum sér- staklega yfir þessa sumarmánuði. Það er mikið áreiti og þegar maður kemur heim getur tekið bara dágóð- an tíma að ná sér niður til að fara að sofa. Klefinn er rosalega góður til að losa spennu og hefur margvísleg góð áhrif á líkamann. Við eigum líka ung- linga í íþróttum og það er mjög gott fyrir þá að fara í klefann,“ segir Berglind. „Ég var í smá pælingum með hvernig klefinn gæti komið smart inn í þetta, en ákvað þá bara að hafa bað- innréttinguna í eik og kaupa bast- stólinn svo það talaði saman. Það var lykilatriði að setja klefann inn í vegg- inn, hafa hann ekki bara frístandandi á gólfinu,“ segir Berglind. Yndislega fallegur marmari prýðir veggi baðstofunnar en hann fengu þau hjá bróður Berglindar, Pálma Sigmarssyni, sem flytur inn flísar og marmara frá Ítalíu. „Þar sem erfitt var að fara í búðir á þessum tíma sökum heimsfaraldurs og búðir áttu í basli með að fá vörur var einfaldast að fá mestallt í gegnum hann og bara sent bara heim. Ég vildi hafa gyllt blöndunartæki, finnst það eitthvað grand og fallegt,“ segir Berglind. Berglind skapaði baðstofu drauma sinna Veitingakonan, myndlistarkonan og fagurkerinn Berglind Sigmarsdóttir og eiginmaður hennar, Sig- urður Friðrik Gíslason, tóku baðherbergið á heimili sínu nýverið í gegn. Útkoman er gjörsamlega stór- kostleg og hafa þau hjónin skapað baðstofu sem myndi sóma sér vel á fimm stjörnu hóteli. Ljósmynd/Kristbjörg Sigurjóns Bast Berglind blandar saman marmara, basti og eik. Eik Innrétting úr eik tónar fallega við klef- ann og marmarann. Berglind Sigmarsdóttir Notalegt Klefinn fellur inn í vegg- inn, sem er lykil- atriði að mati Berglindar. Fágun Berglind vildi hafa gyllt blöndunartæki. Ítalskt Baðkarið er flutt inn frá Ítalíu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.