Morgunblaðið - 15.07.2021, Blaðsíða 55
ÍÞRÓTTIR 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021
Þrjú íslensk karlalið eiga
leik í 1. umferð Sambandsdeildar
Evrópu í dag og í kvöld. Eftir
slakan árangur síðustu ár í Evr-
ópukeppnum er það nauðsynlegt
að góður árangur náist hjá lið-
unum í kvöld og þau tryggi sér
sæti í 2. umferð keppninnar.
Sem kunnugt er missti Ís-
land eitt af Evrópusætum sínum
fyrir yfirstandandi tímabil eftir
mögur úrslit íslenskra liða. Ár-
angurinn hefur raunar verið svo
slæmur að íslenska úrvalsdeildin
er í fjórða neðsta sæti á styrk-
leikalista knattspyrnusambands
Evrópu, UEFA, yfir sterkustu
deildir Evrópu.
Aðeins Eistland, Andorra og
San Marínó hafa yfir lakari efstu
deildum að skipa í Evrópu og eru
lönd eins og Gíbraltar, Færeyjar
og Moldóva með sterkari deildir
samkvæmt styrkleikalistanum.
Það verður að teljast nokkuð
neyðarlegt en þeim þjóðum sem
ekki hefur tekist að komast í
riðlakeppni Evrópudeildarinnar
fer stöðugt fækkandi. Lið frá
Lúxemborg, Moldóvu, Armeníu,
Írlandi, Albaníu og Norður-
Makedóníu hafa á undanförnum
árum komist í riðlakeppnina.
Vissulega kemur þar til
mikið fjármagn í einhverjum
þessara tilfella en fyrir nokkrum
árum stefndi FH ótrautt þangað
þegar alvöru, dýrir atvinnumenn
á við Eddi Gomes og Brand Olsen
voru fengnir til félagsins.
Sú áætlun gekk ekki upp en
ég viðurkenni það fúslega að ég
hefði viljað sjá FH eða eitthvert
annað íslenskt lið þokast nær.
Það var síðast árið 2014 sem
Stjarnan komst alla leið í 4. og
síðustu umferð undankeppni
Evrópudeildarinnar en ekkert ís-
lenskt karlalið hefur leikið það
eftir síðan. Í kvöld þætti mér því
vænt um að sjá íslensku liðin
leggja grunn að betri árangri í
Evrópukeppnum í náinni framtíð.
BAKVÖRÐUR
Gunnar Egill
Daníelsson
gunnaregill@mbl.isGuðbjörg Gunnarsdóttir, fyrrver-
andi landsliðsmarkvörður í knatt-
spyrnu, og sambýliskona hennar,
Mia Jalkerud, eru á förum frá
norska úrvalsdeildarfélaginu Arna-
Björnar eftir að hafa leikið með því
í hálft ár. Samningur þeirra, sem
þær gerðu í janúar, var til tveggja
ára en þær hafa nú fengið honum
rift og yfirgefa félagið eftir næsta
leik þess, sem er um næstu helgi.
Guðbjörg skýrði frá ákvörðuninni á
Twitter og greindi frá að tvíbura-
börn þeirra hafi ekki fengið pláss á
leikskóla sem hafi gert erfitt fyrir.
Guðbjörg rifti
samningnum
Morgunblaðið/Eggert
Noregur Guðbjörg Gunnarsdóttir
hefur rift samningi sínum.
Sleggjukastarinn Elísabet Rut Rún-
arsdóttir og hástökkvarinn Krist-
ján Viggó Sigfinnsson gætu bland-
að sér í baráttu um verðlaunasæti á
Evrópumeistaramóti U20 ára í
frjálsíþróttum sem hefst í Tallinn í
Eistlandi í dag. Árangur þeirra
skipar þeim fremstu röð meðal
keppenda á mótinu. Undankeppnin
hjá Kristjáni fer fram í dag en á
morgun er undankeppni hjá El-
ísabetu, sem og hjá Evu Maríu
Baldursdóttur sem keppir í há-
stökki. Keppt er til úrslita í grein-
unum um helgina.
Berjast þau um
verðlaun á EM?
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Tallinn Elísabet Rut Rúnarsdóttir er
Íslandsmethafi í sleggjukasti.
M-GJÖFIN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þrír leikmenn eru efstir og jafnir í
einkunnagjöf Morgunblaðsins, M-
gjöfinni, í úrvalsdeild karla í fótbolta
þegar keppni er um það bil hálfnuð.
Nikolaj Hansen, sóknarmaður úr
Víkingi, Kristinn Jónsson, vinstri
bakvörður KR-inga, og Orri Hrafn
Kjartansson miðjumaður Fylkis-
manna hafa allir fengið samtals 10 M
fyrir frammistöðu sína í leikjum
sinna liða.
Orri Hrafn hefur leikið ellefu af
tólf leikjum Fylkis, tíu þeirra í byrj-
unarliði, en þeir Hansen og Kristinn
hafa báðir leikið alla tólf leiki sinna
liða í byrjunarliði.
Orri hefur einu sinni fengið tvö M,
þrisvar verið valinn í lið umferð-
arinnar og átta sinnum fengið eitt
M.
Hansen hefur tíu sinnum fengið
eitt M og fékk þau í tíu leikjum Vík-
ings í röð, frá annarri til elleftu um-
ferðar. Hann hefur tvisvar verið val-
inn í lið umferðarinnar.
Kristinn hefur einu sinni fengið
tvö M og átta sinnum eitt M en hann
hefur einu sinni verið í liði umferð-
arinnar.
Chopart á hælum þeirra
Kennie Chopart, hægri bakvörður
KR-inga, er á hælum þremenning-
anna en hann hefur spilað tíu af tólf
leikjum Vesturbæjarliðsins og feng-
ið samtals 9 M í einkunnagjöfinni.
Eftirtaldir leikmenn úr liðunum
tólf hafa fengið fimm M eða fleiri í
deildinni á þessu keppnistímabili.
Fjögur lið hafa leikið ellefu leiki en
hin átta liðin tólf leiki. Í svigum má
sjá hve mörg M samtals hvert lið
hefur fengið og leikjafjöldann fyrir
aftan skástrikið:
Valur (65/12)
8 Rasmus Christiansen
7 Kristinn Freyr Sigurðsson
7 Sebastian Hedlund
6 Patrick Pedersen
6 Sigurður Egill Lárusson
5 Birkir Heimisson
5 Hannes Þór Halldórsson
Víkingur R. (58/12)
10 Nikolaj Hansen
6 Kári Árnason
5 Þórður Ingason
5 Pablo Punyed
Breiðablik (59/11)
8 Höskuldur Gunnlaugsson
8 Kristinn Steindórsson
7 Viktor Karl Einarsson
6 Árni Vilhjálmsson
5 Gísli Eyjólfsson
5 Thomas Mikkelsen
KR (62/12)
10 Kristinn Jónsson
9 Kennie Chopart
6 Atli Sigurjónsson
5 Kjartan Henry Finnbogason
5 Beitir Ólafsson
KA (52/11)
7 Brynjar Ingi Bjarnason
7 Steinþór Már Auðunsson
7 Hallgrímur Mar Steingrímsson
6 Þorri Mar Þórisson
5 Rodrigo Gómez
Fylkir (48/12)
10 Orri Hrafn Kjartansson
6 Djair Parfitt-Williams
5 Helgi Valur Daníelsson
5 Orri Sveinn Stefánsson
Leiknir R. (51/12)
8 Brynjar Hlöðversson
7 Sævar Atli Magnússon
7 Bjarki Aðalsteinsson
6 Daníel Finns Matthíasson
5 Guy Smit
Keflavík (53/11)
8 Joey Gibbs
7 Sindri Kristinn Ólafsson
6 Ástbjörn Þórðarson
5 Magnús Þór Magnússon
5 Frans Elvarsson
Stjarnan (49/12)
6 Haraldur Björnsson
5 Tristan Freyr Ingólfsson
5 Brynjar Gauti Guðjónsson
5 Eyjólfur Héðinsson
FH (45/11)
8 Ágúst Eðvald Hlynsson
6 Þórir Jóhann Helgason
5 Guðmundur Kristjánsson
5 Matthías Vilhjálmsson
5 Jónatan Ingi Jónsson
HK (48/12)
6 Guðmundur Þór Júlíusson
6 Birnir Snær Ingason
5 Birkir Valur Jónsson
5 Martin Rauschenberg
ÍA (35/12)
6 Alexander Davey
M-gjöfin
Íþróttafréttamenn Morgunblaðs-
ins eru á öllum leikjum í úrvalsdeild
karla, lýsa þeim beint á mbl.is og
fjalla um þá þar.
Í Morgunblaðinu eru birtar yf-
irlitsgreinar ásamt M-gjöfinni sem
er á þessa leið:
_ 3 M fær leikmaður fyrir frábær-
an leik, betur verður vart gert hér á
landi.
_ 2 M fær leikmaður fyrir að eiga
mjög góðan leik.
_ 1 M fær leikmaður fyrir að eiga
góðan leik. Þarf að vera yfir með-
allagi til að fá M.
Orri, Kristinn og Hansen
eru efstir í M-gjöfinni
- Allir með samtals 10 M þegar keppni í úrvalsdeild karla er um það bil hálfnuð
Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason
10 M Nikolaj Hansen er 28 ára danskur sókn-
armaður sem hefur leikið alla 12 leiki Víkinga.
Morgunblaðið/Eggert
9 M Kennie Chopart er 31 árs
danskur hægri bakvörður KR-inga.
Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason
10 M Orri Hrafn Kjartansson er 19 ára gamall
miðjumaður sem hefur leikið 11 leiki Fylkis.
Morgunblaðið/Eggert
10 M Kristinn Jónsson er þrítugur vinstri bak-
vörður sem hefur leikið alla 12 leiki KR.
Lengjudeild kvenna
HK – Víkingur R ...................................... 2:2
Grindavík – Afturelding .......................... 1:0
ÍA – Grótta ................................................ 0:2
Staðan:
KR 9 7 1 1 25:11 22
FH 10 6 2 2 20:9 20
Afturelding 10 5 4 1 23:11 19
Víkingur R. 10 3 4 3 18:18 13
Grótta 10 4 1 5 15:18 13
Haukar 10 3 3 4 14:15 12
ÍA 10 3 1 6 9:22 10
HK 9 2 3 4 13:20 9
Grindavík 10 1 5 4 12:18 8
Augnablik 8 1 2 5 10:17 5
Meistaradeild karla
1. umferð, seinni leikir:
Legia Varsjá – Bodö/Glimt ........... 2:0 (5:2)
- Alfons Sampsted lék allan leikinn með
Bodö/Glimt.
Kairat Almaty – Maccabi Haifa...... 2:0 (3:1)
Alashkert – Connah’s Quay ............ 1:0 (3:2)
Neftchi Bakú – Dinami Tbilisi ........ 2:1 (4:2)
_ Samanlögð úrslit í svigum. Sigurlið fara í
2. umferð Meistaradeildar en taplið í 2. um-
ferð Sambandsdeildar.
Noregur
Lilleström – Vålerenga........................... 1:1
- Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn með Vålerenga. Amanda Andradóttir
kom inn á sem varamaður á 71. mínútu.
_ Staðan: Rosenborg 24, Sandviken 22,
Vålerenga 19, Lilleström 19, Arna-Björnar
7, Lyn 7, Avaldsnes 6, Kolbotn 6, Klepp 6,
Stabæk 4.
4.$--3795.$
Vináttulandsleikir karla
Bandaríkin – Argentína ..................... 108:80
Ástralía – Nígería............................... 108:69
4"5'*2)0-#