Morgunblaðið - 15.07.2021, Page 39
Stórtíðindi Margir hafa beðið óþreyjufullir eftir kjötinu frá
Bessa bónda sem sló eftirminnilega í gegn í fyrra.
Það fór allt á hliðina síðasta sumar
þegar Hagkaup bauð upp á sérvalið
nautakjöt af íslensku Galloway- og
Limousin-kyni í verslunum sínum frá
Bessa og fjölskyldu í Hofsstaðaseli.
„Nú geta viðskiptavinir glaðst á nýjan
leik því um helgina munum við endur-
taka leikinn,“ segir Sigurður Reyn-
aldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups.
Bessi bóndi hóf þetta ferli fyrir um
áratug þegar hann keypti holdakýr
með það að markmiði að bjóða upp á
nautakjöt sem væri í meiri gæðum en
við höfum vanist hingað til. Þetta er
langhlaup og kjötið mun koma í litlum
skömmtum inn á markaðinn fyrstu ár-
in. Bessi leggur mikla áherslu á sjálf-
bærni í ræktun sinni, og því ganga
gripirnir fyrstu mánuðina úti á beit
með mæðrum sínum og eru svo aldir
upp á heimaræktuðu grasi, korni og
vatni, sem er lykillinn að miklum gæð-
um.
„Við vorum að fá í hús sendingu af
þessu eðalkjöti, en það hefur fengið að
meyrna við kjöraðstæður síðustu 3 vik-
Íslenska Galloway- og Limous-
in-nautakjötið aftur í verslanir
ur. Eins og áður eru þessir gripir ólík-
ir því sem neytendur eiga að venjast,
en þeir eru talsvert stærri miðað við
hefðundin íslensk naut og sem dæmi
þá vegur lundin u.þ.b. 2,2 kg. Í boði
verður ribeye, lundir og file. Þá má
ekki gleyma að allt hakk og Smash
style-hamborgarar verður framleitt úr
þessu eðalhráefni, aðeins þessa helgi.
Það er því sannkölluð nautaveisla
framundan, allt klárt á grillið og því
ekki eftir neinu að bíða,“ segir Sig-
urður að lokum.
Allir M E Ð M B L . I S O G H A G K A U Pgrilla
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Margir telja rúllu af álpappír
vera burðarstoð í fiskigrillun
en það er argasti þvættingur.
Hreintrúaðir ganga meira að
segja svo langt að kalla það
svikagrillun og það sé allt
eins hægt að sjóða fiskinn
enda eldist hann í eigin safa í
álpappírnum. Fiskimottur
eru vinsælar hjá sumum, þá
sérstaklega þegar verið er að
grilla viðkvæmari fiskteg-
undir og er það gott og vel.
Tvö meginatriði ber að
hafa í huga. Í fyrsta lagi þarf
grillið að vera funheitt áður
en fiskurinn er settur á og
þannig er hann grillaður í
fremur stuttan tíma. Ofeldun
á fiskinum er landlægt
vandamál og reyndar er það
þannig með fisk að hann er
fínn þótt hann sé örlítið glær
í miðjunni. Hins vegar verður
hann afar fljótt þurr á grilli
sé hann eldaður of lengi. Hitt
mikilvæga atriðið er að þrífa
grillið vel áður en hafist er
handa og olíubera grindina.
Það er hægt að gera með því
að væta tusku eða klút með
matarolíu og strjúka vel yfir
grindina eða einfaldlega
spreyja með þar til gerðu
spreyi. Hvort heldur sem er
ætti að gera þetta áður en
grillið verður æpandi heitt.
Hái hitinn þjónar einnig
þeim tilgangi að loka fisk-
inum hratt og hindra þannig
vökvatap líkt og gert er með
kjöt. Fiskurinn festist síður
við grillið og auðveldara verð-
ur að snúa honum. Í þessari
uppskrift hér að neðan var
laxinn skorinn í steikur en vel
má grilla heilt flak. Fyrst var
roðinu snúið upp til að fá fal-
legar grillrendur í fiskinn en
síðan var honum snúið við og
hann grillaður á roðinu. Fisk-
urinn bragðaðist ótrúlega vel
og marineringin passaði ein-
staklega vel við og er hægt að
mæla heilshugar með þessari
marineringu. Fiskurinn var
góður heitur og alls ekki síðri
eftir að hann hafði kólnað.
Ekki er verra að grilla meira
en minna af fiskinum og eiga
síðan í klæli til að kroppa í
eða nota út í salat daginn eft-
ir.
2 laxaflök
Hvítlauks- og kóríander-
marinering frá Badia
Ferskur aspas
SPG krydd frá Hagkaup
Olio Nitti ólífuolía
1 lime
1 búnt ferskt kóríander
2-3 sítrónur
Sérvalið sætkartöflusalat
Sérvalin parmesansósa
Kryddað rótargrænmeti
Skerið laxinn niður í sneið-
ar. Penslið vel með hvítlauks-
og kóríander marineringu.
Hjúpið með ferskum kórían-
der.
Rífið ferskt lime yfir.
Skerið endana af asp-
asinum. Hellið vel af olíu yfir
og kryddið með SPG krydd-
inu.
Skerið sítrónur í báta.
Grillið laxinn, aspasinn og
rótargrænmetið eins og þarf.
Berið fram með parmes-
ansósu og sætkartöflusalati.
Grillaður fiskur er eitt það besta sem
hægt er að leggja sér til munns en margir
veigra sér við að grilla fisk. Þegar kemur
að því að velja fisk er gott að velja fiskteg-
und sem er þétt í sér og er laxinn þar
fremstur meðal jafningja ásamt lúðu og
skötusel. Það má líka heilgrilla fisk en það
eru ákveðin trix sem þarf að kunna til að
fiskurinn heppnist sem best.
matur lax allir grilla
Grillaður
lax með
himneskri
marineringu