Morgunblaðið - 15.07.2021, Page 46

Morgunblaðið - 15.07.2021, Page 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021 ✝ Ásthildur Lilja Magnúsdóttir fæddist í Hafnar- firði 8. janúar árið 1924. Hún lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 6. júlí 2021. Foreldrar henn- ar voru Ragnheið- ur Þorkelsdóttir kaupkona, f. 15.4. 1890, d. 25.3. 1961, og Magnús Magn- ússon, skipstjóri frá Skuld í Hafnarfirði, f. 25.7. 1890, d. 5.6. 1973. Systkini Ásthildar voru Þor- björg Ragna, f. 14.1. 1920, d. 7.11. 2017; Magnús Aldan, f. 10.10. 1921, d. 11.4. 2002; Guð- laugur Hafsteinn, f. 4.4. 1930, d. 4.3. 1950; og Ragnheiður Hadda, f. 28.9. 1934, d. 4.5. 2001. Eiginmaður Ásthildar var Gunnar Magnússon húsgagna- smiður, f. 6.9. 1921, d. 1.4. 1994. Foreldrar hans voru Sigríður Árný Eyjólfsdóttir húsmóðir, f. 21.3. 1897, d. 4.7. 1983 og Magn- Snær og Anna Rut. b) Gunnar, f. 22.11. 1973, í sambúð með Haf- dísi Viðarsdóttur. Sonur Gunn- ars er Róbert Nökkvi. c) Þröst- ur, f. 10.2. 1979, maki Kristín Garðarsdóttir, börn þeirra Berglind, Kristófer og Aníta. 3) Sigurður, f. 2.9. 1953. 4) Elín Marta, f. 1.1. 1955, d. 5.5. 1955. Að lokinni skólagöngu starf- aði Ásta Magg, eins og hún var jafnan nefnd, lengst af við versl- unarstörf. Hún sá m.a. um rekst- ur vefnaðarvöruverslunar Ragnheiðar Þorkelsdóttur að móður sinni látinni. Hún var virkur þátttakandi í félags- starfi, var um árabil í stjórn Vorboða, félags sjálfstæðis- kvenna, formaður kvenfélagsins Hringsins, í sóknarnefnd og kór Hafnarfjarðarkirkju, tók virkan þátt í skátastarfi í St. Georgsgildinu og var félagi í Sinawik, félagi kvenna í Kiw- anis. Ásta lék handbolta með Knattspyrnufélaginu Haukum og tók þátt í starfi eldri Hauka- félaga, þá var hún í mörg sumur kaupakona á Spóastöðum í Biskupstungum á sínum yngri árum. Útför fer fram frá Hafnar- fjarðarkirkju í dag, 15. júlí 2021, klukkan 15. ús Böðvarsson bak- arameistari, f. 13.7. 1887, d. 3.7. 1944. Ásthildur og Gunnar gengu í hjónaband hinn 9. júní árið 1945. Heimili þeirra var alla tíð í Hafnar- firði. Börn Ásthild- ar og Gunnars eru: 1) Ragnheiður, f. 10.10. 1945. Maki Ásgeir Bjarnason. Börn þeirra eru: a) Ásta Lilja, f. 21.2. 1975, maki Engilbert Hauksson, dóttir þeirra Ragnheiður Rán. b) Elín Marta, f. 18.1. 1979, í sambúð með Heiðari Jónssyni, dætur þeirra eru Ásta Svanhild og Þórunn Edda. c) Bjarni Gunnar, f. 8.8. 1982, maki Véldís Ragn- heiðardóttir. 2) Magnús, f. 29.10. 1950. Maki Elísabet Karlsdóttir, f. 10.8. 1952. Börn þeirra eru: a) Hrund, f. 15.9. 1970, maki Ingi Rafn Jónsson, börn þeirra Daníel Þór, unnusta Sandra Erlingsdóttir, Daði Elsku mamma. Hver skal hljóta, heiðurs stærsta óð, hverjum á að færa bezta ljóð. Svarið verður, bezta móðir blíð, bið ég Guð, hún verndist alla tíð. Það var hún, sem í heiminn fæddi mig. Það var hún, sem lagði allt á sig. Til að gera göfgan, hvern minn dag. Til að gæfan færðist mér í hag. Hún studdi mig, er stálpaður ei var, hún styrkti mig, og hlúði allstaðar. Nú skal gjalda, er gömul verður hún, græða sár, og slétta hverja rún. Elsku mamma, eigðu þakkar brag, undu hjá mér, fram á síðasta dag. Ég ætla að borga, bernskuárin mín, borga allt, og greiða sporin þín. Ég gef þér allt, er get af hendi misst, og gleðst með þér, af innstu hjartans list. Gefist þér, svo gleði fram á kvöld, Guð skal biðja, að lifir heila öld. (Eggert Snorri Ketilbjarnarson) Hjartans þakkir fyrir allt. Þín dóttir, Ragnheiður (Ransý). Nú sit ég hér og hugsa til elsku mömmu sem nú er farin frá okkur eftir langa og gæfuríka ævi. Hún ólst upp á Vesturbraut 13 í Hafnarfirði á myndarlegu heimili afa og ömmu þar sem reglusemi, hlýja og væntum- þykja foreldranna varð gott veganesti til farsællar framtíðar. Glæsileg, létt í spori, hláturmild og dugleg, með einstaklega þægilegt viðmót eru líklega orð sem hæfa best lýsingu á elsku mömmu. Hún elskaði lífið, fór ung í sveit, var kaupakona á Spóastöðum í Biskupstungum í mörg sumur og hélt alla tíð góðu sambandi við fólkið á Spóastöð- um. Ung giftist hún æskuástinni og samstíga voru þau í öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur á lífsleiðinni. Hún kraftmikil, bjartsýn og áræðin, hann rólegur og yfirvegaður, alveg forskriftin að góðu hjónabandi sem enda varð langt og hamingjuríkt. En þótt lífið hafi fært þeim gæfu urðu þau einnig að takast á við erfiðleika sem fylgdu þeim alla tíð. Fjórða barn þeirra, Elín Marta, sem fæddist í ársbyrjun 1955 lést aðeins fjögurra mánaða gömul og Siggi bróðir veiktist á fimmta ári sem hafði varanlegar afleiðingar á heilsu hans. Mamma, pabbi og Siggi bróðir héldu heimili saman alla tíð og samband þeirra var einstaklega einlægt og fallegt. Þau byggðu fallegt hús á Álfaskeiðinu og mamma naut þess að rækta garðinn sinn, sem m.a. var valinn fegurstur garða í Hafnarfirði. Hún var mikil félagsvera og ófá voru þau félögin sem hún tengd- ist í gegnum lífið, skátarnir, kirkjan, Sjálfstæðisflokkurinn, Haukarnir, Kiwanis, kórarnir, saumaklúbbarnir og þannig gæti ég sjálfsagt haldið áfram að telja. Söngurinn var henni alla tíð afar hjartfólginn og hún naut sín vel þar sem söngur og gleði ríkti. Mamma hafði sterka réttlætis- kennd, var ákveðin, gat verið nokkuð stíf en afar sáttfús. Hún var alla tíð einlægur stuðnings- maður Sjálfstæðisflokksins. Samband okkar mömmu var ein- stakt, einhver þráður sem tengdi okkur saman. Ég tók oft utan um hana, kitlaði hana gjarnan um mitti og hafði óskaplega gaman af hvernig viðbrögðin voru. „Æ, Maggi minn, láttu ekki svona,“ sagði hún gjarnan og hló síðan dátt. Pabbi lést árið 1994 og frá þeim tíma héldu mamma og Siggi saman heimili þar til þau fóru á Hrafnistu í Hafnarfirði ár- ið 2017. Mamma reyndi þar sem fyrr eftir mætti að huga að Sigga sínum. Mamma var á nítugasta og áttunda aldursári þegar hún lést. Hún naut alla tíð góðrar heilsu en síðustu árin var ald- urinn farinn að taka sinn toll. Það er gæfa hvers einstaklings að eiga góða foreldra sem ekkert er kærara en velferð barna sinna. Ég er einn þeirra sem geta þakkað forsjóninni fyrir að færa mig í hendur góðra for- eldra, foreldra sem elskuðu börnin sín, unnu landinu sínu, tóku virkan þátt í samfélaginu og voru góðir og gegnir einstakling- ar. Nú þegar kemur að leiðarlok- um kveð ég mömmu sem nú svíf- ur um í sumarlandinu, létt á fæti með söng á vörum, áhyggjulaus. Takk mamma mín fyrir allt sem þú veittir mér og fjölskyldunni allri. Magnús Gunnarsson. Elsku amma, nú er víst komið að kveðjustund. Amma var miklum persónu- töfrum gædd. Hún var glaðvær, brosmild og jákvæð og einstak- lega félagslynd og vinamörg. Hún hafði svo fallegt bros sem hún var ekkert að spara og hlát- ur sem gat hrifið alla með sér. Amma var stórglæsileg og falleg kona og vildi alltaf vera vel til fara. Ekki mátti vanta varalitinn eða naglalakkið og skartið og föt- in skyldu passa enda var hún svolítið pjöttuð. Þó var hún alltaf tilbúin að bretta upp ermar og fara í drullugallann og taka til hendinni ef á þurfti að halda. Amma var með eindæmum kraft- mikil, dugleg og drífandi og okk- ur fannst eins og hún gæti bók- staflega allt. Hún saumaði, prjónaði, bakaði dýrindisbak- kelsi og eldaði bestu fiskibollur í heimi. Amma var sterk, ákveðin og hugrökk, gat verið svolítið þrjósk og lá ekkert á skoðunum sínum, en einnig svo ljúf og góð- hjörtuð og sannkölluð fyrirmynd fyrir okkur krakkana. Amma var þekkt fyrir að vera mikill fagurkeri og hélt hún fal- legt og hlýlegt heimili ásamt afa Gunna á Álfaskeiðinu. Amma var með græna fingur og ræktaði hún garðinn sinn af einstakri natni, var með fallegar rósir í gróðurhúsinu og gulrætur í garð- inum ásamt ótal blómum og trjám. Það var alltaf gott að koma á Álfaskeiðið og þaðan eig- um við ótal minningar sem hlýja okkur nú. Amma var alltaf glöð að fá ættingja og vini í heimsókn af hvaða tilefni sem er og vorum við alltaf velkomin í kökubita og spjall. Á jóladag var hefð hjá ömmu og afa að bjóða okkur ætt- ingjunum í jólaboð þar sem boðið var upp á heitt súkkulaði með rjóma ásamt veitingum, tíu sortir af jólasmákökum, nýbakaðar brauðbollur með reyktum laxi og alls kyns kræsingar. Þetta var heilög stund sem var fastur punktur í tilverunni. Við söknum þín elsku amma. Þín barnabörn, Ásta Lilja, Elín Marta og Bjarni Gunnar. Elsku amma Ásta er látin, rúmlega 97 ára. Á kveðjustundu hellast minn- ingarnar yfir, sem gott er að ylja sér við. Ég man ekki eftir ömmu öðru- vísi en brosmildri og með mikið jafnaðargeð. Hún var kát að eðl- isfari, hafði mjög gaman af því að syngja og var mjög félagslynd. Ég man eftir afa Gunna, á meðan hann var á lífi, að skutla ömmu hingað og þangað til að sinna fé- lagsstörfum og öðrum erindum meðan hann, þessi rólyndismað- ur, beið þolinmóður eftir henni nú eða horfði á fótboltann í sjón- varpinu ef það var í boði. Amma var kirkjurækin og passaði upp á að ég færi alltaf með bænirnar og fór með okkur krakkana í sunnudagaskólann. Amma var í skátunum og ég var þess aðnjótandi, langt fram eftir aldri, að fá að fara í skátaskálann við Hvaleyrarvatn með ömmu og afa þar sem skátalögin ómuðu, jólasveinar komu fyrir jólin og við nutum samverustundanna. Minningar um sunnudagskaffi með nýbakaðri jólaköku, 17. júní- kaffi með pönnukökum og rjóma og íslenska fánanum, jólasúkkul- aðinu sem maður lærði fljótt að kalla ekki kakó og svo mætti lengi telja. Amma hafði tröllatrú á lýsi alla tíð og maður veltir því fyrir sér hvort það hafi kannski átt sinn þátt í langlífi og heilsu- hreysti hennar. Þegar maður veiktist var alltaf það fyrsta sem hún spurði hvort maður tæki nú ekki örugglega lýsi. Amma hafði unun af garð- yrkju og ég man vel eftir henni í garðinum á Álfaskeiðinu að dunda sér í garðinum, rækta blóm eða gróðursetja. Þegar minnst er á dalíur kemur amma upp í hugann en þær voru oft ansi fallegar hjá henni. Á Álfaskeiðinu var gjarnan farið í tískó þar sem við börnin fengum að fara í alls konar föt og halda svo tískusýningu fyrir full- orðna fólkið. Þetta þótti okkur einstaklega skemmtilegt. Amma var mikil sjálfstæðis- kona, sinnti starfi innan flokksins og skartaði stolt barmmerki hans. Ég man þegar við Ingi voru að byrja að slá okkur upp þá var hún nú fljótlega búin að spyrja hvort hann væri ekki örugglega sjálfstæðismaður! Amma lagði alltaf mikið upp úr því að líta vel út og ég efast um að hún hafi nokkurn tímann farið úr húsi ótilhöfð, án þess að setja að minnsta kosti upp varalit eða annað tilheyrandi. Varalit notaði hún enn 97 ára. Það eru forréttindi að hafa náð samfylgd við ömmu í yfir 50 ár og börnin mín átt og kynnst lang- ömmu sinni. Fyrir það er ég ein- staklega þakklát. Hennar stund var komin, farið að halla undan fæti þótt hún væri ótrúlega hress langt fram eftir aldri og stutt í brosið. Ég vil trúa því að hún sé nú sameinuð afa og njóti sumar- landsins með honum og öðrum ástvinum. Minningin um elsku ömmu með fallega brosið lifir áfram í hjörtum okkar. Hvíl í friði. Hrund Magnúsdóttir. Við andlát Ásthildar Magnús- dóttur er gengin ein af þeim hafnfirsku konum sem að eigin frumkvæði, samstarfi og ánægju lagði tíma sinn af mörkum til að halda úti félagslegu starfi í bæn- um. Ásta Magg, eins og hún var ávallt kölluð, var Hafnfirðingur í húð og hár, var dóttir Ragnheið- ar Þorkelsdóttur kaupkonu og Magnúsar Magnússonar skip- stjóra sem kenndur var við Skuld en Magnús var einn af stofnend- um skipstjóra- og stýrimanna- félagsins Kára í Hafnarfirði. Félagslyndið var henni í blóð borið og naut meðal annars Hringurinn og Sjálfstæðiskvenn- afélagið Vorboði krafta hennar um árabil. Þegar ég ung kom að félagsstarfi innan Vorboða á átt- unda áratug síðustu aldar hitti ég fyrir konur eins og Ástu sem urðu fyrirmyndir mínar í því að finna gleðina í sjálfboðastarfi og gera mér samhliða grein fyrir því hvað stæði að baki góðu fé- lagsstarfi. Á þessum árum rifj- uðu börn Vorboðakvenna oft upp þá tíma þegar verið var að baka á heimilunum og með vatn í munni var rokið heim til að fá sér góð- gæti. En þegar heim var komið var sagt „þú færð köku seinna, þessar eru fyrir Vorboðann“ og kökurnar bornar út í bíl. Ásta tók þátt í öllu því er kom að und- irbúningi funda, hvort heldur þeir voru um landsmál, bæjar- mál, jólafundir eða til móttöku gesta frá framkvæmdastjórn Sjálfstæðisflokksins eða annarra. Flest alla happdrættisvinninga á jólafundi gáfu félagskonur sjálf- ar til styrktar félaginu. Basarar voru hluti fjáröflunar og sala happdrættismiða fyrir flokkinn. Ómetanleg vinna var lögð fram til eflingar öllu starfi innan Sjálf- stæðisflokksins í Hafnarfirði. Ástu voru falin trúnaðarstörf meðal annars með setu í stjórn Vorboða, fulltrúaráði og var margoft kosin fulltrúi á Lands- fund. Skoðunarmaður reikninga Vorboða var hún á meðan heilsan leyfði. Þegar ég hugsa til Ástu sé ég hana með sitt blíða bros leggj- andi eitthvað gott til málanna. Hún sagði mér eitt sinn í spjalli um lífið og tilveruna og börn hennar og maka, hversu heppin hún hefði verið með hann Gunna sinn, hann hefði verið góður mað- ur og svo hafi hann verið svo sætur. Við þá minningu kom blik í auga og andlit hennar ljómaði af þakklæti fyrir fyrri tíma. Elsku Rannsý, Maggi, Siggi og fjölskyldur, við Böddi vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Ásthildar Magnúsdóttur. Valgerður Sigurðardóttir. Ásthildur Lilja Magnúsdóttir Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar RANNVEIGAR G. KRISTJÁNSDÓTTUR frá Bolungarvík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hjúkrunarheimilisins Eirar 3n. Rannveig K. Stefánsdóttir Ögmundur Gunnarsson Tryggvi Stefánsson Sirrý Halla Stefánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, VILHJÁLMS ÓSKARSSONAR. Elínborg Proppé Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé Magnús Orri M. Schram Gunnar Þór Vilhjálmsson Villi, Mía og Ragnheiður Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför elsku bestu mömmu okkar, tengdamömmu, dóttur og systur, SVEINBJARGAR RÓSALINDAR ÓLAFSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknarþjónustu Heru ásamt starfsfólki Landspítalans. Jóhann Ó. Sveinbjargarson Lovísa M. Kristjánsdóttir Lovísa Margrét Kristjánsd. Viktor Freyr Arnarson Ólafur Haraldsson Jóna Margrét R. Jóhannsd. Árni Brynjar Ólafsson Gunnþórunn Sara Brynjarsd. Haraldur Óli Ólafsson Sigrún Sigurhjartardóttir Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma, dóttir og systir, ELÍSABET GUÐMUNDSDÓTTIR, Djúpavogi, lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum laugardaginn 10. júlí. Hún verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 19. júlí klukkan 13. Athöfninni verður einnig streymt í Djúpavogskirkju. Emil Karlsson Guðmunda Bára Emilsdóttir Svavar Þrastarson Fanný Dröfn Emilsdóttir Elísabet Svavarsdóttir Katrín Svavarsdóttir Sigurbjörg Kristinsdóttir og systkini Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar okkar ástkæra GUÐJÓNS GUÐMUNDSSONAR, Stekkjargötu 21, Reykjanesbæ, sem lést 18. júní og var jarðsunginn 30. júní. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á krabbameinsdeild 11E á Hringbraut, Brynjar Viðarsson læknir og sr. Erla Guðmundsdóttir prestur í Keflavíkurkirkju. Kristín Hannesdóttir Kristín Guðjónsdóttir Gísli Stefán Sveinsson Hildur Guðjónsdóttir Arnar Snæberg Jónsson Geir Rúnar Birgisson Laufey Ólafsdóttir Hrafnhildur Birgisdóttir Þórarinn Kristjánsson barnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.