Fiskifréttir - 18.12.1987, Page 8
8
föstudagur 18. desember
Þann 16. júní 1943 gerði þýsk
orrustuflugvél skotárás á strand-
ferðaskipið Súðina. Tveir menn
létust og fimm særðust mikið en
einn þeirra var sautján ára gamall
þjónn á Súðinni: Guðmundur Val-
ur Guðmundsson. Hann hlaut 143
sár í árásinni öll vinstra megin.
Guðmundur féllst á að segja Fiski-
fréttum frá árásinni á Súðina.
„Við vorum á grunnleiðinni á
milli Flateyjar á Skjálfanda og
lands á leiðinni til Akureyrar. Súð-
in var strandferðaskip sem fór
hringinn í kringum landið og í
þetta skipti fórum við austur fyrir
landið frá Reykjavík. Ég man að
þegar við vorum að fara frá Þórs-
höfn sé ég að Esjan er að koma
þangað en í því heyri ég í flugvél.
Þetta var eftir hádegi, nánar tiltek-
ið klukkan 13.40. Ég og kokkur-
inn, Olafur Tryggvason, vorum að
ganga frá í matsal og eldhúsi en við
gengum út á dekk og Olafur hélt á
stórri vatnskönnu í hendinni sem í
var rakvatn.
Siglingar á stríðsárunum Texti: Halldóra Sigurdórsdóttir
Strandferðaskipið Súðin sem þýsk orrustuflugvél réðist á Skjálfandaflóa 16. júní 1943. Tveir létust og margir særðust (Ljósm. Ólafur Magnússon;
Ljósmyndasafnið).
..Hlaut 143 sár í árásinni
segir Guðmundur Valur Guðmundsson, sem varþjónn á Súðinni, þegar
----------------------- þýsk orrustuflugvél gerði atíögu
að skipinu
„Þá sá ég mikinn blossa“
Þegar við komum upp á dekk
heyri ég vélagný, ég leit upp og
horfði beint í sólina en ég vissi að
þetta var flugvél sem var að koma
yfir. Ólafur, sem stóð við hliðina á
mér, lyfti upp í gamni vatnskönn-
unni sem hann hélt á og mundar
hana eins og hann ætli að skjóta
með henni hlæjandi. Síðan heldur
Ólafur áfram af dekkinu og út á
brúna sem lá yfir lestinni. Hann
var kominn út á brúna miðja en ég
stóð enn á dekkinu. Þá skyndilega
sé ég mikinn blossa fyrir framan
mig, ég fann fyrir gífurlegu höggi á
brjóstið vinstra meginn, snérist í
hálfhring, ég fékk annað högg en
datt síðan niður og man ekkert fyrr
en ég er tekinn upp og farið með
mig niður á 1. pláss. Ég man að
tvær af þernunum stóðu og stumr-
uðu yfir mér. Ég fann ekkert til og
var alveg dofinn. Ég var með 143
skotsár á líkamanum og mikið slas-
aður en ég vissi ekki af því fyrr en
seinna.
Tveir breskir togarar voru ekki
langt frá okkur og kom togarinn
Lamesadale H 548 frá Hull fyrst en
hinn War Grey H einnig frá Hull
skömmu síðar. Við sem vorum
særðir fórum með Lamesadale til
næstu hafnar sem var Húsavík.
Hinir fóru yfir í War Grey því Súð-
in var farin að halla geysilega mik-
ið. Ég vissi alla tíð af mér í togaran-
um, ég var allur dofinn og gat
hvorki hreyft mig né talað en ég
skynjaði allt. Kokkurinn á togar-
anum var lærður hjúkrunarmaður
en hann stóð yfir mér og hellti
stöðugt í mig viskí - sjálfsagt til að
deyfa mig enn frekar. Skipverjar
voru að spyrja hann af og til
hvernig ég væri og hann sagði að
það væri gersamlega vonlaust með
mig - ég væri að deyja. Þrátt fyrir
þetta var ég aldrei hræddur - ekki
einu sinni þegar þeir voru að spá
mér dauða þarna í togaranum.
Það næsta sem ég man var að ég
vakna í miðri aðgerð á skurðar-
borðinu á Húsavík, vegna sárs-
Ör á handlegg Guðmundar eftir
sár sem hann fékk í árásinni.
aukans. Ég hafði misst mikið blóð
og var þess vegna máttlaus en
einnig hafði önnur hljóðhimnan
sprungið. Mér er sagt að Súðin hafi
komið um klukkan 17.00 til Húsa-
víkur.
Ég lá síðan á sjúkrahúsinu á
Húsavík í nokkurn tíma en Björn
Jósepsson var læknir þar. Ég var
síðan fluttur á Landakotsspítalann
því þó að spítalinn á Húsavík hafi
verið góður var hann fullkomnari
hér í Reykjavík."
Kúlnahríðin dynur á
skipinu
Um árásina á Súðina sumarið
1943 stendur eftirfarandi í bók
Gunnars M. Magnúss „Virkið í
norðri" en þessi kafli var tekinn
beint upp úr leiðarbók Súðarinn-
ar:
„Klukkan 13.40 heyrði 3. stýri-
maður, er átti vakt á stjórnpalli, í
flugvél og í sama mund sá hann
hvar flugvél kom beint undan sól
(skipið hafði stefnu í vestur) og
lækkaði flugið. Hann fór þegar að
talpípu þeirri, sem liggur niður til
skipstjóra (Ingvar Kjaran). til þess
að tilkynna honum um flugvélina.
í sama mund og hann tekur flaut-
una úr talrörinu, kom skot í vinstri
öxl hans og féll hann flatur á
stjórnpallinn. Á sömu stundu
fleygði flugvélin sprengjum og lét
jafnframt kúlnahríð dynja á skip-