Morgunblaðið - 15.07.2021, Side 42

Morgunblaðið - 15.07.2021, Side 42
✝ Friðgerður Þórðardóttir fæddist að Hlé- skógum í Höfða- hverfi, nærri Grenivík, 11. októ- ber 1930. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 4. júlí 2021. Foreldrar Frið- gerðar voru Þórð- ur Jónsson frá Hóli í Höfðahverfi og Nanna Stef- ánsdóttir frá Miðgörðum á Grenivík. Systkini Friðgerðar voru: 1) Þráinn, f. 1923, látinn. 2) Baldur, f. 1924, látinn, 3) Ingvi, f. 1926, látinn 4) Hjalti, f. 1928, látinn, 5) Stefán, f. 1935, 6) Andrés, f. 1940. Friðgerður hóf búskap í Reykjavík árið 1954 með Ragn- ari Guðmundssyni frá Leiðólfs- stöðum í Laxárdal í Dalasýslu, f. 18.8. 1929, d. 23.11. 2010. Foreldrar Ragnars voru Guð- mundur Guðbrandsson og Sig- gerður stundaði m.a. nám við Hússtjórnarskólann í Reykjavík og lauk þaðan námi með úrvals- einkunn vorið 1953. Á vinnu- markaði starfaði hún m.a. sem matráður á Iðntæknistofnun og við Selásskóla. Einnig starfaði hún við smurbrauðsgerð, lengst af á Hótel Esju en síðar einnig á Hótel Loftleiðum. Á Hótel Esju tengdist Friðgerður góðum samstarfskonum afar traustum vinaböndum sem ræktuð voru fram á síðasta dag. Friðgerður og Ragnar áttu farsælt hjónaband. Mikill vin- skapur og samheldni ríkti með- al systkinanna frá Hjarðarholti og samverustundirnar voru margar í Reykjavík, Eyjafirði og ekki síst vestur í Dölum. Þau Friðgerður og Ragnar ferð- uðust mikið saman. Árum sam- an spiluðu þau bridge.St- angveiði var sameiginlegt áhugamál þeirra hjóna sem þau sinntu bæði í vötnum og ám landsins. Friðgerður hafði mik- inn áhuga á íþróttum og var dyggur stuðningsmaður íþróttafélagsins Fylkis. Útför Friðgerðar verður gerð frá Árbæjarkirkju í dag, 15. júlí 2021, og hefst athöfnin kl. 15. ríður Einarsdóttir. Synir Friðgerðar og Ragnars eru: 1) Logi Ragnarsson, f. 1960, maki Jó- hanna Kristín Steingrímsdóttir, f. 1961. Börn þeirra eru a) Halla Hrund, f. 1981. Maki Krist- ján Freyr Krist- jánsson. Börn þeirra eru Hildur Kristín og Saga Friðgerður. b) Haukur Steinn, f. 1990. 2) Valur Ragnarsson, f. 1964, maki Sig- ríður Björnsdóttir, f. 1962. Börn þeirra eru a) Ingunn Ýr Guð- brandsdóttir, f. 1983. Maki Jón Þór Sigurðsson. Börn þeirra eru Freyja og Sigurbjörg Edda. b) Vaka, f. 1989. Maki Björn Orri Hermannsson. Sonur þeirra er Hermann Valur. Friðgerður ólst upp í Hlé- skógum í Höfðahverfi til ársins 1944 er fjölskyldan fluttist að Hjarðarholti í Dölum. Frið- Tengdamóðir mín hún Frið- gerður, eða Didda eins og hún var oftast kölluð í fjölskyldunni, hefur nú yfirgefið þetta jarðlíf. Það sem einkenndi viðmót Diddu við mín fyrstu kynni var hlýja, yfirvegun og glaðlegt bros sem bauð mig svo vel- komna í fjölskylduna. Fallegt heimili hennar og Ragnars í Ár- bænum iðaði af heimsóknum ættingja, allir voru velkomnir. Hún var ánægð með Ragnar sinn og synina tvo. Hún og Ragnar voru alla tíð samstíga í lífsins dansi, nutu þess að fara saman í laxveiði, spila bridds, að dansa, syngja, að fara í leik- hús og á tónleika, ásamt því að ferðast til útlanda. Didda hafði sérstaklega sterkan norðlensk- an hreim með fallegum áherslum. Hún var orðheppin með beinskeyttan og hnyttinn orðaforða. Didda naut þess fara í veiði og var aflakló mikil. Mér eru minnisstæð fyrstu árin sem ég var í fjölskyldunni en þá var hún oftast aflakóngurinn í veiði- ferðunum. Hún var listakokkur, elskaði að matreiða úr þessu öllu, það var grafinn lax með bestu heimatilbúnu graflaxsós- unni, reyktur lax og snittur með laxablómum, brauðtertur með laxi, allt óendanlega gott og fallega skreytt enda hafði hún tileinkað sér sérhæfingu í smurbrauði m.a. í Árósum í Danmörku þegar fjölskyldan bjó þar í um eitt ár. Við fjölskyldan vorum þeirr- ar gæfu aðnjótandi að fara í nokkrar veiðiferðir með Diddu og Ragnari. Frægasta ferðin í þeirra boði var í Fáskrúð í Döl- um þar sem allir þeir sem gátu haldið á veiðistöng veiddu lax og nokkrar okkar veiddum okk- ar maríulax. Didda hafði áhuga á öllu sem við tókum okkur fyrir hendur og var öllum áföngum fagnað. Þegar við Logi byggðum húsið okkar þá kom hún reglulega, tók þátt í verkefnum, nagl- hreinsaði eða kom með eitthvað gott með kaffinu. Hún var mikil fjölskyldu- manneskja og sérstaklega trygg sínum nánustu. Við Logi vorum þeirrar gæfu aðnjótandi að búa í sama hverfi og ala þar upp börnin okkar. Barnabörnin voru ávallt velkomin og skipuðu stóran sess í hennar lífi og þess vel gætt að gera ekki upp á milli þeirra. Didda lenti í alvarlegu bíl- slysi árið 2000 sem hafði mikil áhrif á hennar lífsgæði. Með mikilli seiglu tókst henni að halda áfram þrátt fyrir oft á tíðum slæma verki sem höfðu áhrif á allt hennar líf. Hún hélt áfram, sótti menningarviðburði ásamt því að taka þátt í því sem var í gangi hverju sinni í fjöl- skyldunni. Þrátt fyrir háan ald- ur þá hélt Didda ávallt sínum séreinkennum, skýru málfari og beinskeyttu orðavali. Hún hafði gaman af því að spjalla um for- tíðina og gleðjast yfir velferð annarra. Það var ávallt gaman að hlusta á sögur hennar m.a. af uppvaxtarárunum, flutning- um fjölskyldunnar að Hjarðar- holti í Dölum, ferðum fótgang- andi eða á hesti niður í Búðardal til að æfa með leik- félaginu og syngja með kórnum Vorboðanum, ásamt sögum af brúðkaupsferðinni hennar og Ragnars til Kaupmannahafnar. Ég þakka dýrmætar minningar og er óendanlega þakklát fyrir að hafa átt svo trausta og styðj- andi tengdamóður. Far þú í friði og hafðu bestu þakkir fyrir samveru undanfarinna áratuga. Jóhanna. Ég kynntist Friðgerði Þórð- ardóttur, eða Diddu eins og hún var kölluð, þegar við Valur, son- ur hennar, fórum að draga okk- ur saman. Það var ljóst frá byrjun að þarna fór hæglæt- ismanneskja. Ekkert fum eða fát jafnvel þó að sonur hennar kornungur mætti heim með konu og barn. Hún tók okkur mæðgum afskaplega vel og gekk Ingunni minni strax í ömmustað, sem var ómetanlegt. Það var alltaf gott að koma til hennar í rólegheitin sem hún skapaði í kringum sig. Maður kom aldrei að tómum kofanum því hún sveiflaði í hvert sinn fram einhverju góðgæti og ein- földustu brauðsneiðar urðu að listaverki þegar hún bar þær fram af sinni alkunnu snilld. Já, hún var hvers manns hugljúfi og allir áttu griðastað hjá henni. Heimili þeirra hjóna, Diddu og Ragnars, var stund- um eins og félagsheimili því margir komu til þeirra. Ætt- ingjar utan af landi, vinir eða vinnufélagar, og svo barnabörn- in en þeim þótti mjög gott að læra hjá ömmu og afa. Þau vissu sem var að þar væri topp aðstaða. Rólegheit þegar þess var þörf, alls konar góðgæti sem amma bar fram oft á dag og svo spjall um lífsins gagn og nauðsynjar þegar þess þurfti. Það sem einkenndi Diddu fyrst og fremst var að hennar glas var ávallt hálffullt. Hún var ánægð með allt og þakklát fyrir allt. Hún og Ragnar voru samrýmd og lifðu mjög ham- ingjusömu lífi og voru hrókur alls fagnaðar á gleðistundum. Eftir að Ragnar lést 2010 fór að halla undan fæti hjá Diddu en það var auðvelt að styðja hana því hún var þakklát fyrir allt sem maður gerði fyrir hana og ætlaðist ekki til neins. Ég þakka þér elsku Didda fyrir allan stuðninginn sem þú veittir okkur Val og börnum okkar í lífsins ólgusjó. Bið að heilsa Ragnari og njótið hvar sem þið eruð. Þín Sigríður (Sigga). Ég heyri létt bankað á hurð- ina og lít upp. Í dyrunum stend- ur amma Didda. „Það er komið kaffi, Halla Hrund mín, viltu ekki fá þér smá hressingu?“ Ég stend upp frá bókunum og við tekur veisla. „Veisla úr engu“ eins og hún var þekkt fyrir, því amma hafði sérstakt lag á því að tína saman ýmislegt úr ís- skápnum og breyta í veislumat. Samlokubrauð með fallega út- skornum tómati og gúrku á snittuformi. Nýsteiktur fiskur með bökuðum eplum og lauk. Ilmandi aspassúpa eða grjóna- grautur með rúsínum. Og svo auðvitað brauðterturnar sem framreiddar voru við hátíðlegri tilefni ásamt heimalögðum graf- laxi, gjarnan veiddum af þeim afa. Svona gekk próflesturinn fyrir sig og segi ég stundum að amma hafi hreinlega komið mér til mennta því hún beinlínis nærði mig og hvatti með natni sinni og hlýju í gegnum öll próf í gagnfræðaskóla, menntaskóla og háskóla. Í prófatíð mætti ég eins og farfugl, settist að við skrifborðið í Hraunbænum og lærði frá morgni til kvölds. Stuðningurinn og afslappandi nærvera hennar var allt um kring. Yfir daginn var svo reglulega bankað á hurðina og við tók hressing, spjall um lífið og tilveruna við þau afa, þar sem mikið var hlegið og spáð í spilin. Af og til komu svo skóla- félagar í heimsókn. Þá breyttist heimilið í félagsmiðstöð próf- alærdóms og öllum var boðið í Friðgerður Þórðardóttir kaffi eða mat. Allt gert til að manni gengi vel. Hraunbærinn varð snemma eins mitt annað heimili sem ég sótti mikið í enda algjört dekur í boði. Á yngri árum var mest spennandi að fá að nota grænu saumavélina hennar ömmu. Oft- ar en ekki flæktist tvinnaspólan og þá voru góð ráð dýr. Amma var þolinmæðin uppmáluð, sama hvað, og gleðin í fyrir- rúmi. Áfram var haldið. Ösku- pokar saumaðir, dúkkuföt og ýmis snið prófuð sem ýtti undir áhugann á því að skapa og búa til. Oft fékk maður líka að máta kjóla og skoða bleika skart- gripaskrínið sem var fullt af gersemum í augum okkar barnabarnanna. Ófá leikritin voru sett upp á ganginum í Hraunbænum í þessum klæðum og heilu leikritin í Kvennó sömuleiðis. Þetta stöðuga sam- bland af frelsi og stuðningi var ómetanlegt veganesti. Fjársjóð- ur í alla staði. Amma var almennt sérlega áhugasöm um að heyra hvað við barnabörnin vorum að brasa og viðbrögðin iðulega á sömu leið, sama hversu mikið eða lítið var í gangi. „Ja, hérna, þú segir nokkuð. Þetta finnst mér alveg stórkostlegt. Alveg einstakt“. Þessi viðbrögð byggðu upp í manni kjarkinn. Maður yfirgaf Hraunbæinn fullur af þrótti og jákvæðni. Og þegar ég lít til baka þá voru það þessar hvers- dagslegu samræður sem hittu oft í hjartastað. Þvílíkt bakland að eiga að. Dag einn þegar ég sat við lestur í Hraunbænum lenti amma í slysinu sem átti eftir að hafa mikil áhrif á heilsu hennar. Að sjá hvernig amma tókst á við slysið og mótlæti almennt var afar lærdómsríkt. „Það þýð- ir ekkert að gefast upp,“ sagði hún. „Maður verður að setja nefið í vindinn og halda áfram“. Þegar ég horfi á hvað amma gaf af sér þá var það einmitt þetta einstaka viðhorf, þrek, jafnað- argeð og jákvæðni sem gerði hana sjálfa; svo stórkostlega; svo einstaka; svo frábæra ömmu og fyrirmynd. Ég vona að litla Saga Frið- gerður mín og við öll sem ömmu tengjumst náum að til- einka okkur hennar eiginleika og halda þeim á lofti. Takk fyrir allt, elsku besta amma mín. Minning þín lifir um ókomna tíð í hjörtum og hugum okkar allra. Halla Hrund Logadóttir. Í dag kveðjum við elsku ömmu Diddu. Hún var kannski ekki mikið fyrir það að „flaðra upp um fólk“ sem hún þekkti ekki vel (hennar eigin orð) en hún sýndi okkur sem stóðum henni næst skilyrðislausa ást og hlýju og studdi okkur í hverju því sem við tókum okkur fyrir hendur. Þegar á reyndi gat hún líka verið föst fyrir, líkt og þegar eitt af okkur barnabörnunum þráaðist við að læra að lesa. Þá var amma Didda kölluð til og fylgdi hún verkefninu eftir af staðfestu, allt þar til barna- barnið var ekki bara búið að læra að lesa heldur komið í upplestrarkeppni grunnskól- anna. Engin undankomubrögð dugðu á ömmu Diddu, hún stóð föst á sínu, en þó alltaf með blíðu og nærgætni. Við sáum hana aldrei skipta skapi. Heimili ömmu og afa stóð okkur barnabörnunum ávallt opið og gátum við leitað þangað hvenær sem var og það brást ekki að alltaf var eitthvað mat- arkyns á boðstólnum. Við barnabörnin vorum öll þeirrar gæfu aðnjótandi að alast upp í sama hverfi og amma og afi og gátum því heimsótt þau þegar við vildum. Í prófatörnum í grunnskóla, menntaskóla og al- veg upp í háskóla fannst okkur til að mynda best að læra heima hjá þeim. Þar var aðstaðan eins og best verður á kosið, engin læti, reglulegar dýrindismáltíð- ir yfir daginn og spjall þegar maður leit upp úr bókunum. Í gegnum tíðina ferðuðumst við líka mikið með ömmu og afa. Eftirminnilegar eru ferðir í Dalina og fjölmargar veiðiferðir þar sem amma var í essinu sínu enda alræmd veiðikló og þol- inmóð með eindæmum. Einnig er okkur minnisstæð ferð til Spánar árið 2000 þar sem við fjölskyldan héldum upp á sjö- tugsafmæli ömmu og afa. Í seinni tíð færðust heim- sóknirnar til ömmu úr Hraun- bænum og yfir á Hrafnistu. Þegar þangað var komið hafði amma sérlega gaman af því að segja okkur sögur frá gömlu tímunum. Hún sagði okkur margar sögur af því sem hún og bræður hennar brölluðu sem börn í Höfðahverfi og í Hjarð- arholti vestur í Dölum og þykir okkur dýrmætt að hafa fengið að heyra þær sögur. Okkur þykir ólíklegt að hægt sé að finna manneskju sem hafði jafn jákvætt lífsviðhorf og amma. Sama á hverju gekk þá tókst henni alltaf að sjá björtu hliðarnar. Þetta er eiginleiki sem við dáðumst að og við von- um að við getum tileinkað okk- ur. Takk fyrir allt elsku amma og skilaðu kveðju til afa. Þínar Ingunn og Vaka. Minningar liðinna ára streyma fram þegar ég hugsa um Diddu, afasystur mína, sem nú er farin yfir móðuna miklu í sumarlandið og ég trúi því að nú séu þau Ragnar sameinuð að nýju. Ég átti því mikla láni að fagna að eiga í þeim hjónum eiginlega aukasett af ömmu og afa. Þeirra dyr stóðu mér ávallt opnar og voru þau óþreytandi við að hvetja mann áfram til dáða við þau viðfangsefni sem lífið bauð upp á. Allar notalegu stundirnar við spjall um lífið og tilveruna rifjast upp, ýmist þeg- ar ég dvaldi hjá þeim í Hraun- bænum eða í styttri heimsókn- um sem voru þó nokkrar, því alltaf var gott og endurnærandi að kíkja við hjá Diddu. Hún var einstök kona sem vílaði fátt fyr- ir sér, lífsglöð og dugleg með eindæmum. Heimsóknir og símtöl byrj- uðu oftast nær á því að hún spurði frétta úr Dölunum og hvernig mitt fólk hefði það, þannig var það bara og þykir mér óskaplega vænt um allar þessar góðu minningar mínar. Takk fyrir allt, elsku Didda mín. Logi, Valur og fjölskyldan öll, mínar innilegustu samúðar- kveðjur til ykkar, minningin um yndislega konu lifir áfram í hjörtum okkar. Kristín Guðrún Ólafsdóttir. Fallin er frá merk kona. Lífið fór ekki mildum hönd- um um hana en alltaf var hún brosandi og sendi frá sér góða og jákvæða strauma. Hún kom til okkar í Selás- skóla í lok síðustu aldar og tók að sér elda fyrir starfsfólk skól- ans og fórst henni það vel úr hendi. Alltaf var tilhlökkun að fara í hádegismat, því Didda var frábær kokkur. Við kveðjum hér einstaka konu og vottum sonum hennar og fjölskyldum samúð okkar. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð Lifðu sæl á ljóssins friðarströnd, Leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Erla M. Frederiksen, Anna Guðrún Jósefsdóttir, Gerður Pálsdóttir, Hrefna Jónsdóttir. 42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021 Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.is Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KRISTINN KRISTINSSON húsasmíðameistari, Álfhólsvegi 104, Kópavogi, lést sunnudaginn 11. júlí á hjúkrunarheimilinu Mörk. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 22. júlí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvini Grensásdeildar. Ásdís Þórarinsdóttir Sigrún Kristinsdóttir Hinrik Már Ásgeirsson Kristinn Gunnar Kristinsson Margrét Jóna Gestsdóttir og barnabörn Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.