Morgunblaðið - 15.07.2021, Page 53

Morgunblaðið - 15.07.2021, Page 53
DÆGRADVÖL 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021 www.gilbert.is J S W AT CH CO .REYK JAV K „HVAÐ KOSTAR KASSINN?“ „JEMINN EINI! HÉR SÉ ÉG AÐ EFTIR MÁNUÐ RUKKA ÉG TVÖ ÞÚSUND KRÓNUM MEIRA FYRIR LESTURINN.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að passa upp á hvort annað. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann GRETTIROG ÉG BÖKUÐUM PIPARKÖKUR VILTU SMAKKA? JÁ, JÁ! VIÐ NOTUÐUM PIPAR- KÖKUFORMIN MÍN LÆKNIR! ER EITTHVAÐ AÐ MÉR?! JÁ! KJAFTURINN Á ÞÉR! ÉG GET EKKI EINBEITT MÉR ÞEGAR ÞÚ HRÓPAR! HLAUPASKÓR ar England tapar leik. Þetta fannst tæplega 13 ára syni mínum mjög merkilegt.“ Þegar Hildur er ekki að berjast fyrir málstaðnum hefur hún mikla ánægju af hinu þjóðlega spili Skrafli og hún er í stjórn Skraflfélags Ís- lands. „Skrafl er stórkostleg skemmt- un og hefur notið aðeins meiri vin- sælda undanfarin ár með tilkomu netskraflsins.“ Við höldum Íslands- mót árlega í raunheimum, mér hefur aldrei tekist að vinna enn þá en hef lent í öðru og þriðja sæti.“ Fjölskylda Maki Hildar er Páll Hilmarsson, f. 8.5. 1976, gagnasérfræðingur hjá Reykjavíkurborg, og þau búa í Þing- holtunum í Reykjavík. Foreldrar Páls eru hjónin Hilmar Hilmarsson, f. 25.1. 1955, og Helga Björnsdóttir, f. 26.3. 1956, og þau búa í Breiðholtinu. Áður var Hildur í sambúð með Ólafi Ingibergssyni, f. 31.10. 1979, sérfræðingi á umhverfis- og skipu- lagssviði Reykjavíkurborgar. Synir Hildar eru 1) Sævar Ólafsson, f. 3.8. 2000, vinnur hjá Garra og er í sambúð með Önnu Sigríði Sigurðardóttur, 2) Hrappur Birkir Pálsson, f. 14.7. 2008, stefnir á atvinnumennsku í körfu- bolta. Systkini Hildar eru 1) Karl Lillien- dahl Viggósson, f. 3.7. 1984, lag- erstjóri í Kópavogi; Vala Hrönn Viggósdóttir, f. 30.8. 1971, lögfræð- ingur í Reykjavík, og Orri Viggósson, f. 12.7. 1969, býr í Breiðholti. Foreldrar Hildar eru hjónin Viggó Bragason, f. 4.11. 1942, fv. loftskeyta- maður í Gufunesradíói, og Hulda Lilliendahl, f. 3.4. 1958, fv. sérfræð- ingur í atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytinu. Þau búa í Laugarásnum í Reykjavík. Hildur Lilliendahl Viggósdóttir Guðný Hulda Káradóttir Lilliendahl símamær og húsfreyja, Akureyri og Reykjavík Theódór Lilliendahl símritari, Akureyri og Reykjavík Karl Th. Lilliendahl hljóðfæraleikari, Reykjavík Hermína Jónasdóttir Lilliendahl sjúkraliði, Reykjavík Hulda Lilliendahl sérfræðingur, Reykjavík Kristín Steingrímsdóttir húsfreyja, Siglufirði Jónas Halldórsson rakarameistari, Siglufirði Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja,A-Húnavatnssýsla Agnar Bragi Guðmundsson bóndi, A-Húnavatnssýsla Bragi Agnarsson skipstjóri og rannsóknar- stofumaður, Reykjavík Steinunn Jónsdóttir húsfreyja, Reykjavík Hildur Sigurðardóttir húsfreyja á Hellissandi, Ingjaldshólssókn, Snæf. Jón Valdimar Jóhannesson formaður á Hellissandi, Ingjaldshólssókn, Snæf. Úr frændgarði Hildar Lilliendahl Viggósdóttur Viggó Bragason loftskeytamaður,Reykjavík Sem ég skrifa þetta Vísnahorn á þriðjudagsmorgni er ég á för- um norður í Brekku í Skagafirði og þótti skemmtilegt að sjá þennan póst frá Ingólfi Ómari Ármannssyni á Boðnarmiði gærdagsins: „Skrapp í Skagafjörð um helgina, þar var 20 stiga hiti, annað en hér syðra. Þegar ég var að aka niður af Vatns- skarðinu rifjaðist upp fyrir mér vísa sem ég gerði einu sinni að vori til. Hlýnar tíðin brosa ból blómin skrýða völlinn. Geislum blíðum baðar sól Blönduhlíðarfjöllin. Halldór Halldórsson skrifar: „Þegar ég kom fyrst að Syðra-Seli voru enn svokallaðir „vagnhestar“; klárar sem höfðu kynnst öllu sem var að kunna í búfræði! Þeir tóku þó vel á móti snáðum, sem fannst þeir vera Roj og Trigger; þegar valhoppað var eftir beljunum! Var á Syðra-Seli best og sælast meðal barna, er fékk í fangið eðalhest og fór’á bak á Stjarna! Þessi póstur Halldórs rifjar upp fyrir mér æskuár mín í Litlu- Sandvík í Flóa. Þar var líka hest- urinn Stjarni og Jarpur, sem ég fór á þegar ég færði fólkinu matinn nið- ur á Mýri, austan við þjóðveginn nokkru fyrir neðan Stekka. Sem ég sat á klyfberanum á baki Jarps horfði ég á kjóann elta kríu og ná af henni sílunum, sem hún ætlaði að færa ungum sínum. Þá orti ég, kannski mína fyrstu vísu: Sækir hún í hreiðrið björg í hafið er langt að fara. Fer í kjaftinn kjóans mörg kræsing fuglsins snara. Magnús Halldórsson dregur upp nýtt sjónarhorn og óvænt: Förgun á sorpi er feiknalegt mál, fjölmörg það dæmi hér sanna. Svo einnota pakkningar utan um sál ætti því drottni að banna. Jón Atli Játvarðarson svarar og segir: „Þessi datt inn sem svar- færsla. Læt hana standa sem full- burða þráð“: Friðlýsir auðnirnar klókur og kænn, keppist við málum að loka. Umhverfisráðherrann einnota, grænn okkur nú treður í poka. Halldór Guðlaugsson orti 9. júlí kl. 08.20: Ekki sést í gígnum glóð gufur upp þó stígi undir skorpu er víst flóð eins og köttur mígi. En síðar um daginn sagði hann: Allt er breytt sem áður var eldar gígsins brenna hraunstraumar til háðungar höfundi nú renna. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Sólin baðar Blönduhlíðarfjöllin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.