Morgunblaðið - 09.07.2021, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.07.2021, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2021 Viðgerð Frystitogarinn Höfrungur III var smíðaður í Kristiansund í Noregi árið 1988 og hefur því án efa verið kominn tími á logsuðuviðgerðir en togarinn gerir út frá Akraneshöfn. Eggert Markmiðum Par- ísarsamningsins um loftslagsmál verður ekki náð hér frekar en annars staðar án þess að allir kraftar sam- félagsins séu virkjaðir. Leiðin að markmið- unum er mælanleg. Þar eru alþjóðlega vottaðar einingar, kol- efniseiningar, lagðar til grundvallar. Kolefniseining er fjárhagsleg eining sem sannar að losun á einu tonni koldíoxíðsígilda út í andrúmsloftið hafi sparast mið- að við óbreytt ástand. Með skráðum kaupum á vottaðri einingu getur kaupandinn sýnt að hann hafi kol- efnisjafnað eitt tonn af eigin losun gróðurhúsalofts. Vissulega ber að virða sjónarmið þeirra sem hafna því að framlag mannsins skipti nokkru varðandi hlýnun jarðar, þar séu öflugir nátt- úrukraftar að verki sem okkur beri að lúta hvort sem okkur líki betur eða verr. Við vitum ekki meira um það sem gerist í lofthjúpnum en iðr- um jarðar. Hvað sem öðru líður er okkur skylt að standa við alþjóðasamninga gegn hlýnun jarðar. Kolefnisjöfnun landbúnaðar Í umræðuskjalinu Ræktum Ís- land! um landbúnaðarstefnu á 21. öldinni eru færð rök fyrir miðlægu hlutverki landbúnaðar ætli Íslend- ingar að ná settu markmiði í lofts- lagsmálum. Þar eru nefnd fimm skref sem stíga þarf í loftslags- málum innan ramma landbúnaðar- stefnu til að koma á kerfi um ábyrga kolefnisjöfnun: Í fyrsta lagi verði að skilgreina hlutverk og ábyrgð að- ila. Tilgangur og tæki- færi sem felast í kolefnisbindingu eða jöfnun séu skýr í hug- um bænda og annarra hagaðila. Reglur um þetta séu settar af stjórnvöldum. Í öðru lagi noti ríkið kolefnisgjöld til að kol- efnisjafna og skýra umfang þess sem á að binda. Í þriðja lagi lúti kol- efniseiningar til bindingar vottun sem njóti alþjóðlegrar viðurkenn- ingar. Heimasmíðuð vottun dugi ekki. Skráð sé losun með vísan til vottaðra eininga. Einingar séu af- skráðar við sölu til jöfnunar. Í fjórða lagi njóti opinber mark- aður fyrir alþjóðlega vottaðar kol- efniseiningar lögverndar. Íslenskir aðilar sem nú kaupi vottaðar ein- ingar erlendis séu hvattir til við- skipta við innlenda seljendur al- þjóðlega vottaðra eininga. Í fimmta lagi geti kaupendur bor- ið saman mismunandi tegundir ein- inga ýmist til jöfnunar eða bind- ingar miðað við skyldur þeirra. Yfirlýsingar fyrirtækja um kolefnis- jöfnun og bindingu eða samdrátt séu reistar á samræmdum mæl- ingum og leikreglum. Í skjalinu segir að með öflugu hvatakerfi til kolefnisbindingar verði íslenskir bændur án vafa virk- ir þátttakendur á mikilvægum nýj- um markaði sem hefði ekki aðeins áhrif til kolefnisjöfnunar heldur stuðlaði að bættri landnýtingu og auknum lífrænum áherslum í anda hringrásarhagkerfisins. Alþjóðaviðskipti aukast Í skýrslu sem Umhverfisráðgjöf Íslands ehf. (Environice) vann fyrir loftslagsráð um innviði kolefnisjöfn- unar á Íslandi og birt var í janúar 2020 er meðal annars rætt um þann vanda sem leiðir af skorti á al- þjóðlegri vottun á þessu sviði hér. Í lokaorðum skýrslunnar segir að Al- þjóðasamtök seljenda kolefnisvott- orða (International Carbon Reduct- ion and Offset Alliance (ICROA)) hafi byggt upp alþjóðlegt kerfi sem sé líklega áreiðanlegasti grunnurinn undir ábyrg viðskipti með kolefnis- einingar. Vottun samkvæmt ein- hverjum þeirra staðla sem ICROA viðurkenni ætti að vera besta fáan- lega tryggingin fyrir trúverðugleika kolefniseininga og verkefnanna sem þær endurspegla. Því ættu aðilar sem vilji stunda ábyrg viðskipti með kolefniseiningar að nýta sér þessa staðla. Þetta eigi jafnt við um selj- endur sem kaupendur eininga. Selj- endur kolefniseininga sem vilja tryggja trúverðugleika eininganna með eigin yfirlýsingum eða uppá- skrift heimatilbúinna vottunarkerfa eiga ekkert erindi á kolefnismark- aðinn. Alþjóðleg vottun kolefniseining- anna er þannig grunnforsenda við- skipta með þær en líkur á að þau aukist og einingarnar hækki í verði eru miklar. Nú selst eining innan viðskiptakerfis ESB, ETS-kerfisins, á 59 dollara tonnið en OECD í París spáir að undir 2030 þurfi verðið að hækka í 147 dollara (18.300 kr.) tonnið eigi að ná markmiðum Par- ísarsamningsins um kolefnis- hlutleysi á jörðinni árið 2050. Fyrr í þessari viku komu fulltrú- ar 43 stærstu fjárfesta heims, lífeyrissjóða og tryggingafélaga, í samtökunum The Net Zero Asset Owner Alliance, sem fara með um sex þúsund milljarða dollara, sér saman um nauðsyn þess að til yrði samræmt heimsmarkaðsverð á kol- efniseiningu, lágmark og hámark, til að skapa fjárfestum nauðsynlegt öryggi í stað þess frumskógar sem nú einkennir þennan vaxandi mark- að. Í skýrslu Alþjóðabankans frá í maí segir að nú séu notuð 64 verð- skráningarkerfi á kolefniseiningar sem nái þó aðeins til um 21% af út- blæstri gróðurhúsalofttegunda. Ófullnægjandi vottun Þróist alþjóðaviðskipti með kol- efniseiningar á þann veg sem að framan er lýst ber að standa þannig að málum að innlendir aðilar geti orðið þar virkir þátttakendur. Hér á landi er nú mun meiri hvatning til að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda en til að binda kolefni. Það má meðal annars rekja til þess að kolefniseiningar sem boðnar eru til sölu hér njóta í engu tilviki al- þjóðlegrar vottunar. Landgræðslan sagði frá því í vik- unni að Sameinuðu þjóðirnar ætl- uðu fram til ársins 2030 að fylgjast með endurheimt votlendis á tveim- ur jörðum á sunnanverðu Snæfells- nesi, í því fælist mikilvæg viður- kenning. Ávinningurinn væri til dæmis að „sporna gegn þeirri miklu kolefnislosun sem á sér stað úr framræstu landi“. Þetta er vissu- lega mikils virði. Á hinn bóginn er ekki unnt að mæla árangurinn nema stuðst sé við alþjóðlega vott- aðar einingar. Loftslagsráð og Staðlaráð Íslands hafa komið á fót vinnustofu til að fjalla um ábyrga kolefnisjöfnun og segir í fundargerð hennar á vefsíðu loftslagsráðs frá 3. maí 2021 að kaupendur kolefniseininga geti keypt vottaðar einingar erlendis frá en sölumarkaður fyrir þær sé ekki til hér á landi þar sem vottun fáist enn sem komið er ekki á íslenskar einingar. Í því felist að fjármunir sem nýttir séu til kaupa á kolefnis- einingum til jöfnunar sbr. 5. gr. c. laga um loftslagsmál, renni úr landi. Þá segir: „Markmið Íslands um 55% samdrátt losunar fyrir árið 2030 og kolefnishlutleysi fyrir árið 2040 eru því studd með verkefnum sem unnin eru erlendis og við- skiptatækifæri á þessum vettvangi eru ekki nýtt.“ Full ástæða er til að staldra við það sem hér segir og spyrja hvað sé í boði hjá innlendum aðilum sem kynna jarðræktarverkefni til kol- efnisjöfnunar. Þá kröfu verður að gera að einingar sem þar er um að ræða hafi meira gildi en felst í full- yrðingum þeirra sem að verkefnum standa. Slík vottun er í raun einskis virði í stóra samhenginu. Könnun sem gerð var í apríl 2021 fyrir framkvæmdastjórn ESB á mati Evrópubúa á brýnustu við- fangsefnum samtímans sýnir að 93% töldu loftslagsbreytingarnar al- varlegt vandamál, 78% sögðu vand- ann mjög alvarlegan. Þetta viðhorf hefur áhrif í kosn- ingum, kallar á markvissar aðgerðir stjórnmálamanna gegn vandanum. Hér hefur verið vikið að mikilvægu tæki til að takast á við hann. Tafar- laust ber að smíða það fyrir okkur Íslendinga og kynna alþjóðlega vottaðar, innlendar kolefniseiningar til sögunnar. Eftir Björn Bjarnason »Kolefniseiningar sem boðnar eru til sölu hér á landi njóta í engu tilviki alþjóðlegrar vottunar. Þetta dregur úr áhuga á bindingu eininganna. Björn Bjarnason Höfundur er fyrrv. ráðherra. Um alþjóðlega vottun kolefniseininga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.