Morgunblaðið - 15.07.2021, Síða 43
MINNINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021
✝
Baldur
Sigurðsson
fæddist 1. nóv-
ember 1935 í Hnífs-
dal. Hann lést á
Líknardeild Land-
spítalans við Hring-
braut 2. júlí 2021.
Foreldrar Baldurs
voru Sigurður Guð-
mundur Sigurðs-
son, skipstjóri á
Ísafirði, f. 19.2.
1902, d. 21.5. 1969, og Guð-
munda Jensína Bæringsdóttir, f.
22.10. 1904, d. 26.12. 1994.
Systkini Baldurs eru: Her-
mann Bæring, f. 12.7. 1926, d.
18.12. 1986. Arnór Lúðvík, f.
4.10. 1927, d. 14.9. 1993. Jóna
Sigríður, f. 12.2. 1929, d. 27.12.
1929. Sigurður Marinó, f. 23.3.
1931, d. 8.3. 2019. Kristinn, f.
3.9. 1934, d. 31.12. 1952. Guðrún
Helga, f. 8.7. 1938, d. 5.3. 2016.
Kristín, f. 9.3. 1942.
Eftirlifandi eiginkona Bald-
urs er Sigríður Ingvarsdóttir, f.
7.12. 1940. Þau gengu í hjóna-
band þann 9.7. 1961. Börn Bald-
urs og Sigríðar eru fimm,
þeirra eru Silja Rós, Júlía Dís og
Elva Lind.
Fyrstu árin ólst Baldur upp í
Hnífsdal og síðar á Ísafirði. Sjó-
mennskan var honum í blóð bor-
in og stundaði Baldur sjó-
mennsku frá unga aldri ásamt
föður sínum og bræðrum og rak
hann um tíma útgerð ásamt
bræðrum sínum. Um 1954 flutti
Baldur suður til Hafnarfjarðar
með foreldrum sínum og kynnt-
ist eiginkonu sinni, Siggu, fljót-
lega eftir það. Baldur og Sigga
bjuggu lengst af í Hafnarfirði,
áttu stutta viðveru á Ísafirði og
efri árin bjuggu þau suður með
sjó í Vogum á Vatnsleysuströnd.
Síðustu árin lá þó leiðin aftur
heim í Hafnarfjörðinn.
Baldur var fagmaður fram í
fingurgóma og hagleiksmaður
mikill og var verðlaunaður fyrir
framúrskarandi árangur á burt-
fararprófi í Vélvirkjun frá Iðn-
skólanum í Hafnarfirði. Baldur
var einnig með vélstjóraréttindi
og starfaði við fagið mestallan
sinn starfsferil, lengst af í Ál-
verinu í Straumsvík þar sem
hann lauk starfsferlinum rétt
fyrir sjötugt.
Útför Baldurs fer fram frá
Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði, í
dag, 15. júlí 2021, kl. 11.
barnabörnin sextán
og barna-
barnabörnin átján.
1. Jónas Bald-
ursson, f. 6.7. 1958,
eiginkona Regina
Kasinskiene, f.
12.5. 1958. Börn
Jónasar eru Helena
Björk, Margrét
Lára, Gylfi Þór og
Birna Dögg.
2. Lilja Bald-
ursdóttir, f. 27.5. 1961, eig-
inmaður Sigurjón Már Guð-
mannsson, f. 12.12. 1948. Börn
þeirra eru Sigríður Bylgja og
Berglind. Barn Lilju úr fyrra
sambandi er Baldur.
3. Linda Baldursdóttir, f.
12.8. 1963. Börn Lindu eru Ívar,
Davíð og Aldís Ósk.
4. Sigríður Baldursdóttir, f.
25.8. 1969, sambýlismaður Guð-
mundur Jón Valgeirsson, f. 20.9.
1966. Börn Sigríðar eru Haukur
Örn, Hákon Þór og Hlynur
Freyr.
5. Ingvar Baldursson, f. 5.5.
1975, eiginkona Vigdís Louise
Jónsdóttir, f. 24.3. 1977. Börn
Elsku pabbi, mig langaði að
kveðja þig á sama hátt og þú
myndir gera ef þú værir í mínum
sporum og það er að krota á blað
nokkur fátækleg orð, veit að þér
hefði þótt vænt um það. Minning-
arnar eru margar og af nógu að
taka og ætla ég að stikla á stóru.
Þú varst ekki bara pabbi minn,
þú varst og ert fyrirmynd mín og
sá sem ég hef alltaf litið upp til.
Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá tækifæri til að vinna við hlið
þér í Álverinu í Straumsvík, bæði
á vélaverkstæðinu í steypuskál-
anum sem og á bakvöktum. Það
var einstaklega gott að vinna með
þér og ekki leiðinlegt fyrir ungan
mann að fá að læra af föður sín-
um, góðir og dýrmætir tímar sem
ég hugsa oft til. Fjölskyldan var
þér eitt og allt og mamma stóra
ástin í lífi þínu. Hver man ekki
eftir sögustund þar sem þú oftar
en ekki fórst frjálslega með sögu-
þráðinn sem gerði söguna bara
enn skemmtilegri fyrir þá sem á
þig hlýddu. Ég man þegar ég fór
að segja stelpunum mínum sögur
þá gerði ég alveg eins og þú, sag-
an var aldrei alveg eins og síðast
og bætti ég við og breytti alveg
eins og þú gerðir þegar ég var lít-
ill. Einhvern tímann fékk ég að
heyra frá stelpunum mínum að
sagan af Rauðhettu væri sko ekki
alveg eins og sú sem afi sagði og
að sagan hans afa væri betri. Ég
held að röddin í úlfinum í þinni
útgáfu hafi verið skemmtilegri en
mín, eitthvað sem ég get bætt
fyrir mín barnabörn. Söngur var
eitt sem fylgdi þér alla tíð og man
ég þegar þú söngst í sturtu heima
og mér fannst það fyndið. Man
líka þegar þú söngst í sturtu þeg-
ar við fórum saman í Sundhöll
Hafnarfjarðar og syntum 750
metrana, mér fannst það líka
fyndið. Man líka þegar við unnum
saman í Álverinu í Straumsvík og
þú söngst í sturtu og já, mér
fannst það líka fyndið. Ég er ekk-
ert rosalega mikið fyrir að syngja
og heldur ekki í sturtu, er eitt-
hvað feiminn við þetta en það var
eitthvað sem truflaði þig ekki, þú
gerðir þetta bara og af innlifun.
Ég og mín fjölskylda bjuggum
lengi erlendis og ég er ofboðslega
þakklátur fyrir að hafa náð tæp-
um fimm árum nálægt þér og
mömmu eftir að við fluttum til Ís-
lands. Er mjög þakklátur fyrir
Englandsferðina á heimsmeist-
aramótið í snóker í febrúar á síð-
asta ári, þrátt fyrir að farið væri
að halla undan fæti hjá þér. Vest-
firsk hörkutól gefa ekki tommu
eftir, en krabbamein er illviðráð-
anlegt og síðustu dagarnir voru
þér erfiðir. Erfitt að geta ekkert
gert en á sama tíma notalegt að
sitja við hlið þér, halda í höndina
á þér og finna þéttingsfasta
handtakið þitt og skaust maður
tugi ára aftur í tímann og varð
litli strákurinn þinn aftur.
Ég er og verð alltaf ljúfurinn
þinn og mun ég geyma minn-
inguna um þig í hjarta mínu um
ókomna tíð og langar mig að enda
þessi fátæklegu orð á frasanum
sem við svo oft sögðum hvor við
annan: „Við látum okkur aldrei
… allavega seint“.
Elska þig, elsku pabbi, hvíldu í
friði og vonandi sjáumst við í ann-
arri vídd, þinn sonur Ingvar
P.S. það var alltaf P.S. í bréf-
unum þínum og mitt P.S. er mér
dýrmætara en allt í þessu lífi og
eru það stelpurnar mínar Vigdís
Louise, Silja Rós, Júlía Dís og
Elva Lind.
Ingvar Baldursson.
Meira á: https://mbl.is/andlat
Afi.
Ó hve fallegur og friðsæll þú
varst, elsku afi minn, þegar ég
kvaddi þig, ég þakka fyrir allar
stundirnar okkar saman, þær eru
mér svo dýrmætar. Minningarn-
ar í minningabankanum eru svo
margar og allar fallegar. Þú varst
einstakur maður, hjartgóður,
hlýr, ástríkur, yndislegur og svo
mætti lengi telja.
Ég er þakklát fyrir að hafa hitt
þig laugardeginum áður en þú
kvaddir og að hafa spjallað við
þig, haldið í höndina þína og finna
ástina frá þér, eins og ég fann
alltaf. Það var svo gott að sitja
hjá þér í þögninni, þú varst ekki
maður margra orða, en allt sem
þú sagðir var svo nærandi og
gott, nærveran þín var svo góð.
Ég er þakklát fyrir að Klara
Sól, dóttir mín, hafi fengið að
finna hlýjuna í fanginu þínu sem
var svo einstök, hlýjuna hjá
langa-afa eins og þú varst stund-
um kallaður.
Morguninn sem þú kvaddir
var þoka yfir öllu, en fallegt verð-
ur, hiti í lofti og dúnalogn,
kveðjustundin var falleg og ég er
þakklát fyrir hana.
Ég söng lagið okkar fyrir þig í
síðasta skipti á meðan ég hélt í
hönd þína.
Kyssti þig á vangann og strauk
þér um ennið.
Um kvöldið kvaddirðu svo með
látum þegar það sprakk víga-
hnöttur yfir Íslandi úr heiðskíru
lofti. Sem var alveg einstakt, al-
veg eins og þú.
Söknuðurinn er sár en minn-
ing þín mun lifa með mér alltaf og
ég hlakka til að segja börnunum
mínum sögur af þér og syngja
lagið sem þú söngst svo ótal sinn-
um fyrir mig:
„ Hver liggur þarn’ í litlu rúmi,
ljóshærð, bústin, rjóð á kinn.
Hver liggur þarn’ í kvöldsins
húmi, og heldur svona fast í litla
bangsann sinn. það er ekki þörf
Það er erfitt að hugsa til þess
að fá ekki aftur frá þér þétt faðm-
lag með taktföstu klappi á bakið,
að geta ekki skroppið í heimsókn
og spjallað um lífið á léttum nót-
um og tekið flugið hærra þegar
við á, eða sungið saman lögin
okkar.
Ég mun alltaf minnast þín með
svo ótrúlega mikilli hlýju, afi, því
það var þín mikla hlýja og tak-
markalausi kærleikur sem snart
okkur öll svo djúpt. Kannski
varstu hingað sendur til að kenna
okkur einmitt þetta: hlýju, kær-
leika og að elska skilyrðislaust.
Þú lifir áfram í okkur öllum og
við munum ábyggilega öll gera
okkar besta til að heiðra minn-
ingu þína. Þú undirbjóst mig vel
undir lífið – því þetta er í raun
ekkert svo flókið.
Afi, þetta er ekki hinsta kveðja
mín til þín, því við sjáumst aftur
og þú munt svo sannarlega lifa
áfram í okkur og alltaf vera ná-
lægur í hjörtum okkar. Með bros
á vör og hlýju í hjarta hugsa ég til
þín.
Eins og þú sagðir svo oft,
syngjandi í lok samverustunda,
hvort sem það var eftir útilegu,
útlandaferð, kaffispjall eða
kvöldstund, þá segi ég: „Takk
fyrir samveruna!“
Þangað til næst,
Þín
Sigríður (Sigga) Bylgja.
Kær vinur og mágur Baldur
Sigurðsson, maðurinn hennar
Siggu systur er látinn eftir
snarpa en stutta baráttu við ill-
vígan sjúkdóm. Fyrstu kynni mín
af honum voru er þau voru að
byrja saman og hann var í mat á
jólunum og mamma vildi gera vel
við verðandi tengdason. Hann
sagðist vera vanur að fá grjóna-
graut með möndlu á aðfangadag.
En við vorum ekki vön þessu og
grjónagrautur var ekki í uppá-
haldi hjá okkur yngri bræðrum.
Baldur fékk möndluna í fyrstu
skeið en lét ekki vita fyrr en allir
voru búnir og við bræður vorum
ekki tilbúnir að sættast þótt svo
hann gæfi okkur möndlugjöfina.
En hann náði okkur og vann
hjarta Siggu og þar með hófst
sönn vinátta sem varði alla tíð.
Baldur var mjög glöggur eins
og sást best er Sigga fæddi fyrsta
barn þeirra fyrir réttum 63 árum
á Sólvangi, hann Jónas. Í þá daga
voru feður ekki viðstaddir og í
fyrstu heimsókn fór hann fyrst að
skoða nýfæddan soninn og þegar
ljósmóðirin sýndi honum barnið
sagði Baldur að hann ætti ekki
þetta barn og að sjálfsögðu brá
konunni við og athugaði barnið
og viti menn þetta var rétt hjá
honum. Hún hafið farið vöggu-
villt og sýndi honum síðan rétt
barn, sem hann samþykkti. Þetta
þótti tíðindum sæta því feður
hefðu samþykkt hvaða barn sem
þeim hefði verið sýnt, en ekki
Baldur.
Baldur var ekki eingöngu
mágur heldur einnig vinnufélagi.
Hann átti sinn þátt í því að ég fór
að læra vélvirkjun í Vélsmiðju
Hafnarfjarðar þar sem hann
vann, síðar urðum við vinnufélag-
ar á vélaverkstæði ISAL, síðast
en ekki síst var hann mikill vinur
minn. Það er ljúft að minnast
allra samverustunda heima og að
heiman en við fórum m.a. saman
tvisvar til Spánar.
Baldur og Sigga voru sam-
heldin og talaði hann alltaf um
Siggu sína af mikilli ástúð og
börnin og fjölskyldur þeirra voru
ávallt í fyrirrúmi hjá honum. Það
er sárt að sakna en einnig ljúft að
minnast en söknuðurinn er sár-
astur hjá Siggu, Jónasi, Lilju,
Lindu, Siggu og Ingvari og fjöl-
skyldum. Ég og fjölskylda mín
sendum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur. Baldri þökkum við
samfylgdina.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Vald. Briem)
Gylfi Ingvarsson.
Baldur Sigurðsson
að spyrja, þetta er hún frænka
mín. Sporin þú brátt munt byrja,
þrautir lífsins bíða þín …
o.s.frv.“
Við hittumst aftur síðar, þegar
að lykla-Pétur opnar fyrir mér.
Ég mun alltaf elska þig, afi
Baldur.
Aldís Ósk Mir Snorradóttir,
Gunnar Róbert Walsh og
Klara Sól Mir Walsh.
Baldur var blíðastur, fegurst-
ur og ljúfastur allra goða í Ás-
heimum.
Afi Baldur var blíðastur, feg-
urstur og ljúfastur allra hér í
mannheimum.
Það eru þvílík forréttindi að
hafa fengið að ganga lífsins leið
með þér afi. Það er svo skrýtið að
vera að skrifa um þig minning-
arorð að ég ætla að skrifa þessi
orð til þín – ekki um þig.
Afi, þú kenndir mér svo ótrú-
lega margt, hinar dýrmætustu
lexíur og það eru ófáir frasarnir
sem eiga eftir að fylgja okkur
áfram og halda í heiðri minningu
þinni.
Ástin þín til hennar ömmu var
svo takmarkalaus. Þú kenndir
okkur hvernig á að elska skilyrð-
islaust.
Afi, þú elskaðir okkur, afleggj-
arana þína, börnin, barnabörnin
og barnabarnabörnin svo óum-
ræðanlega og varst svo stoltur og
áhugasamur um hvert og eitt
okkar.
Það verður alltaf hluti af þér,
varðveittur í okkur öllum. Ef að-
eins brotabrot af því hvernig þú
ert gerður, gæti speglast í mér,
þá yrði ég betri manneskja fyrir
vikið.
Allar sögurnar sem þú sagðir
okkur afi! Bæði sígild ævintýri
eins og Rauðhetta og Búkolla,
jafnvel með sex barnabörn sitj-
andi á lærunum á þér, stóreyg af
áhuga, eða sögur að vestan, æv-
intýri og hversdagssögur úr þínu
eigin lífi, þá var alltaf svo dásam-
legt að hlusta, enda ertu snilldar
framsögumaður.
Afi, þú ert líka svo góður
penni! Ég sagði þér það á spít-
alanum í einu af hinstu skiptun-
um okkar saman, þar sem ég las í
gegnum bréfin sem þú sendir
mér. Ég sagði þér líka hvað mér
þætti þú einstakur og þú sagðir:
„Ha, er það?“. Einlægnin og hóg-
værðin uppmáluð, alltaf svo eðli-
legur. Ein vinkona mömmu kall-
ar þig Salómon konung, enda
ertu réttlátur og sanngjarn,
svona eins og allir konungar
ættu að vera.
Það er svo margt við þig sem
snart fólk djúpt, afi. Það er svo
margt sem við áttum saman sem
skilur eftir svo mikinn kærleik
og þakklæti.
Ástkær sonur minn, bróðir, mágur
og frændi,
BJARKI ÞÓRHALLSSON,
Berjahlíð 2, Hafnarfirði,
lést á heimili sínu mánudaginn 12. júlí.
Útför verður auglýst síðar.
Þórhallur Ægir Þorgilsson
Baldur Þórhallsson Felix Bergsson
Ólöf Þórhallsdóttir Ármann Ingi Sigurðsson
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGIBJÖRG BECK
frá Reyðarfirði,
Lækjasmára 6, Kópavogi,
sem lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 28. júní,
verður jarðsungin frá Reyðarfjarðarkirkju miðvikudaginn
21. júlí klukkan 14. Minningarathöfn verður í Fossvogskapellu
mánudaginn 19. júlí klukkan 11.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hinnar látnu er bent á líknarfélög.
Bjarni Steingrímsson Ellen Rósa Jones
Páll Grétar Steingrímsson Kristjana Erlen Jóhannsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkæra og yndislega móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
RANNVEIG FILIPPUSDÓTTIR,
Hlíðarvegi 32, Reykjanesbæ,
áður Austurvegi 2, Vestmannaeyjum,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
mánudaginn 28. júní.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Ástvinir þakka starfsfólki HSS umhyggju og hlýhug.
Rannveig Þorvarðardóttir Þórarinn Arnórsson
Nína Brá, Styrmir Snær og Íris Hrund
Gunnar Þorvarðarson Hrafnhildur Hilmarsdóttir
Ægir Örn, Logi og Harpa
makar og langömmubörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÞÓRÐUR BERNHARÐ GUÐMUNDSSON,
Túngötu 15, Ólafsfirði,
sem lést sunnudaginn 11. júlí á
Sjúkrahúsinu á Akureyri, verður jarðsunginn
frá Ólafsfjarðarkirkju fimmtudaginn 22. júlí
klukkan 14.
Hólmfríður Vídalín Arngrímsdóttir
Arna Björk Þórðardóttir
Guðmundur F. Þórðarson Lilja Rós Aradóttir
Elís Hólm Þórðarson Hulda Teitsdóttir
og barnabörn
Móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÚN ÁRNADÓTTIR
þýðandi,
sem lést 9. júlí, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 20. júlí kl. 15.
Árni Óskarsson
Jóna Dóra Óskarsdóttir
Völundur Óskarsson
Aagot Vigdís Óskarsdóttir
Svanhildur Óskarsdóttir
Hrafnkell Óskarsson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr
minningargreinum til birt-
ingar í öðrum miðlum nema
að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Minningargreinar