Morgunblaðið - 15.07.2021, Síða 56

Morgunblaðið - 15.07.2021, Síða 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021 arfsmannafatnaður rir hótel og veitingahús Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | www.eddaehf.is Hótelrúmföt kristin@run.is | Starfsmannafatnaður thorhildur@run.is Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Hótelstjórnandann Hótelrúmföt Sérhæfum okkur í sölu á rúmfatnaði og öðru líni fyrir hótel Ferðumst innanlands í sumar Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Hjálmar var alveg sér á parti sem hagyrðingur, hann var öðruvísi en allir aðrir. Hann hafði ótrúlega mikið vald bæði á tungumálinu og brag- forminu,“ segir Ragnar Ingi Aðal- steinsson, annar ritstjóri bókarinnar Ekki var það illa meint. Sú bók geymir ljóð og lausavísur eftir Hjálmar Freysteinsson, en hann lést á síðasta ári. Hjálmar var læknir á Akureyri og landskunnur hagyrð- ingur. Hann hafði orð á sér fyrir að vera skáld hláturs og gleði, enda sér- lega lunkinn við að koma fólki í gott skap með vísum sínum. Hann fór á kostum á hagyrð- ingamótum og kastaði þá oft fram galgopaleg- um kersknivísum. Hann var þó aldr- ei rætinn eða klúr, heldur bara skemmtilegur. „Hjálmar gat alltaf séð ein- hverja nýja hlið á því sem hann orti um. Einhvern tíma var rætt um rjúpnaveiði og veiðileyfi eða veiðitímabil í því sambandi og rjúpnaveiðimenn voru eitthvað ósáttir. Þá orti Hjálmar: Heimsins böl og hörku þekki, hér er nóg af fólunum. Eitt er víst, ég vildi ekki vera rjúpa á jólunum. Þannig gat hann alltaf látið sér detta í hug nýja og skondna hlið á málunum. Þetta geta ekki nema ein- staka menn. Við vorum held ég öll sammála um það í hagyrðinga- samfélaginu að Hjálmar væri best- ur.“ Ortu hver um annan þveran Ragnar Ingi segir að Hjálmar hafi alist upp í mikilli vísnahefð og að for- feður hans hafi verið hagyrðingar. „Hjálmar var fæddur í Vagn- brekku í Mývatnssveit og ólst þar upp. Freysteinn faðir hans var einn af þeim sem voru stöðugt með vísur á vörum og móðir hans gat vel sett saman vísu þó að hún veifaði því ekki mikið. Hjálmar móðurafi hans var líka ágætur hagyrðingur og þekktur sem slíkur. Hjálmar sá var bóndi þar og um hann orti Guðmundur Frí- mann þekkt kvæði sem heitir Fiðl- arinn í Vagnbrekku. Svo ortu þeir hver um annan þveran Þingeying- arnir, Hjálmar óx upp inn í þessa hefð. Hann byrjaði mjög snemma sem krakki að setja saman vísur og vann til verðlauna fyrir hagmælsku öll fjögur árin sín í Menntaskólanum á Akureyri, þar sem við vorum sam- nemendur. Hann var alltaf svo skemmtilegur og fyndinn og fljótur að smella hugsun sinni saman í vísur. Fyrir vikið fóru þær margar á flug og lifa,“ segir Ragnar Ingi og bætir við að Hjálmar hafi svipaða stöðu og Káinn, vísur hans eru þannig að þær verða hluti af þjóðararfinum. „Þetta liggur í því að braghefðin er samofin vitund okkar, við erum búin að læra alls konar kveðskap og þekkjum hann úr öllum hornum. Það er búið að yrkja alla Íslandssöguna í gegn. Snillingarnir, sem kunna svona vel að fara með braghefðina og geta svo sett þar inn alls konar útúr- snúninga eða fyndin sjónarhorn, inn- an þessa meitlaða forms, þeir hafa alltaf þótt svo ótrúlega skemmti- legir. Ég hef oft nefnt sem dæmi vísu eftir Hjálmar sem hann orti þegar hann var í Menntaskólanum á Akur- eyri: Ef þú vilt bera þitt barr best þér reynast mun að spara og nota Sparr í sperrur og einangrun. Þessi vísa er auðvitað endileysa endanna á milli en hún smellur al- gjörlega bragfræðilega. Þeir sem hafa sans fyrir hefðbundnum brag grípa strax hvað þetta er vel ort og hljómar fallega, en svo kemur í ljós að efnið er bara tóm vitleysa frá grunni. Þetta finnst okkur fyndið.“ Ragnar Ingi segir að Hjálmar hafi líka ort alvarlegri kvæði. „Þegar Hákon bróðir minn féll frá fyrir aldur fram, en hann var þekkt- ur hagyrðingur og skáld, þá orti hag- yrðingasamfélagið um hann heilu kvæðin, hvert öðru fallegra. Hjálmar gerði hins vegar eina vísu sem kjarn- aði það sem skipti máli: Megi ljóð þau lifa og vaka er las hann sinni þjóð, um hann verður engin staka alveg nógu góð. Þetta er auðvitað algjör snilld. Hann gat vel verið tilfinningaríkur í kveðskap sínum, þótt hann hafi gert minna af því. Hann festist í grallara- skapnum. Hann var svo fyndinn og fólki fannst þetta svo skemmtilegt. Hann lá undir stöðugum þrýstingi að gera meira, það var beðið eftir vísum frá honum. Og sem betur fer þá hélt hann sig við grínið. Nú eigum við tvöhundruð og sextíu blaðsíðna bók af þessu óborganlega efni frá Hjálm- ari. Við megum ekki líta svo á að slíkt efni sé lítils virði, enda sagði hann sjálfur að ráðlagður dag- skammtur gegn ólund væri ein limra tvisvar á dag. Skemmtilegar og gleðjandi vísur eru geðbætandi og það er mikils virði. Maður er ekkert að gera lítið úr annars konar kveð- skap með því að halda þessu til haga.“ Sprenging í vísnagerðinni Ragnar Ingi hefur engar áhyggjur af því að fólk hætti að setja saman vísur. „Ég held úti tímariti sem heitir Stuðlaberg og þar reyni ég að skrifa um nýjar bækur með hefðbundnum ljóðum. Þetta eru stuttar umfjallanir fyrir lesendur mína og á hverju ári undanfarið hef ég fjallað um tíu til fimmtán slíkar bækur, svo ég hef engar áhyggjur af framtíðinni. Það hefur orðið sprenging í vísnagerð- inni, þetta er orðið svo vinsælt aftur. Ég er að kenna bragfræði út um allt og alltaf að fá beiðnir um að lesa yfir kveðskap. Hefðbundna ljóðið er á mikilli siglingu, það er á fullri ferð upp á við,“ segir Ragnar Ingi og bætir við að Kvæðamannafélagið Ið- unn hafi haldið úti á netinu litlu hag- yrðingmóti einu sinni í hverjum mánuði meðan heimsfaraldur kom í veg fyrir mannfagnaði. „Og nú fara hagyrðingamótin að byrja aftur. Þar er alltaf húsfyllir því fólk hefur svo gaman að þessu. Bókaútgáfan Sæmundur ætlar að gefa út kvæði Kristjáns Runólfs- sonar og við stefnum á mikið hagyrð- ingamót og útgáfuhóf í haust í tilefni af því.“ Hann var skáld hláturs og gleði - „Hjálmar gat alltaf séð einhverja nýja hlið á því sem hann orti um,“ segir Ragnar Ingi Aðalsteins- son, annar ritstjóri nýrrar bókar sem geymir ljóð og lausavísur eftir Hjálmar Freysteinsson Morgunblaðið/Hari Ragnar Ingi „Hjálmar hafði ótrúlega mikið vald bæði á tungumálinu og bragforminu. Hann var alveg sér á parti.“ Hjálmar Freysteinsson Eintak af tölvuleiknum Super Mario 64, enn í plasti og óupptekið, var selt fyrir eina og hálfa milljón dollara, jafnvirði 188 milljóna króna, á upp- boði í uppboðshúsinu Heritage Auct- ions í Dallas á dögunum. Er leikurinn þar með orðinn sá dýrasti í sögunni, að því er fram kemur í frétt The Guardian. Eintakið er frá árinu 1996 og eitt af fimm í heiminum sem enn eru í svo góðu ástandi. Leikurinn er einn sá vinsælasti í sögu tölvuleikja og hann- aður fyrir Nintendo 64-leikjatölvuna á sínum tíma. Var hann sá fyrsti í leikjaþrívídd sem gerir hann afar merkilegan. Má að miklu leyti þakka leiknum gríðarmikla sölu á leikjatölv- unni á sínum tíma. Valarie McLeckie, sérfræðingur í tölvuleikjum hjá upp- boðshúsinu, segir leikinn skipa mik- ilvægan sess í tölvuleikjasögunni. Fyrra met hvað kaupverð varðar átti tölvuleikurinn The Legend of Zelda frá árinu 1988 en eintak af honum var selt tveimur dögum fyrr á 870 þúsund dollara. Var það sama uppboð og Mario-leikurinn var seldur á og segir McLeckie það hafa komið skipuleggj- endum uppboðsins verulega á óvart. Átti enginn von á því að Mario- leikurinn yrði keyptur fyrir meira en milljón dollara og hvað þá eina og hálfa. AFP Fokdýr Super Mario 64-leikurinn var seldur á 1,5 milljónir dollara. Super Mario 64 dýrasti tölvuleikur sögunnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.