Morgunblaðið - 15.07.2021, Qupperneq 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 2021
www.danco.is
Heildsöludreifing
Vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is
Glervasi
Matt Brown
25 cm
Stóll Teakwood
80x60x70 cm
Viðarborð Suar
30x120x80 cm
Blómapottur Fílar
2 teg. 27 cm
Hengiplöntur
10x43 cm - 2 teg.
Spegill Willow
gylltur 112 cm
Plume
Strá í
búnti
2 teg.
80 cm
Körfusett 3 stk.
40/34/29 cm
Planta Agave
25x32 cm
Blómapottur Munkur 3 teg. Brown
Pottasett
Wave Dökkt 30/24 cm
Járnhilla
30x120x86 cm
Glerbox Antique
10x6x17 cm
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Raftónlistarmaðurinn Árni Grétar
Jóhannesson, sem innan raftónlist-
argeirans er helst þekktur undir
nöfnunum Futuregrapher og Árni²,
og breski raftónlistarmaðurinn Lee
Norris hafa tekið höndum saman
undir nafninu World Circuit og sent
frá sér plötuna Desolate Snow
Roads.
Árni segir að tónlistina á plötunni
megi einfaldlega kalla raftónlist á
íslensku en á ensku segir hann að
hægt væri að kalla þetta allt frá
„electronic“ yfir í „ambient“, sem
stundum hefur verið þýtt sem sveim-
tónlist, og jafnvel „acid“ eða sýru,
þar sem notaður er bassaheili sem
framkallar þetta svokallaða sýru-
hljóð.
Hægt er að dansa við tónlistina á
plötunni ef viljinn er fyrir hendi en
Árni segir þó að tónlist þeirra megi
frekar kalla hlustunarraftónlist.
„Maður á bara að setja þetta á fón-
inn, hlusta og njóta þess að vera til.
Kannski lesa góða bók eða bara
slappa af. Þetta er svona svipað og
djasstónlistin er fyrir djassunn-
endur.“
Þykja goðsagnakenndar
Lee Norris er að sögn Árna mjög
þekktur í raftónlistarheiminum, sér-
staklega innan þeirra tegunda raf-
tónlistar sem þeir tveir vinna mest
að. Norris hafi verið að gera tónlist í
um þrjátíu ár og útgáfur hans þyki
goðsagnakenndar. Hann er meðal
annars þekktur undir nafninu Meta-
matics sem og Norken sem er mjög
þekkt nafn í „deep house“-geiranum.
„Við erum búnir að vera vinir í nokk-
ur ár og höfum svo sem unnið eitt-
hvað saman áður, en þetta er fyrsta
stóra verkefnið. Ég er persónulega
mjög ánægður með að hafa gert eitt-
hvað með honum. Ég hef alltaf litið
upp til hans þannig að fyrir mér er
þetta mjög stórt skref. Þó svo hans
nafn sé kannski ekkert frægt fyrir
hinn almenna tónlistarneytanda þá
er þetta nafn mjög stórt í okkar
geira.“
Desolate Snow Roads er gefin út
af plötuútgáfunni Fantasy Enhanc-
ing, bæði á geisladiski og stafrænt.
„Það er nefnilega málið að þó svo að
geisladiskurinn sé í rauninni dautt
format hjá flestum eru margir sem
eru að hlusta á þessa tegund af tón-
list enn að safna geisladiskum og eru
að setja þá á fóninn. Geisladiskurinn
lifir góðu lífi hjá sumum,“ segir Árni.
Platan er til sölu á vefnum Band-
camp.com og gengur salan afar vel.
„Í dag er gefið út gríðarlegt magn af
tónlist, það kemur eitthvað nýtt út á
hverjum degi á svona síðu eins og
Bandcamp. En við vorum á toppnum
þar undir „ambient“ tegundinni
fimm daga í röð sem telst nokkuð
gott og ég er mjög ánægður með það.
Við erum stoltir af þessari plötu og
ætlum að halda áfram að gera eitt-
hvað saman. Þetta tókst vel til. Þótt
maður sé vinur margra þá nær mað-
ur kannski ekki að semja tónlist með
öllum. Þetta þarf að smella dálítið
saman og okkar árur ná vel saman.“
Frá Patreksfirði til Devon
Tónlistarmennirnir tveir unnu að
plötunni hvor í sínu lagi, annar á
Íslandi en hinn á Englandi. „Það sem
ég gerði var mestmegnis tekið upp á
Patreksfirði. Ég var fyrir vestan fyrr
á árinu og tók alveg gríðarlega mikið
efni upp þá en vann það líka hérna í
Reykjavík. Norris var að taka upp í
sínu heimastúdíói sem er í Devon-
sýslu, sunnarlega á Englandi,“ segir
Árni og bætir við að þeir vinni til
skiptis, annar byrji að semja, sendi
svo tónlistina með tölvupósti og hinn
haldi síðan áfram að vinna með tón-
listina. „Í dag er það svo auðvelt af
því við erum að nota sömu forritin.
Norris gerði grunnana að lögunum
og þegar ég var fyrir vestan vann ég
áfram með þá og sendi svo á hann.
Hann kemur svo með athugasemdir
um hvað mætti fara betur og svo fer
ég yfir það hér í Reykjavík og útkom-
an er bara platan.“
Allt á kafi í snjó
Titillinn Desolate Snow Roads er
til kominn vegna innblástursins sem
umhverfið á Vestfjörðum veitti þeim
Árna og Norris við gerð plötunnar.
„Þegar ég er þarna fyrir vestan þá er
rosalega mikill snjór og ég var að
senda honum myndir af umhverfinu
sem var mótað af því hvað það var
mikill snjór. Honum fannst það rosa
magnað. Andrúmsloftið á plötunni
skapaðist eiginlega í kringum það að
hann var að dásama íslensku veðrátt-
una,“ segir Árni og bætir við að þótt
Norris sé Breti þá hafi hann ekki
mikla reynslu af því að allt sé svona á
kafi í snjó. „Við unnum titlana út frá
þessu. Sum lög minna mann á vetur
frekar en sumar og þetta er frekar
vetrarplata. Ola Grunholz, sem hann-
aði umslagið og sá um grafíkina,
negldi alveg stemmninguna.“
„Setja þetta á fóninn og
njóta þess að vera til“
- Raftónlistarmennirnir Árni Grétar Jóhannesson og Lee Norris gefa út plötu
Raftónlist „Ég hef alltaf litið upp til hans þannig að fyrir mér er þetta mjög
stórt skref,“ segir Árni Grétar um tónlistarmanninn og vininn Lee Norris.
Tónlistarmaður Bretinn Lee Norris
var heillaður af íslenskri veðráttu.
Hvolpur Jeffs Koons, sem stendur
fyrir utan Guggenheim-safnið í
Bilbao, er illa á sig kominn og hafa
stjórnendur safnsins hafið hópfjár-
mögnun upp á hundrað þúsund evr-
ur til að lagfæra hann, jafnvirði um
15 milljóna króna.
Hvolpurinn er 12,4 metrar á hæð
og þakinn um 38.000 blómum af
ýmsum gerðum. Fyrirmyndin er
hundur af tegundinni highland
terrier og er blómunum í skúlpt-
úrnum skipt út tvisvar á ári. Hann
hefur nú staðið fyrir utan safnið í
24 ár og er vökvunarkerfið farið að
gefa sig og þarf einnig að skipta
um hluta af stálgrindinni sem held-
ur verkinu uppi.
Hópfjármögnunin er sú fyrsta í
sögu safnsins og segir kynningar-
stjóri þess að skúlptúrinn sé dáður
og vinsælt myndefni og ein af tákn-
myndum borgarinnar. Því sé fólki
nú gefið tækifæri á því að varðveita
hann með frjálsum fjárframlögum.
„Hvolpurinn“ var fyrst sýndur í
Þýskalandi árið 1992 og endur-
reistur við höfnina í Sydney í Ástr-
alíu þremur árum síðar. Guggen-
heim-stofnunin keypti hann árið
1997 fyrir safnið í Bilbao sem þá
var nýtt og hannað af Frank Gehry,
eins og frægt er. Um tíu þúsund
evrur hafa nú safnast af þeim
hundrað þúsund sem stefnan er
sett á með hópfjármögnuninni,
samkvæmt frétt dagblaðsins The
Guardian.
Þekktur Skúlptúr Koons stendur fyrir
framan Guggenheim í Bilbao.
100.000 evrum
safnað fyrir Hvolp
Ljósmynd/Wikimedia Commons/Lanoel
Jazzklúbburinn Múlinn stendur fyrir tónleikum í kvöld
kl. 20 í Flóa í Hörpu. Á þeim kemur fram píanóleikarinn
Agnar Már Magnússon með tríói sínu og fagnar auk þess
20 ára afmæli fyrstu plötu sinnar með útgáfu á nótna-
bók. Agnar Már hefur gefið út margar plötur á ferli sín-
um og eru þeim öllum gerð skil í bókinni. Á tónleikunum
verður einkum leikin tónlist af fyrstu plötu Agnars Más,
01, frá árinu 2001. Ásamt Agnari koma fram bassaleik-
arinn Nicolas Moreaux og Matthías MD Hemstock sem
leikur á trommur.
Tríó Agnars Más leikur á Múlanum
Agnar Már
Magnússon